Dagur - 30.10.1999, Side 8
24 - LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999
Tfc^iir
Innan skamms kemur út
hjá Vöku-Helgafelli
annað bindi ævisögu
Steingríms Hermanns-
sonar, fýrrverandi for-
sætisráðherra, sem
Dagur Eggertsson skrá-
ir. í viðtali segir Stein-
grímur meðal annars frá
tilurð ríkisstjórnar
Gunnars Thoroddsens
og ræðir um afstöðu
sína til umhverfis- og
Evrópumála.
Af hverju
ákvaðstu að veita
leyfi til að ævi-
saga þín yrði
skráð?
„Eg neitaði
lengi að láta
skrifa ævisögu
mína en komst
Ioks að þeirri
niðurstöðu að
skárra væri að slíkt yrði gert
meðan ég væri á lífi en þegar ég
væri dauður. Eg mat þetta ekki
síst svo vegna ævisögu föður
míns sem mér líkaði ekki nógu
vel. Ætlunin var að ævisaga mín
yrði einungis í einu bindi en það
teygðist úr efninu og alls verða
þau þrjú. Það bindi sem nú er
að koma út, nær til ársins 1983.
Þar eru stjórnmálin í fyrirrúmi
en minna fer fyrir einkalífi."
- Er erfitt að gera upp ævi sína
með fessum hætti?
„Nokkuð erfitt var í fyrsta
bindinu að rifja upp viðkvæm
einkamál. Börn mín af fyrra
hjónabandi hefðu kannski ekki
viljað vita það allt, en ég ákvað
að segja söguna eins og hún
horfði við mér. Annað hefði ekki
verið heiðarlegt.“
- I lvað heldurðu að komi fólk
„Og ég hef aldrei áður
kynnst stjórnmálamanni
sem tekur fram fýrir
hendur samstarfs-
manna sinna eins og
Davíð hefur gert. Það
hef ég aldrei gert, mér
hefði aldrei dottið það í
hug. En hann kemst upp
með það.“
helst á óvarl i þessu bindi?
„Það er erfitt að segja en
þarna er skýrt frá ýmsu sem ekki
hefur áður komið fram. Þarna
segi ég til dæmis frá því hvernig
ríkisstjórn Gunnars Thorodd-
sens varð til, en aldrei hefur ver-
ið rétt skýrt frá því áður.“
- Viltu segja mér réttu útgáf-
una í þessu viðtali?
„í lok janúar 1980 höfðu
ítrekaðar tilraunir verið gerðar
tilstjórnarmyndunar. Forseti til-
kynnti okkur að við fengjum
viku til viðbótar til að mynda
þingræðisstjórn og við vissum að
eftir það yrði mynduð utan-
þingsstjórn. Miklar viðræður
áttu sér stað milli manna enda
var útlitið ekki gott. Þriðjudag-
inn 29. janúar fór ég af fundi í
sameinuðu þingi. Þegar ég kom
út á bifrciðastæðið fyrir framan
Þórshamar kom Gunnar
Thoroddsen út af skrifstofu
sinni. Við ræddum erfiðleikana í
stjórnarmyndun. Hann sagðist
telja að ekki væri allt reynt og
spurði hvort ég vildi ekki ræða
við sig á skrifstofu sinni. Við fór-
um þangað og þar Iýsti hann því
yfir að hann teldi sig hafa nægi-
lega marga þingmenn sjálfstæð-
ismanna meí> sér ti! að geta