Dagur - 03.09.1999, Side 9

Dagur - 03.09.1999, Side 9
FÖSTUDÁGVR 3. SEPTEMBKR 1999 - 25 Ð^ur. LÍFIÐ t LANDINU Tvö áreru liðinfrá dauda Díönii, dáð- ustu prinsessu 20. aldar. Fjölmargar bækurhafa verið skrifaðarum prinsessuna og í bók sem væntanleg erá markað seinna í mánuðinum ernýju Ijósi varpað á síðasta árið í lífi hennar. Bókin heitir Diana in Search of Herself (Díana í leit að sjálfri sér) og er eftir Sally Bedell Smith sem áður hefur skrifað róm- aða ævisögu hinnar litríku Pamelu Harrim- an, sem var um tíma tengdadóttir Winston Churchill og síðar sendiherra Bandaríkj- anna í París. Við samningu bókarinnar um Díönu ræddi Smith við um 150 einstak- linga sem kynni höfðu af prinsessunni, þar á meðal nána vini, starfsmenn og ráðgjafa hennar. Margir í þeim hópi ræddu nú í fyrsta sinn opinberlega um samskipti sín við Díönu. „Þetta er dapurlegasta verkefni sem ég hef unnið að,“ segir Smith um samningu bókar sinnar. „Díana hafði mikla þörf fyrir hjálp en vegna stöðu sinnar fékk hún hana aldrei.“ Smith segir Díönu hafa vera haldna persónuleikatruflunum sem lýstu sér í hvatvísi, höfnunarkennd og öryggis- leysi. Díana var semsagt haldin mörgum þeim algengu veikleikum sem fylgja því að vera manneskja. Smith segir Karl prins hvorki hafa haft næga þekkingu né rétt skapferli til að geta hjálpað Díönu. Allt frá því Qölmiðlar komust á snoður um samband Díönu og Karls Bretaprins var hún hundelt af blaðamönnum en í bók Smith segir frá því að Díana hafi lært þá list að fela sig í Ijöldanum og margoft farið ferða sinn óáreitt. Kunningjakona hennar æfði hana í því að þykjast vera kona sem væri afar lík prinsessunni. Blekkingin fólst í því að taka þátt í hversdagslegu athæfi sem fólk ímyndaði sér ekki að prinsessa myndi gera, til dæmis að veifa leigubíl eða taka peninga út úr hraðbanka. Ef einhver starði á Díönu á þeim stundum brosti hún og veifaði eins og hún væri að gefa til kynna að viðkomandi hefði farið manna- villt. Díana var ákaflega viðkvæm fyrir öllu sem um hana var skrifað og til að forða henni frá sársauka tók Paul Burrell, þjónn hennar, að fela svæsnustu skrifin fyrir henni. „Hún sendi mér ætíð einkennilegt augnaráð þegar viss blöð voru ekki meðal þeirra sem ég rétti henni á morgnana," sagði hann. „Hún spurði eftir þeim en ég Iét hana ekki fá þau.“ Stóra ástin I bókinni er varpað nýju ljósi á ástarlíf Díönu. Þar er fullyrt að stóra ástin í Iífi Díönu eftir skilnað hennar \4ð Karl hafi verið pakistanskur hjartaskurðlæknir, Hasnat Khan, sem hún hitti árið 1995 þeg- ar hún heimsótti einn sjúklinga hans á sjúkrahúsi. Þau hófu ástarsamband sem fór mjög Ieynt enda var Khan fjölmiðlafæl- inn. Díana brá sér í dulargervi, setti upp hárkollur og sólgleraugu, þegar hún fór með lækninum út í jazzklúbba og á veit- ingastaði. En oftast dvöldust þau í Kens- ington höll. Díana leit á Khan sem akkeri í lífi sínu. „Hún var í tilfinningalegu jafn- vægi þegar hún var með honum," sagði vinur Díönu. „Eg fann frið. Hann hefur gefið mér allt sem ég þarfnast," sagði Díana við vinkonu sína. Díana þótti oft stjórnsöm í samskiptum sínum en sú stjórnsemi spratt af ótta við að verða hafnað. Hún reyndist nokkuð ráðrík í samskiptum þeirra Khan og bað til dæmis heimsækja fjölskyldu Khan og sannfæra þau um að hún væri þess verð að verða eig- inkona hans. Þegar hún sneri aftur til London nokkrum dögum síðar sagði hún vinum sínum að fundurinn hefði verið ánægjulegur og hjónaband þeirra væri nú raunhæfur möguleiki. Khan \issi ekki af ferð hennar fyrr en henni var lokið og fannst Díana hafa gengið of langt. Tímarit- ið Hello hafði síðan eftir föður Khan að hjónaband væri ólíldegt. Slúðurblöð komust á snoður um sam- band Díönu og Khan og tóku að velta sér upp úr sambandi þeirra. Khan treysti sér ekki til að búa við sífelldan fréttaflutning af sambandinu og sleit því eftir að það hafði staðið í tæp tvö ár. Það sem fyllti mælin var ffétt í Sunday Mirror þar sem sagt var að Díana og Khan væru leynilega trúlofuð eft- ir óvænta ferð Díönu til Pakistan. Khan sakaði Díönu um að hafa lekið fréttinni en hún neitaði þ\ í gr ítandi. Díana var niður- brotin þegar ástarsambandi þeirra lauk. „Eg held að hann hafi elskað hana og ég held að hann hafi verið stóra ástin í lífi hennar eftir að hún skildi við Karl,“ sagði einn vina Díönu. Díana. Hún þjáðist af einmanakennd, öryggisleysi og skorti á sjálfstrausti. „Það undraverða er að henni skyldi takast að koma jafn miklu í verk og hún gerði,“ segir Sally Bedell Smith höfundur nýrrar bókar um Díönu. —i Hasnat Khan var stóra ástin í lífi Díönu eftir skilnað þeirra Karis. Hann var fjölmiðlafælinn og lagði ríka áherslu á að halda sambandi þeirra Diönu leyndu. „Hann hefur gefið mér allt sem ég þarfnast, “ sagði Díana við vinkonu sína. Christian Bemard að útvega Khan vinnu í Suður Afríku. Hún sagði Bemard að hún vildi giftast Khan, flytjast með honum til Suður Afríku og ,, ,, , _ eignast með honum dætur. I Diana tok upp samband við hmn treggafaða glaumgosa Dodi mafmánuði 1997 fór Díana f Fayed til að gera Hasnat Khan afbiyðisaman. óyænta (erð ti, Pakistan til að Dodi var cLegrastytting Daginn eftir að sambandinu lauk hélt Díana, fullkomlega miður sín, £ frí til Suð- ur Frakklands ásamt sonum sínum þar sem þau dvöldust á heimili hins alræmda AI Fayed. Þar hitti Díana son Fayeds, Dodi, og fór að sjást í fylgd hans. Að sögn vin- konu Díönu tók hún upp samband við Dodi í því skyni að gera Khan afbrýðisam- an. Dodi, sem var tilfinningalega van- þroska og enginn gáfumaður, mátti ekki sjá af Díönu, hlóð á hana gjöfum og veitti henni alla athygli sína. Fjölmiðlar komust fljótlega á snoðir um samband þeirra sem Díana gerði enga tilraun til að fela, líldega til að vekja viðbrögð hjá Khan. Þótt Díana segði vinum sínum að hún hefði aldrei ver- ið hamingjusamari efuðust margir vina hennar um að tilfinningar hennar til Dodi ristu djúpt. Hún ákvað þó að eyða með honum rómantískri helgi í París á síðustu dögum ágústmánaðar. Það var Dodi sem gerði alls kyns ráðstafanir til að skýla prinsessunni frá íjölmiðlamönnum, meðal annars með því að breyta áætlun þeirra og ferðast með öðrum bíl og bflstjóra en ráð- gert hafði verið. Að sögn Smith var það þörf Dodi fyrir að ofvemda prinsessuna sem innsigldi örlög þeirra. Þau Iétust í hörmulegu bílslysi 31. ágúst. Skömmu eftir lát þeirra sagði faðir Dodis, AI Fayed, að Díana og Dodi hefðu ætlað að gift- ast. Díana hafði hins veg- ar hvorki rætt slíkar áætl- anir við nána \'ini eða fjölskyldu og þótt hún ætti til að halda ýmsu í einkalífi sínu Ieyndu þá er ástæða til að ætla að hún hefði rætt málið við einhverja nána sér og þá sérstaklega syni sína. Að sögn vina hennar hélt hún engu leyndu fyrir Vilhjálmi syni sínum og var í stöðugu símasam- bandi við hann þegar þau voru aðskilin. Þegar Díana og Dodi létust höfðu þau þekkst í sex vikur. Á þeim tíma höfðu þau verið saman í einungis 25 daga. Þeir sem best þekktu til töldu útilokað að samband þeirra hefði leitt til hjónabands. Þremur mánuðum áður en Díana lést sagði hún blaðamanni Le Monde að hún færi ætíð eftir eðlisávísun sinni. „Hún er besti ráðgjafi minn.“ En eðlisávísun Díönu gerði henni aldrei kleift að sættast við sjálfa sig. „Díana lét stjórnast af mótsagnakenndum tilfinningum," segir Smith. „Það undra- verða er að henni skyldi takast að koma jafn miklu í verk og hún gerði.“

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.