Dagur - 29.01.2000, Page 5
LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2000 - S
FRÉTTIR
Skorað er á Svan
að gefa kost á sér
Eftir „eldmessu46
Svans Kristjánssonar
prófessors á fundi
SamfylMngarinnar á
dögunum er nú þrýst
á hann að fara í for-
mannsslaginn. Hann
segist vera að íhuga
málið.
„Eg get staðfest það að margir
minna vina og samstarfsmanna
úr pólitík í gegnum tíðina hafa
skorað á mig að gefa kost á mér
til formennsku í Samfylkingunni.
Þetta er enginn fjöldi fólks og ef
ég lít út um gluggan hér heima
hjá mér stendur fólk ekkert í röð-
um fyrir utan dyrnar. En þetta er
fólk sem ég tek mark á og þess
vegna er ég að velta þessu fyrir
mér,“ sagði Svanur Kristjánsson,
prófessor í
stjórnmálafræði,
í samtali við Dag
í gær.
Svanur hefur
kennt stjórn-
málafræði við
Háskólann um
langt árabil og
hann hefur líka
lengi verið virkur
í stjórnmálum
vinstra megin við
miðju eftir að
hann söðlaði yfir
úr Sjálfstæðis-
flokknum og til
vinstri. Það vita
ekki allir hversu
stóran þátt hann
átti í því að R-
listinn í Reykjavík varð til, en
hann er einn af þeim sem þar
komu mest við sögu. Hann segist
lengi hafa verið gagnrýninn á
margt í starfi bæði Alþýðubanda-
lagsins og síðan
Samfylkingar-
innar og þeirri
gagnrýni hafi
hann haldið á
lofti bæði oft og
lengi.
„Eldmessan“
Svo var það á
laugardaginn
fyrir viku að
hann mætti á
fund Samfylk-
ingarfélagsins í
Reykjavík og
hélt þar ræðu.
Hann segist
hafa riljað þar
upp margt úr
sinni gagnrýni á
vinnubrögð vinstri flokkanna og
þá ekki síst á vinnubrögð Sam-
fylkingarinnar fyrir kosningarnar
í vor.
„Ég hélt þarna mína „eld-
messu" enda var mér mikið niðri
fyrir og ég talaði lengi. Auk upp-
rifjunar á gagnrýni minni lagði ég
á borðið hugmyndir sem ég tel að
taka eigi upp í starfi Samfylking-
arinnar og þá ekki síst í sam-
bandi við komandi stofnfund. Ég
fann að það var mikil stemmning
fyrir því sem ég var að segja í lok
fundarins og ég fékk góðar und-
irtektir. Fólk gekk af fundi með
bros á vör og ánægt með hug-
myndirnar sem ég viðraði. En svo
gerðist það sem ég átti ekki von
á. Fólk hafði samband við mig
eftir fundinn og spurði mig hvers
vegna ég gæfi ekki kost á mér til
formennsku til þess að fram-
kvæma þessar hugmyndir um
hvernig eigi að gera hlutina, sem
ég væri að leggja fram og sögðust
skyldu styðja mig til þeirra verka.
Og einmitt þess vegna er ég að
íhuga það mál,“ sagði Svanur
Kristjánsson. - S.DÓR
Útúrsnim-
ingar Geirs
Miðstjórn
Rafiðnaðar-
sambands Is-
lands, RSÍ,
kom saman til
fundar í gær
og sendi frá
sér ályktun.
Þar frábiður
stjórnin sér
„þá útúrsnún-
inga sem fjár-
málaráðherra
er með í fjöl-
miðlum.“ Verkalýðshreyfingin
hafi ítrekað kynnt tillögur um
hvernig hægt sé að leiðrétta mis-
tök í skattkerfinu með réttlátum
breytingum. Það er mat mið-
stjórnar RSÍ, að það þurfi að
Iiggja ljóst fyrir á næstu dögum
hvort stjórnvöld ætli að gera
eitthvað til þess að leiðrétta
þetta. „Fjármálaráðherra getur
vafningalaust svarað því hvað
ríkistjórnin hyggist gera. Það
mun hafa veruleg áhrif á gang
kjaraviðræðna. RSÍ mun ásamt
öðrum landsamböndum ekki
undirrita kjarasamninga, fyrr en
stjórnvöld hafa komið fram með
viðunandi tillögur um lausn of-
angreindra atriða. Hér er ekki
um einhverja söluvöru að ræða í
kjarasamningum heldur réttlæt-
ismál,“ segir í ályktun RSÍ.
Rafiðnaðarsam-
bandið segir Geir
Haarde vera með
útúrsnúninga.
Vilja skoða sam-
keppnishæfi
Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins annars vegar og verslunarmanna
hinsvegar, hittust á fundi í gær. Fv. Magnús L. Sveinsson og Ari Edvald.
Lengst til hægri má sjá Pétur Maack. mynd: e.úl.
Fulltrúar Landssambands ís-
lenskra verslunarmanna (LÍV)
og Verslunarmannafélags
Reykjavíkur (VR) áttu sameigin-
legan fund með Samtökum at-
vinnulífsins í gær. Þar voru kröf-
ur LIV og VR, sem eru að miklu
leyti samhljóða, kynntar vegna
endurnýjunar kjarasamninga.
Kröfugerð LÍV var aðeins lögð
fram á fundinum en engar við-
ræður áttu sér stað. Samtök at-
vinnulífsins hafa nú fengið
kröfugerðir allra landssambanda
og stærstu félaga innan ASÍ og
næstu skref verða væntanlega
stigin í byrjun næstu viku.
I kröfugerð LÍV er kveðið á um
markaðslaun, líkt og hjá VR,
laun sem endurspegli vinnu-
framlag, menntun, starfsreynslu
og ábyrgð í starfi. LIV vill að lág-
markslaun verði hækkuð sér-
staklega. Samhliða gerð aðal-
kjarasamnings verði gerðir sér-
stakir vinnustaða- eða fyrirtækja-
samningar til að tryggja að lág-
markslaun verði ekki lægri en 90
þúsund krónur á mánuði fyrir
dagvinnu. „Samið verði urn al-
menna prósentuhækkun á laun-
um sem taki gildi við undirskrift.
Hækkunin taki mið af samnings-
tíma, auknum kaupmætti og
markmiðinu um stöðugleika,"
segir ennfremur í kröfugerðinni.
1 kröfugerðinni vekur athygli
að því er beint til samningsaðila
að þeir leiti sameiginlega til ríkis
og Byggðastofnunar um að stof-
na nefnd er meti samkeppnis-
hæfni verslunar í dreifbýli.
Einnig er þess farið á leit að
starfsfólk hafi á vinnustað að-
gang að læstum hirslum fyrir
persónulega muni en þjófnaðir
úr aðstöðu verslunarfólks hafa
verið áberandi að undanförnu.
Gult spjald á SVFÍ
Samkeppnisráð hefur beint þeim
tilmælum til Slysavarnarfélags
íslands (SVFÍ) að ef björgunar-
bátar í eigu félagsins selji þjón-
ustu sína á markaði gegn greiðs-
lu skuli verðlagning þeirrar þjón-
ustu ekki hafa skaðleg áhrif á
samkeppni. Tveir aðilar, Sjóverk
og aðstoðarskipið Elding, kvört-
uðu til Samkeppnisstofnunar í
fyrra yfir starfsemi björgunarbáta
SVFÍ. Töldu þeir starfsemi SVFÍ
njóta óbcins stuðnings frá ríkj ogj(
sveitarfélögum, t.d. í formi nið-
urfellingar á gjöldum. Þrátt fyrir
þetta sé tckið fullt gjald fyrir að-
stoð við fisldskip eins og um
einkarekið fyrirtæki væri að
ræða. Þá kemur einnig fram í er-
indinu að það sé óeðlilegt að sú
starfsemi félagsins sem rckin sé í
samkeppni við einkaaðila sé aug-
lýst og kynnt. Loks segir í erind-
inu að sá samkeppnisrekstur sem
SVFl sinni geti ekki staðist sam-
félagið sé komið út fyrir það svið
sem því er ætlað sem sé slysa-
varnir og leit að fólki í neyð.
Samkeppnisráð telur að sam-
keppnisþjónustu eigi að verð-
leggja með hliðsjón af þeim
kostnaði sem henni tengist. Við
mat á kostnaði skuli m.a. hafa
hliðsjón af fjárbindingu í tækjum
og búnaði og reikna eðlilega
markaðsvexti af þeim. Ennfrem-
ur skuli i verðlagningunni reikna
keppnislög og kvartendur telji að með husnæðiskostnaði..
Svipaö umfang framkvæmda
„Mér sýnist að framkvæmdir í ár vcrði svipaðar í umfangi og á síðasta
ári. Að vísu eru að koma inn aftur verkefni sem búið var að fresta,
samanber Flugstöð Leifs Eiríkssonar sem framkvæma á á stuttum
tíma. Það sýnir sig að það er ekki góð aðferð við að draga úr þenslu
með því að fresta framkvæmdum sem hafa ákveðinn lokapunkt. Bæði
gerir það framkvæmdina erfiðari og dýrari að mínu mati. Það ánægju-
Iega er að þeir sem standa að útboðum verkefna virðast vera að taka
mark á okkur, þ.e. að aðferðin við að draga úr þenslunni er að lengja
verktíma og undirbúa verkin betur,“ sagði Sveinn Hannesson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, í samtali við Dag en samtökin efndu
í gær til Utboðsþings, kynningarfundar um verklegar framkvæmdir árs-
ins. Þar var gerð grein fyrir framkvæmdum á vegum Reykjavíkurborg-
ar, Framkvæmdasýslu ríkisins, Siglingastofnunar, Landsvirkjunar og
Vegagerðarinnar.
Fyrsti margmiðlimarskóliiui
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra vígði nýjan Margmiðl-
unarskóla í vikunni, þann fyrsta
sinnar tegundar hér á landi. Að
skólanum standa Prenttækni-
stofnun og Rafíðnaðarskólinn,
sem sameinað hafa krafta sína
og þekkingu. Skólastjóri er Jón
Árni Rúnarsson.
Hvatning frá Húsavík
Á stjórnar- og trúnaðarmannaráðsfundi Verkalýðsfélags Húsavíkur í
fyrrakvöld var heilshugar tekið undir kröfur samninganefndar VMSÍ og
Landssambands iðnverkafólks sem m.a. feli í sér hækkanir á lægstu
launum, samið verði um starfsmenntunarsjóð og skýr tengingar- og
opnunarákvæði verði í samningnum, komi til þess að samnings-
forsendur raskist. Jafnframt var skorað á Samtök atvinnulífsins að
verða við „hógværum" kröfum VMSI og LI, sem tryggja verkafólki 80
þúsund króna lágmarkslaun við undirskrift samnings. Verkalýðsfélag
Húsavíkur hvetur verkafólk til að standa saman í komandi kjaradeilum
og hvika hvergi frá sanngjörnum kröfum sem Iagðar hafa verið fram.
Vitni vantar
Lögreglan lýsir eftir vitnum að mjög alvarlegri líkamsárás, sem átti sér
stað aðfararnótt mánudagsins 3. janúar síðastliðinn um kl. 2:15 á
Austurvelli, til móts við Hótel Borg.
Réðust þar tveir menn á mann og slógu hann niður og spörkuðu síð-
an í höfuð hans. Talið er að árásarmennirnir séu á aldrinum 20 - 25
ára og mun annar þeirra vera skolhærður og grannvaxinn, en hinn
dökkhærður og þrekvaxinn. Þeir sent geta gefið upplýsingar um árás-
ina eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í Reykjavík, - FÞG