Dagur - 21.12.1999, Side 8

Dagur - 21.12.1999, Side 8
í I I I I 1 i I i I I I I I I l I \ I I 1 \ \ i 1 l I ! i I i l I Vigdís Finnbogadóttir er í hópifrægðarfólks sem Sam- einuðu þjóðimarhafa útnefnt velvildarsendiherra. Má þar nefna fyrmm Kryddpíuna, Geri Halliwell, James Bond leikarann RogerMoore, sjón- varpskónginn Ted Tumer, hjartaknúsarann Julio Iglesi- as og knattspymugoðið Pele. Eins og Dagur greindi frá nýlega hefur Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóð- anna útnefnt Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrum forseta Islands, velvildarsendi- herra í baráttunni gegn kynþáttafordóm- um og kynjamisrétti. Formaður nefndar- innar, Mary Robinson, tilkynnti þetta með viðhöfn f Genf. Aður hafði UNESCO, Menningar- og framfarastofn- un Sameinuðu þjóðanna, útnefnt Vigdísi sem velvildarsendiherra tungumála. Hún er eini íslendingurinn sem hefur hlotið þennan heiður hjá Sameinuðu þjóðunum og ein af fáum Norðurlandabúum. Norska leikkonan Liv Ullmann og finnski söngvarinn Mikko Kuustonen höfðu áður verið valdir velvildarsendiherrar. Vigdís var í hópi sjö einstaklinga sem Mannréttindanefndin tilnefndi. Þeim er ætlað að aðstoða Sameinuðu þjóðirnar í baráttunni gegn kynþáttafordómum og kynjamisrétti en ráðstefna um sama mál- efni fer fram árið 2001. Hinir einstak- lingarnir eru írska nóbelskáldið Seamus Heaney, indverski rithöfundurinn Ravi Shankar, nígeríska nóbelskáldið Wole Soyinka, Ruben Rlades, söngvari og leik- ari frá Panama, Tahar Ben Jelloun, met- söluhöfundur frá Marokkó, og Marian Wright Edelman, forseti barnaverndar- sjóðs f Bandaríkjunum. Aðkallandi verkefni Af þessu tilefni átti Dagur samtal við Vig- dísi Finnbogadóttur á alþjóðadegi mann- réttindabaráttunnar, daginn sem hún var útnefnd. Hún var þá stödd í Kaupmanna- höfn, þar sem hún dvelur lengstum um þessar mundir. „Eg er afskaplega fegin að ég er beðin að gera gagn. Það er mitt lífstakmark, og hefur lengi verið, að gera gagn. Ef að ég get haldið því áfram þá er ég ætíð þakk- lát. Það er ekki einasta að ég sé í góðum hópi heldur er markmiðið og verkefnið mjög aðkallandi. Þarna er ekki bara verið að berjast gegn kynþáttafordómum held- ur fordómum almennt. Inni í þessu er einnig fordómar gagnvart konum sem eru mjög víða viðloðandi,11 sagði Vigdís. Aðspurð hvar ráðstefna Sameinuðu þjóðanna yrði haldin sagðist Vigdís halda að ákvörðun lægi ckki endanlega fyrir. Til tals hefði komið að halda hana í Suður- Afrfku. Utnefning hennar sem velvildar- Vigdís Finnbogadóttir er störfum hlaðin og gegnir m.a. tveimur sendiherrastöðum hjá Sameinuðu þjóðunum. Hún segist vera ánægð með að fá að gera gagn. Það sé aðkallandi verkefni að berjast gegn kynþáttafordóm- um og kynjamisrétti. sendiherra hefur í för með sér enn meiri ferðalög fyrir hana. Vigdísi er ætlað að kynna áætlun Mannréttindanefndar í þessum málum og koma fram með öðrum sendiherrum. „Þetta verður á dagskrá á næsta ári, ásamt öðru. Þetta er talsvert starf, líkt og annað sem ég er að gera. Eg er í rauninni í fullu starfi og hef bara flutt starfsvett- vanginn til útlanda á alþjóðavettvang. Eg er mjög ánægð yfir því ef ég get orðið að Iiði. Eg vil taka það einatt fram að alltaf kem ég fram sem ís- lendingur og alltaf er ég að vinna fyrir ís- land um leið, og tals- vert mikið," sagði Vig- dís Finnbogadóttir. Engir meðaljónar! Þegar litið er yfir lista frá Sameinuðu þjóð- unum (SÞ), sem blaðið fékk frá upplýsinga- skrifstofu SÞ á Norð- urlöndunum, yfir vel- vildarsendiherra og aðrar stöður sem stofnunin hefur út- hlutað kemur strax í ljós að þar eru engir meðaljónar. UNESCO og UNICEF, Barna- hjálp Sameinuðu þjóð- anna, hafa verið dug- legastar stofnana SÞ að útnefna þessa sendiherra. Hjá UNICEF eru líklega þekktust leikar- arnir Liv Ullmann, Roger Moore, Vanessa Redgrave, Peter Ustinov og Audrey Hepburn, sem gcgndi starfinu þar til hún lést árið 1993. Á þessum Liv Ullmann. Roger Moore. Harry Belafonte. Geri Halliwell, fyrrum Kryddpía. S/r Peter Ustinov. lista eru einnig söngv- ararnir Harry Belafonte, Julio Iglesi- as og Nana Mou- skouri, leikstjórinn Richard Attenborugh, fjallagarpurinn Sir Ed- mund Hillary og leikkonurnar Judy Collins og Jane Seymour. Mannfjöldasjóður SÞ, UNFPA, hefur einnig útnefnt nokkra velvildarsendiherra. Listamenn eru þar fjölmennir og nægir að nefna leikkonurnar Jane Fonda og Lindu Gray, Kryddpíuna fyrr- verandi Geri Halliwell, bresku fígúruna Divine og sjónvarps- kónginn Ted Turner, eiginmann Jane Fonda. Vigdís var fyrir einu og hálfu ári útnefnd veldvildarsendiherra hjá UNESCO. Þar er hún einnig f fönguleg- um hópi, eins og áður sagði. Þar eru menn og konur ýrnist útnefnd velvildarsendiherrar (Goodwill Ambassa- dors) eða listamenn friðar (Artist for Peace). Á þessum lista eru m.a. knattspyrnu- goðið Pele, Ieikkonan Catherine Deneuve, tónskáldið Yehudi Menuhin og tónlistar- maðurinn Jean-Michel Jarre. -Bjn SPJALL Árni Sigurðsson: „Hann lætur ekki bíða eftir sér sá guli. Hann bara syndir frá okkur.“ Sjómemiirnir matbúa skötuna Togarinn Arnar kemur í dag eða næstu daga til hafnar á Skagaströnd með verðmætasta afla sem íslenskt skip hefur nokkru sinni komið með að landi. Árni Sigurðsson er skipstjóri á Arnari. Hann segir að mórallinn sé fi'nn um borð þegar svo vel gengur. - Hvemig hefur yhkur tehist að nd þessu? „Það er mikill bolfiskkvóti hjá fyrir- tækinu og svo hefur verið hátt verð á afurðum allt árið. Þetta fylgist að. Svo hefur þetta náttúrulega gengið vel. Við höfum verið heppnir. Utgerðin er góð og góður mannskapur. Þegar þetta spilar allt saman þá er hægt að gera svona hluti.“ - Hvað gera menn við peningana, fara þeir beint í jeppa eða utanlands- ferðir? „Nei. Það hefur verið jákvætt hljóð í fólki hér heima þetta árið. Ungt fólk er að kaupa hér íbúðir. Það hefur ekki skeð í fjöldamörg ár. Unga fólkið hef- ur ekki þotið í burtu frá okkur svo að velgengnin hjá fyrirtækinu skilar sér vonandi inn í staðinn. Þetta hefur allt gengið rosalega vel.“ - Hvaða tahmörh setja menn sér á næsta ári? „Það verður bara spilað af fingrum fram, bara vonandi að við eigum góð- an kvóta. Mér finnst vera mikill sam- dráttur i þorskveiðum frá því sem ver- ið hefur. Eg held að það sé ekki nánd- ar nærri eins mikill fiskur í sjónum eins og fiskifræðingar hafa haldið fram. Fyrir 2-3 árum var svakalega mikill fiskur en þeir hafa vanmetið það. Topparnir sem hafa bjargað okk- ur mikið. Maður þarf að hafa miklu meira fyrir því að ná fiskinum en var til dæmis í fýrra og hittifyrra. Við hefð- um mátt fiska meira þá. Hann lætur ekki bíða eftir sér sá guli. Hann bara syndir frá okkur.“ - Menn verða hátir að koma inn til að halda jól? „Já. Svo höldum við árlega skötu- vcislu þar sem nánast allir bæjarbúar mæta. Við sjómennimir sjáum um matreiðsluna. Það er svakaleg stemmning. Þetta byrjaði um borð í togurunum hjá okkur fyrir 20-25 árum síðan. Fjöldinn jókst alltaf þannig að við fórum að halda þetta í bragga. Undanfarin ár hefur ekki dug- að minna en félagsheimilið því að það kemur stór hluti af bæjarhúum. Þá byrja jólin hjá okl<ur.“ -GHS

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.