Dagur - 08.03.2000, Qupperneq 2
2 - MIÐVIKUDAGU R 8. MARS 2000
FRÉTTIR
Sameining engiit
ávisim á spamað
Borgarstjóri er eldd
saimfærður uin hag-
kvænmi samemingar
stóru sjúkrahúsanna í
Landsspítala - Háskóla-
sjúkrahús. Minnihlut-
iun í borginni er sauia
sinnis.
Skiptar skoðanir eru í borgarstjórn
um til sameiningu Ríkisspítala og
Sjúkrahúss Reykjavíkur í Lands-
spítala - Háskólasjúkrahús. lngi-
björg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri segir að R-listinn setji sig
ekki upp á móti sameiningunni en
taki hinsvegar ekki afstöðu til
hennar. Inga Jóna Þórðardóttir,
oddviti minnihlutans, segist aftur
á móti alltaf hafa verið andvíg
sameiningunni. Hún vísar því á
bug að minnihluti sjálfstæðis-
manna í borgarstjórn sé í andstöðu
við sjálfstæðismenn í ríkisstjórn í
þessu máli.
Aldrei sannfaerð
Ingihjörg Sólrún Gísladóttir borg-
Ingibjörg Só/rún Gísladóttir.
arstjóri segist aldrei hafa haft
neina sannfæringu fyrir því að
hægt sé að ná fram einhverri hág-
ræðingu í rekstri stóru sjúkrahús-
anna í borginni með sameiningu.
Það sé m.a. vegna þess að þeir séu
á mörgum stöðum auk þess sem
hún telur að það þurfi aukna fjár-
muni í heilbrigðisþjónustuna. Af
þeim sökum m.a. sé ekki við því að
búast að hægt sé að ná fram sparn-
aði með þessum hætti, enda telur
hún að enginn hafi sýnt fram á
það. Borgarstjóri áréttar hinsvegar
að það sé Alþingis að móta stefn-
una í rekstri heilbrigðisþjónust-
Inga Jóna Þórðardóttir.
unnar, enda sé reksturinn greiddur
úr ríkissjóði. I bókun R-listans í
borgarráði fyrir skömmu kemur
fram að borgaryfirvöldum hafa
ekki verið kynntar þær rekstrar-
legu og faglegu forsendur sem
hljóta að vera til grundvallar tillög-
unni um sameiningu sjúkrahús-
anna og geta því ekki tekið afstöðu
til hennar. Þau gera hinsvegar þá
kröfu að þjónusta sjúkrahúsanna
við borgarbúa og landsmenn alla
verði ekki skert og að hagsmunir
allra starfsmanna sem við sjúkra-
húsin starfa verði tryggðir.
Áherslur heilbrigðisráðherra
Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti
minnihlutans í borgarstjórn og eig-
inkona Geirs H. Haarde fjármála-
ráðherra, segist ætíð hafa verið
andvíg því að sjúkrahúsin yrðu
sameinuð og þeirri stefnu R-list-
ans að losa borgina við Sjúkrahús
Reykjavíkur. I bókun minnihlutans
kemur fram að ekki hefur verið
sýnt fram á að hagkvæmni þess né
heldur að sameiningin feli í sér
meiri og betri þjónustu. Með sam-
einingunni séu áhrif borgarinnar á
stefnu og framkvæmd í málefnum
sjúkrahúsanna að engu gerð þegar
allur rekstur þeirra sé færður yfir
til ríkisins. Inga Jóna vísar þvf jafn-
framt á bug að þessi stefna minni-
hlutans sé í andstöðu við stefnu
sjálfstæðismanna í ríkisstjórn. I því
sambandi bendir hún á að borgin
hefði óskað eftir því við ríkið að
verða Ieyst undan því að reka
Sjúkrahús Reykjavíkur. Þá hefði
ríkið ekki átt margra kosta völ ann-
að en að taka við því. Þegar ríkið sé
búið að taka við spítalanum sé það
skoðun ríkisvaldsins að eðlilegt sé
að sameina sjúkrahúsin, enda sé
það í samræmi við áherslur heil-
brigðisráðherra. — Gttn
Spoma viö
nektinni
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra hefur lagt fram lagafrum-
varp sem byggir á niðurstöðum
sérstakrar nefndar, sem hafði það
að markmiði að sporna gegn
starfsemi eða uppgangi svo-
nefndra „erótískra" veitingastaða
eða nektardansstaða. Aðferða-
fræði frumvarpsins felst í því að
flokka veitingastaði, en með því
móti er hægt að láta aðrar reglur
gilda um nektardansstaði en al-
menna veitingastaði án Jæss að
brjóta jafnræðjsreglu. I fyrstu
grein frumvarpsins er gert ráð
fyrir því að heimilað verði að
synja útgáfu leyfis þegar staður
skuldar meira en 500 þúsund
krónur í skatta, opinber gjöld og
slíkt, eða ef leyfishafi hefur verið
dæmdur til refsivistar vegna
brota á Iögum er varða þessa at-
vinnustarfsemi. — FÞG
Fáu svarað iim
Þjóðminjasafnið
Snarpax lunræður utan
dagskrár á Alþingi um
málefni Þjóðminja-
safnsins. Menntamála-
ráðherra svaraði fæst-
um spumingum sem til
hans var beint.
Kolbrún Halldórsdóttir ræddi mál-
efni Þjóðminjasafnsins utan dag-
skrár á Alþingi í gær. Hún ræddi
fyrst um umræðu sem hófst fyrir
15 árum um húsakost Þjóðleik-
húss og Þjóðminjasafns. Strax var
hafist handa um breytingar á Þjóð-
leikhúsinu sem hefðu gengið fljótt
og vel. En nefnd hafi verið skipuð
um málefni Þjóðminjasafnsins til
að efla vöxt þess og viðgang. Sam-
in hafi verið ný þjóðminjalög og
hafist handa við endurbætur á
húsakosti safnsins. Síðan væru lið-
in 11 ár.
Hún sagði að mildu fé hafi verið
varið til endurbóta á safnhúsinu
en h'tið hefði gengið og hvað við-
kæmi viðgangi safnsins væri
ástandið daprara en nokkru sinni.
Safníð hafí nú verið lokað í eitt og
hálft ár og ætti ekki að opna það
fyrr en 2002. Hún spurði hverjar
væru skýringar á þessum seina-
gangi og bágu ástandi í heild sinni,
þvert ofan í fagurgala stjórnvalda í
10 til 15 ár.
„Hver er ábyrgð þjóðminjaráðs,
framkvæmdastjóra og bygginga-
nefndar á því sleifarlagi sem hefur
verið í byggingamálum safnsins,"
spurði Kolbrún.
Hún spurði líka um fjármálin.
Hvað væri rétt í þeim málum öll-
um sem svo mikið hefur verið fjall-
að um undanfarið. Hún spurði
hvernig fjárveitingum til bygging-
arinnar hefði verið háttað og eftir
hvaða áætlunum hefði verið unn-
ið. Aætlanir um kostnað hlytu að
hafa legið fyrir, hvernig áætlanir
voru um fjármögnunina, ábyrgð og
tíma. Hún benti á að fyrrum for-
maður þjóðminjaráðs, Sturla
Böðvarsson, hafi sagt fyrir
skemmstu „að dálítið hafi nú vcrið
rennt blint í sjóinn með það
hversu mikill kostnaður yrði af
þessum framkvæmdum." Kolbrún
ræddi um brottrekstur fjármála-
stjórans og spurði hvort formaður
þjóðminjaráðs og þjóðminjavörður
væru að skjóta sér undan ábyrgð
með vinnubrögðum sínum. Líka
hver væri ábyrgð ríkisstjórna og
menntamálaráðherra á þessu
ástandi öllu.
Fátt um svör
Björn Bjarnason var lil andsvara
og rakti langa sögu húsnæðismála
Þjóðminjasafnsins og síðan flutn-
ing safnmuna vegna viðgerða á
húsinu og hvenær viðgerðum á
safnhúsinu ætti að ljúka. Hann
sagði að fjármálin, sem hefðu ver-
Kolbrún Halldórsdóttir spurði og
spurði, en án árangurs.
ið til umræðu undanfarið, væru nú
í skoðun hjá Ríkisendurskoðun. Að
öðru leyti svaraði hann cngum af
þeim spurningum sem Kolbrún
Halldórsdóttir beindi til hans.
Margir þingmenn tóku til máls í
umræðunum. Gísli S. Einarsson
sagði að brottvikning fjármálastjór-
ans hefði verið „brottvikning í
bráðræði." Jón Bjarnason sagði
safnið vera í fjársvelti og hann vildi
svör um aðkomu Björns Bjarnji-
sonar að þessu máli öllu en fékk
ekkcrt svar. Ögmundur Jónasson
spurði hvort verið væri að skera
niður Qárveitingar til safnsins mcð
það fyrir augum að einkavæða það
á réttu augnabliki. Svanfríður Jón-
asdóttir spurði varðandi brottvikn-
ingu tjármálastjórns hver hefði
tekið ákvörðun um útgjöldin. Jón
Kristjánsson sagði að ekkert hefði
verið leitað til fjárlaganefndar
vegna fjármála safnsins nema með
nokkur smáatriði.
Eftir þessa umræðu eru menn
litlu eða engu nær um þau deilu-
mál sem verið hafa innan Þjóð-
minjasafnsins síðustu vikurnar.
- S.DÓR
Netsímiim braut reglur
Samkeppnisstofnun hefur úrskurðað að auglýsingar Skímu/Netsímans,
sem er í eigu Landssímans, brjóti gegn reglum stofnunarinnar um verð-
upplýsingar í auglýsingum. Samkeppnisstofnun hefur beint þeim tilmæl-
um til Netsímans að framvegis verði þess gætt að fullt verð þjónustu verði
birt í öllum auglýsingum og kynningu á gjaldskrá fyrirtækisins. Það voru
Frjáls fjarskipti hf. sem kvörluðu yfir auglýsingum Netsímans og þar á bæ
eru menn skifjanlega ánægðir með niðurstöðu samkeppnisyfirvalda.
Engin bráðabirgðaákvörðim
Póst- og fjarskiptastofnun sendi fyrir helgi frá sér tilkynningu þar sem
fram kemur að hún telji ekld tilefni til aö taka bráðabirgðaákvörðun í
kæru Landssímans vegna auglýsinga Islandssíma um „Frímínútur".
Landssíminn sætti sig ekki við framsetningu auglýsinga Islandssíma á
þessari útlandaþjónustu og hvernig viðskiptavinir eru skráðir inn. 1 lög-
um um stofnunina segir að telji hún nauðsynlegt að taka ákvörðun í ein-
stökum málum án tafar, enda sé hætta á því að dráttur á úrskurði valdi
aðilum máls Ijártjóni, sé stofnuninni heimilt að taka bráðabirgðaákvörð-
un. Póst- og fjarskiptastofnun telur að ekki hafí verið sýnt fram á fjártjón
í þessu máli, enda hafi viðkomandi þjónusta Íslandssíma ekki hafist.
Tjömesvegur stærsta verkið
Langstærsta vegaframkvæmd á
Norðurlandi eystra á komandi
sumri er gerð varanlegs 10 km
langs vegar á Tjörnesi frá Hring-
veri að Breiðuvík, sem á að vinnast
á tveimur árum. Verkið er hluti
aukaljárveitingar til vegamála sem
ríkisstjómin veitti á sl. ári vegna
átaks til bættra vega í landsbyggð- ..... ^
arkjördæmum. Verldð verður boð- Fra framkvæmdum á Tjörnesi I fyrra-
ið út á næstunni, en kostnaðar- sumar. - mynd. sbs
áætlun nemur um 240 milljónum
króna. Fyrir Alþingi liggur endurskoðun vegaáætlunar, en sú endurskoð-
un breytir ekki áformum um þetta verk.
FBA ekki Nýsköpunarsjóðiir
Þau leiðu mistök urðu í firétt l)laðsins í gær af fundi á Ólafsfirði, að sagt
var að Sigurjón Magnússon slökkvibílaframleiðandi hefði ekki fengið fyr-
irgreiðslu þegar hann sótti um hana til Nýsköpunarsjóðs. Það er ekki rétt.
A fundinum talaði Sigurjón vissulega um Nýsköpunarsjóð og þær reglur
sem uppfylla þarf til að fá þar fyrirgreiðslu. Hins vegar féllu þau orð
hans, sem vitnað er til í greininni ekki um Nýsköpunarsjóð heldur um
Fjárfestingabanka atvinnulífsins og er misskilningurinn blaðsins. Orð
Siguijóns um synjun á fyrirgreiðslu ciga því við um FBA en ekki Nýsköp-
unarsjóð og er beðist velvirðingar á þessum mistökum.