Dagur - 22.12.1999, Page 2

Dagur - 22.12.1999, Page 2
2- MIDVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999 FRÉTTIR Norski sendiherrann ekM kaUaður fyrir HaJldór Ásgrímsson segist ekki ætla að kaUa norska sendiherr- an á sinn fund. Hann kennir andstæðingum Flj ótsdals virkj unar um að gera máHð að póU- tísku máli miiii ríkis- stjóma íslands og Nor- egs. „Nei, ég mun ekki gera það,“ sagði Halldór Asgrímsson utanríkisráð- herra þegar hann var spurður hvort hann ætlaði að kalla norska sendiherrann á sinn fund vegna skýrslunnar sem hann sendi norsku ríkisstjórninni vegna Fljótsdalsvirkjunar, álvers í Reyðarfirði og því sem hann hefur eftir Siv Friðleifsdótt- ur í þeim efnum. „Það liggur ljóst íyrir að andstæðingar þessa máls hafa verið að reyna að gera það að pólitísku máli milli ríkisstjórna Islands og Noregs. Þær til- raunir finna sér stað í þessari skýrslu norska sendiherr- ans,“ segir Halldór Alislensk mál Hann segir að íslensk stjórnvöld Halldór Ásgrímsson. hafi ávallt lagt á það áherslu að virkjunar- málin væru alíslensk mál, sem komi er- lendum ríkisstjómum eða öðrum erlendum aðilum alls ekki við. Samningar um bygg- ingu álvers væri samningamál milli ís- lenskra aðila og fyrir- tækisins Norsk Flydro. „Við væntum þess vissulega að þar fáist niðurstaða sem verði viðunandi fyrir báða aðila. Það mun koma í Ijós á næstu mánuð- um,“ segir Halldór. Hann var spurður hvort hann ætti von á þvf að þessi skýrsla sendiherrans og það sem þar er haft eftir Siv Friðleifsdóttur, muni hafa einhver áhrif á afstöðu Norsk Hydro í málinu. „Það er nú alltaf verið að reyna hér innanlands, af andstæðingum þessa máls, að hafa áhrif á það. Eg tel að það geti vart verið en ég get auðvitað ekkert um það fullyrt. Forráðamenn Norsk Hydro hafa tekið það skýrt fram að þeir séu áhugasamir um að samningar ná- ist. Eg tel enga ástæðu til að ætla annað en að þeir vinni að málinu á þeim grundvelli áfram, eins og þeir hafa gert fram að þessu," sagði Halldór Ásgrímsson. - S.DÓR - Nánar af umfjöllun málsins á þingi á bls. 9 AlJjingi íjolafn „Ég á nú von á því að okkur takist að ljúka störfum um miðjan dag á morgun (í dag miðviku- dag) og að fundum AI- þingis verði frestað í björtu en ekki um miðja nótt,“ sagði Guðmundur Árni Stefánsson, varaforseti Al- þingis, í samtali við Dag. Um miðjan dag í gær sá loks fyr- ir endann á umræðunum um Fljótsdalsvirkjun og sagði Guð- mundur Árni að þegar það mál væri frá yrði tiltölulega fljótlegt að afgreiða önnur mál sem bíða af- greiðslu og þola ekki bið fram yfir áramót. — S.DÓR Guðmundur Árni Stefánsson. Siv biðiir ckki um leiðréttingu Siv segir það sem sendiherra Norðmanna hafi eftir sér í skýrslu tfi norskra stjómvalda vera rétt og því engin ástæða til að hiðja um leiðréttingu. Annað í skýrslunni segir hún vangaveltur sendiherr- ans. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra segir í samtali við Dag að það sé rétt eftir sér haft í skýrslu norska sendiherrans að Fljótsdals- virkjun og álver við Reyðarljörð séu umdeild mál á Islandi. Annað sem í skýrslunni kemur fram séu vangaveltur sendiherrans. „Um miðjan nóvember hafði sendiherra Noregs hér á landi samband við umhverfisráðuneytið og óskaði eftir viðtali við mig. Þar sem ég er samstarfsráðherra Norðurlandanna hér á landi og hann nýr í starfi ákvað ég að verða við þeirri beiðni og taldi það auð- vitað sjálfsagt mál. Samtal okkar var vinsamlegt og margt bar á góma. Við ræddum stjórnmál á ís- Siv Friðleifsdóttir. landi og efnahagsmál með mjög almennum hætti," sagði Siv Frið- leifsdóttir. Ekki ástæða til leiðréttingar Hún segir að virkjunarmál og bygging álvers í Reyðarfirði hafi verið meðal þess sem barst í tal. „Það er hins vegar af og frá að ég hafi í þessu spjalli okkar látið að því Iiggja að það gæti haft áhrif á samskipti þessara frændþjóða ef Norsk Hydro hætti við þátttöku í byggingu álvers á Austurlandi," segir Siv. Hún segist vera búin að Iesa skýrslu sendiherrans. Sumsstaðar sé erfitt að greina á milli þess sem hann hafi eftir sér og þess sem eru hans eigin hugleiðingar. Hann hafi þó eftir sér að ríkisstjórnin leggi áherslu á að ná málinu fram en ekki væru allir sammála um Fljótsdalsvirkjun og álversbygg- inguna í þjóðfélaginu. „Þess vegna spyr ég hvort það sé eitthvað nýtt fyrir Islendingum að málið sé umdeilt. En fyrir utan þetta eru það hreinar vangaveltur sendiherrans sjálfs sem í skýrsl- unni stendur. Hann er jgreinilega búinn að tala við marga Islendinga um málið og fylgjast'vel með því sem fram hefur komið í fjölmiðl- um. Nú sýnist mér sem fjölmiðlar og stjórnarandstaðan á þingi ætli að snúa þessu upp á mig," sagði Siv. Hún var spurð hvort hún ætlaði að kalla eftir leiðréttingu frá sendiherranum. „Ég ber enga ábyrgð á vanga- veltum sendiherra Noregs á ís- Iandi í skýrslu sem hann sendir norskum stjórnvöldum. Auk þess sem ég fæ ekki betur séð en að það sem hann vitnar í mig sé að ríkisstjórnin leggi áherslu á að ná málinu fram og að þetta sé erfitt mál í þjóðfélaginu. Ég sé ekki ástæðu til þess að leiðrétta það,“ sagði Siv Friðleifsdóttir. — s.DÓR — Nánar á bls. 9 Össur Kristinsson, frumkvöðull ársins 1999, og Gunnar Örn Kristjánsson, maður ársins 1999, með Viðskiptaverðlaunin. - mynd: þök ViðsMpta verðlaunm Viðskiptaverðlaunin 1999 voru af- hent með viðhöfn í gær. Viðskipta- blaðið, DV og Stöð 2 stóðu að verðlaununum, líkt og þessir fjöl- miðlar hafa gert frá árinu 1996. Gunnar Örn Kristjánsson, forstjóri SlF, var valinn maður ársins í ís- Iensku viðskiptalífi og Össur Krist- insson, stofnandi Össurar hf., var valinn frumkvöðull ársins. Gunnar Öm hefur verið forstjóri SÍF frá ársbyrjun 1994. Árið 1999 markaði sérstaklega tímamót í sögu SIF en nú í haust var sam- þykkt að sameina fyrirtækið og ÍS. Össur Kristinsson hefur leitt stoðtækjafyrirtækið í gegnum lang- an og glæstan þroskaferil og hefur fyrirtækið náð góðum árangri. Valur Knútsson, formaður atvinnumálanefndar Akureyrar, afhendir Sveini Jónssyni í Kálfsskinni hvatningarverðlaun að upphæð 500.000 krónur. - mynd: brink Hef eMd verið nógu duglegur Sveinn Jónsson í Kálfsskinni á Arskógsströnd híaut í gær viðurkenn- ingu Atvinnumálanefndar Akureyrar, sem frumkvöðull ársins. At- vinnumálanefndin veitir Sveini hvatningarverðlaun fyrir ómetanlegt starf hans að atvinnumálum, sérstaldega þátt hans í uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu. Kláfferjan og hinn gamli draumur um hana sem er um það bil að rætast á ekki síst þátt í þeirri viðurkenningu sem Sveinn fær nú sem frumkvöðull ársins enda hefur hann „hvorki spar- að tíma né peninga til þess að sjá þennan draum sinn verða að veru- leika," eins og Valur Knútsson, lormaður atvinnumálanefndar, sagði þegar hann afhenti Sveini viðurkenninguna. Nefndin telur Svein einn af þeim frumkvöðlum, sem ekki hafa nolið þeirrar viðurkenning- ar sem hann á skilið en margur yngri maðurinn mætti taka hann sér til fyrirmyndar hvað varðar dugnað og þrautseigju. Sveinn tók við viðurkenningunni af sinni alkunnu hógværð og sagði þá meðal annars að hann hefði alls ekki verið nógu duglegur, frétta- tilkynning atvinnumálanefndar væri lofrulla sem hann ætti ekki skil- ið, enda hefði hann sparað bæði tíma og peninga varðandi Kláffcrju- verkefnið og þess vegna væri það ekki komiö lengra. — m Samið við Urði, Verðandi, Skuld Sjúkrahúsin í Reykjavík og Urður, Verðandi Skuld ehf. hafa gert sam- starfssamning vcgna krabbameinsrannsókna. Yfirlýsing þessa efnis hefur verið undirrituð af Magnúsi Péturssyni, forstjóra sjúkrahús- anna f Reykjavík, og Reyni Arngrímssyni, framkvæmdastjóra vísinda- sviðs UVS, ásamt lækningaforstjórum beggja sjúkrahúsanna. Sam- starfið felur m.a. í sér að sarnið verði um að sjúkrahúsin taki að sér vinnslu upplýsinga og sýna sem safnað er með upplýstu samþykki ein- staklinga til krabbameinsrannsókna. Verkefnin þurfa að hafa hlotið samþykki Vísindasiðanefndar og vera unnin samkvæmt vinnuferli sem Tölvunefnd samþykkir. Samstarfið byggist á því að nýta verk- tækni og þekkingu sem starfsmenn sjúkrahúsanna og UVS búa yfir, m.a. til rannsókna á sviði fruríiu- og sámeindalíffræði.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.