Dagur - 28.01.2000, Síða 10
10 - FÖSTUDAGUR 28. JAIVÚAR 2000
SDMjftr
SMÁAUGLÝSINGAR
Takið eftir_____________________
Frá Sjónarhæð. Unglingafundir á föstu-
dagskvöldum kl. 20:30.
Á mánudögum kl. 18 verða fundir fyrir
drengi og stúlkur. Vonumst til að sjá vini
okkar frá Ástjöm. Verið öll velkomin.
Húsnæði óskast!_________________
Oska eftir að taka á leigu íbúð á Akureyri
3-4 herbergja.
Uppl. síma 867 0981
Atvinna óskast_____________________
Halló halló Akureyri er að flytja norður,
vantar góða og vel launaða vinnu með vor-
inu. Ég er 42. ára með meirapróf og alla liði
i lagi. Akureyringar athugið, það er ekki oft
sem þið fáið svona tækifæri til að ráða 57
mótelið með alla liði í lagi. Ef þið sinnið
þessu ekki þá mun ég bjóða mig fram til
Bæjarstjóra og þá er fjandinn laus, ykkar er
valið.
Upplýsingar í síma 461 3028. Jóhannes
c pntO UH0^0TPo
».7
íKm/,u 12«0S*«
*• 2 _______________________ ^
80 ,
jimfsaas?©
120
40
www.umferd.is
3. 200
Sendi mínar bestu þakkir til allra sem
sýndu mér vinarhug og glöddu mig á
áttræðisafmæli mínu þann 23. janúar sl.
Bestu kveðjur
Árni Árnason
Mýrarvegi 124
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginkonu minnar, móöur,
tengdamóður, systur, mágkonu og frænku,
SOFFÍU ÁSGEIRSDÓTTUR,
Háalundi 7,
Akureyri,
sérstakar þakkir til starfsfólks lyfjadeildar FSA
fyrir góða aðhlynningu.
Porsteinn Friðriksson,
íris Þorsteinsdóttir, Friðrik B. Kristjánsson,
Ólafur Ásgeirsson, Bente Lie Ásgeirsson,
Halldór Ásgeirsson,
Ásgeir Ásgeirsson, Sigríður Óladóttir,
Gunnar Ásgeirsson,
Ásrún Ásgeirsdóttir, Halldór Þórisson,
Haukur Ásgeirsson,
Guðrún Ásgeirsdóttir
og frændsystkyni.
Fóstud. kl. 17, 19 & 21
Wl Thx
SÍMI 461 4666
kl. 17,19, 21 og 23
21 og 23
Sýnd kl. 17 og Sýnd kl. 17
19Síöustusýn. m/ísl.tali
■ LÍF OB LIST
Karlmenni
„Eg var að Ijúka við Satt við fyrstu sýn, nýju
bókina hans Hemmingways. Þetta er
sjálfsævisöguleg skáldsaga þar sem hann
segir meðal annars frá sfðustu veiðiferðinni
til Afríku og fleirum. Hann er karlmenni. Svo er ég núna tekinn
til við að Iesa ævisögu Steingríms Hermannssonar og hef dálítið
gaman að henni. Það finnst mér reyndar Ijóður á henni að hann
er að bera sig saman við föður sinn og mér finnst Steingrímur
ekki koma vel út í þeim samanburði. Einnig er ég með í gangi
ævisögu Jónasar Hallgrímssonar. Svo er á náttborðinu ýmislegt
léttmeti í bland annað þyngra,“ segir Jón Björn Hákonarson,
kynningarfulltrúi í Fjarðarbyggð.
MyndbandsfOdll
„Ég var í gærkvöld að horfa á myndina Analyze
this með Robert De Niro og Billy Crystal.
Þetta er feikna fyndin mynd um mafíósa sem
getur ekki lengur sinnt starfi sínu. Hann fær taugaáfall og leitar
til sálfræðings. Ég er mikill myndbandafíkill og það fer margt í
gegnum tækið hjá mér og þar á Clint Eastwood ávallt fastan
sess. Þær eru margar góðar myndir sem Eastwood hefur gert.
Hann er töffari og mikið karlmenni. Það er þó ein mynd sem er
helst í uppáhaldi hjá mér og það er vestrinn Unforgiven. Það er
mögnuð mynd og hann fékk Oskarsverðlaun fyrir hana.“
Alæta á tónlist
„Ofan á geislanum hjá mér núna er diskurinn
Remember me, sem er safndiskur með Iögum
eftir Cat Stevens. Eins hef ég mikið dálæti á
öðrum safndiski þessa dagana en það er „Best of Clapton". Ég
alæta á tónlist. Þegar að við settum upp dagskrá í vetur með
lögum sem gerðu það gott á sviðinu í spilaborginni Las Vegas
hlustaði ég mikið á hetjur eins Tom Jones, Elvis og Dean
Martin. Dean er mikið karlmenni. Við sýndum þessa dagskrá
meðal annars á Broadway, við góðar undirtektir og Ólafur
Laufdal var mjög ánægður.“
■ FRA DEGI
EÖSTUDAGUR 28. JANÚAR
28. dagur ársins, 338 dagar eftir.
Sólris kl. 10.22, sólarlag kl. 17.00.
Þau fæddust 28. janúax
• 1706 fæddist enski prentarinn og Iet-
urhöfundurinn John Baskemlle.
• 1768 fæddist Friðrik VI., konungur
Danmerkur (og íslands) 1808-39, og
Norcgs frá 1808-14.
• 1824 fæddist Hilmar Finsen lands-
höfðingi.
• 1841 fæddist breski landkönnuðurinn
Henry Morton Stanley.
• 1873 fæddist franski rithöfundurinn
Colette.
• 1887 fæddist pólski píanóleikarinn
Artur Rubinstcin.
• 1892 fæddist þýski kvikmyndaleik-
stjórinn Ernst Lubitsch.
• 1912 fæddist bandaríski listmálarinn
Jackson Pollock.
• 1933 fæddist bandaríski rithöfundur-
inn og gagnrýnandinn Susan Sontag.
• 1948 fæddist rússneski ballettdansar-
inn Mikhaíl Barisjnikov,
TIL DAGS
Þetta gerðist 28. janúar
• 1871 unnu Þjóðverjar sætan sigur á
Frökkum í stríði landanna tveggja.
• 1907 var Sláturfélag Suðurlands
stofnað.
• 1912 var Iþróttasamband íslands
stofnað.
• 1921 vakti Albert Einstein mikla furðu
í Berlín með yfirlýsingum sínum um
að hægt væri að mæla stærð alheims-
ins.
• 1944 gerðu 683 breskar sprengjuflug-
vélar árás á Berlín.
• 1956 kom Elvis Presley lýrst fram í
sjónvarpi og hneykslaði Bandaríkja-
menn víst óskaplega með mjaðma-
sveiflum sínum.
• 1964 skutu Sovétríkin niður banda-
ríska þotu yfir Austur-Þýskalandi.
Vísa dagsins
Mærin fríóa, bjarta hlíða
berjasultan mín.
Ei skal bíða, ég vil skríða
upp í sæng til þín.
Ragnar Ingi Aðalstcinsson
Afmælisbam dagsins
Kúbanska skáldið og þjóðfrelsishetj-
an José Julian Martí fæddist í
Havana þann 28. janúar árið 1853.
Hann gaf út sína fyrstu ljóðabók
þegar hann var 1 5 ára og ári seinna
stofnaði hann dagblaðið Patria libre
eða Frjálst föðurland. Hann var bar-
áttumaður gegn yfiráðum Spánverja
og var þess vegna sendur í útlegð.
Hann tók meistargráðu í bókmennt-
um og Iögfræði frá Háskólanum í
Zaragossa á Spáni. Árið 1895 fór
hann ásamt öðrum útlögum til þess
að berjast með uppreisnarmönnum
á Kúbu og var skotinn niður í bar-
daga Dos Ríos þann 19. maí 1895.
Um leið og okkur fer að langa til þess að
trúa einhverju komum við skyndilega
auga á öll þau rök sem styðja það og
verðum blind á mótrökin gegn því.
Georgc Bernard Shaw
Heilabrot
Hvernig er svona reikningur mögulegur: Ég
skrifa fimm, tek tvo af og þá eru eftir tveir.
Lausn á síðustu heilabrotum: Augað er
það „grjótbúr“ sem getur af sér „regnskúr".
Veffang dagsins
Daglegar fréttir úr heimi náttúruvísind-
anna er að finna á helix.nature.com/nsu/
Þessar fréttir eru skrifaðar af starfsmönn-
um hins virta vísindatímarits Nature, en
ætlaðar almenningi og skrifaðar á skiljan-
legu máli.