Dagur - 06.11.1999, Blaðsíða 9

Dagur - 06.11.1999, Blaðsíða 9
I T 8-LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1999 FRÉTTA SKÝRING LAUGARDAGUR G. NÓVEMBER 1999 - 9 FRÉTTIR Kristinn H. Gunnarsson: Sjálfstæði stofnunarinnar ekki aðalatriði. Guðjón Guðmundsson: Efaðist um flutning stofnunarinnar I vor. Halldór Ásgrímsson: Bankasölufé fari I byggðamálin. Guðríður Guðfinnsdóttir Baara (t.h.) er hér ásamt Stefaníu Kalife og börnum þeirra en þær hafa báðar verið bú- settar lengi í Jórdaníu. Guðfinna sendi Blaðamannafélagi íslands óvenjulegt erindi vegna skrifa í Jordan Times. Hæðst að 1 slendingum í Jordan Tinies Blaðið Jordan Times er gefið út í Jórdaníu og er lesið af flestum útlendingum búsettum þarlend- is. I maímánuði sl. fóru að ber- ast vikulegar greinar í blaðinu eftir höfund sem kallar sig Sig- mund Siignatuur, segist vera frá landi heitra hvera og þorska - Is- landi. Ljóst er af skrifunum að um pennann heldur ekki íslend- ingur enda iðulega verið að hæð- ast að íslendingum í þessum greinum. Guðríður Guðfinns- dóttir Baara hefur búið í Jórdan- íu sl. 19 ár. Hún sendi Jordan Times kvörtunarbréf sem var þar birt undir fyrirsögninni „Islandi misboðið11 og fékk þá svar til baka í einni greininni þar sem hún er sökuð um að vera að íyr- irgera lýðræðinu. Guðríður segir að greinarnir skrifi tveir menn, annars vegar maður sem er hálf- ur Dani og hálfur Jórdani en hinn sé Breti. Erindi Guðfinnu var sent til stjórnar Blaðamanna- félags íslands, sem áframsendi það til utanríkisráðuneytisins til afgreiðslu. Höfundur segist vera tann- smiður og koma úr fjölskyldu sem hafi smíðað tennur upp í fólk á íslandi síðustu 200 ár! Meðan hann hafi starfað á Is- landi hafi hann m.a. smíðað tennur upp í kyntröllið „Skalar“, hver svo sem það er, og vinsæl- ustu rokkhljómsveit landsins sem heiti „Rifinn ostur“. Höf- undur fer í einni greininni mörg- um orðum um útvarpseign Iandsmanna sem hann segir að hafi aukist margfalt þegar hol- lenska skipið Gouda hafi strand- að við Grindavík, en farmur þess var útvörp. Landinn hafi skund- að niður í Ijöru og náð sér í salt- böðuð Philipsútvörp. íslending- ar hlusti hins vegar aðeins á út- varp þegar þeir eru í baði eða úti á sjó! Einnig er frásögn af prinsessunni Buxha, sem átti að hafa verið uppi á 13. öld í bæn- um „Taunershaven" (líklega Raufarhöfn) á norðausturhorni landsins. Buxa þessi átti að hafa krafist sjálfstæðis frá öðrum hluta íslands og stofnað sósíal- ískt fríríki, þar sem borin var taumlaus virðing fyrir þorskin- uin, sem útnefndur var guð frjó- seminnar. Prinsinum Basinskor Iíkaði ekki sjálfstæðisbrölt Buxa og sigraði hana að lokum í orr- ustu á Jökulsá á FjöIIum, hvern- ig svo sem það hefur farið fram. Hann varð hins vegar ástfanginn af henni, þrátt fyrir fiskifyluna! - GG Sjálfstæð eða ekki sjálfstæð Degi er kunnugt um að skiptar skoðanir voru milli stjórnarflokk- Pá/I Pétursson, stjórnarformaður nýrrar stofnunar. TiIIögur um frumvarp um breyt- ingar á Byggðastofnun eru nú komnar til meðferðar hjá ráðherr- um eftir að nefnd embættis- manna og stjórnarþingmanna, sem hefur verið að vinna að mál- inu, hefur skilað af sér fyrstu til- Iögum. Hugmyndir nefndarinnar gera ráð fyrir talsverðum breyt- ingum á stofnuninni, m.a. að við það að færast undir iðnaðarráðu- neytið muni hún missa lagalega stöðu sína sem sjálfstæð ríkis- stofnun, en samhliða yrði settur í stofnunina einn milljarður króna, auk aukins fjár til annarra þátta til eflingar byggðar, sem tekinn yrði af því fjármagni sem ríkið fær af sölu ríkiseigna, m.a. FBA. í samræmi við stjómarsátt- mála Þessar breytingar og hugmyndir eru í samræmi við ákvæði í stjórnarsáttmála ríkisstjómarinn- ar um að Seðlabankinn fari undir forsætisráðherra og verði hluti af því sem sérstakt efnahagsráðu- neyti og að Byggðastofnun fari undir iðnaðarráðherra. Sam- kvæmt ákvæðum stjórnarsáttmál- ans átti Byggðastofnun að sam- eina ýmsa aðra atvinnuþróunar- starfsemi á vegum ráðuneytisins, þannig að talað var um nýja og stærri Byggðastofnun. I tengslum við þessa breytingu á Stjórnarráði Islands var um það rætt við stjórnarmyndunina í vor að Páll Pétursson félagsmálaráðherra myndi taka við hinni nýju Byggðastofnun en Valgerður Sverrisdóttir kæmi inn í ríkis- stjórn sem félagsmálaráðherra. Samkvæmt upplýsingum Dags hefur verið miðað við að þessar breytingar allar gætu orðið um áramótin, en þá þarf að vera búið að koma frumvarpi um þær í gegnum Alþingi. Nefndin sanunála Ekki náðist í gær í Kristin Skarp- héðinsson í iðnaðarráðuneytinu sem veitir nefndinni sem fjallar um nýskipan Byggðastofnunar forstöðu. Kristinn H. Gunnars- son, fulltrúi framsóknarmanna í nefndinni, staðfesti hins vegar í samtali við blaðið að nefndin væri búin að senda frá sér tillögur til ráðherra þó hún væri ekki búin að skila af sér. Aðspurður sagði Kristinn að nefndin væri í öllum aðalatriðum sammála. Sýknaóur þrátt fyrir játningu hjá lögreglu Ökumaður sem dæmdur var í 20 þúsund króna sekt fyrir óvarlegan akstur var sýknaður af ákæru um ölvunarakstur - sem hann þó ját- aði við skýrslutöku hjá lögreglu. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa ekið undir áhrifum og sýnt af sér óvarlegan akstur í júlí í sumar, en í umræddri ökuferð ók hann á ljósastaur og yfirgaf vett- vang án þess að tilkynna eiganda ljósastaursins eða lögreglu um tjónið. Við yfirheyrslur lýsti mað- urinn því yfir að hann hafi fundið til áfengisáhrifa þegar óhappið varð. í skýrslu fyrir dómi kvaðst maðurinn hinsvegar ekki hafa verið undir áhrifum áfengis um- rætt kvöld heldur hafa játað ölv- unarakstur við skýrslutöku sakir þrýstings frá lögreglumanni og hótana um vist í svonefndum „biðklefa“, sem maðurinn gat þó ekki skýrt nánar hvernig var. Við- komandi lögreglumaður þvertók fyrir dómi fyrir að hafa beitt manninn þrýstingi við skýrslu- töku. Dómurinn telur ósannað að ákærði hafi verið undir áhrifum áfengis við aksturinn og sýknaði hann því af ölvunarakstri en dæmdi hann til greiðslu 20 þús- und króna sektar vegna óvarlegs aksturs og að hafa stungið af frá vettvangi, sem og til að greiða all- an sakarkostnað og málsvarnar- laun skipaðs verjanda síns. Toyota Touring GLi 1993, ek. 78 þús. Verð 950.000,- 100% lán. 1995, ek. 97 þús. Verð 1.180.000,-. Subaru Legacy 2200 1991, sjálfsk., ek. 154 þús, Verð 790.000,- 100% lán. Uppstokkun í ríkisstjóm Tilurð hinnar nýju Byggðastofn- unar tengist eins og áður sagði uppstokkun í ríkisstjórninni. Sam- kvæmt upplýsingum úr Framsókn- arflokknum er Páll Pétursson, sem rætt hefur verið um að taki við stjórnarformennsku f hinni nýju Byggðastofnun, ekki fyllilega sáttur við að stofnunin missi stöðu sína sem sjálfstæð stofnun. „Vissulega má stilla þessu þannig upp að hann yrði f raun húskarl hjá Finni,“ sagði einn viðmælandi blaðsins og vísaði til þess að stofn- unin myndi heyra beint undir ráð- herra. Jafnframt er ljóst að Páli er það óljúft að standa upp úr ráð- herrastólnum fyrir Valgerði. Hins vegar mun það ekki eiga hljóm- grunn í þingflokknum eða hjá for- ustu flokksins að breyta út frá áður ákveðinni áætlun eftir því sem Dagur kemst næst. Áfram á þingi? Páll er þó ekki alveg einangraður hvað þetta varðar því á kjördæmis- þingi framsóknarmanna á Norður- landi vestra var samþykkt áskorun til þingflokks framsóknarmanna þar sem hvatt var til þess að Páli yrði veitt áframhaldandi umboð til starfa í ríkisstjórninni. Engu að síður virðist fátt benda til annars en uppstokkun verði um áramót eða þá strax og búið er að ganga frá nauðsynlegum lagabreytingum á Stjórnarráði Islands. Páll muni þá víkja úr ríkisstjórn en hann mun þó hafa hug á að halda sæti sínu á Alþingi áfram samhliða stjórnarformennsku í hinni nýju stofnun. Ekki náðist í Pál sjálfan vegna þessara mála í gær. Suzuki Vitara JLX 1998, ek. 36 þús. Verð 1.680.000,-. Byggðastofnun í Reykjavík. Útlit er fyrir að þessi stofnun verði komin undir iðnaðarráðuneytið í byrjun nýrrar aldar með milljarð í vöggugjöf. anna m.a. um það hver staða Byggðastofnunar ætti að vera. Sjálfstæðismenn, og þar með Guðjón Guðmundsson fulltrúi þingflokksins í nefndinni, hafa talið mikilvægt að Byggðastofnun héldi stöðu sinni sem sjálfstæð ríkisstofnun. I því sambandi má rifja upp að við stjórnarmyndun- arviðræðurnar f vor var talsverð andstaða við flutning Byggða- stofnunar yfir til iðnaðarráðu- neytis af hálfu nokkurra þing- manna Sjálfstæðisflokks, m.a. Guðjóns Guðmundssonar, Einars K. Guðfinnssonar og Arnbjargar Sveinsdóttur. Eftir því sem Dagur kemst næst verður það þó einmitt tillaga nefndarinnar að Byggða- stofnun hætti að vera sjálfstæð stofnun í þessum lagalega skiln- ingi. Frekar sterk en sjálfstæð Aðspurður um hvort hann geti staðfest að það sé tillagan, segir Kristinn H. að ekki sé tímabært að upplýsa um tillögur nefndar- innar. Almennt hins vegar um gildi þess að Byggðastofnun haldi sjálfstæði sínu hvað þetta varðar segir Kristinn: „Möguleikar Byggðastofnunar til að grípa inn í alvarlega at- burðarás hafa verið afskaplega takmarkaðir, af því að hún fær svo litla peninga og er auk þess gert skylt að varðveita eigið fé. Það eru auðvitað erfið skilyrði fyrir stofnun, sem á að grípa inn í byggðaþróun að geta ekki notað þá peninga sem hún á og þetta er hlutur sem þarf að breyta. Til að stofnunin geti orðið einhvers megnug þarf hún að fá peninga og svigrúm til að geta lagt fram fé eða ábyrgðir eða lán. Og hún þarf að hafa stuðning stjórnvalds, hún þarf að hafa pólitískan bakstuðn- ing, sem hún hefur í raun ekki haft nú um nokkurra ára skeið nema í takmörkuðum mæli. Kannski vegna þess að hún hefur verið svo sjálfstæð? Mér finnst að það yrði því ekki til hins verra að breyta stöðu stofnunarinnar frá því sem nú er ef það Ieiðir til þess að hún verður öflugri," segir Kristinn. Milljiirðurinii Eins og áður segir herma heim- ildir blaðsins að hugmyndin sé að setja einn milljarð króna í eins konar vöggugjöf til Byggðastofn- unar á kjörtímabilinu. Þessa pen- inga er hvergi að finna í fjárlaga- frumvarpinu, en þar er gert ráð fyrir að hagnaður af sölu eigna rík- isins verði á næsta ári rétt um Ijórir milljarðar króna. Ekki liggur lyrir, samkvæmt frumvarpinu end- anleg áætlun um með hvaða hætti þessara tekna verður aflað, „en ljóst er að hátt verðmæti þeirra eigna sem rætt hefur verið um að selja gerir það að verkum að ríkis- sjóður á ýmissa kosta völ,“ eins og segir í frumvarpinu. I ræðu sinni á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins í gærkvöld tilkynnti Halldór Asgrímsson síð- an þessa niðurstöðu, en þar sagði hann að vinnu vegna frumvarps um nýskipan Byggðastofnunar væri lokið, og gekk þar skrefinu lengra en Kristinn H. Gunnarsson gerði í samtali við Dag. Halldór sagði: „Við þurfun jafnframt að Úr stjómarsáttmála ríkisstj órnariniiar „Að endurskoða lög um Stjórnarráð íslands, skipan ráðuneyta og verkefni þeirra, þar sem hliðsjón verúi höfð afbreyttum aðstæðum í þjóðfélaginu. í því sam- hengi munu stjórnarflokkarnir taka til endurskoðunar verkaskiptingu sín á milli. Fyrsta verkefnið veiði að færa Byggðastofnun undir iðnaðarráðuneyti og sam- eina atvinnuþróunarstarfsemi á vegum þess, svo og að fella Seðlabanka íslands undir forsætisráðuneyti sem efnahagsráðuneyti MUlj arður í Byggöastofn un BIRGIR GUÐMUNDS- SON SKRIFAR Bankasölupemngar settir í byggöamál og þar á meðal einn millj- arður í vöggugjöf til nýrrar Byggðastofnun- ar, en menn þó ekki á eitt sáttir um upphæð- ina. Búist við upp- stokkun í ríkisstjóm um aldamótin. styrkja stofnunina (Byggðastofn- un) og breyta henni. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að verja hluta af hagnaði af sölu Ijármálastofnana til að styrkja stöðu landsbyggðar- innar og sporna gegn flutningi fólks til höfuðborgarsvæðisins. Nú er lokið vel heppnaðri sölu Fjár- festingabanka atvinnulífsins á grundvelli þeirra markmiða sem við settum okkur. A næstu misser- um þarf ríkisstjórnin að taka af- stöðu til þess hvernig hluta þessa hagnaðar verður best varið til byggðamála." Athygli vekur að Halldór nefnir engar tölur í þessu samhengi en heimildir blaðsins herma að meiningarmunur sé milli framsóknarráðherra og sjálf- stæðisráðherra um hversu mikla peninga eigi að Ieggja í Byggða- stofnun og byggðamálin, þar sem framsóknarmennirnir vilji mun meira en hinir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.