Dagur - 30.10.1999, Síða 2

Dagur - 30.10.1999, Síða 2
T 2 — LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 FRÉTTIR Vilja stofna ópera- haskóla á Eioum Kristján B. Þórarinsson hjá Óperustúdíói Austur- lands telur ekki fráleitt að óperuháskóli á Eiðum væri deild í Listaháskóla íslands eða teugdist virt- um samtökum á þessu sviði erlendis, t.d. á Englaudi. Uppi eru hugmyndir hjá Óperustúdíói Austurlands að koma á fót óperuhá- skóla að Eiðum, sem hefði 8 til 10 starfsmenn. Hús Alþýðuskólans að Eiðum hefur staðið meira og minna tómt síðan skólinn var lagður niður. Þar verður m.a. kennd tónlistafræði, hljómsveitarstjórn, tónlistarstjórn, hljóðmyndafræði, óperusöngur og stefnt verður að því að sýna a.m.k. einu óperu á ári. Að óperuháskólanum munu koma margir gestakennarar en þess má geta að erlendis eru í dag milli 70 og 80 íslendingar við söngnám. Þó er ekki verið að einskorða sig við ís- lenska nemendur. Þessar hugmyndir voru ræddar nýlega á fundi á Egilsstöð- um með þingmönnum og sveitarstjórn- armönnum. Kristján B. Þórarinsson, hjá Óperu- stúdíói Austurlands, segir að upphaf- Iega hafi hugmyndin komið frá Keith Reed, bassasöngvara og tónlistarkenn- ara, sem taldi að þar sem Óperustúdíó- ið hefði byrjað vel væri upplagt að koma á fót á Eiðum fámennum óperu- háskóla, skóla sem kenndi söng á framhaldsstigi. Kristján telur ekki frá- leitt að þessi skóli væri deild í Listahá- skóla Islands eða tengdist virtum sam- tökum á þessu sviði erlendis, t.d. á Englandi. Starfsemi af þessu tagi yrði til þess að auka virðingu staðarins enn frekar, og væri í anda þeirra sem stofn- uðu skóla á Eiðum í upphafi og sáu þar fyrir sér öflugt menntasetur. Rekstrar- kostnaður vegna óperuháskóla á Eið- um mun liggja fyrir innan tíðar auk áætlunar um rekstur, en yrði hann hluti af Listaháskóla Islands færi hann inn á fjárlög íslenska ríkisins. Einnig hefur verið leitað liðsinnis Atvinnuþró- unarfélags Austurlands og Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA). Helga Guðmundsdóttir, forstöðu- maður fræðslu- og menningarsviðs Austur-Héraðs, hefur sagt að margar hugmyndir séu uppi um nýtingu Eiða- skóla í nánustu framtíð, og þær sé ver- ið að kanna. Auk óperuháskóla megi nefna hugmynd um handverksbraut á framhaldsskólastigi tengda ýmissi starfsemi, mennta- og menningarsetur í víðum skilningi, auk hugmynda um tímabundin rekstur eins og hótelrekst- ur og námskeiðshald. Austur-Hérað hefur skólahúsnæðið á leigu til ársins 2001, en þá þarf að taka afstöðu til þess hvort kaupréttarákvæði samnings- ins verði nýtt og heimamenn standi að uppbyggingu Eiða. — GG Erai ræða pottverjar ran klámbylgjuna og allar hennar birtingannyndir. Sérstakan áhuga hefur vak- ið samkeppni í pottinum um viðeigandi nýnefni á nektar- dansmeyjamar, þar sem orð- ið „nektardansmey" þykir nokkuð óþjált. Ýmsar til- nefningar hafa komið s.s. „súlukonur“, „klámdrottn- ingar“ o.fl. o.fl. Sú nafngift sem þó varð ótvíræður sigur- vegari var að kalla þessar konur „Úrsúlra"... Úrsúla. Halldór Asgríms- son. Umræðan um Fljótsdals- virkjun hefur harðnað nokk- uð og tala merai víðast orðið tæpitungulaust um málið. Þannig heyrðist að Halldór Ásgrímsson hafi á ferð sinni um Norðurland í vikrarai liitt flokksbróður sinn og þeir far- ið að ræða um virkjunarmál- in. Halldór lýsti því þá yfir að íýrir austan skildu menn hreinlega ekkert í fylgi græningja á Norðurlandi eystra, sem allir væm á móti virkjunran og verksmiðjum. Enda sæju Austfirðingar ekki hvemig takast mætti að „byggja upp atvmnulífið á landsbyggðinni með teskeiðum"... Enn ræða pottverjar for- mannsmál Sainiylkingarimi- ar og enn er hávær umræðan ran að fá einhvem utan þing- flokksins til að taka að sér starfið. Sem kramugt er hef- ur Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir ekki tekið jákvætt í að hún sé kandídat, en engu að síður heldur umræðan áfram. Eftir því sem fullyrt er mun hugmyndin vera sú að formannsstaðan yrði fullt launað starf og utanaðkomandi formaður myndi þá taka fiillan þátt í starfi þingílokksins eftir því sem hægt væri... Ingibjörg Sólrún Gísladótir. FRÉ T TA VIÐTALIÐ k. a Jón Albert Sigurbjömsson forrnaður lAtidssatnbands hesta- matinafélaga Fimmtugasta ársþing Lands- sambands hestamannafélaga hófst ígær. Mörg mál brenna á hestamönnum, reiðvegir, landsmótshald, menntamál, tölvu- og kynningarmál. Hestameimskan er byggðamál - Hefur eitthvað áunnist varðandi reiðveg- ina? „Já, við teljum svo vera. Við erum komnir í gott samstarf við Vegagerðina og sam- gönguráðuneytið en betur má ef duga skal. Það er alltof litlum fjármunum veitt í þenn- an málaflokk og reiðvegir ekki allsstaðar inni á skipulagsuppdráttum. Merkingar á reið- leiðum hefur verið vandamál og er að aukast vegna mjög mikiilar umferðar hestamanna." - Þið munuð taka á tnörgum stórum mál- um á þinginu, hver eru þau helstu? „Landsmótin cru sá stóri sýningargluggi sem við höfum til að kynna hestamennsku í víðum skilningi. Hingað koma um fjögur þúsund útlendingar á landsmót og við tók- um ákvörðun urn að fjölga landsmótum og halda þau annað hvert ár eftir árið 2000. Við þurfum að markaðssetja og bæta mótin. Það iiggur fyrir tillaga um að stofna hlutafélag um landsmótshald, með meirihlutaeign Landssambandsins. Þessum mótum hefur verið dreift um landið eftir ákveðnum kúnst- um. Melgerðismelar, Vindheimamelar, Gaddstaðaflatir og sfðast Reykjavík, eru þeir staðir sem eru tilbúnir í mótahald í dag en inenn hafa lent í vandræðum með þetta því félögin sjálf, lítil hestamannafélög, hafa byggt upp staðina að mestu leyti á eigin kostnað. Nú verðum við að skoða það hvort við getum ekki stofnað hlutafélag um rckst- urinn en mótssvæðin verða að sjálfsögðu að vera á höndum heimamanna. Þá verða sveit- arfélögin og ríkið að standa með okkur aö því, ef menn telja þessi inót þess virði að fá þau heim í hérað, því hingað koma margir útlendingar og það er líka ferðaþjónustunni til tekna. Við föruin líka yfir tölvumálin og ýmis innri mál. Okkur hefur ekki fjölgað sem skyldi. Það eru ekkj mörg ár síðan við vorum stærsta aðildarfélag innan FEIF, sem er al- þjóðasamtök eigenda íslenskra hesta. Nú erum við í fjórða sæti og okkur hefur ekki fjölgað. Þetta verðum við að skoða því sam- kvæmt könnunum eru upp undir 25 þúsund manns sem stunda hestamennsku og við hljótum að verða að skoða þessi mál, af hverju félögin og Landssambandiö virðast ekki vera aðlaðandi vettvangur fyrir fólk. Okkur hcfur kannski eldci tekist nægjanlega að koma til félaga okkar hvað við erum að gera. Auðvitað hefur margt áunnist. Menn eru að tala um byggðamál og ég held að hestamennskan tengi saman, meira en nokkuð annað, landsbyggðina og höfuðborg- arsvæðið." - Hestametin hafa helst verið í fréttum vegna sölu- og tollamála. Munuð þið kryfia þau mál á þinginu? Hvað ætla hestamenn að gera til að hreinsa sig, efsvo má spyrja? „Það er ekki hægt að setja alla hestamenn undir sama hatt. Ef cinhverjir einstaklingar hafa ekki staðið skil á gjöldum til þjóðfélags- ins þá verða þeir bara að hlíta því. Ég held að þetta sé ekki eins almennt og menn segja. Það eru einhver vandamál í gangi og þeir einstaklingar sem ckki hafa staðið í skilum verða bara að standa í skilum.“ - Er ekki eitt af verkefnum Landssam- bandsins að þrýsta á þá einstaklinga? „Skattayfirvöld verða að sjá um Jiaö, Við getum ekki staðið í Jiví. Hinsvegar verðum við að vera í viðræðum við stjórnvöld um að búa til ramma sem hægt er að vinna eftir. Tollamálin eru ósanngjörn. Það er dýrt að flytja hesta héðan til Evrópu. Þegar við erum búnir að borga 40-50 þúsund króna kostnað í flutningum og 18 prósent toll þá erum við bara hættir að vera samkeppnisfærir. Ég held að Jiað sé aðalmálið. En menn verða sjálfir að gjalda keisaranum það sem keisar- ans er.“ _ m L

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.