Dagur - 20.08.1999, Page 8

Dagur - 20.08.1999, Page 8
24- FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999 ro^ir Kvennatónlist í Sigurjónssafni Á næstu þriðjudagstón- leikum, þann 24. ágúst, í Listasafni Sigurjóns Ölafssönar kómaþær Angeta Spohr, sópran, og Þóra Friða Sæ- mundsdóttir, píanóleik- ari, fram og flytja þá eingöngú yerk sépi: saminvoru af konumá tímaþilinu 1098 til 1998, m.a. eftirMan'u Stúart Skotadrottningu og Ann Boleyn tónskáld við hirð Hinriks áttunda. Tónleikarnir liefjast ki. 20.30. Litfr ÍJOí’ Sumartónleikar í Stykkishólmskirkju Sunnudaginn 22. ágúst verða haldnir lokatónleikar í sumartónleikaröð Stykkishólmskirkju 1999. Þá munu Camilla Söderberg, blokk- flautuleikari, og Snorri Örn Snorrason, lútu- og gitarleikari, koma fram. Camilla mun leika á blokk- flautur af ýmsum gerðum og stærðum og Snorri Örn mun leika ýmist á lútu eða gítar. Efnis- skrá tónleikanna sýnir mikla bneidd í tónlistarsögunni allt frá miðöldum til vorra tíma. Yfirleitt eru verkin stutt og sýna þau þá möguleika sem þessi hljóðfæri bjóða upp á. Tónleikarnir hefjast á sunnudaginn kl. 17 og er að- gangseyrir kr. 500.- Berjadagar í Ólafsfirdi Um helgina verður tónlistarhátíðin Berjadagar haldin í fyrsta sinn í Ólafsfirði. Hátíðin verður sett í Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 21. ágúst kl. 16 með opnun sýningar á málverkum eftir Ólöfu Þorláks- dóttur, „Grímu“, og kammertónleikum. Sunndaginn 22. ágúst kl. 14 verða flutt einleiksverk fyrir gítar og söngrödd í Kvíabekkjarkirkju og um kvöldið kl. 20:30 hefst lokahátíðin „Bláber og rjómi" í félagsheimil- inu Tjarnar- borg. Samtals níu þekktir ís- lenskir hljóð- færarleikarar ogÆöngvarar koma fram á hátíðinni. ■ HVflfl ER Á SEYfll? Umdæmisþing Kiwanis 29. umdæmisþing Kiwanisumdæmisins Island-Færeyjar verður haldið í Iþrótta- höllinni á Akureyri nú um helgina. Árlegt umdæmisþing Kiwanisfólks er aðal vettvangur hreyfíngarinnar til stefnumótunar, innbyrðis kynna Kiwan- isfólks og maka þeirra, ásamt því að fara yfir störf líðandi starfsárs. Þingið verður sett í Akureyrarkirkju kl. 20.30 á föstdagskvöld. Það stendur svo yfir allan laugardaginn og lokahóf hefst í íþróttahöllinni kl. 19.00. Kl. 13.00 á sunnudag lýkur þinginu svo með stjórn- arskiptum. Aglow á Akureyri Aglow Akureyri, kristileg samtök kvenna, standa fyrir fyrsta Aglow- fundi eftir sumarfrí mánudagskvöldið 23. ágúst kl. 20.00. í félagsmiðstöð aldraðra, Víðilundi 22. Gestur fundarins verður Dögg Harð- ardóttir frá Húsavík. Fjölbreyttur söngur og fyrirbæna- þjónusta. Allar konur eru hjartanlega velkomnar. Kaffihlaðborð. Þátttöku- gjald kr. 350. www visir is FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR Á eftir nótt kemur dagur ...menningardagur á sunnu- daginn kemur. Menningardagur verður haldinn f Hafnarfirði 22. ágúst sem er daginn eftir menningarnóttina í Reykjavík og því ættu Hafnfirðingar og nærsveita- menn að geta átt sannkallaða menning- arhelgi. Afréttarinn í Hafnarfirði eða dagurinn sem fylgir nóttinni gefur þér möguleika á að heimsækja hin fjöl- breyttu söfn í Firðinum og einnig verð- ur Bæjarbíó með öðruvisi bíómyndir sem hæfa sögulegu og nýuppgerðu bíó- húsinu á Strandgötunni. Okeypis er inn á allar sýningar safnanna. Þá má nefna sagnagöngu, kynningu á bókum, hand- verksmenn að störfum, leikara í göml- um búningum og fornbílaklúbbinn. Sumarsýning Hafnarborgar, Iista- og menningarmiðstöðvar Hafnarfjarðar heitir „Nokkurt yfirlit yfir landslags- hefðina í íslensku málverki“. Þjóðlaga- flokkurinn Bragarbót flytur síðan ís- lensk þjóðlög með fræðilegu ívafí kl. 17 í Hafnarborg. Meðlimir Bragarbótar eru Diddi fiðla, Krístín Ólafsdóttir, KK og Ólína Þorvarðardóttir. Kvikmynda- safn Islands verður með þrjár ólíkar sýningar í Bæjarbíói: „Punktur, punkt- ur, komma, strik“ vcrður sýnd kl. 15, „Playtime“ eftir Jacques Tati klukkan 21 og klukkan 23 verður sýnd hin frá- bæra tónleikamynd „lime is on my side“, tónleikafcrð Rolling Stones. Til- valið að skella sér á miðnæturtónleika- mynd. Byggðasafn Hafnarfjarðar efnir til sagnagöngu undir leiðsögn Jónatans Garðarssonar. Farið verður af stað kl. 13 frá mótum Herjólfsgötu og Dranga- götu. Gengið um byggðina f kringum malirnar. I Smiðjunni Strandgötu 50 er leikfangasýningin Og litlu börnin leika sér og Sögu- og minjasýningin Þannig var..., þær eru opnar frá 13 -17. Forn- bílaklúbburinn verður með bíla til sýnis á planinu við Smiðjuna og börnunum gefst kostur á að keyTa rafbíla í portinu við safnið. Sívertsenshús Vesturgötu 6, elsta hús Hafnaríjarðar og hluti Byggðasafnsins, verður auðvitað opið og leikarar frá Leikfélagi Hafnarfjarðar verða við leik og störf í húsinu. Kynning á bókunum Einfalt matreiðsluvasakver íyrir heldri- manna húsfreyjur eftir Mörtu Maríu Stephensen og Uppkast til forsagna um brúðkaupssiði hér á landi eftir Eggert Ólafsson. Siggubær Kirkjuvegi 10, sýnishorn af verkamanns- og sjómannshcimili í Hafnarfirði á fyrri hluta þessrarar aldar verður einnig til sýnis og boðið er upp á hestakerruakstur á milli Siggubæjar og Sívertsenshúss frá 13-17. Sjóminjasafn Islands er í Hafnarfirði og þar verður opnuð sýning á málverkum eftir Svein Björnsson. Félagar úr Kvæðamannafélaginu Iðunni kveða hafrænar vísur og rímur kl. 14 og aldr- aðir fiskimenn sýna handbrögð við sjó- vinnu. Harmonikuleikur og leikarar í sjóklæðum og búningum fyrri tíma verða í húsinu. Þá verður Póstminja- safnið opið frá klukkan 13-17. Askriftarsíminn er800-7080 Eins og banana- lýðveldi í sam- keppnismálum - Bryndís Hlöðversdóttir í helgarviðtalinu við Lóu Aldísardóttur Keyptur til Grikklands Fluguveiði, krossgáta, matargatið, bókahillan, bíó, o.m.fl. ■ Á DAGSKRÁNNI SÝN -FÖSTUDAGUR KL. 21.00: Duflað við demanta. Breska bíómyndin duflað við demanta, eða Eleven Harr- owhouse, er frá 1974 og fær þrjár stjörnur í kvikmyndhandbók Maltins. Myndin fjallar um fremur lítils virtan demantakaupmann sem þiggur gott boð um að fá að meðhöndla ristastóran íyrsta flokks demant. En þegar dýrgripn- um er stolið er hann kúgaður til að ræna stærstu demantamiðstöð heims sem stendur við Harrowhouse 11 í Lundún- um. Sá verknaður á hins vegar eftir að hafa mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir blessaðan karlinn. I helstu hlutverkum eru Charles Grodin, Cand- ice Bergen, James Mason og John Gielgud. Leikstjóri er Aram Avakian. STÖÐ 2 - FÖSTUDAGUR KL. 22.35: Herra áreiðanlegur...? Stöð 2 sýnir vinsæla ástralska bíómynd sem byggð er á sannsögulegum atburðum. Þetta er myndin Herra áreiðanlegur, eða Mr. Reliable, frá 1996. Hér er á ferðinni hárbeitt háðsádeila um Wally Mellish sem varð frægur um alla Astralíu og víðar um heim þegar hann, ásamt kær- ustu sinni og barni hennar, stóð af sér átta daga umsátur lögreglunnar um heimili hans. Það hefði kannski ekki þótt í frásögur færandi nema fyrir þá sök að enginn skildi aðgerðir lögregl- unnar eða vissi hvað Wally hafði sér til saka unnið. 1 aðalhlutverkum eru Col- in Friels og Jaqueline McKenzie. Leik- stjóri er Nadia Tass. STÖÐ 2 - LAUGARDAG KL. 21.10 Athvarf í Fuglastræti. Athvarf í Fugla- stræti eða Island on Bird Street er áhrifarík bfómynd 1997 sem gerist í gyð- ingahverfi Varsjárhorgar á tímum seinni heimsstyijaldarinnar. Alex er ellefu ára drengur sem hýrist í litlu skoti eftir að nasistar hafa flutt ættingja hans í útrým- ingarbúðir. Á meðan hann bfður björg- unar líkt og skipbrotsmaður á eyðicyju notfærir hann sér þá þekkingu sem hann hefur úr bókinni um Robinson Krúsó og lærir að bjarga sér í þessari ömurlegu tilveru. Myndin er gerð eftir skáldævisögu Uris Orlcvs og hefur hlot- ið verðlaun á ýmsum evrópskum kvik- myndahátíðum. Með aðalhlutverk fara Jordan Kiziuk, Patrick Bergin, Jack War- den og James Bolam. Leikstjóri myndar- innar er Sören Kragh Jacobsen. SÝN - LAUGARDAGUR KL. 22.40: Steve Johnston boxar á Sýn. Hnefa- leikameistarinn í WBC-léttvigt, Steve Johnston, verður í essinu sínu á Sýn þegar hann mætir áskorandanum Ang- el Manfredy. Bardaginn fór fram fyrir fáeinum dögum í Mashantucket í Connecticut og má búast við mikilli flugeldasýningu. Steve Johnston gefur ekki þumlung eftir, enda frægur rotari sem hefur aðeins einu sinni beðið lægri hlut í keppninni um meistaratit- ilinn. Það var í júní 1998 þegar hann mætti Cesar Bazan og varð að játa sig sigraðan eftir 12 lotur. Kappinn endur- heimti hins vegar titilinn átta mánuð- um siðar þegar hann hafði Bazan und- ir í spennandi bardaga. Hvað gerir Angel Manfredy núna? Hann hefur verið á góðri siglingu undanfarið og allt getur gerst í boxinu. SÝN - SUNNUDAGUR KL. 14.55: Stórleikur í enska boltanum! Leikur dagsins á Sýn er sannkallaður stórleik- ur. Þar mætast tvö efstu lið úrvals- deildarinnar frá því í fyrra, Manchester United og Arsenal. Flestir eru á þvf að Manchester United muni tróna á toppnum og hreppa meistaratitilinn enn einu sinni á þessari leiktíð sem nú er hafin. Rætt er um að Arsenal sé eina liðið sem geti ógnað stöðu þeirra og að önnur lið muni varla blanda sér í einvígi þessara liða. Þótt Arsenaí hafi sigrað í Ieiknum um góðgerðarskjöld- inn nú á dögunum segir það okkur lít- ið um framhaldið því hið sama var uppi á teningnum í fyrra. Manchester United stóð samt sem áður uppi sem þrefaldur sigurvegari í lokin. I-I •

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.