Dagur - 19.02.2000, Page 2
2- LAVGARDAGVR 19. FEBRÚAR 2000
Thgur
Guðjón Pedersen
í Borgarleikhusið
Fulltníi borgarmnar í
leikhúsráði LR sat hjá
við ráðningu Guðjóns
Pedersen, líkt og þeg-
ar Þórhildur var ráðin
fyrir fjórum árum.
Guðjón Pedersen Ieikstjóri var í
gær ráðinn Ieikhússtjóri Leikfé-
lags Reykjavíkur í Borgarleikhús-
inu til næstu Ijögurra ára og tek-
ur hann við af Þórhildi Þorleifs-
dóttur næsta haust. Leikhúsráð
ákvað þetta á fundi sínum í gær-
morgun. Guðjón fékk þrjú at-
kvæði í ráðinu en fulltrúi borgar-
innar, Ornólfur Thorsson, sat
hjá við atkvæðagreiðsluna Iíkt og
hann gerði þegar Þórhildur var
ráðinn fýrir fjórum árum. Ellert
A. Ingimundarson, Ieikari og
varaformaður leikhúsráðs, sem
tók formannssætið af Páli Bald-
vini Baldvinssyni við ráðning-
una, þar sem Páll var einn um-
sækjenda, sagði við Dag að al-
menn ánægja væri innan leik-
hússins með ráðningu Guðjóns,
sem væri fagmaður í leiklist fram
í fingurgóma.
„Það er góð stemmning í Borg-
GuÖjón Pedersen leikstjóri á leið-
inni í Borgarleikhúsið.
arleikhúsinu og fólk er sátt og
ánægt með að Guðjón Pedersen
skuli vera ráðinn, enda einn af
okkar fremstu leikhúslistamönn-
um. Eg get ekki séð að það þurfi
einhver leiðindi að vera uppi.
Auðvitað túlkar Þórhildur það
sem svo að hún hafi átt að vera
áfram í fjögur ár en samningur-
inn var bara til fjögurra ára.
Þannig er á mörgum stöðum í
samfélaginu, fólk er ráðið f
ákveðin verk til ákveðins tíma,“
sagði Ellert.
Ákveðið um síðustu helgi
Auk Ellerts og Ornólfs sitja í
Ellert A. Ingimundarson, varafor-
maður leikhúsráðs LR.
Ieikhúsráði Þorsteinn Gunnars-
son leikari og Ogmundur Jó-
hannsson ljósameistari. Ellert
sagði leikhúsráð hafa farið mál-
efnalega í gegnum allar umsókn-
ir og átt viðtöl við umsækjendur,
að undanskildum Jóni Viðari
Jónssyni, sem dró sig til baka
þegar hann var boðaður í viðtal.
Ellert sagði ákvörðun ráðsins
hafa legið fyrir um síðustu helgi
og þá ákveðið að ganga til samn-
ingaviðræðna við Guðjón.
Þórhildur hafði sem kunnut er
dregið umsókn sína til baka um
leikhússtjórastöðuna, og Jón
Viðar sömuleiðis, sem Iýsti yfir
stuðningi við Þórhildi og vildi að
hún yrði endurráðin. Aðrir um-
sækjendur voru Hafliði Arn-
grfmsson, Hávar Sigurjónsson,
Páll Baldvin, Halldór E. Laxness
og Hlín Agnarsdóttir en einn
óskaði nafnleyndar. Samkvæmt
heimildum Dags mun sá um-
sækjandi, karlmaður, ekki hafa
tengst leikhúslífinu til þessa og
kemur úr viðskiptaheiminum,
hefur ekki áður sótt um leikhús-
stjórastöðu.
Með konunnl uinlir sama
þaki
Guðjón er leikaramenntaður og
hefur síðastliðin ár getið sér gott
orð sem leikstjóri. Hann var
meðal aðstandenda leikhússins
Frú Emelíu, og hefur leikstýrt
fjölda Ieikverka undanfarin fjórt-
án ár. Nú síðast í gærkvöldi var
verið að frumsýna í hans Ieik-
stjórn leikritið Komdu nær á
stóra sviði Þjóðleikhússins. Þess
má að Iokum til gamans geta að
eiginkona Guðjóns, Katrín Hall,
starfar ekki langt frá manni sín-
um þegar hann kemur til starfa í
Borgarleikhúsinu í haust þar
sem hún stýrir Islenska dans-
flokknum, sem einnig er mcð að-
stöðu í húsinu ásamt LR. — BJB
Ólafur Ragnar Grímsson.
Fjölmenni
fer með til
Indlands
Forseti Islands, hr. Olafur Ragn-
ar Grímsson, fer í opinbera
heimsókn til Indlands 27. mars
nk. Með forsetanum fer fjöl-
menn viðskiptasendinefnd og í
tengslum við heimsóknina verð-
ur efnt til ráðstefnu um við-
skiptatækifæri milli landanna.
Auk þess verður sérstök móttaka
fyrir viðskipt'aaðila þar sem for-
seti íslands~verður heiðursgestur.
Útflutningsráð Islands telur
þessa heimsókn kjörið tækifæri
fyrir íslensk fyrirtæki að kanna
möguleika á viðskiptum við Ind-
land og einnig fyrir þau sem þeg-
ar eru í viðskiptum, að rækta nú-
verandi viðskiptasambönd. Farið
verður til Indlands með leigu-
flugi á vegum Samvinnu-
ferða/Landsýnar og kostar ferðin
frá 78 þúsund krónum og upp í
120 þúsund krónur, þá að hóteli
meðtöldu. — CG
50-60 miUjóna
lunframkeyrsla
„Þetta eru það háar upphæðir í
samhengi hlutanna að menn hljó-
ta að vilja fá þennan kostnað
sundurgreindan. Við erum að tala
um umframkostnað uppá 50-60
milljónir og eru 20 milljónir
vegna flutninganna aðeins hluti
af vandamálinu. Það má vel vera
að eitthvað af þessu eigi sér eðli-
legar skýringar en við getum ckki
unnið að málinu nema áætlanir
standist og við fáum réttar upp-
lýsingar," segir Gunnar Jóhann
Birgisson, formaður þjóðminja-
ráðs og bygginganefndar Þjóð-
minjasafnsins, í samtali við Dag.
Gunnar Jóhann bendir á að
upphafleg fjárhagsáætlun í janúar
1999 gerði ráð íyrir 142 milljóna
króna útgjöldum. „Þegar ljóst var
að áætlunin stæðist ekki var hún
endurskoðuð upp í 170 milljónir
og samþykkt á ný í þjóðminjaráði
í september. Okkar upplýsingar
voru að safnið hefði farið verulega
fram úr áætlunum um rekstrar-
kostnað og að rekstrarkostnaður
vegna svokallaðra fráviksatriða
hefði allur fallið til á fyrri hluta
ársins, meðal annars hefðu flutn-
ingar verið umfangsmeiri en áður
var talið. En í bráðabirgðaupp-
gjöri í janúar sl. kemur fram að
rekstarútgjöld hafi vaxið á síðustu
mánuðum ársins um 30 milljónir.
Við í Þjóðminjaráði höfum ekld
fengið fullnægjandi skýringar á
því að þetta hafi ekki legið fyrir í
september. Það er vegna þessa
sem við töldum rétt að senda mál-
ið til menntamálaráðuneytisins ti)
skoðunar," segir Gunnar Jóhann.
- FÞG
Jafnar fylMngar um RABIK
Flutningur höfuðstöðva RARIK
til AI<ureyrar er umdeiídur, ef
marka má niðurstöður við spurn-
ingu Dags á fréttavef Vísis und-
anfarna daga. Hátt í 6 þúsund
manns tóku þátt í spurninga-
leiknuin, sem er með jjví mesta
sem sést hefur, og féllu atkvæði
nánast til helminga. Einungis' 6’
BB H
visir.is
fleiri netverjar voru hlynntir
flutningi RARIK til Akureyrar
þannig að minni gat munurinn
varla verið.
Nú hefur ný spurning Dags
verið sett á Vísisvefinn: „Er fá-
tækt vandamál á lslandi?“ Slóðin
er sem lyrr wwov.visir.is og þaðan
slegið á „fréttir".
Snæfelliiigar styöia VMSI
Stjórn Verkalýðsfélags Snæiellsbæjar hefur lýst yfir eindregnum stuðningi
við kröfur samninganelndar Vcrkamannasambands Islands og Landssam-
bands iðnverkafólks, sem lagðar voru fram 25. janúar sl. Verkalýðsfélag
Snæfellsbæjar telur kröfurnar einfaldar og skýrar, byggðar á vilja almennra
félagsmanna VMSI og L1 og þeim raunveruleika sem þeir búa við.
I kröfunum er farið fram á hækkun lægstu launa í 80 þúsund krónur við
undirskrift samnings, með öðrum orðum úr 375 krónum á tímann í 460
krónur. Einnig er m.a. farið fram á að starfsmenntamál, orlofsréttindi,
slysatryggingar og greiðslur vegna fjarvista frá vinnu vegna veikinda barna,
verði færðar í nútímalegt horf. Verkalýðsfélag Snæfellsbæjar skorar á Sam-
tök atvinnulífsins að sýna metnað og framsýni og ganga að sanngjömum
og hógværum kröfum VMSI og LI og einnig á allt verkafólk að standa sam-
an í þeirri kjarabaráttu sem hafin er. — GG
Guöjón Ó. iunhverfisvæim
Umhverfisráðherra hefur afhent
prentsmiðjunni Hjá GuðjónO leyfí til
að nota norræna umhverfísmerkið á
framleiðslu sína. Hjá GuðjónÓ er þar
með fyrsta prentsmiðjan sem hlýtur
þessa viðurkenningu, en eitt íslensk
fyrirtæki hefur áður fengið merkið á
sína framleiðslu, Frigg, lyrir þvotta-
efnið Maraþon milt.
Með leyfisveitingunni verður
prentsmiðjan hér eftir að halda ná-
lwæmt bókhald yfír alla þætti sem
notaðir eru í prentferlinum, s.s. inn-
kaup hráefna, meðhöndlun efna,
orku- og vatnsnotkun og hvernig úrgangi er fargað. - GG
Íslandssími á genginu tuttugu
Islandssími hefur samið við Burnham International á fslandi um kaup
Burnham á 9,5 af hundraði hlutabréfa í Islandssíma og eru kaupin liður í
hlutafjáraukningu fyrirtækisins, sem nú er lokið. Heimildir Dags herma að
bréfin hafí verið seld á genginu tuttugu og miðað við að þessi hlutur hafi
verið 40 milljónir króna að nafnvirði er hér um 800 milljóna króna við-
sldpti að ræða. Heildarvirði fyrirtældsins gæti þá verið hátt í átta og hálfur
milljarður. Burnham ætlar bréfin til endursölu.
Hlutaljáraukningunni nú er meðal annars ætlað að Ijármagna I<aup Is-
landssíma á fjarsldptafýrirtækjum, þeirra á meðal lntís sem nýlega var
gengið írá kaupum á. Ekki síður er úlboðið ætlað til að undirbúa farsíma-
þjónustu sem byggja mun á þráðlausri Internet- og WAP-tækni að því er
fram kemur í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. - m-
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra afhendir forsvarsmönnum
prentsmiðju Guðjóns Ó. norræna
umhverfismerkið. - mynd: hilmar