Dagur - 30.10.1999, Qupperneq 12
12- LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999
Newcastle mætir Arsenal í
Evrópusárum
Arsenal sem á miðvikudaginn var slegið út úr Meistaradeild Evrópu,
eftir 0-1 tap gegn Foirentina á Highbury, fær í dag Newcastle United í
heimsókn í ensku úrvalsdeildinni, þar sem Bobby Robson mætir með
hálf vængbrotið lið sitt gegn Arsenal, sem nú sleikir sárin eftir Evrópu-
bakslagið og afleitt gengi síðustu vikurnar. Svekkelsið er mikið í her-
búðum Lundúnaliðsins, þar sem það var að falla út úr riðlakeppni
Meistaradeildarinnar Evrópu annað árið í röð, eftir tvö heimatöp á
tveimur vikum; fyrst gegn Barcelona 2-4 og svo 0-1 tapið gegn Fiorent-
ina á miðvikudaginn. Til að auka enn á svekkelsið, kom svo úrskurður
aganeíhdar enska knattspyrnusambandsins um sex leikja bann Patricks
Vieira og til að bæta gráu ofan á svart, þá er Ijóst að þeir Emmanuel
Petit og Ray Parlour eru báðir frá vegna meiðsla eftir Ieikinn gegn Fior-
entina. Meiðslin sem haldið hafa Petit frá keppni síðustu níu vikurnar
virðast hafa tekið sig upp aftur og Parlor tognaði á hásin.
Newcastle, sem ekki hefur ennþá unnið deildarleik á útivelli í vetur,
hefur einnig orðið fyrir nokkrum skakkaföllum að undanförnu, þar sem
þeir Kieron Dyer, Andy Griffin og Shay Given, markvörður, eru meidd-
ir og Warren Barton að taka út leikbann.
Sigiirinn gegn Chelsea var ljósið í
myrkrinu
Þrátt fyrir brottfalliðið úr Meistaradeild Evrópu á Arsenal enn góða von
í stóru keppnunum. Þar sem liðið náði þriðja sætinu í B-riðli meistara-
deildarinnar, fá þeir í boði UEFA þátttökurétt í EUFA-bikarnum í sára-
bætur og koma þar beint inn í þriðju umferðina við lítinn fögnuð Iið-
anna sem eru þar fyrir. Staða þeirra í ensku deildinni er líka góð, en þar
er liðið nú í öðru sætinu með 25 stig, einu stigi á eftir toppliði Leeds.
Þeir unnu eftirminnilegan sigur á Chelsea í rigningarleik um síðustu
helgi, sem í raun er eina ljósið í myrkri síðustu tíu daganna, þar sem
snillingurinn Nwankwo Kanu skoraði eftirminnilega þrennu eftir að
Chelsea hafði náð tveggja marka forskoti. Einnig ætti félagið að eiga
töluvert góða möguleika í enska bikarnum og deildarbikarnum, þar
sem liðið mætir Middlesbrough í næstu umferð.
Harry Redhnapp tippar á Arsenal
Arsene Wenger ber sig þrátt fyrir alTt mannalega og segir að nú verði
öll áherslan lögð á að vinna enska meistaratitilinn. „Við höfum ennþá
að miklu að keppa og staða okkar í deildinni er mjög góð, auk þess sem
UEFA-bikarinn er spennandi verkefni," sagði Wenger, sem nýlega fékk
óvæntan stuðning frá Flarry Redknapp, framkvæmdastjóra West Ham.
Redknapp sagði að brottfallið úr meistardeildinni, mynda hjálpa
Arsenal til að vinna enska meistaratitilinn. „Staða þeirra í deildinni er
mjög vænleg og ég tippa á að þeir vinni meistaratitilinn í ár,“ sagði Red-
knapp.
O’Leary veifar 30 miHjóniun punda
Eftir tíu leikja sigurgöngu Leeds, sem lauk með 4-4 jafntefli gegn Ev-
erton um síðustu helgi, fá strákarnir hans David O’Leary nú West Ham
í heimsókn í dag á Elland Road í Leeds, þar sem West Ham hefur að-
eins einu sinni náð að sigra í síðustu 27 leikjum.
David O’Leary sem þessa dagana hefur bæði nóg af stigum og pen-
ingum í pokahorninu, eftir að félagið gerði nýlega nýjan 5 milljón
punda styrktarsamning við safaríka fyrirtækið „Strongbow Cider“, ætti
því að vera í góðu skapi, þar sem hann veifar nú 30 milljónum punda
til kaupa á nýjum leikmönnum.
Bosnich mætir gömlu félögunum
Meistarar Manchester United, sem í vikunni unnu 2-1 sigur á Króatía
Zagreb í Meistardeild Evrópu og tryggðu sig þar með áfram í 16-liða úr-
slitin, fá í dag Aston Villa í heimsókn á Old Trafford. Þar sem Evrópu-
pressunni er nú létt af United í bilí ættu leikmenn liðsins að geta ein-
beitt sér aftur að ensku deildinni og farið að sýna sitt rétta andlit.
Gengi liðsins hefur ekki verið gott að undanförnu, þar sem það hefur
tapað fjórum af sex síðustu leikjum sínum og því kominn tími til snúa
dæminu við.
Liðið er nú í fjórða sæti deildarinnar með 24 stig, eða jafnmörg stig
og spútniklið Sunderland, sem er í þriðja sætinu á betra markahlutfalli.
Sigur á Aston Villa gæti því hugsanlega fleytt Iiðinu aftur í toppsætið,
ef úrslit annarra Ieikja verða þeim hagstæð.
Menn bíða spenntir eftir því að sjá Mark Bosnich, markvörð United,
leika gegn sínum gömlu félögum í Villa og er búist við því að kappinn
muni sýna sínar bestu hliðar í viðleitni sinni til að halda markvarðar-
stöðu númer eitt hjá meisturunum. Hann hefur nú átt fimm ágætis
leiki í röð með aðalliðinu og virðist vera að ná sér á strik eftir erfiða
byijun hjá félaginu.
„Þessi leikur kemur alveg á réttum tíma þegar ég er að festa mig í
sessi í liðinu. Við töpuðum fyrir þeim í deildarbikarnum fyrir nokkrum
vikum og upp úr því missti ég sæti mitt í liðinu. Ég mun því gera allt
til að standa mig og vonandi sigrum við,“ sagði Bosnich.
Tottenham mætir Sunderland
Einn af mest spennandi leikjum helgarinnar í ensku deildinni er leik-
ur Tottenham og Sunderland sem mætast á White Hart Line á morg-
un. Tottenham, sem nú er í fimmta sæti deildarinar með 20 stig, gæti
með sigri á Sunderland tryggt stöðu sína til muna í meistaraslagnum
og sama máli gegnir um Sunderland sem er í öðru sætinu.
Leikir helgarinnar: Arsenal - Newcastle, Derby - Chelsea, Leeds -
West Ham, Leicester - Sheff. Wed., Man Utd - Aston Villa, Middles-
brough - Everton, Wimbledon - Southampton, Coventry - Watford,
Sunderland - Tottenham og á mánudag Liverpool - Bradford.
ÍÞROTTIR Á SKJÁNUM
Laugard. 30. okt.
Akstursíþróttir
Kl. 11:00 Formula 1
Upptaka frá tímatöku í Japan
í nótt.
Kl. 04:00 Formula 1
Útsending frá Formula 1
keppninni í Japan.
Fótbolti
Kl. 13:25 Þýski boltinn
Hamburger - Dortmund
Handbolti
Kl. 16:00 Leikur dagsins
Afturelding - Haukar
Fótbolti
Kl. 12:00 Alltaf í boitanum
Kl. 13:45 Enski boltinn
Leeds - West Ham
Körfubolti
Kl. 12:30 NBA-tilþrif
Hnefaleikar
KI. 22:30 Hnefaleikakeppni
Útsending frá hnefaleika-
keppni í Bandaríkjunum.
Meðal þeirra sem mætast eru
Stevie Johnston og Angel
Manfredy.
Simnud. 31. okt.
Akstursíþróttir
Kl. 11:30 Formula 1
Endursýnt frá Formula 1
keppninni í Japan í nótt.
Fótbolti
Kl. 16:00 Markaregn
íþróttir
Kl. 21:10 Helgarsportið
Fótbolti
Kl. 15:45 Enski boltinn
Coventry - Watford
Kl. 18:00 Meistarak. Evrópu
Fjallað almennt um keppnina
og farið yfir leiki.
Kl. 19:25 ítalski boltinn
Parma - Bari
Golf
Kl. 21:30 Bandar. meistaramótið
H
ÍÞRÓTTIR UM HELGINA Laugard. 30. okt.
M HANDBOLTI Urvalsdeild karla
KI. 16:30 UMFA - Haukar Urvalsdeild kvenna
KI. 16:30 KA - Víkingur Kl. 14:30 UMFA - Grótta/KR Kl. 13:30 ÍBV - Stjarnan
■ KÖRFUBOLTI Urvalsdeild kvenna
Kl. 16:00 Grindavík - KFÍ
■ BLAK 1. deild kvenna
Kl. 14:00 Þróttur - Þróttur N. Sunnud. 31. okt.
■ HANDBOLTI Urvalsdeild karla
Kl. 20:00 Fylkir - Fram Kl. 20:00 FH-HK Urvalsdeild kvenna
Kl. 18:00 Haukar - FH
P KÖRFUBOLTI Urvalsdeild kvenna
Kl. 14:00 Grindavík - KFÍ ■ BLAK 1. deild kvenna
KI. 15:30 ÍS - KA
JUUARÖBi WTS RICHARDÖiRi
Outch her if you can.
Glerárgötu 28
Sfmi 462 3500 • Hólabraut 12 • www.nett.is/borgarbio
Sýnd kl. 17 og 21
Sýnd um helgina kl. 15
Sýnd kl. 18.45
ANTONY HOPKINS
CUBA GOODING JR
Sýnd kl. 19,21 og 23
Sýnd kl. 23
Mánud. kl. 17 og 23
Sýnd um helgina kl. 15 og 17
'r**« éí*í(
"íiic K.uAfurtoé
SVH'tur liVÍtur
kóttur kCttur