Dagur - 09.12.1999, Side 13

Dagur - 09.12.1999, Side 13
FIMMTUDAG 11R 9 . DESEKRER 19 9 9 - 13 , ÍÞRÓTTIR Víkmgur í toppsætið Úr leik Víkings og Stjörnunnar fyrr í vetur. Fi m iii leiMr fóru frani í 11. umferd lírvals- deildar kvenna í haud- knattleik í fyrrakvöld. Víkingar komust í toppsæti deildarinnar með fjögurra marka sigri á Gróttu/KR og sendu Seltjamameslið- ið niður í fjórða sæti deildarinnar. Víkingur komst í toppsæti úrvals- deildar kvenna í handknattleik þegar þær unnu Gróttu/KR með fjögurra marka mun, 21-17, í Vík- inni í fyrrakvöld. Grótta/KR sem vermt hefur toppsætið að undan- förnu, tapaði þar sínum öðrum leik í deildinni í röð og féll niður í Qórða sætið á eftir Val og Haukum, sem bæði unnu sína leiki í fyrra- kvöld. Víkingsstelpurnar byijuðu með látum í fyrrakvöld og höfðu náð 3- 0 forystu áður en Grótta/KR komst á blað. Það kom þó Gróttu/KR ekki úr jafnvægi og þær skoruðu næstu fimm mörk án þess að Vík- ingur næði að svara fyrir sig. Það sem eftir lifði fjTri hálfleiks leiddu liðin svo til skiptis og höfðu gest- irnir eins marks forskot, 11-12, í hálfleik. Helga varði tuttugu skot í seinni hálfleik tók Grótta/KR það til bragðs að taka Kristínu Guð- mundsdóttur, leikstjórnanda Vík- ings, úr umferð og við það gliðnaði vörn þeirra, sem hafði verið mjög sterk í fyrri hálfleiknum. Þetta nýttu Víkingsstelpurnar sér og náðu mest fjögurra marka forskoti, þar sem þær Guðmunda Kristjáns- dóttir og Heiðrún Guðmundsdótt- ir fóru þá á kostum í sókninni. Þær voru markahæstar Víkinga með 5 mörk hvor, eins og Kristín Guð- mundsdóttir, sem átti mjög góðan fyrri hálfleik. Best hjá Víkingum var þó Helga Torfadóttir, mark- vörður, sem varði alls 20 skot. Skyttur Gróttu/KR komust lítið áfVam gegn sterkri Víkingsvörninni í seinni hálfleikóg sem dæmi skor- aði Alla Gorkorian, helsti marka- skorari liðsins, aðeins eitt mark utan af velli. Hún var þó marka- hæst með 5 mörk þar af 4 úr vít- um. Stórsigur Stjömuimar gegn Fram Stjarnan úr Garðabæ vann átta marka sigur á Fram þegar liðin mættust í Safamýrinni í fyrra- kvöld. Lokatölur leiksins urðu 18- 26 eftir að staðan var 9-13 í hálf- Ieik og áttu Framarar aldrei neitt svar við sterkum leik gestanna. Framliðið var ekki svipur hjá sjón frá því í sigurleiknum gegn Gróttu/KR í síðustu umferð og virkuðu mjög þungar og þreyttar. Stjömustelpurnar voru aftur á móti í góðum gír og allt annað að sjá til liðsins eh í síðasta leik, þeg- ar þær steinlágu gegn Gróttu/KR á Nesinu. Mest bar á Ragnheiði Stephensen sem var markahæst með 7 mörk og þeim Nínu Björns- dóttur og Þóru Helgadóttur sem skoruðu 5 mörk hvor. Best hjá Stjörnunni var þó Sóley Halldórs- dóttir, markvörður, sem varði alls 17 skot. Hjá Fram bar að vanda mest á Marinu Zouevu sem var marka- hæst með 8/4 mörk og Björk Tóm- asdóttur sem skoraði 5. Basl í Breiðholti FH-ingar lentu í mesta basli með IR-inga þegar liðin mættust í íþróttahúsinu Austurbergi í fyrra- kvöld og var staðan jöfn 7-7 í hálf- leik. Þeim gekk þó mun betur í seinni hálfleiknum og náðu þá að sigla fram úr Breiðholtsliðinu og urðu lokatölurnar 15-19. Hjá ÍR-ingum komust aðeins fjórir Ieikmenn á markalistann og skoraði Ingibjörg Jóhannsdóttir mest, eða 6 mörk og þær Inga lngimundardóttir og Heiða Guð- mundsdóttir 4 hvor. Hjá FH-ingum voru þær Björk Ægisdóttir, Guðrún Hólmgeirs- dóttir, Hildur Pálsdóttir og Hafdís Hinriksdóttir markahæstar, allar með 4 mörk. Harpa skoraði tíu mörk Haukastelpumar gerðu góða ferð til Akureyrar og unnu tíu marka sigur á KA, 17-27, eftir að staðan í hálfleik var 8-16. Harpa Melsted var best Haukanna og gerði 10 mörk, en Asdís Sigurðardóttir skoraði mest fyrir KA, eða 7 mörk. Átján marka Valssigur A Hlíðarenda fór fram leikur Vals og Aftureldingar þar sem heimalið- ið vann sextán marka stórsigur á gestunum, 28-12, eftir að staðan var 11-5 í hálfleik. Þær Helga Ormsdóttir og Sigur- laug Rúnarsdóttir voru marka- hæstar hjá Val með 6 mörk hvor og Arna Grímsdóttir með 4. Hjá Aftureldingu skoruðu þær Edda Eggertsdóttir og Vigdís Brandsdóttir mest, eða 3 mörk hvor og Jolanta Limboite 2. Nú verður gert hlé á keppni í úr- valsdeild kvenna til 8. janúar, en um helgina verður leikið í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar. Staðan: Víkingur 11 6 5 0 233:196 17 Valur 11 7 2 2 258:184 16 Haukar 11 6 3 2 263:210 15 Grótta/KR 11 7 1 3 251:210 15 FH 11 5 3 3 255:215 13 ÍBV 10 5 3 2 243:208 13 Stjarnan 11 6 0 5 280:246 12 Frani 11 5 0 6 253:258 10 ÍR 11 3 0 8 185:239 6 KA 11 1 1 9 203:258 3 UMFA 11 0 0 11 178:378 0 Handbolti - Úrvalsdeild kvenna - Úrslit leikja Gr/KR 1 Vík. Valur Hauk. ÍBV Stjarn. FH Fram ÍR KA Aftureld. Grótta/KR 15:15 15.1. 21:18 24:21 20:14 2.2. 29.2. 8.1. 23:18 26.1. Víkingur 21:17 15:15 26.2. 2.2. 26:22 21:21 12.1. 17:15 26.1. 39:20 Valur 19:21 29.1. 18:19 18:18 21.1. 12.1. 30:17 28:7 11.2. 28:12 Haukar 30.1. 18:18 9.1. 23:23 27:22 17:17 13.2. 1.3. 32:16 16.1. ÍBV 21.1. 22:22 29.2. 12.1. 32:26 25:24 28.1. 12.2. 26:20 33:10 Stjarnan 26.2. 8.1. 23:26 2.2. 26.1. 22:20 27:21 28:19 15.1. 40:18 FH 23:21 29.2. 19:22 26.1. 15.1. 12.2. 31:23 25:17 8.1. 40:16 Fram 28:26 19:21 26.1. 23:21 28:23 18:26 26.2. 15.1. 26:17 2.2. ÍR 14:29 19.1. 2.2. 16:26 13:20 12.1. 15:19 19:17 22:16 26.2. KA 12.1. 13:18 18:19 17:20 26.2. 19:30 16:16 19.1. 29.1. 33:19 Afturelding 19:34 12.2. 15:35 19:35 8.1. 29.1. 19.1. 17:33 14:28 3.3. ÍÞR ÓTTA VIÐTALIÐ Aðalatriðið er að komast upp um styrMeikaflokk tyrkleikastöðunni og árangri liðs- Atli Edvaldsson laitdsliðsþjálfari í knattspynm ífyrradag vardregiðí riffla í undankeppni HM- 2002 og lenti ísland þar í riðtt meff Tékkum, Dönum, Búlgörum, Norður-írum og Möltubúum. AtliEðvalds- son, Jandsliðsþjálfarí, seg- istánægðurmeð dráttinn og að takmarkið sé að kom- ast upp um styrkleiJia- fJokk. - Hveming líst þér d riðilinn? „Ég er nokkuð ánægjur með riðilinn og sérstaklega með það að þurfa ekki að þvælast langan veg í leikina, eins og við höfum þurft að gera að undanförnu. Eins og til dæmis í undankeppni Evrópu- mótsins þegar við þurftum að ferð- ast alla leið til Armeníu, Rússlands og Úkraínu, sem eru mjög löng og þreytandi ferðalög. Nú eru það hins vegar Búlgaría sem er lengst í hurtu, en mun þægilegri og opnari ferðlög í alla hina leikina." - Hvemig meturðu styrk cmd- stæðinganna? „Þó Tékkarnir hafi verið að gera það gott að undanförnu og séu ofar Dönum á styrkleikalistanum, þá held ég að Danirnir séu jafnvel sterkari. Báðar þessar þjóðir hafa mikla hefð á stórmótum, eins og reyndar Búlgarar hafa líka og hafa náð mjög góðum árangri bæði á HM og á Evrópumótunum. Tékk- arnir fóru inn í úrslilakeppni Evópumótsins með miklum stæl og höfðu reyndar tryggt sig þar inn löngu áður en riðlákeppninni lauk. Danirnir þurf'tu aftur á móti að spila aukaleiki gegn ísraelum um sætið, en höfðu stuttu áður unnið glæsilegan útisigur á ítölum. Það sýnir að þeir eru geysisterkir, ckki síður en Tékkarnir, sem komust alla ieið í úrslitaleik síðustu Evr- ópukeppni. Danirnir hafa líka hefðina með sér og ekki er svo langt síðan þeir unnu Evrópu- meistaratitilinn. Búlgarar eru aftur á móti óþekkt stærð og eru að mér skilst að byggja upp nýtt lið og ný kynslóð að taka við af Stoichkov og félögum úr gamla HM-liðinu. Þeir eru því stórt spurningarmerki. Norður-Irarana þekkjum við frá fyrri leikjum og .'itum að þeir geta verið erfiðir. Þrir spila þennan típíska enska bolta og það er heil- mikil vinna að spila gegn þeim. Við eigum þó að mæta þeim óragir og sama er að segja um Möltubúana. Við erum ofar þessum tveimur þjóðum á styrkleikalistanum og þangað eigum við að sækja stigin." - Hverjct telur þú möguleika lslands? „Ef ég met möguleikana út frá ins að undanförnu, þá sýnist mér að við séum í góðum málum. Við verðum samt að passa okkur og vera við öllu búnir, því við erum að fara inn í keppni, þar sern hart verður barist. Styrkleiki sterkari liðanna í þessum riðli, er í raun meiri en í riðlakeppni Evrópu- mótsins, ef Frakkar eru þar undan- skildir og bæði Tékkar og Danir eru ofar á Iistanum en bæði Rúss- ar og Úkraínumenn, sem hafa frekar verið á niðurleið. Tékkar og Danir eru aftur á móti á mikilli siglingu og hafa sannað það ræki- Iega. Það væri því óraunhæft fyrir hvern sem er að ætla að við ættum mikla möguleika gegn þeim, en eins og dæmin sanna þá er allt hægt.“ - Hvciða taknuirk selurðu þér með liðiö? „Við vitum hvað við ætlum og gera og vitum hvað við þurfuni að gera. Síðast tókst okkur ekki að komast upp um slyrkleikallokk og það er því mikilvægt að það takist núna. Það er aðal takmarkið og ef það tekst þá getur það skilað okk- ur góðu sæti í riðlinum. Það er okkur mjög mikilvægt til lengri tíma litið, þar sem það myndi færa okkur upp á listanum lýrir þar næstu keppni og þá höfum við þrjár þjóðir fyrir neðan okkur í riðli í staðinn fyrir tvær núna. Við verð- um að horfa til framtíðarinnar og megum ekki klúðra því góða upp- bygginarstarfi sem unnið hefur verið og þess vegna þurfum við að halda okkur á jörðinni og vanda okkur virkilega.“ - Eigum við von á breytingum á landsliðshópnum? „Ég á ekki von á miklum breyt- ingum. Það verða þó alltaf ein- hverjar breytingar milli ára, sama hver þjálfarinn er. Takmarkið er þó að halda áfram á sömu braut og auðvitað verður byggt á þeim sterka og góða kjarna, sem að und- anförnu hefur verið að spila. Breytingar verða ekki gerðar breyt- inganna vegna heldur aðeins til að bæta. Eg verð auðvitað að vinna með opnum huga og skoða þá leik mcnn sem banka á dvmar."

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.