Dagur - 08.03.2000, Blaðsíða 11

Dagur - 08.03.2000, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2000 - 11 FRÉTTIR Styrkj akerfi ESB ei eftirsóknarvert Atþingismeimimir Jón Kristjánsson og Sig- hvatur Björgvinsson eru sammála um að styrkjakeríi Evrópu- sambandsins í sjávar- útvegsmálum sé ekki eftirsóknarvert. Þá greinir á hvort skatta- afsláttur sjómanna sé styrkur til útgerðar- innar. Á fundi sem íslendingar í Brussel efndu til nýlega kom fram sú kenning stjórnmálafræðings og fyrrum starfsmanns sendiráðs Is- lands þar í borg að Islendingar nytu betur aðildar að Evrópusam- bandinu (ESB) með óbreyttri sjáv- arútvegsstefnu heldur en ef þeir sæktust eftir undanþágum frá sjávarútvegsstefnu ESB. Þetta væri vegna hins mikla styrkjakerfis sambandsins. Þar kom líka fram að ríkisstyrkir á Islandi, miðað við fjölda sjómanna, væru hærri en í Evrópulöndunum. Þar væri fyrst og fremst um að ræða skattaafslátt til íslenskra sjómanna. Dagur leit- aði álits tveggja alþingismanna sem sæti eiga í utanríkismála- nefnd um þetta mál. „Eg er nú ekld tilbúinn til að skrifa upp á þessa kenningu og þarf að fá haldbærari rök beldur en stutta útvarpsfrétt fyrir því að við getum fengið að ráða því upp á okkar einsdæmi hvað veitt verður í íslensku lögsögunni. Ef einhver Sighvatur Björgvinsson. getur sýnt mér rök fyrir þessu er ég tilbúinn til að hlusta en þessi frétt sannfærði mig ekki,“ sagði Jón Kristjánsson alþingismaður. „Það sem menn eru þarna að ræða um eru þeir styrkir sem Evr- ópusambandið greiðir til sjávarút- vegs, að við gætum orðið aðilar að þeim. Það hefur verið þumalfing- ursregla hjá okkur að reka eigi sjávarútveginn styrkjalausan. Mér finnst mun meira virði að við stjómum okkar fiskveiðum sjálfir og getum þess vegna tryggt við- gengi fiskistofnanna við Island. Það er meira virði fyrir okkur held- ur en hvort við fáum einhveija styrki," sagði Sighvatur Björgvins- son alþingismaður. Beinir og óbeinir styrkir Varðandi þá fullyrðingu að Islend- ingar færðu meiri styrki til sjávar- útvegsins en ESB-Iöndin með skattaafslætti til sjómanna sagði Sighvatur að vissulega greiði Is- Iendingar umtalsverða styrki til sjávarútvegsins. Þeir fælust ekki í beinum greiðslum en skattaaf- sláttur sjómanna væri ekkert ann- Jón Kristjánsson. að en launauppbót sem ríkið tæki að sér að greiða. Þá væru lægri hafnargjöld greidd hér á landi en þjónustuútgjöld hafnanna krefð- ust Hann sagði jafnframt að veru- Iegur hluti af ráðgjöf til sjávarút- vegsins væri greiddur af skattborg- urum. „Það er ýmis aðstoð sem samfé- lagið veitir sjávarútvegnum, sem er styrkjaígildi þótt ekki sé um beina styrki að ræða,“ sagði Sig- hvatur Björgvinsson. Jón Kristjánsson Iítur skattaaf- slátt sjómanna öðmm augum en Sighvatur. Jón sagðist ekld líta á hann sem styrk til útgerðarinnar. Þar væri um kjaramál sjómanna að ræða sem ekki væri hægt að leggja að jöfnu við beina styrki Evrópu- samhandsins til útgerðar land- anna. „Með skattaafslætti sjómanna er ríkið að viðurkenna erfið og áhættusöm störf og örvar með skattaafslætti að þau séu stunduð. Að blanda þessu saman við ríkis- stuðning við sjávarútveg þykir mér vafasöm samanhurðarfræði,“ sagði Jón Kristjánsson. — S.DÓR Undirskrlftasöfmm vegna gæsluvalla Til stendur að fækka gæsluvöllum á Akureyri við misjafnar undirtektir og Hggja nú frammi undirskriftarlistar gegn lokuninni. Sú hugmynd bæjaryfirvalda á Ak- ureyri að leggja af starfsemi gæslu- valla bæjarins í núverandi mynd eftir næsta sumar hefur mælst inisjafnlega fyrir og er nú hafín undirskriftasöfnun til að mótmæla þessari ákvörðun. Undirskriftalist- ar Iiggja frammi víða, meðal ann- ars í verslununum DoReMí, Lyf & Heilsu í Hafnarstræti, Vöggunni, Skóhúsinu, Kátum krökkum, Esju, Brynju, Býflugunni og blóm- inu, Myndbandahöllinni við Viðju- lund, verslunum í Kaupangi og Sunnuhlíð, versluninni Síðu og víðar fram til föstudagsins 10. mars. Þá vekja aðstandendur und- irskriftasöfnunarinnar athygli á því að opnuð hefur verið umræða um tillöguna á heimasíðu Akureyrar, akureyri.is. Eins og fram hefur komið í frétt- um Dags varð það niðurstaða skólanefndar að lcggja starfsemi gæsluvallanna af í núverandi mynd frá 1. september á þessu ári og var sú ákvörðun tekin út frá samantekt sem sýndi að nýting gæsluvalla hefur farið mjög minnkandi þannig að vart er leng- ur fjárhagslegur grundvöllur fyrir rekstri nema í mesta lagi tveggja. Jaínframt Iagði skólanefnd áherslu á að vöilunum verði áfram haldið við og fái umhverfisdeild það hlut- verk ásamt fjárveitingum fyrir næsta fjárhagsár. Það væri mikil- vægt til þess að dagmæður og fleiri gætu áfram nýtt sér vellina, sam- hliða því að hugsanlega væri hægt að bjóða væntanlegum hverfasam- tökum í bænum afnot af völlunum ef þau vildu halda þar úti starf- semi við gæslu barna. — Hi ísal semur aftur vid Álit ísal í Straumsvik hefur endurhýjað samning við Alit ehf. um rekstur tölvu- og upplýsingakerfa álversins til næstu tveggja ára. Alit sérhæfir sig í rekstrí tölvukerfa og óháðri ráðgjöf og er frumkvöðull hér á landi í að bjóða svokallaða „outso- urcing“-þjónustu í rekstri tölvu- og upplýsjngakerfa, þ.e. að utanað- komandi iyrirtæki sjá um rekstur tölvukerfa viðskiptavinarins. Hjá fyrirtækinu starfa um 30 manns. Auk ísal rekur Álit tölvukerfi fvrir Mjólkursamsöluna, Islenska járn- blendifélagið, Sól-Víking, Islands- flug, Islenskar getraunir og Fríkortið. Skeljungux eykur siim hlut Skeljungur hagnaðist um 495 milljónir króna í fyrra, samanborið 242 milljóna gróða árið 1998. Hagnaðaraukningin milli ára eru lítil 105 prósent. Hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir skatta var 593 milljónir, sem er um 198% aukning miðað við árið áður. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársreikningi fyrirtækis- ins, sem Ijallað var um á stjómarfundi í fyrra- dag. Skeljungsmenn segjast hafa aukið elds- neytissölu í fyrra um 31% og markaðshlutdeild- in sé nú 36%, en var rúm 30% árið 1998. Velta Skeljungs jókst úr 8,3 milljörðum króna árið 1998 í 9,8 milljarða í fyrra. Hreinar rekstrartekjur námu 2,6 milljörðum. Eigið fé Skelj- ungs í árslok var 3,7 milljarðar, jókst um 61 5 milljónir milli ára. Eig- infjárhlutfallið var 46,9% og arðsemi eigin fjár 15,7%, var 8,5% í árs- Iok 1998. Á aðalfundi Skeljungs 14. mars nk. verður gerð tillaga um 15% arðgreiðslu til hluthafa. Stærstu eigendur eru Shell Petrolium með 17,16% hlut og Burðarás með 13,03%. Hluthafar voru í kring- um 600 þann 1. mars sl. — BJB 495 milljónir í plús hjá Skeljungi. NIB lánaði íslendmgum 5.6 milljarða Samkvæmt ársreikningi Norræna fjárfestingabankans (NIB) fyrir árið 1999 var afkoman nokkuð góð. Aðalbankastjóri NIB er sem kunnugt er Jón Sigurðsson, fýrrum seðlabankastjóri og iðnaðarráð- herra. Hreinar vaxtatekjur síðasta árs námu 10,2 milljörðum króna og hagnaður bankans nam 7,7 milljörðum. NIB greiddi út Ián til fjárfestingarverkefna fyrir 96,3 milljarðar, þar af um 73 milljarða vegna verkefna á Norðurlöndum. Heildarútlán bankans í lok ársins námu 645,4 milljörðum króna, sem er 7% aukning frá árinu 1998. Lántakendur hjá NIB frá Islandi voru 42 talsins á síðasta ári, 7 fleiri en árið áður. Þar af voru 19 fyrirtæki á hlutabréfamarkaði, 13 bankar og sjóðir, 7 opinber fyrirtæki og 3 sveitarfélög. Utborguð voru lán til 14 verkefna hér á landi fyTÍr um 5,6 milljarða, samanborið við 4.6 milljarða árið 1998. Lánin skiptust þannig: Fyrirtæki í eigu hins opinhcra fengu 1,7 milljarða, sveitarfélög rúma 2 milljarða, bankar og sjóðir um 1 milljarð og einkafjTÍrtæki um 870 milljónir króna. Helstu viðskiptavinir NIB hér á landi eru Landsvirkjun, Reykjavíkur- borg, Hafnarfjarðarbær, Kópavogsbær, Flugleiðir, Ríkisútvarpið, Ol- íufélagið, Kaupþing, Islandsbanki, Byko, Baugur og Sparisjóðahanki íslands. — BJB Jón Sigurðsson. Tap vegna loðnimnar Hagnaður Haraldar Böðvarssonar á Akranesi og í Sandgcrði árið 1999 var 1 16 milljónir króna samanborið við 270 milljónir króna árið 1998. Tap af reglulegri starfsemi var 21 4 milljónir króna. Rekstrar- tekjur námu 3,3 milljörðum króna á móti 4,1 milljarði króna árið 1998, rekstrargjöld 3,1 milljarður króna á móti 3,3 milljörðum króna árið 1998. Veltufé frá rekstri nam 53 milljónum krópna á móti 553 milljónum króna árið 1998, veltufjárhlutfall 1,38 á móti 2,24 og eig- infjárhlutfall 35,33% á móti 43,4% árið 1998. Ein meginástæða slakrar afkomu er sú að loðnuafli á sumar- og haustvertíð brást nær algjörlega, auk þess sem afurðaverð á mjöli og lýsi hefur verið í lágmarki. Þá var afkoma landfrystingar óviðunandi, en rekstur bolfiskvinnslu á sjó hefur verið vel viðunandi. Stjórn Har- aldar Böðvarssonar hefur ákveðið að sameina tvö dótturfyrirtæki sem eru í 100% eigu HB, en þau eru Islenskt franskt eldhús og Haraldur Kristjánsson. Horfur eru á að rekstur ársins 2000 verði betri en rekstur ársins 1999. Aðalfundur félagsins verður haldinn á Akranesi 6. apríl nk. Stjórnin leggur til að greiddur verði 6% arður til hluthafa. - GG 8% arður hjá Þormóði ramma- Sæhergi Þormóður rammi - Sæberg Qallaði um afkomu félagsins f fyrra á að- alfundi nýlega. Hagnaður var upp á 474 milljónir króna, sem er ríf- lega tvöfalt betri afkoma en árið 1998 þegar gróðinn nam 200 millj- ónum. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 455 milljónum króna en árið 1998 var hagnaður af reglulegri starfsemi eftir skatta 214 milljónir króna. Rekstrartekjur námu 4.626 milljónum króna saman- borið við 3.800 milljónir króna árið áður. Hagnaður (yrir afskriftir og fjármagnskostnað var 924 milljónir króna eða um 2Q% af rekstrar- tekjum, samanborið við 827 milljónir árið 1998 eða 22% af rekstrar- tekjum. Veltufé frá rekstri nam 868 milljónum króna og hækkaði það um 216 milljónir frá fyrra ári. Eigið fé var í árslok 3.035 milljónir og hafði hækkað um 562 milljónir milli ára. Eiginljárhlutfall lækkaði hins vegar milli ára úr 44,5% í 35,7% vegna samruna við Árnes hf. og Ijárlestinga. Á síðasta ári unnu um 276 manns að meðaltali hjá Þormóði ramma - Sæbergi hf. Á aðalfundinum var samþykkt tillaga um 8% arðgreiðslu til hluthafa.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.