Dagur - 19.02.2000, Síða 4
4 - LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000
FRÉTTIR
Indriði Þorláksson ríkisskattstjóri er nú byrjaður að fikra sig í átt að forútfylltum skattframtölum og hefur þriðjungur framteljenda
nú fengið framtal með útfylltum reitum.
Um 42 milljarðar
komnir á framtölin
Um þriðjimgur framtelj-
enda fékk skattframtal með
árituðum bótum og lífeyri
að þessu sinni, samtals 42
milljarða. Um 12% hafa
ekki aðrar tekjur.
Netframtalið opnaði kluklcan 15 í gær,
18. febrúar, og þarf ekki að skila því fyrr
en 31. mars. En pappírsframtali þarf að
skila fyrir 28. febrúar. Ríkisskattstjóri er
nú byrjaður að fikra sig í átt að forútfyllt-
um skattframtölum og hefur þriðjungur
framteljenda nú fengið framtal með út-
fylltum reitum. Allar greiðslur frá Trygg-
ingastonfun ríkisins, lífeyrissjóðunum og
Atvinnuleysistryggingasjóði, samtals 42
milljarðar króna, hafa þegar verið færð-
ar inn á framtöl allra þeirra sem fá slíkar
bætur, sem þurfa því aðeins að athuga
hvort þær séu ekki réttar. Um 25 þúsund
manns, eða nær 12% allra framteljenda
hafa engar aðrar tekjur en áritaðar eru á
framtalið í þessum fyrsta áfanga.
Þriðjungur framteljenda á bólum og
lifeyri
Af 210 þúsund framteljendum í ár fengu
67 þúsund, eða þriðjungur þannig forút-
fylltar skattskýrslur um sl. helgi. Meðal-
upphæðin er 627.000 kr. á mann. Heild-
argreiðslurnar skiptust þannig: Skatt-
frjálsar greiðslur frá Tryggingastofnun
ríkisins um 4 milljarðar og skattskyldar
20.5 milljarðar. Greiðslur úr lífeyrissjóð-
um um 16 milljarðar. Atvinnuleysisbætur
1.5 milljarðar. Alls eru þetta 42 milljarð-
ar, sem svarar nær sjöunda hluta allra
launa og annarra greiðslna sem taldar
voru fram í fyrra, það .er 310 milljarðar.
Er því Ijóst að meira en 10% allra tekna
sem taldar verða fram í ár cru þegar
komnar á skattskýrslurnar. Stefnt er að
frekari áföngum í forskráningu á næstu
árum. Launin, iðgjöld, fasteignir, bifreið-
ar, húsnæðisskuldir og námsskuldir eru
næst á lista og sfðan aðrar eignir og
skuldir.
Um 20.000 á netinu í fyrra
Netramtölin, sem byrjuðu 1999, tókust í
aðalatriðum vel, að sögn Indriða H. Þor-
lákssonar ríkisskattstjóra. Af 1 I 5 þúsund
einstaklingum sem þá fengu netlykil
skiluðu 16 þúsund vefframtölum, auk
fjögur þúsund sem bárust á tölvupósti.
Um 1 50 þúsund veflyklum er úthlutað í
ár og er þess vænst að mun fleiri skili nú
á netinu. I því skyni hafa vefframtöl ver-
ið auðvelduð á ýmsan hátt og meðal ann-
rs hægt að vista framtalið og sækja það
ftur og ekki notuð framhaldsblöð. For-
ritið líka aukið og endurbætt þannig að
það bendir framteljendum á villur sem
þeir kunna að gera.
Margir skila engu framtali
Jafnframt er stefnt að því að í framtíðinni
verði öll skattframtöl vegna atvinnu-
rekstrar í stöðluðu formi, en mismunandi
eftir umfangi rekstrarins. Staðlað fram-
talsform fyrir rekstraraðila var tekið upp
árið 1998. Um 76% þeirra rekstraraðila
sem á annað borð skiluðu framtali í fyrra
gerðu það rafrænt. En af 14.000 lögað-
ilum skiluðu 3 ekki skattskýrslu sem rík-
isskattstjóra þykir mjög há tala. — HEI
.Dagur
í heita pottinum er meim síður
en svo á því að ráðherrakapli
framsóknar sé lokiö. Eim er full-
yrt að Páll Pétursson muni hver-
fa úr ríkisstjórninni á kjörtíma-
bilinu og það jafnvel fyrr en
seinna. Eftir því sem nú er talað
um, þá eru tveir meim heitastir í
þingflokknum til að fara í ráð-
herrastól, en það eru þeir Jón Kristjánsson og
Kristiim H. Gunnarsson en Hjálmar Ámason er
síður en svo sagður út úr myndinni. Af þessum
er talið líklegast að Jón verði gerður ráðherra og
verði það gert samtímis því að Halldór Ásgríms-
son tilkynnti að hann flytti sig til Reykajvíkur í
framboð. Þar með yrði Jón orðin leiðtogi á Aust-
urlandi og eðlilegt ráðherraefni...
I pottinum heyrist þó líka úr her-
húðum Páls Péturssonar að ekk-
ert fararsnið sé á Páli, og er Páll
sjálfur mun marma síst á þeirri
skoðun. Fullyrt er í pottinum að
Páll eigi stuóning í flokknum
Páll utan þingflokksins, en í þing-
Pétursson. flokknum séu enginn sérstakur
stuðningsmaður hans...
Hávær mótmæli sjálfstæðis-
manna í borgimú með Júlíus Víf-
il Ingvarsson í fararbroddi gegn
grundvallarliugmyndimú um að
selja lóðir hafa vakið verðskuld-
aða athygli. Sérstaklega þykir
pottveijum áhugavert að heyra
sjálfstæðismeim tala um þetta
sem grundvallarvillutrú. Miima
þeir á aó það var sjálfur Davíð Oddsson sem
„fattaði upp á þessu", því íyrir allnokkrum árum
seldi liaim dýruin dómuin byggingalóðir undir
einbýlishús við Stigahlíð undir þeim for-
merkjun að þar væri á ferðinni takmörkuó
auðlind!!!!!...
Davíð
Oddsson.
SigwúurM.
Magnússon
forstöðwmður Geislavarua ríkisins
RannsóktiirKjamorkueftir-
litsins breska benda til þess
að öryggibúnaði í kjarorkuend-
urvinnslustöðinni í Sellajield
í Skotlandi sé mjög ábótavant
og öryggisskýrslurfalsaðar.
Ógnar okkar hagsmunum
Sigurður M. Magnússon, forstöðumaður
Geislavarna ríkisins segir niðurstöðu Kjarn-
orkueftirlitsins breska mjög alvarlegar fréttir
og enn eitt reiðarslagið fýrir breskan kjarorku-
iðnað. Áður hafi komið út svartar skýrslur og
m.a. hafi ástandið í Dounrey verið langt frá því
að vera ásættanlegt. Nú virðist stórfellt vanda-
mál vera í uppsiglingu í Sellafield.
- Er tneiri tnengun hér í Norðurhöfuni en
til þessa hefur vetrið látið i veðri vaka?
„Síðustú fréttir segja ’ekkert um meira hafi
verið notað af geislavirkum efnum en heimilt
hafi verið enda fara fram mjög umfangsmiklar
mælingar á geislavirkni þarna í næsta ná-
grenni stöðvarinnar og ég efa ekki að þarna sé
meira magn á ferðinni en ætla mætti.“
- En eru þær tnælingar ekki bara sötnu
svikin?
„Nei, vegna þess að að þeim koma fleiri að-
ilar en reka Sellafield, bæði opinberar stofn-
anir, rannsóknarstofnanir og grasrótarhreyf-
ingar eins og Vinir jarðar og Grænfriðungar.
Það breytir hins vegar engu um það að í kjöi-
far svona frétta þá er öllum niðurstöðum sem
koma frá Sellafield tekið með ákveðinni tor-
tryggni. Menn hafa meiri vara en ella.“
- Hefttrðtt trú á að stjómvöld á Norðttr-
totidtini, ékki hara á lstarídi', 'tnúni gera eitt-
hvað í þessutn tnálutn?
„Eg á ekki von á því. Mér virðist að þetta
snúi meira að innri öryggismálum stöðvarinn-
ar, að ekki hafi verið farið eftir settum vinnu-
reglum og að fyrirmælum opinberra eftirlits-
aðila hafi ekki verið fylgt. En ég tek fram að ég
hef ekki, frekar en aðrir, séð þessa skýrslu sem
er að koma út.“
- Ef að alltfer úr'böndutn þama, og tnik-
ill úrgangur fer t hafið, fáutn við hantt ekki
ttteð hafstrautnuin til landsins?
„Jú, það sem gerist er að þegar geislavirk
efni fara í Irlandshaf þá berast þau norður á
bóginn meðfram Skotlandi og inn í Norðursjó.
Síðan halda þau áfram upp með Noregi, um
það bil fjórðungur fer áfram norður og inn í
Barentshaf, og afgangurinn beygir í áttina til
okkar. Fer inn á íshafið og kemur niður með
A-Grænlandsstraumnum milli Grænlands og
Islands. Þær mælingar sem við erum að að
gera á hafssvæðunum umhverfis lslands stað-
festa að meira er af geislavirkum efnum fyrir
norðan Islands cn fyrir sunnan. Svo hefur ver-
ið um Iangan tíma. Geislavirk clni í halinu fyr-
ir sunnan ísland eru fyrst og fremst leifar frá
þeim tíma þegar tilraunir voru gerðar mcð
kjarnorkuvopn í andrúmsloftinu. Þá dreifðust
efnin um allar jarðir. Síðan er viðbot fýrir
norðan okkur og hún á fyrst og fremst rætur
sínar að rekja til starfseminnar í Sellafield."
- Er geislavirknin fyrir ttorðan okkur á
hættuinörkum?
„Nei, hún er langt undir öllum slíkum
mörkum. Við þurfum að hafa það í huga að
það tekur þessi efni 7-9 ár að berast frá
Sellafield til okkar og þynningin er kannski
þúsundföld."
- Er eitthvað sem þegar er kotnið i hafið
setn við rneguin eiga von á hér?
„Já, losun geislavirkra efna í írska hafið hef-
ur verið viðloðandi. Breytt var um vinnsluað-
ferðir í Sellafield fyrir nokkrum árum sem lei-
ddu til jjess að losun var aukin tímabundið á
ákveðnu efni, teknitin 99, og er með helming-
unartíma upp á 200 jrúsund ár, þannig að það
er í umhverfinu um alla eilífð. Þetta er að ber-
ast í áttina til okkar og það hefur orðið vart við
mikla aukningu á efninu í hafinu við Noregs-
strendur. Við getum átt von á því eftir 2-3 ár.“
- Ef þú réðir, tnyttdir þú vilja loka starf-
seminni i Sellafield?
„Starfsemin er andstæð íslenskum hags-
munum því hún leiðir af sér að geislavirk efni
frá stöðinni berast til okkar. Það getur varðað
nýtingu hafsins. Eðlilegt og sjálfsagt cr að gera
'ítrústú kröfur tilTíreta í þessum efnum.“ — tX