Dagur - 30.10.1999, Síða 13
LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 - 29
Spúði eldi
„Núna var mjög mikið af sjón-
hverfingum. Eg hellti til dæmis
úr tveimur Beefeater-flöskum í
glas, það var glært í smá tíma og
varð svo blátt því að ég var bú-
inn að setja efni í flöskurnar.
Síðan bjó ég til drykk sem var
Dry Martini en hann hljóp þeg-
ar ég hellti í glasið því að ég var
búinn að setja efni í það sem var
eins og matarlím. Svo þóttist ég
missa það á gest en þá hékk það
í glasinu,“ segir Ingólfur sem
ekki lét þar við sitja heldur
kveikti á inniblysum, drakk olíu
úr Beefeater-flösku og spúði
eldi.
Kokkteilamenningin er fátæk-
leg á Islandi en barþjónarnir
hafa áhuga á að tileinka sér allar
nýjungarnar í bransanum og
sem betur fer eru tældfærin ekki
ófá því að eriendis er alltaf hald-
in keppni öðru hvoru. A hverju
ári er haldin heimsmeistara-
keppni í kokkteilblöndun og á
næsta ári verður „flair“-keppni
samhliða þeirri keppni þannig
að barþjónarnir hafa nóg tæki-
færi til að fara út að keppa og
kynna sér nýjungarnar í faginu.
Kúnnarnir eru líka frekar óvanir
að panta sér kokkteila en Ingólf-
ur vonast til að öll skemmtilegu
bartrixin komi hingað fljótlega
og þá ætti það að ýta undir
áhuga viðskiptavinanna.
Sætir kokkteilar
seljast best
Ingólfur segir að eftirspurnin
hafi helst verið eftir sætum
kokkteilum eða skotum sem
heita nöfnum á borð við „Sex on
the Beach“ og „Fullnæging",
annars seljast Jiessir drykkir
hreinlega ekki. A balli er long
drinks vel við hæfi en þegar um
kvöldverð er að ræða mælir
lngólfur með þurrum ginkokk-
teil fyrir mat og sætum kokkteil
eða long drink eftir matinn. Is-
lendingar hafa hins vegar til-
hneigingu til að drekka sæta
kokkteila hvort sem það er fyrir
mat eða eftir.
Ingólfur gefur hér uppskriftir
að þremur kokkteilum, Djúsa,
Cosmopolitan og Chelsea
Sidecar.
Djúsi
„Drykkur sem ég á sjálfur og sel
mikið hér á barnum. Flestum
finnst hann mjög góður. Ég lenti
í öðru sæti með hann á síðasta Is-
landsmeistaramóti. “
Ræma af berki,
skorin af appelsínu
Börkur af sítrónu, skorin
1 Iöng ræma
lime-sneið
ís
3 cl Bacardi limon
1 1/2 cl Blue Curacao
de Kuyper
1 1/2 cl Apricot Brandy
de Kuyper
12 cl appelsínusafi
„Dass“ Magic
Efniviðurinn er allur hristur
saman nema Magic-ið, hellt í
long drink-glas og toppað upp
(“dass") með Magic. Skreytt og
rörum stungið ofan í.
Cosmopolitan
„Þurr drykkur
og góður fyrir mat. “
3 cl Beefeater gin
1/2 cl lime safi
1 cl Cointreau
3 cl Cranberry safi (trönuberja-
safi, fæst í matvöruverslun)
ís
Allt er hrist saman og hellt í
Alartini glas. Flís af appelsínu-
berki er sett í glasið til skreyt-
ingar.
Chelsea Sidecar
„Þessi drykkur er
fínnfyrir matinn."
2 cl Beefeater gin
2 cl Cointreau
2 cl sítrónusafi
Strjúkið yfir barminn á Mart-
ini-glasi með sítrónusneið, setj-
ið sykur á disk og dýfið glasinu
í sykurinn. Afenginu, safanum
og ís er hrist saman og hellt í
glasið án þess að fara á sykur-
brúnina. Þegar kokkteillinn er
drukkinn á að snúa glasinu
smám saman og fá þannig allan
sykurinn upp í sig.
- GHS
„Vera lifandi og hafa gaman afþessu, “ kallar Ingólfur Haraldsson starf barþjónsins sem nú til dags gengur stöðugt
meira út á það að skemmta gestunum. Ingólfur keppti nýlega f barþjónakeppni í Bandaríkjunum þar sem keppendur
voru í gervum og sýndu sjónhverfingar. Sjálfur var hann í trúðsgervi og sýndi töfrabrögð. Ingólfur með
verðlaunagripina úr keppninni. myndir: e. úl.
RÖIMNING - RAFINNKAUP
Föstudaginn 29. október 1999 opnum vió nýja sölu- og afgreiósludeild
aó Óseyri 6 á Akureyri.
Auk vöruúrvals Rafinnkaupa veróa til sölu á Akureyri allar helstu
raflagnavörur frá Rönning.
Meó sameiningunni eykst þjónusta og vöruúrval til hagræóis fyrir
vióskiptavini.
hager (elko)
ABS wibe
RONNING - RAFINNKAUP
Óseyri 6 - 603 Akureyri
s. 462 21 10-f. 462 2144
jr
JOHAN
RÖNNING