Dagur - 29.01.2000, Blaðsíða 12

Dagur - 29.01.2000, Blaðsíða 12
12- LAVGARDAGVH 29. JANÚAR 2000 ÍÞRÓTTIR Íþróttahátíð bamanna í Laugardalshöll íþróttabandalag Reykjavíkur stendur í dag, laugardag, fyrir íþróttahátíð barnanna í Laugardalshöll, í samstarfi við íþróttafélögin í Reykjavík. Há- tíðin sem er hluti af dagskrá „Menningarborgar Evrópu árið 2000“ er ætluð börnum á aldrinum 3-6 ára og verður höllin opin frá kl 14 til 16. Þar taka íþróttakennarar á móti börnunum og leiðbeina þeim í hinum ýmsu Ieikjum og þrautum, sem settar verða upp með sHpuðu sniði og gert er í íþróttaleikskólum barnanna, sem flest íþróttafélögin í borginni standa fyrir. Iþróttaálfurinn úr Latabæ kemur í heimsókn og sýna krökk- unum að hann hefur engu gleymt og að lokum verður boðið upp á mjólk og Prins Póló. Auk þessa verður börnunum boðið frítt í sund á sundstöð- um borgarinnar. Að sögn Hjördísar Guðmundsdóttur hjá íþróttabandalagi Reykjavíkur er barnahátíðin eitt af þremur verkefnum sem ÍBR mun standa fyrir í samvinnu við Reykjavíkurborg vegna dagskrár Menningarborgar Evrópu. „í mars verður vetraríþróttavika á dagskrá, sem að mestu mun fara fram á skíðasvæðunum og síðan sumaríþróttaviku í byijun sumars," sagði Hjördís. Glemi Hoddle til Southampton fvri Glenn Hoddle. Glenn Hoddle, fyrrum landsliðþjálfari Englendinga, var í gær ráðinn framkvæmda- stjóri enska úrvalsdeildarliðsins Sout- hampton til næstu tólf mánaða. Ætlunin er að Hoddle leysi Dave Jones af á meðan hann glímir við persónuleg vandamál, sem varða ásakanir um að hann hafi viðhaft kynferðis- legt áreiti við börn. Hoddle hefur fengið gamlan og góðan félaga sinn, John Gorman aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Reading, sér til aðstoðar, en þeir störfuðu saman þegar Hoddle stjórnaði enska landsliðinu. Að sögn Rubert Lowe, stjórnarformanns Southampton taldi stjórn félagsins nauðsyn- legt að grípa til þessara aðgerða. „Við gefum Jones tólf mánaða frí með- an hann er að klára sín persónulegu mál. Eg er viss um að hann mun hreinsa mannorð sitt og þá er hann velkominn aftur. Eg tilkynnti honum þessa ákvörðun okkar í fyrrakvöld og hann var mjög leiður yfir þcssu, enda félagið honum mjög kært,“ sagði Lowe. Michael Bridges lofar sigri gegn ViUa Sextán Iiða úrslit ensku bikarkeppninnar fara fram um helgina og á mánudag og fara fimm leikir fram í dag, tveir á morgun og einn á mánudag. Athyglisverðustu leikirnir fara fram á morgun, en þá mætast Aston Villa og Leeds annars vegar og Chelsea og Leicester hins vegar. Leikur Aston Villa og Ledds á Villa Park verður örugglega spennandi því Leedsarar eiga harma að hefna gegn Villa, sem vann þá í deildinni fyrir hálfum mánuði þar sem Gar- eth Southgate skoraði tvisvar íyrir Villa í 2-1 sigri á Elland Road. Framherjinn Michael Bridges hjá Leeds hefur alla vega lofað sigri og segir að sagan frá því á Elland Road endurtaki sig ekki á morgun. „Þeir voru heppnir að þetta var ekki okkar dagur. Gareth Southgate skoraði tvisvar og það gerist ekki í hverjum degi,“ sagði Bridges. „Það á ekki að skipta okkur neinu þó leikurinn sé á útivelli og þó við höfum fallið úr úr deildarbikarnum gegn Leicester á útivelli, þá er ég viss um að við sigrum á morgun. Við höfum verið á uppleið að undanförnu og leikmenn eins og Jason Wilcox og Stephen McPhail hafa staðið sig frábærlega. Eg er því óhræddur fyrir morgundaginn og ætla mér að skora," sagði Bridges. Tvísýiit með Ian Taylor I gær var óvíst hvort markaskorarinn mikli, Ian Taylor hjá Aston Villa, gæti Ieikið með liðinu gegn Leeds í bikarleiknum á morgun, vegna meiðsla sem hann hlaut eftir samstuð við Gerry Taggart, varnarmann Leicester, í undanúrslitaleik deildarbikarsins á þriðjudaginn. Taylor, sem hefur skorað sex mörk í síðustu átta leikjum með Villa, fékk þá slæmt högg á ökklabeinið, sem síðan hefur valdið honum mikl- um óþægindum og því spurning hvort hann treystir sér f bikarleikinn á morgun. Leicester á harma að hefna Annað lið sem á harma að hefna um helgina, er Leicester sem mætir Chelsea í bikarnum á Stamford Bridge á morgun. Liðin mættust í 8-liða úrslitum bikarsins l’yrir þremur árum, þar sem gestirnir telja að Chelsea hafi verið færður sigurinn á silfurfati, þegar Mike Reid dómari leiksins dæmdi Chelsea vafasama vítaspyrnu eftir venjulegan leiktíma. Það sást vel í endursýningu í sjónvarpi eftir á að svo var, því Erland Johnsen fyrrum leikmaður Chelsea, sem fiskaði vítið sem Leboeuf skor- aði úr, féll auðsjáanlega í vítateignum án þess að nokkur ætti þar sök á nema hann sjálfur. Chelsea komst alla leið í úrslitin þctta ár og varð bik- armeistari eftir 2-0 sigur á Middlesbrough og síðar Evrópumeistari bik- arhafa. Þessu hafa forráðamenn Leicester ekki gleymt og hugsa sér að ná fram hefndum á morgun. Bikarleikir helgarinnar Laugardagur: Cambridge - Bolton, Coventry - Charlton, Everton - Preston, Fulham - Tranmere, Gillingham - Sheff. Wed. Sunnudagur: Aston Villa - Leeds, Chelsea - Leicestcr. Mánadagur: Blacjdjurn - Newcastle. ÍÞROTTIR Á SKJÁNUM Laugard. 29. iamiar SJÓNVARPIÐ Handbolti KJ. 14:00 EM í Króatíu ísland - Ukraína Körfubolti Kl. 12:00 NBA-tiIþrif Fótbolti Kl. 14:45 Enski bikarinn Coventry - Charlton Hnefaleikar KI. 21:00 Hnefaleikakeppni Bein útsending frá Manchester á Englandi. Meðal kcppenda eru Mike Tyson og Julius Francis. Sunnud. 30. janúar EEHi Handbolti Kl. 13:30 EM í Króatíu Leikur um 3ja sætið Kl. 16:00 EM í Króatíu Urslitaleikurinn. fþróttir Kl. 21:25 Helgarsportið Körfubolti KI. 12:15 NBA-Ieikur vikunnar SÝN Fótbolti Kl. 13:45 Enski bikarinn Aston Villa - Leeds Kl. 15:55 Enski bikarinn Chelsea - Leicester Kl. 19:25 Italski boltinn lnter Milan - Roma Golf Kl. 18:15 Golfmót í Evrópu Ameríski fótboltinn KI. 23:10 NFL-deildin St. Louis - Tennessee ÍÞRÓTTIR UM HELGINA Laugard. 29. ianúar ■ HANDBOLTI Urvalsdeild kvenna KI. 16:30 KA - ÍR KI. 16:30 Valur - Víkingur KI. 16:30 UMFA - Stjarnan 2. deild karla KI. 14:00 Fram b - ÞórAk. ■ körfubolti Úrvalsdeild kvenna Kl. 16:00 KR - KFÍ Kl. 16:00 Tindastóll - Grindavík 1. deild karla Kl. 18:00 Breiðablik - Höttur Kl. 15:30 ÍV - Þór Þorl. ■ blak I. deild karla - Undanúrslit Kl. 16:00 Stjarnan - ÍS Sunnud. 30. iaiiuar ■ körfubolti Úrvalsdeild karla Kl. 20:00 ÍA - Snæfell Kl. 20:00 Skallagr. - Grindavík KI. 20:00 Þór Ak. - Haukar Kl. 20:00 Keflavík - KR Kl. 18:00 Njarðvík - Hamar Kl. 16:00 Tindastóll - KFÍ Úrvalsdeild kvenna Kl. 14:00 KR - KFÍ Kl. 14:00 Tindastóll - Grindavík 1. deild karla Kl. 15:00 Stjarnan - Selfoss Kl. 14:00 ÍR - Höttur ■ HANDBOLTI Úrvalsdeild kvenna Kl. 20:00 Haukar - Grótta/KR 2. deild karla Kl. 16:00 ÍRb-ÞórAkix Laugard. ki. 17,19&21 Sunnud. kl. 15 Sunníid. kl. 15,17,19 & 21 Miðaverð 300,- kr. *Mánud. kl. 17,19&21 •1. Laugard. kl. 18.45,21 og 23.15 Sunnud. kl. 18.45,21 og 23.15 Mánud. kl. 18.45,21 og 23.15 Laugard. kl. 17 og 19 Sunnud. kl. 17 og 19 Mánud. kl. kl. 17 og 19 Síðustu sýningar Laugard. kl. 21 og 23 Sunnud. 21 og 23 Mánud. kl. 21 og 23 Laugard. m/ísl. tali kl. 15 og 17 Sunnud. m/ísl. tali kl. 15 og 17 Mánud. m/tsl. tali kl. 17 Laugard. kl. 15 Sunnud. kl. 15 TILBOÐ miðaverö 300 kr. Sirru 462 3500 * Hóiabraut 12 • www.nett.is/borgarbio THE BONE COLLECTOR Laugard. kl. 17,19,21 & 23.10 Sunnud. kl. 17,19, 21 & 23.10 Mánud. kl. 17,19, 21 & 23.10 Laugard. kl. 23 Sunnud. kl. 23 Mánud. kl. 23 D I G t T A L □□lDaLBYl D t G I T A L jckmskruma***,

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.