Dagur - 08.03.2000, Síða 1
Jámbraut til Leifs-
stöövar hagkvæm
Fnunathugun beudir
til þess að jámbraut
miTli Reykjavíkur og
Leifsstöðvar borgi sig
upp á 25 árum. Til
skoðuuar í umhverfis-
ráðimeytinu. Vega-
gerðin tekur niður-
stöðunum varlega.
„Þetta er athyglisverð skýrsla og
þessi virði að skoða málið nánar.
Við getum ekki horft framhjá
þessum möguleika. Sé þetta
rekstrarlega hagkvæmt þá fylgja
því fleiri kostir og ekki síst já-
kvæð umhverfisáhrif. Þarna yrði
notuð innlend, hrein orka í stað
fljótandi eldsneytis úr ökutækj-
unum,“ sagði Magnús Jóhannes-
son, ráðuneytisstjóri í umhverfis-
ráðuneytinu, í samtali við Dag
en ungur iðnrekstrarfræðingur,
Steingrímur Ólafsson, starfs-
maður fasteignadeildar Reykja-
víkurborgar, hefur nýlega skilað
ráðuneytinu og Vegagerðinni
skýrslu þar sem gerð er frumat-
hugun á hagkvæmni járnbrautar
milli Leifsstöðvar og Reykjavík-
ur. Steingrímur sótti um styrk
hjá þessum aðilum fyrir ári síðan
til að gera skýrsl-
una, vegna mik-
ils áhuga síns á
málinu. Einnig
óskaði hann eftir
styrk frá Reykja-
víkurborg en
fékk ekki. Stein-
grímur kemst að
þeirri niðurstöðu
að járnbrautin,
knúin raforku, sé
bæði hagkvæm
og umhverfisvæn
og borgi sig upp á 25 árum. Ger-
ir hann þar ráð fyrir að innan-
landsflugið flytjist frá Reykjavík
til Keflavíkurflugvallar. Hann
telur framkvæmdina ótvírætt
umhverfisvæna og spara árlega 5
þúsund tonna losun koltvísýr-
ings.
Kostar 6 milljarða
Steingrímur telur lagningu járn-
brautar á þessum kafla, auk alls
búnaðar og lestarvagna, kosta
um 6 milljarða króna. Þar af
kosti lagningin sjálf og teinarnir
um 2,8 milljarða. Til saman-
burðar má geta þess að tvöföld-
un Reykjanes-
brautar er talin
kosta um 2 millj-
arða króna.
Steingrímur
sagðist í samtali
við Dag telja
járnbrautina hag-
kvæmari en tvö-
földun brautar-
innar. „Eg reikna
ekki með að tvö-
földunin skili
miklum arði,“
sagði Steingrímur.
Hann gefur sér í skýrslunni að
járnbrautin nái 1 5% hlutdeild af
umferðinni sem spár reikna með
um Reykjanesbrautina árið
2003, eða um 1,2 milljónum af
8,5 milljón manns á ári. Eru
flugfarþegar í innanlandsflugi
ekki taldir með. Spár gera ráð
fyrir 480 þúsund farþegum um
Reykjavíkurflugvöll árið 2003.
Sparar tima og peuinga
Steingrímur miðar við að enda-
stöð járnbrautarinnar borgar-
megin sé við Mjóddina, þaðan
liggi hún upp yfir Vífilsstaði og
AsfjöII, niður að álverinu í
Straumsvík og síðan nokkurn
veginn eftir Reykjanesbrautinni
suður að Leifsstöð á Keflavíkur-
flugvelli. Ferðatími með járn-
brautinni yrði 20-25 mfnútur í
stað 50 mínútna nú á einkabíl,
miðað við löglegan ökuhraða.
Steingrímur gerir ráð fyrir 650
króna fargjaldi aðra leið en hann
segir kostnað, þ.e. bensín og
annan rekstur, fyrir eigendur
einkabíla í dag vera 2.200 kr. á
þessari leið. Þarna sparast því
bæði tími og peningar.
Jón Rögnvaldsson aðstoðar-
vegamálastjóri sagði við Dag að
skýrslan væri að mörgu leyti
ágæt. Málið þarfnaðist þó frekari
rannsókna. Áður hefði verið
hreyft við þessari hugmynd en
hann taldi hæpið að Vegagerðin
gerði mikið við skýrsluna. Hún
væri ágætt innlegg í umræðuna
um samgöngukosti á þessari leið.
- iiJB
Verður járnbraut helsti farkostur-
inn milli Reykjavíkur og Leifs-
stöðvar á næstu árum?
Össurarbréf
rukuupp
Fjárfestar tóku heldur betur við
sér þegar viðskipti með hluta-
bréf Össurar hf. hófust að nýju á
Verðbréfaþingi í gær, eftir að
fréttist af kaupum fyrirtækisins
á bandarískum keppinaut fyrir
5,3 milljarða króna á mánudag-
inn. Hlutabréfin hækkuðu í
verði um rúm 32% og viðskipti
með bréfin námu um 310 millj-
ónum króna í 132 færslum.
Gengi bréfanna rauk upp í
71,50 en var 54,00 sl. föstudag.
Viðskipti hófust að nýju á há-
degi í gær, að loknum símafundi
á Netinu, sem Össur efndi til
með forstjóranum og fjármála-
stjóranum. Komust færri að en
vildu með spurningar til félag-
anna um kaupin á Flex Foot Inc.
Fram kom að kaupin verði að
hluta til fjármögnuð með eiginfé
og lántöku. Þar að auki verður
gefið út nýtt hlutafé en upphæð
útboðsins hefur ekki verið
ákveðin. - BJB
Nemendur og starfsmenn Fellaskóla opnuðu hann I gær I tilefni af menningarborgarverkefni Reykjavíkur árið
2000. i þemaviku hefur verið unnið i samráði við iistamenn. Götuleikhús var sett upp, kaffihús og margt fleira
skemmtilegt. Fjörið heldur svo áfram í dag á öskudegi, líkt og hjá f/eiri ungmennum þessa lands. mynd: þök.
Össur Skarphéðinsson.
Fyrsturí
framboð
Össur Skarphéðinsson tilkynnti
síðdegis í gær um að hann hefði
ákveðið að gefa kost á sér til for-
mennsku í Samfylkingunni eða
„þeim nýja flokki sem stofnaður
verður á landsfundi í byrjun
maí,“ eins og í tilkynningu segir.
Hann sagðist aðspurður hafa
fundið í samtölum við félaga og
vini um allt land, að það sé
stemning fýrir því að hann gefi
kost á sér. Hann sagði það sína
niðurstöðu í málinu að honum
muni takast að byggja upp þá
samstöðu sem þarf til að smíða
úr Samfylkingunni sterkan
stjórnmálaflokk eins og hún á
skilið og stjórnmálin þurfa. -
„Eg vil gera úr Samfylkingunni
jafnaðarmannaflokk sem er af
toga þeirra evrópsku jafnaðar-
mannaflokka sem hafa gengið í
gegnum endurnýjun lífdaga á
síðustu árum. Þeir hafa lagað
sig að breyttum aðstæðum. Þeir
eru einu flokkarnir sem hafa fé-
lagslegar Iausnir til að bæta úr
vanda þeirra sem verða undir í
lífsbaráttunni og eru í farar-
broddi til að koma á jafnræði í
viðskiptunum. Hér á Iandi er
þörf á þessu," sagði Össur.
Styttist í Guðmund Arna
Hann sagði að til skamms tíma
vildi hann leggja áherslu á
tvennt. Annarsvegar afdráttar-
Iausa stefnu í sjávarútvegsmál-
um sem miði að því að afnema
gjafakvótakerfið. Sömuleiðis að
koma á áhyrgri efnahagsstefnu á
íslandi. Nú blasi við að stöðug-
leikinn sé í uppnámi, verðbólg-
an margfalt meiri en í nágranna-
löndunum. Skuldir heimilanna
aldrei meiri, erlendar skuklir í
hámarki og viðskiptahallinn
hærri en nokkru sinni.
Guðmundur Árni Stefánsson
sagði að tilkynning Össurar
kæmi ckki á óvart og að það
styttist í ákvarðanatöku hjá sér.
- S.DÓR
í