Dagur - 03.09.1999, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999 - 21
X>^wr_
LEIKHUS
KVIKMYNDIR
TONLIST
SKEMMTANIR
Myndlist og skipulag
Þ rjársýningarverða opnaðará
Kjarvalsstöðum á morgun, tvær
á málverkum og ein í bygging-
arlist.
Hafsteinn Austmann sýnir verk í austursaln-
um sem hann hefur unnið að síðustu 15 ár,
flest eru frá þessum áratug. Þar er um að
ræða bæði olíumálverk og vatnslitamyndir.
Eiríkur Þorláksson, forstöðumaður Kjarvals-
staða segir myndir Hafsteins á sýningunni
bera þess vott að hann hafi hvergi slakað á
kröfum sínum til listsköpunar. „Hann hefur
frá upphafi verið boðberi hins óhlutbundna
myndmáls í íslenskri myndlist og er trúr
þeirri stefnu sinni. Hafsteinn hefur þróað
sitt myndmál í gegn um tíðina þannig að
ljóðræn meðhöndlun Iitbrigða skapar hon-
um sérstöðu og þau einkenni eru sterk á
sýningunni."
Málar íslenska hraimið
Norski listamaðurinn Patrick Huse er með
sýningu í vestursal Kjarvalsstaða, sem hann
kallar Rifa. Hann hef-
ur sótt mikið til Is-
Iands í listsköpun
sinni og einkum í
óblíða náttúru. Is-
lenska hraunið er
honum sérstakt yrkis-
efni. Eiríkur forstöðu-
maður lýsir sýning-
unni nánar: „Rifa birt-
ir okkur myndir sem
eru bæði heillandi og
fráhrindandi. Mynd-
irnar eru stórar og
dimmar og sýna okkur
landið rifið og tætt af
eldgosum og ótrúleg-
um mulningi mégin-
lands-flekanna. Pat-
rick gerir nefnilega
ekki nokkra tilraun til
að fegra landið eða
sveipa það einhverjum
töfraljóma og hraunið
hans er mjög ólíkt því
sem meistari Kjarval sýndi okkur í sínum
myndum. Samt er það geysilega magnað því
það sýnir okkur hið villta og óviðráðanlega í
I eðli landsins."
Patrick Huse málar myndir úr óblíðri náttúru íslands.
Borgarhluti verður til
Þriðja sýningin er helguð þeim
„úthverfum11 Reykjavíkur sem
spruttu upp á 5. og 6. áratugnum,
Vogum, Langholti, Laugarási og
Laugarnesi. „Hugmyndin er einfald-
Iega sú að setja upp sýningu með
öðrum áherslum en áður hefur ver-
ið gert,“ segir Eiríkur Þorláksson.
Það gengu í gegn um þessi hverfi
ýmsar skipulagshugmyndir. Það
stóð t.d. ekki alltaf til að samgöngu-
æðar yrðu eins og þær eru í dag.
Það getur verið fróðlegt fyrir þá sem
Hafstelnn Austmann listmálari er þekktur fyrir óhefta tjáningu eru a$ horfa á Laugardalinn að sjá
___________________myndmálsins.__________ hvaða hugmyndir menn gerðu sér í
Ein mynda Patricks Huse á sýningunni.
eina tíð og þarna er margt mjög forvitnilegt
fyrir áhugamenn um skipulag.
I þessu samhengi verða líka kynntir ýmsir
gullmolar í arkítektúr á þessu svæði sem
menn vita kannski ekki af en eru samt sem
áður merkileg í okkar byggingarsögu."
Mín aðferð til að vera sýnileg
Anna Richardsdóttir
dansari hefurþrijið í
göngugötunni áAkur-
eyri á hverjumföstu-
degiíheilt ár. Með
þremurundantekning-
um þó, en þá varhún er-
lendis. Hún dansarþar
í síðasta skiptið í dag
klukkan 16.30.
„í tilefni af því að þetta er í síð-
asta skiptið sem ég þríf göngugöt-
una ætla ég að bjóða öllum þeim
sem áhuga hafa, körlum jafnt
sem konum að koma og aðstoða
mig. Fólk á ekkert að vera feimið
að koma með uppáhalds þrifá-
haldið sitt með sér. Tusku í vasan-
um eða sóp undir hendinni. Allir
sem vilja geta verið með. Konan í
Brekkunni sem hefur alltaf mætt
arfólk sem spilar undir
spunadansinn. Anna segir að
hver sem er geti mætt með
hljóðfæri með sér og tekið
þátt, þar sem að þetta sé
spuni. Hún segir að alltaf
hafi talsvert af fólki mætt til
þess að horfa á sig spinna.
„Það er einhver tjáning í
þessu, einhver kraftur sem
skilar sér til fólksins. Mér
finnst mikilvægt að fólk hafi
mismunandi skoðun á
þessu. Það er rætt um þetta.
Mér fannst markmiðið með
dansinum nást alveg full-
komnlega."
„Þessi dansröð gengur útá að ég þrífí þar sem
ég er stödd á föstudegi klukkan fímm. I dag
ætla ég að hafa þetta með sérstöku sniði, “
segirAnna Richardsdóttir spunadansari.
til þess að horfa á mig getur kom-
ið og þurrkað burtu ryk með
mér,“ segir Anna.
I göngugötunni verður tónlist-
Hreingemingar
ganga nærri mér
„Eg vildi ná til þeirra sem
ekld fara á auglýstar sýning-
ar. Það er einhver eh'ta eða
listagengi sem fer að sjá allt.
Eg vildi dansa fýrir alla hina
sem geta valið úti á götu
hvort þeir sjá þetta eða ekki.
Það er einhver pólitík eða
heimspeki í þessu. Það er eitt-
hvað kvenlægt við þetta.
Þetta er skúringakona en hrein-
gemingar hverju nafni sem þær
nefnast ganga mjög nærri mér
persónulega. Eg fer oftast úr
sloppnum og það er tákn um það
hversu nærri mér þetta gengur.
Ég er komin inn að húð en væri
komin inn að kjöti ef ég gæti.
Þannig fer ég oft að einhveijum
mörkum. Þetta er leikur að frelsi
og mörkum, hvenær fer ég yfír
þessi mörk.“
Anna er menntuð í spunadansi
frá Þýskalandi og hefur kennt
spunadans í grunnskólum,
menntaskólum, háskólum og víð-
ar. Hún hefur þrifið í nokkrum
borgum Evrópu og segir að ekki
veiti af að gera meira af þ\ í. Hún
var í Reykjavík á menningamótt
höfuðborgarinnar og segir alveg
vera þörf á því að hún fari aftur
suður og þrífi. „Þetta er minn
miðill til þess að tjá mig. Það er
mikilvægt fyrir listakonu að vera
sýnileg. Það þýðir ekkert að vera
Iistakona og paufast svo eitthvað
inní einhverju stúdíói og sýna
einu sinni á ári. Stundum langar
mig til þess að vera meira sýnileg
en þetta er mfn leið til þess.“
-PJESTA
■UMHELGINA
Þorvaldur á Sjónþmgi
Listamaðurinn fjölhæfi Þor-
valdur Þorsteinsson (mynd-
listarmaður og rithöfundur)
verður spurður spjörunum
úr á Sjónþinginu í Gerðu-
bergi á morgun kl. 13.30.
Þorvaldur nam myndlist á
Akureyri, í Reykjavík og
Hollandi þar sem hann lauk
prófi 1989. Síðan hefur
hann haldið á þriðja tug
einkasýninga, tekið þátt í
fjölda samsýninga, samið
fjölmörg leikrit og þætti fyrir
sjónvarp og útvarp, skrifað
hátt í tug sviðsverka og
nokkrar bækur. Er þetta dá-
góður afrakstur á ekki lengri
tíma. Sigmundur Ernir Rún-
arsson stjórnar Sjónþinginu
á morgun en spyrlar verða
Þórhildur Þorleifsdóttir og
Jón Proppé. Á sama tíma
verður opnuð sýning á verk-
urn eftir Þorvald í Gerðu-
bergi og stendur hún til 17.
október en sýningin í Galler-
íi Sævars Karls stendur til
24. september. Aðgangur að
sýningunni er ókeypis en á
Sjónþingið kostar 500 kr.
Þorvaldur Þorsteinsson.
Textílfélagió
aldarfjórðimgsgamalt
I tilefni af 25 ára afmæli
Textílfélagsins standa með-
limir þess fyrir viðamikilli
sýningu í öllum sölum Gerð-
arsafns í Kópavogi sem verð-
ur opnuð á morgun kl. 15.
Félagið var stofnað árið
1974 af 11 konum í því
augnamiði að kynna list-
greinina og efla hag iðkenda
með samheldninni. Félaga-
talan hefur vaxið því nú eru
félagsmenn fimmtíu og taka
29 þeirra þátt í afmælissýn-
ingunni. Einnig hafa verið
gefin út kynningarkort með
myndum af öllum Iistaverk-
um sýningarinnar og er
hægt að skoða þau á korta-
stöndum víða um borgina, á
kaffihúsum og í verslunum.
Sýningin stendur til 19.
september.
V__________________________)