Dagur - 30.10.1999, Page 10
10 — LAUGARDAGUH 30. OKTÓBER 1999
FRÉTTIR
r
Mörg sveitarfélög
á bioilsbuximum
Frá Akureyri, en Akureyrarbær skrifadi öðrum sveitarfélögum á svæðinu
með ósk um viðræður um sameiningu.
Sameiningarviðræðiir
eiga sér stað í ölluin
kjördæmum landsins.
Um sameiningu heiila
sýsina getur verið að
ræða, s.s. Ámessýslu,
Rangárvallasýslu og
Þingeyjarsýslu og boð-
ið er til viðræðna um
sameiningu Vestur-
landskjördæmis í eitt
sveitarfélag.
Sveitarfélög á landinu eru í dag
124 talsins, og hcfur fækkað um
47 á síðustu Qórum árum. I þess-
um sveitarfélögum situr við
stjórnvölinn 756 manns, karlar
72% en konur 28%. Það sem af er
frá sveitarstjórnarkosninum 1998
hefur verið fremur hljótt um sam-
einingarmál sveitarfélaga, en nú
er að færast nokkuð líf í umræð-
urnar og greinilegt að kanna á til
þrautar víða á landinu hvar vilji til
sameiningar liggur. A (yrri hluta
kjörtímabils er ekki óeðlilegt að
sveitarstjórnarmenn gefi sér góð-
an tíma en hafi undirbúnar tillög-
ur íyrir lok kjörtímabilsins vorið
2002 um hugsanlegar breytingar
þá. Líklegt er að tala sveitarfélaga
fari þvf nokkuð niður fyrir 100 á
næstu árum.
Borgarfjörður
Mýrarsýsla, Borgarbyggð og
hrepparnir þar vestur af, s.s.
Borgarfjarðarsveit, hafa ákveðið
að tala saman og skipa formlega
nefnd til þess, en það hefur rugl-
að þessa umræðu allnokkuð að
bæjarstjórn Akraness hefur skrif-
að öllum sveitarfélögum í Vestur-
landskjördæmi hréf og farið fram
á allsherjarviðræður. Aður hafði
bæjarstjórn Akraness heðið um
viðræður milli sveitarfélaganna
sunnan Skarðsheiðar, þ.e. auk
Akraness, Innra-Akraneshrepp,
Hvalfjarðarstrandarhrepp og Skil-
mannahrepp og Lcirár- og Mela-
hrepp og áttu forsvarsmenn þess-
ara sveitarfélaga með sér fundi,
en þær viðræður strönduðu síðan.
Skorradalshreppur hefur ekki Ijáð
máls á því að fara í sameiningar-
viðræður þrátt fyrir að íhúatalan
sé aðeins 46 og þeim beri sam-
kvæmt því að sameinast öðru
sveitarfélagi samkvæmt lögum.
Norðurland vestra
I Strandasýslu hefur verið ákveð-
ið að athuga áhuga á sameiningu
Árneshrepps, Kaldrananes-
hrepps, Kirkjubólshrepps og
Hólmavíkurhrepps og hefur verið
stofnuð viðræðunefnd til þess, en
enginn fundir hafa þó verið
haldnir.
Sveitarfélög í Austur-Húna-
vatnssýslu hafa rætt saman og er
Vindhælishreppur inn í þeirri um-
ræðu, en félagsmálaráðherra hef-
ur enn ekki tekið ákvörðun um
það hvaða sveitarfélagi Vindhæl-
ishreppur á að sameinast, þótt lög
þar að lútandi segi að því eigi að
vera Iokið fyrir alllöngu sfðan
vegna þess að íbúar þar eru að-
eins 35. Á Eyjafjarðarsvæðinu
hafa sameiningarviðræður ekki
hafist, en Akureyrarbær skrifaði
öðrum sveitarfélögum á svæðinu
og hafa Olafsfjörður, Dalvíkur-
byggð, Grímseyjarhreppur, Hrís-
eyjarhreppur, Arnarneshreppur,
Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrand-
arhreppur og Grýtubakkahreppur
svarað því jákvætt, en Skriðu-
hreppur, Oxnadalshreppur og
Glæsibæjarhreppur eiga í viðræð-
um um sameiningu þessara þrigg-
ja sveitarfélaga. Viðræður standa
til milli sveitarfélaga í Þingeyjar-
sýslum frá Aðaldal og austur úr að
Þórshöfn og Raufarhöfn undan-
skildum. Hálshreppur, Ljósa-
vatnshreppur og Reykdælahrepp-
ur hafa sýnt áhuga á viðræðum.
Austurland
Viðræður eru í gangi milli Vopna-
fjarðarhrepps og Skeggjastaða-
hrepps og viðræður hafa verið
milli „suðurfjarðanna" Breiðdals-
hrepps og Djúpavogshrepps, en
þær umræður hafa verið „truflað-
ar“ af Hornfirðingum, sem hafa
farið fram á samstarf við Djúpa-
vog um tilskilin svið og hafa gert
samkomulag um sorphreinsun.
Suðurland
Viðræður eiga sér stað um sam-
einingu Rangárvallahrepps í eitt
sveitarfélag, en þar hafa einnig
verið uppi umræður um að skipta
þeim viðræðum í tvennt, þ.e.
austurhluti með miðstöð á Hvols-
vclli og vesturhluti með miðstöð á
Hellu. Fimm hreppar í Árncs-
sýslu hafa átt viðræður, þ.e.
Hraungerðis-, Villingaholts,
Skeiða-, Gnúpverja- og Hruna-
mannahreppur, sem leitt hafa til
þess að öðrum sveitarfélögum í
sýslunni hefur boðið að taka þátt
í mun víðtækari sameiningu. Svör
þurfa að hafa borist fyrir I. des-
ember nk. Sveitarfélög í uppsveit-
um Árnessýslu hafa einnig átt í
viðræðum, þ.e. Biskupstungna-,
Laugardals-, Hrunamanna- og
Gnúpverjahreppur hafa átt í við-
ræðum. Gaulverjabæjar-, Vill-
ingaholts- og Hraungerðishrepp-
ur hafa svo átt óformlegar viðræð-
ur við Skeiðahrepp og hafa auk
þess farið fram á viðræður við Ár-
borg, en því hefur ekki verið
sinnt. Ölfushreppur og Hvera-
gerðisbær ciga í viðræðum um
orkumál auk þess sem rætt hefur
verið um sameiningu Rafveitu
Hveragerðis við Orkuveitu
Reykjavíkur svo segja má að víða
sé gerjun í gangi.
Suðurnes
Allnokkur áhugi hefur verið í
Gerðahreppi um sameiningu við
Sandgerði og einnig er rætt um
sameiningu þessar tveggja sveit-
arfélaga við Reykjanesbæ og
þannig yrði eitt stórt sveitarfélag
á Reykjanesi, eða „Stór-Sand-
gerðissvæðið". — GG
KVA og Þróttur í eina sæng?
Undanfarnar vikur hafa staðið
yfir viðræður á milli knatt-
spyrnudeildar Þróttar á Norð-
firði og KVA, sem er sameigin-
legt knattspyrnulið Austra á
Eskifirði og Vals á Reyðarfirði,
um að sameina rekstur deild-
anna og mynda nýtt knatt-
spyrnufélag.
Nokkrar útfærslur hafa verið
ræddar s.s. að sameina einungis
meistarflokk karla, en einnig
hefur verið rætt um að samein-
ingin nái allt niður í þriðja ald-
ursflokk og til meistarflokks
kvenna. Sameining Eskifjarðar,
Norðfjarðar og Reyðarfjarðar í
eitt bæjarfélag, Fjarðabyggð,
hefur haft hvetjandi áhrif í þessa
átt enda voru rökin um hagræð-
ingu og bættan árangur á öllum
sviðum hornsteinn sameiningar-
innar á sínum tíma. I vegi sam-
einingar er erfið skuldastaða
beggja félaga, sérstaklega KVA,
en ljóst er að þau mál verður að
leysa hvort sem félögin samein-
ast eða ekki.
Það voru forsvarsmcnn KVA
sem höfðu frumkvæðið af við-
ræðunum en Petrún B. Jónsdótt-
ir, æskulýðs- og íþróttafulltrúi
Fjarðabyggðar, var fengin til þess
að boða til fyrsta fundar og koma
viðræöunum í gang. Petrún, sem
einnig á sæti í bæjarstjórn
Fjarðabyggðar, segir það tví-
mælalaust vilja beggja deilda að
sameina reksturinn, en hún
leggur mikla áherslu á að ekki
megi undanskilja kvennaknatt-
spyrnuna. „Eg sem sveitarstjórn-
armaður er ekki tilbúin til að
samþykja að bæjarfélagið leggi
fram mikla fjármuni til sameig-
inlegrar deildar ef eingöngu á að
mynda nýtt karlalið. Mér finnst
það hreint jafnréttisbrot og ég
mun ekki styðja slíkt,“ sagði
Petrún.
Viðræður ganga vel
Að sögn Valgeirs Kjartanssonar,
eins fulltrúa KVA í viðræðunum,
hafa þessir fundir gengið mjög
vel án þess þó að endanleg
ákvörðun um sameiningu hafi
verið tekin. „Við erum að skoða
hin ýmsu mál og skiptast á upp-
lýsingum er lúta að rekstri deild-
anna og fjárhagslegri stöðu
þeirra og skilgreina væntanlegt
hlutverk nýs félags. Kröfurnar
um betri árangur eru að aukast
og menn sjá fram á að hægt verði
að nýta fjármuni og mannskap
betur mcð stærri rekstrareining-
um. Þetta er í rauninni ekkert
annað en það sem er að gerast í
viðskiptaheiminum," sagði Val-
geir.
Þróttur, sem sæti á í 3. deild,
hefur ekki náð þeim árangri á
knattspyrnuveilinum mörg und-
anfarin ár sem væntingar hafa
staðið til. Eru Norðfirðingar
margir hverjir orðnir óþolinmóö-
ir eftir bættum árangri. KVA hef-
ur náð mun betri árangri en síð-
ustu tvö keppnistímabil hefur
Iiðið Ieikið í 1. deild en féll í
haust niður í 2. deild. Margir
íbúar Fjarðabyggðar telja því að
nú sé rétti tíminn til þess að
sameina rekstur knattspyrnu-
deildanna í öllum byggðarlögun-
um þremur og blása til nýrrar
sóknar á knattspyrnuvellinum.
Ef af sameiningu verður mun
nýtt félag taka sæti KVA á næsta
keppnistímabili og leika í 2.
deild undir nýju nafni.
Benedikt Jóhannsson, sem
einnig hefur tekið þátt í þessum
viðræðum fyrir hönd KVA, sagð-
ist vera mjög bjartsýnn á að sam-
einingin gengi eftir. „Við höfum
sett okkur það takmark að klára
þessar viðræður fyrir miðjan
nóvember því þá þarf að fara
taka ákvarðanir um þjálfara og
hugsanlega leikmenn fyrir næsta
keppnistímabil," sagði Bene-
dikt.
Erfið skuldastaða
Stærsta Ijónið í vegi sameiningar
KVA og knattspyrnudeildar
Þróttar eru miklar skuldir
beggja. Samkvæmt traustum
heimildum eru skuldir KVA um
12 milljónir króna en inni í
þeirri tölu eru bæði skammtíma-
skuldir og eldri skuldir. Skamm-
tímaskuldir knattspyrnudeildar
Þróttar eru um tvær milljónir
króna og eldri skuldir rúmar
þrjár milljónir. Samtals skuldir
KVA og knattspyrnudeildar
Þróttar eru því um 17 milljónir
króna.
Þeir sem koma að sameining-
arviðræðunum telja það ekki
fýsilegan kost að nýtt félag taki
við þessum skuldum heldur
verði félagið að byrja með hreint
borð. Til þess að leysa þann
vanda verður varla til annarra
horft en bæjaryfirvalda í Fjarða-
byggð og stærstu fyrirtækjanna á
svæðinu. Sameining KVA og
knattspyrnudeildar Þróttar hlýt-
ur því, eins og staðan er í dag, að
byggjast á pólitískum vilja bæjar-
stjórnar annars vegar og velvild-
ar stærstu fyrirtækjanna hins
vegar.
Guðmundur Ingvason er einn
af þeim sem tekið hafa þátt í
sameiningarviðræðunum fyrir
hönd Þróttar. „Það er orðið mjög
erfitt að reka knattspyrnufélag í
dag sem ekki skilar nema miðl-
ungs árangri. Annað hvort verða
menn að reka félögin á hörðum
viðskiptalegum grundvelli eða af
hreinni áhugamennsku með al-
gjörum lágmarks útgjöldum,"
sagði Guðmundur. - KJK