Dagur - 29.01.2000, Síða 2
2 - LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2000
FRÉTTIR
Thyptr
Rádherraim víM
vegna vanhæfis
Meint misferli með
fjámmni vangefms
inaims fæst ekki rann-
sakað. Aðgangur að
gögnum mannsins
fæst ekki. 92ja ára
efnalitil móðir
mannsins fær ekki
gjafsókn.
Kona á tíræðisaldri hefur farið
fram á að dómsmálaráðherra víki
sæti og að seturáðherra verði
skipaður í máli, þar sem óskað er
gjafsóknar vegna fyrirhugaðrar
málshöfðunar gegn manni sem
grunaður er um að hafa misfarið
með eigur vangefins sonar henn-
ar. Lögmaður konunnar, Róbert
Arni Hreiðarsson, telur að dóms-
málaráðherra hafi af því hags-
muni að mál hins vangefna son-
ar komi ekki upp á yfirborðið
vegna eftirlitsleysis og hugsan-
legrar bótaskyldu.
Ráðuneyti, lögregla og ríkis-
saksóknari hafa hafnað því að
taka viðkomandi mál til rann-
sóknar og því
meðal annars
horið við að gögn
vanti til rök-
stuðnings því að
brot hafi átt sér
stað gagnvart
hinum vangefna.
Á hinn bóginn
hefur móðirin og
lögmaðurinn
ekki fengið að-
gang að gögnum
sonarins hjá
Sýslumanninum
í Reykjavík á
þeirri forsendu
„að ekki væri til
skýr lagaheimild sem heimilaði
aðgang foreldra ólögráða manna
að gögnum um lögræðið".
Jörð niaiinsins seld á uiidir
verði?
Sonurinn hefur verið vistmaður
á Kópavogshæli um langt árahil,
en hafði skipaðan lögráðamann.
Sveinbjörgu grunar að ekki sé
allt með felldu með fjárhald lög-
ráðamannsins og að eignir son-
arins hafi rýrnað óeðlilega í hans
höndum. Meðal annars var jörð í
eigu sonarins í Stafholtstungum
seld Skógrækt
ríkisins síðla árs
1987, á undir-
verði að því er
fullyrt er, og er
bent á tölur um
veiðiarð í Norð-
urá málinu til
stuðnings. Jörð-
ina höfðu for-
eldrar hins van-
gefna gefið hon-
um ungum og
ætlað honum að
hafa af henni
tekjur, þar eð
hann gæti ekki
haft tekjur af
venjulegri vinnu.
Hin aldraða móðir fól lög-
manninum Róbert Árna að rann-
saka málið, en Iögmannsstofa
hans hefur hvarvetna rekist á
veggi. Leitað var til sýslumanns
um aðgang að lögræðisgögnum
sonarins en því var hafnað. Neit-
unin var kærð til dómsmálaráðu-
neytisins, sem staðfesti hana.
Það var kært til Urskurðarnefnd-
ar um upplýsingamál, sem vísaði
málinu frá. Lögráðamaðurinn
grunaði var þá kærður til lög-
reglu, sem hafnaði að taka málið
til rannsóknar, þar sem gögn
vantaði til stuðnings kærunni -
gögnin sem aðgangur fékkst ekki
að. Ákvörðunin var kærð til Rík-
issaksóknara, sem hafnaði rann-
sókn. Því var skotið til dóms-
málaráðherra sem staðfesti
höfnunina á rannsókn. Var þá
ákveðið að höfða mál og sækja
um gjafsókn vegna fátæktar
gömlu konunnar, en því var
hafnað og nú krefst lögmaðurinn
þess að seturáðherra fjalli um
gjafsóknarbeiðnina.
Hagsmunir af því að
rannsaka ekki
Lögmaðurinn telur að dóms-
málaráðherra beri að víkja sæti
vegna vanhæfis í málinu. Ráðu-
neytið hafi hagsmuni af því að
málið komi ekki upp á yfirborð-
ið; það ásamt sýslumanninum
beri ábyrgð vegna skorts á nægi-
legu eftirliti, ef rétt er að fjár-
munir sonarins hafi rýrnað í
höndum skipaðs lögráðamanns.
Ráðuneytið hafi og hagsmuni á
að rannsókn fari ekki fram vegna
hugsanlegrar bótaskyldu gagn-
vart hinum vangefna syni kon-
unnar. — FÞG
Mýs hafa fjölgað sér í vorveðrinu
siðustu vikur.
Músa-
faraldur?
Vegna átaks Reykjavíkurborgar í
útrýmingu flækingskatta hafa
menn spurt sig hvort rottu- og
músafaraldur sé í vændum þar
sem kettirnir hafi verið duglegir
að halda þessum nagdýrum niðri,
sérstaklega músunum. Að sögn
Sigurjóns B. Sigfússonar mein-
dýraeyðis er lítil hætta á þessu,
kettirnir hafi ekki verið það stór-
virkir, auk þess sem lítið hafi bor-
ið á rottu- og músagangi í vetur.
Sigurjón sagðist hins vegar hafa
meiri áhyggjur af fjölgun músa-
stofnsins eftir blíðviðrið síðustu
vikurnar.
„Miðað við lengd góðviðriskafl-
ans að undanförnu þá má búast
við því að mýsnar hafi tekið þetta
sem vorveður og byrjað að fjölga
sér all verulega. Það á eftir að skila
árangri á næstu vikum. Eg gæti átt
von á músafaraldri undir lok fehr-
úar,“ sagði Sigurjón og bætti við að
hann hefði séð ýmsar flugnateg-
undir á sveimi að undanförnu,
sem að öllu jöfnu ættu ekki vera á
flugi á þessum árstíma. En nú er
kuldinn skollinn á á ný, flugum og
öðrum meindýrum til ama. — BJB
Mun hitta forelda
fermingafbama
Torfi Hjaltalín Stefánsson.
Torfi Hjaltalín Stefánsson, prest-
ur á Möðruvöllum segist ekki
vita hvort dómur Héraðsdóms
Norðurlands eystra, þar sem
hann var dæmdur í fésekt og
skilorðsbundið fangelsi vegna
likamsárásar, breyti einhverju
um hans veru á Möðruvöllum.
Sr. Torfi hafði sagt brauði sínu
lausu og hugðist hætta I. júní
nk. eftir að fermingar í sóknun-
um væri afstaðnar. Að sögn lög-
manns sr. Torfa, Sigurðar Eiríks-
sonar, liggur ekki enn fyrir hvort
málinu verði áfrýjað til Hæsta-
réttar, en líkur á því eru taldar
frekar minni en meiri.
„Eg veit það varla á þessari
stundu eða hvort mínir yfir-
menn, s.s. biskupinn sjá ástæðu
til þess. Það verður fundur hér á
Möðruvöllum á sunnudags-
kvöldið með foreldrum ferming-
arbarna. Ég ætla að leggja málið
fyrir þau til ákvörðunar um það
hvað gert verði og hvort þau vilji
að ég fari frá fermingarfræðsl-
unni. Ég hafði reyndar hugsað
mér að leggja málið fyrir þau
áður en þessi dómur féll og þetta
fjölmiðlafár kringum mig byrj-
aði. Ég mun fara eftir því hvað
þau segja,“ segir sr. Torfi Hjalta-
h'n Stefánsson.
Sameiginleg kvöldguðþjónusta
fyrir allt prestakallið verður í
Möðruvallakirkju á sunnudags-
kvöld klukkan 20.30. — GG
Áskoran Samstöðu
Samninganefnd húnvetnska stéttarfélagsins Samstöðu samþykkti sam-
hljóða á fundinum í fyrrakvöld að lýsa yfir fullum stuðningi við fram-
komnar kröfur VMSI og Landssambands iðnverkafólks vegna komandi
kjarasamninga. Nefndin minnir á að það umtalaða ástand, sem ákveðnir
aðilar í þjóðfélaginu haldi á lofti, sé ekki af völdum launahækkana til fé-
Iagsmanna áðurnefndra landssambanda. Það ættu stjórnvöld að hafa
hugfast. Samninganefnd Samstöðu skorar á launafólk að sína í verki sam-
stöðu og samtakamátt hreyfingarinnar og mynda bakland til að ná fram
sanngjörnum kröfum sem Iagðar hafa verið fram, þeim lægstlaunuðu í
landinu til hagsbóta.
Vefiir uiii vísiudi
í tilefni menningarborgarhátíðarinnar í dag ætlar Háskóli íslands að opna
vef á Netinu um vísindi. Markmið vefjarins er að efia áhuga og þekkingu
á vísindum og fræðum í landinu. Vísindavefurinn býður gestum sínum að
leggja fram spurningar um hvaðeina sem ætla má að vísinda- og fræði-
menn Háskólans geti svarað eða fundið svör við. Tekið verður við spurn-
ingum út þetta ár en síðan á að gefa út á bók á næsta ári með völdum
spurningum og svörum. Forseti Islands, Ólafur Ragnar Grímsson, opnar
vefinn í dag með viðhöfn. Slóðin er vvww.visindavefur.hi.is
Starfshópur um löggufot
Ríkislögreglustjórinn hefur ákveðiðað skipa starfshóp til að gera tillögur
um einkennisfatnað lögreglustjóra og notkun hans. I starfshópnum eru:
Ólafur K. Ólafsson, sýslumaður, sem er formaður hópsins, Arnar Þór
Jónsson lögfræðingur í dómsmálaráðuneytinu, Böðvar Bragason, lög-
reglustjóri í Reykjavfk, sýslumennirnir Jóhann Benediktsson og Inger L.
Jónsdóttir og loks Jón F. Bjartmarz, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglu-
stjóra.
Morgiun sama lun EM
Nær helmingur þeirra sem
greiddu atkvæði um spurningu
Dags á Vísisvefnum hefur ekki
fylgst með gangi hand-
holtalandsliðsins á Evrópumeist-
aramótinu í Króatíu.
Spurt var: Fylgist þú með EM
í Króatíu? Rúmur helmingur,
eða 53 prósent, sagði já, en 47
neituðu.
Nú er hægt að greiða atkvæði
um nýja Dags-spurningu, sem
hljóðar svo: Á Kio Briggs skilið
að fá hætur frá ríkinu?
Slóðin er: visir.is
vísir.is
Bókarar viðurkeimclir
Viðurkenndir bókarar voru í fyrsta sinn útsltrifaðir í gær, alls 10 að tölu.
Geir Haarde fjármálaráðherra afhenti þeim prófskírteinin við athöfn í
Rúgbrauðsgerðinni í Reykjavík. Námskeið, sem útskrifa bókara sam-
kvæmt lögum sem samþykkt voru árið 1997, hófust í haust í samráði viö
Viðskiptaháskólann í Reykjavík, nú Háskólann í Reykjavík. í viðurkenn-
ingunni sem bókari felst að viðkomandi hefur staðist próf í bókfærslu,
helstu atriðum reikningsskila og lögum og reglum um skattskil, auk þess
sem þeir þurfa að fullnægja ákveðnum almennum hæfisskilyrðum. Þeim
er ekki uppfylla þessi skilyrði, og hafa ekki tekið löglegt próf, er óheimilt
að nota heitið viðurkenndur bókari. Þeir sem ekki hafa tekið hókarapróf
verða því að viðurkenna það.