Dagur - 04.03.2000, Blaðsíða 14
LÍF OG HEILSA
Æk
- LAUGARDAGUR 4. MARS 2000
Ný innflúelsuveira
sem einkum herjar á
börn veidur and-
vökunóttum hjá
barnafjölskyldum.
Veirunnar varð síð-
ast vart hér 1991 og
börn fædd síðar hafa
ekki myndað
mótefni. Sum börn
lögð á sjúkrahús
vegna flensunnar.
Andvökunætur barnafjöl-
skyldna í landinu eru sjálf-
sagt margar um þessar
mundir, en ný inflúensu-
veira sem einkum herjar á
börn hefur verið að slá sér
niður síðustu tvær vikurnar
eða svo. Þetta er annar
flensufaraldurinn sem fer
um hér á landi í vetur. Sá
fyrri kom í kringum áramót-
in, en var þó öllu útbreiddari
og lagðist á unga jafnt sem
aldna. Þetta er noklcuð rífleg-
ur skammtur og segir Þórólf-
Bamaflensan
*
„Hjá börnum er erfitt að koma við bólusetningu gegn þessari veiru - eða öðrum vörnum, þvi það hefur í raun aldrei
tíðkast að bólusetja börn vegna svona umgangspesta, “ segir Þórólfur Guðnason, barnalæknir m.a. hér í viðtalinu.
mynd: pjetur.
ur Guðnason barnálæknir á Barnaspítala
Hringsins það nokkuð óvenjulegt að tveir
flensustofnar leggist á landsmenn af full-
um þunga með svo skömmu millibili.
Böm ekki bólusett
„Þessarar nýju inflúensuveiru, sem er af
A-stofni, hefur ekki orðið vart hér á
landi síðan árið 1991, þó enginn viti í
raun af hverju hún er að koma aftur
núna, níu árum seinna,“ segir Þórólfur
Guðnason. „Þessi veira herjar einkum á
börn sem eru fædd eftir þetta umrædda
ár, því þau hafa ekkert mótefni myndað
við þessari veiru - flestir aðrir hafa náð
að mynda það. Hjá börnum er erfitt að
koma við bólusetningu gegn veirunni -
eða öðrum vörnum, því það hefur í raun
aldrei tíðkast að bólusetja börn vegna
svona umgangspesta. Framfarir í læknis-
og lyfjafræði eru þó slíkar að siíkra bólu-
setninga í einhverju formi má vænta í
náinni framtíð."
Einkenni barnaflensunnar, ef svo má
kalla hana, eru einsog gerist í dæmigerð-
um influensum. Allhár hiti, jafnvel 39 til
40 gráður, beinverkir, vanlíðan, særindi í
hálsi, nefrennsli og hósti. Og við þessu
er fátt að gera, að sögn Þórólfs, nema
hvetja foreldra til þess að halda börnum
sínum heima, halda að þeim nægum
drykk og gefa hitalækkandi Iyf. Sé hitinn
hins vegar allhár í þrjá til fjóra daga eða
börnunum líði illa er hinsvegar ástæða
til þess að leita til læknis, sem ákvarðar
þá hvað gert skuli í framhaldinu. Og full
ástæða er til þess að hafa varann á sér,
því eftirköst svona veikinda geta verið
eyrnabólgur og jafnvel Iungnabólgur í
framhaldinu.
Allmörg börn lögð inn
„Við hér á Barnaspítala Hringsins höfum
ekki farið varhluta af þessari pest og álag-
ið hér er mikið af þessum sökum. Allmörg
börn sem flensan hefur leikið grátt höfum
þurft að leggja hér inn, en þá hefur staðan
líka verið orðin sú að þau eru hætt að
drekka og þurfa vökva í æð og jafnvel súr-
efni. Sum eru ergileg, pirruð og þurfa
mikiliar aðhlynningar við - og jafnvel frek-
ari rannsókna. I öllu falli má segja að þessi
umgangspest reyni mikið á alla; okkur
heilbrigðisstarfsfólk, börnin, en ekki síst
foreldra," segir Þórólfur Guðnason,
barnalæknir.
-SBS.
SMÁAUGLÝSINGAR
HEILSA
Vertu með í heilsuátaki!
Losaðu þig við vetrarslen og þreytu og aukakílóin í
leiðinni. Sjálfstæðir Herbalife dreifendur. Ragnhildur
og Kristján. Símar 453 7015 og 897 7822 agga@vor-
tex.is
Frábær vara! Aukakílóin burt.
Ég missti 11 kg á 9 vikum. Betra útlit, bætt heilsa,
meiri orka.
Hafðu samband.
Stefania 453 5665 GSM 862 6193
Biddu um það sem þú vilt.
Biddu um hjálp, biddu um ráðleggingar og hugmyndir
- en vertu aldrei hræddur um að biðja um hjálp.
Guðmundur, sími 899 4662
Aukakílóin burt!
Ný öflug vara! Náðu varanlegum árangri. Ég missti 7
kg. á 5 vikum. Síðasta sending seldist strax upp.
Frábær vara sem vinnur á appelsínuhúð. Persónuleg
ráðgjöf og stuðningur. Hringdu strax. íris 898 9995,
iris@mmedia.is Visa/Euro
INTERNET
Hefur þú áhuga á að taka þátt í stæðsta viðskita-
tækifæri 21. aldarinnar í gegnum INTERNETIÐ.
Árið '98 velti internetið 7 þilljónum $
Árið *99 velti internetið 200 billjónum $. Ensku
kunnátta nauðsynleg. Uppl. á
www.Iifechanging.com
Hafðu samband við mig
ef þig vantat vörur. Lilja Stefánsdóttir, sjálfstæður
Herbalife dreifiaðili. (visa/euro) vs. 462 4123 hs. 462
3450 GSM 695 1293
INTERNET-HRAÐLESTIN
MEÐ FYRIRTÆKIÐ OKKAR UM BORÐ HYGGUR Á
HNATTFERÐ. Ef þú átt tölvu, þá eigum við
farmiðann. Vilt þú koma með i stórkostlegustu
viðskiptaferð nýrrar aldar? Hafðu samband við
Stefán og Sólveigu sjálfstæða HERBALIFE-
dr.aðila. S. 461- 4161 899-9192 stef@simnet.is
Er offita og næringatengdir
sjúkdómar stærsta heilbrigðisvandamál á nýrri öld?
Eiga íslendingar feitustu börn í Evrópu? Hundruð
Islendinga hafa verið að ná frábærum árangri á
síðustu árum. Vertu einn þeirra og komdu þér í þitt
rétta líkamsform. Hringdu og ég aðstoða þig
samkvæmt þínum þörfum. Aðhald og 100% trún-
aður. Takmarkaður fjöldi. visa/euro Sími 462-1458
Jóhanna
Ertu að missa vitið?
Viltu grennast á auöveldan og fljótlegan hátt. 100%
nátturulegar vörur. 30 daga skilafrestur. Snjólaug
og Gunnar. Sími 483 4699 og 695 5677, sendum
frítt í póstkröfu. Visa/Euro. E-mail
gunnarmagg@islandis.is
www.richfromnet.com
Kjörbúðarsaga
KYNLIF
Ragnheiður
Eiríksdóttir
skrifar
Æi já, ég lofaði
lesendum í síð-
ustu viku að í
dag skyldi pistill-
inn fjalla um við-
reynslur og dað-
ur í Nóatúni og
heita potti Vest-
urbæjarlaugar-
innar. Langvar-
andi rannsóknir
minar og vett-
vangskannanir
hafa nefnilega Ieitt í ljós að dað-
ur á svoleiðis stöðum um há-
bjartan dag ellegar í ljósaskiptum
er miklu skemmtilegra og gjöf-
uíla en knæpudaður í skjóli næt-
ur. Það skal tekið fram að þvf
daðri sem um er rætt í dag er
ekki endilega ætlað að enda í lá-
réttri leikfimi, það er að minnsta
kosti ekki á skammtímaplaninu,
en maður veit þó aldrei hvað
framtíðin ber í skauti sér.
í Nóanóa?
Tökum Nóatún sem dæmi, þarer
stundum mjög rómantískt að
versla rétt fyrir lokun, sirkabát
um áttaleytið. Vel körfu af kost-
gæfni og það gefur óneitanlega
öryggiskennd að ýta henni mjúk-
Iega áfram á rennisléttu gólfinu.
Svo er allt í einu sætur maður hjá
ólífuhillunni (mmmm Iofar
góðu). Þá er ekkert að vanbúnaði
og nákvæmlega útpæld daður-
stund getur hafist. Horfi stíft á
hann meðan ég læðist nær, geng
hægt fimm metra með augun
föst þar til hann finnur og lítur
upp. Horfi þá 10 sekúndur í við-
bót en það er aðeins of langur
tími fyrir eðlilegt áhorf á ókunn-
ugan, gæti verið óþægilegt ef
daður væri ekki í gangi en passar
fullkomlega núna. Stöðva körf-
una 1,2 metrum frá ólífuhillunni
þar sem hann stendur og færi
mig fram fyrir körfuna til að
skoða sólþurrkaða tómata og
marineraða hvítlauksgeira. Þarna
x síðustu setningu voru tvö
óbrigðul herkænskubrögð:
1. Að fara fram fyrir körfuna =
ég vil ekki hafa þetta búr á milli
okkar og
2. Að skoða sælkeramatar-
krukkur sívalar sem innihalda
eitthvað sem ólífumanni hlýtur
líka að þykja gott = helvíti hljót-
um við að verða góð saman.
Nú er öruggt mál að athygli
herra Nóatúns er náð, aðeins 70
cm okkar á milli og ég meira að
segja finn að hann hefur horðað
hvítlauk í hádeginu, og það er
ekki slæmt hcldur sexí í svona til-
fellum. Hann er greinilega til í
leik því núna er hann að horfa og
ég lít á hann og brosi? - það má
sko í augnatilliti 2 - og hann líka.
Svo spyr hann... „hefurðu eitt-
hvað vit á þessum ólífum??“ og
brosið er ennþá alveg upp í aug-
un. Ég svara játandi og segi hon-
um hvað er best og segi líka að
ennþá betra sé að hafa sólþurrk-
aða tómata með, brosi meira, Iít
niður og set krukku með sól-
þurrkuðum tómötum í MINA
körfu, strýk svo hár frá enni mér.
Þetta var Iíka vísbending = þú átt
ólífurnar ég tómatana, getur
þetta ldikkað?
Geng svo af stað eftir eitt ósið-
lega langt augnaráð og bros f nið-
urliti. LykiIIinn er að vera ekki
hallærisíega lengi inni á hans
Hittast svo aftur i grænmetisborðinu...
svæði, heldur fara burt þegar
verkefnum er lokið og daður-
blossinn ennþá í hámarki. Hitt-
ast svo aftur í grænmetisborðinu
og finna hann horfa á hvernig ég
strýk tómata þegar ég vel þá ofan
í pokann minn og hvernig ég
þrýsti á lárperur til að kanna
þroska þeirra. Kannski eitt bros
enn, ekki þó of mikið því hann
verður ennþá að finna til hung-
urs þegar ég fer. Það er nefnilega
pottþétt að við hittumst aftur. í
Reykjavík er ekki hægt að sjá fólk
einu sinni, lágmarkið er tvisvar
og þá verður haldið áfram þar
sem daðurþræðinum var sleppt.
Kannski í Vesturbæjarlauginni í
ljósaskiptum, blaut með heitt
skinn og gufuna allt í kring.
Ragnheiður Eiríksdóttir er
hjúkrunarfræðingur
kynlifspistill@hotniail. com