Dagur - 08.03.2000, Síða 6
6 ■ MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2000
ÞJÓÐMÁL
f •
Útgáfufélag: dagsprent
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjóri: elías snæland jónsson
Aðstoðarritstjóri: BIRGIR GUÐMUNDSSON
Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson
Skrifstofur: strandgótu si, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Símar: 460 6ioo OG 800 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: 1.900 kr. A mánuði
Lausasöluverð: 150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
Grænt númer: 800 7080
Netföng auglýsingadeildar: greta@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is
Simar auglýsingadeildar: (REYKJAVfKj563-i6i5 Amundi Amundason
(REYKJAVÍKJ563-1642 Gestur Páll Reyniss.
(AKUREYRIJ460-6192 Karen Grétarsdóttir.
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Símbréf ritstjórnar: 460 617UAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
TUhæfulaus árás
í fyrsta lagi
Fruntaleg árás forsætisráðherra úr ræðustóli Alþingis í fyrra-
dag á Öryrkjabandalagið var bæði fyrir neðan virðingu þings-
ins og þess leiðtogaembættis sem Davíð Oddsson gegnir. Hún
er líka dæmi um hversu illa formanni Sjálfstæðisflokksins er
við vaxandi kröfur um að almenningur fái að fylgjast með því
hveijir fjármagna flokkana. Það virðist enn mikið hagsmuna-
mál forsætisráðherra að halda algjörri Ieynd yfir því hvaða ein-
staklingar og fyrirtæki í landinu borga rekstur Sjálfstæðis-
flokksins og kosningabaráttu hans.
í öðru lagi
Síðustu misseri hefur Öryrkjabandalagið unnið kröfuglega að
því að kynna bág kjör félagsmanna sinna og barist fyrir kjara-
bótum. Liður í þeirri baráttu voru auglýsingar sem birtust í
fyrra, en þar var meðal annars vitnað til yfirlýsinga forystu-
manna ýmissa samtaka og fyrirtækja í samfélaginu um nauð-
syn þess að bæta kjör öryrkja. Þessar auglýsingar voru að sjálf-
sögðu í engum tengslum við einhvern einn stjórnmálaflokk,
enda naut málstaður öryrkja stuðnings meðal þingmanna úr
öllum flokkum - þótt stjórnarandstaðan vildi ganga lengra til
móts við kröfur þeirra en stjórnarflokkarnir töldu mögulegt.
Asakanir forsætisráðherra eru því rangar og lýsa í besta falli
pólitískri taugaveiklun.
í Jiriðja lagi
Upphlaup forsætisráðherra má ekki verða til þess að draga at-
hyglina frá kjarna málsins, það er nauðsyn löggjafar sem skyld-
ar íslenska stjórnmálaflokka til að skýra almenningi frá fjár-
málum sínum og peningagreiðslum fyrirtækja og einstaklinga
til flokkanna vegna kosningabaráttu og annarra umsvifa.
Leynisjóðir flokkanna bjóða heim - með réttu eða röngu -
grunsemdum um misnotkun, um kaup fjársterkra einstaklinga
á pólitískum áhrifum. Það ber því að svipta myrkri leyndar-
innar af fjárstuðningi við íslensku stjórnmálaflokkana og
tryggja þannig heilbrigðara og opnara stjórnmálastarf og auk-
ið lýðræðislegt eftirlit með afar áhrifamiklum stofnunum.
Elías Snæland Jónsson
Öjyrkjamafían
og SamfyUdngin
Davíð Oddsson talaði enga
tæpitungu í þinginu þegar
hann var að benda á tvískinn-
unginn í Samfylkingunni
varðandi fjármál stjórnmála-
flokkanna. Enda er Davíð al-
vöru karlmaður og myndi ör-
ugglega grafa sig í fönn í tvo
daga og rísa síðan upp eins og
ekkert hafi í skorist ef hann
væri vélsleðamaður. Þess
vegna þarf hann heldur ekk-
ert að vera að hlusta á þetta
kerlingavæl hjá Sam-
fylkingunni og öðrum
stjórnarandstöðu-
flokkum, sem enda-
laust eru sífrandi út af
smámunum. Garra
þykir það því sérstakt
gleðiefni að Davíð
skuli nú setja hnefann
í borðið og segja ein-
faldlega hvernig stað-
an er.
Aflijúpanir
Þó forsætisráðherra eigi hrós
skilið fyrir margt ber þó fyrst
og fermst að þakka það hvern-
ig hann flettir ofan af ör-
yrkjamafíunni. Það var nú
kominn tími til, ekki síst eftir
að formaður Öryrkjabanda-
Iagsins líkti Davíð við hinn
austuríska Heider á dögun-
um. Áður hafði Davíð raunar
gefið til kynna að fátæktin
sem mikið er talað um í her-
húðum öryrkja sé uppspuni,
enda sé fátaækt í raun ekki til
í landinu. En að svikamyllan
væri þannig að Samfylkingin
væri í raun á mála hjá Örykja-
bandalaginu og Öryrkja-
bandalagið væri í þjónustu
Samfylkingarinnar vissu
menn ekki fyrr. Það hefur
sjálfsagt verið stuttur spotti
V
f>TÍr gömlu kommana í Sam-
fylkingunni að skipta úr slag-
orðinu „öreigar allra Ianda
sameinist" yfir í „öryrkjar
allra lands sameinist".
Hræsnin
En stórmannlegast er þó hjá
Davíð að benda á hversu mik-
il hræsni einkennir þessa
„Samfylkingar-öryrkja rnafíu"
alla, sem kemur hvað skýrast
fram í kringum betl
þeirra hjá Islenskri
erfðagreiningu. Sóma-
kærir stjórnmálamenn
eins og Davíð og
flokksbræður hans
láta ekki góma sig við
sams kona tvískinn-
ung og hræsni. Sam-
fylkingin gagnrýnir Is-
lenska erfðagreiningu
og gagnagrunninn í
ræðustól á Alþingi en
er svo líka tilbúin til að láta
þetta fyrirtæki gefa fé í kosn-
ingasjóði sína. Þetta skilgrein-
ir Davíð sem ógeðfellda hræs-
ni og dregur ekkert undan.
Það gleður Garra að heyra
hversu staðfastur landsfaðir-
inn er, því það væri vitaskuld
illt afspurnar ef í ljós kæmi að
það væri almennt með stjórn-
málaflokka að þeir gagnrýndu
fyrirtæki sem hafa gefið pen-
inga í kosningasjóði þeirra.
Það er í það minnsta alveg
ljóst í hvaða kosningasjóði
Garri mun setja peninga þeg-
ar hann fer af stað með sitt
fyrirtæki. Garri mun styðja
Davíð en ekki Samfylkinguna,
sem í ógeðfelldri hræsni gæti
snúist gegn honum í ræðu-
stóli á Alþingi! GARRI
Davíð Oddsson,
forsætisráð-
herra.
BIRGIR
GUÐMUNDS-
SON
skrifar
Það var blásið til mikils borgara-
fundar í Olafsfirði um helgina og
stórmenni boðað á staðinn.
Flestir aðal fjölmiðlarnir á svæð-
inu mættu á staðinn og gerðu ít-
arlega grein fyrir því sem þarna
fór fram - Iöng frétt á Stöð 2,
fréttir og fréttaauki hjá RÚVAK
og opnuumfjöllun í Degi. Ekki
kemur á óvart að margir Ólafs-
firðingar (og hugsanlega Hrísey-
ingar líka) hafi bundið talsverðar
vonir við fundinn, því þarna var
vel hugsanlegt að stjórnmál-
menn kæmu með eitthvað snið-
ugt útspil. Þeir hafa vissulega
haft nægan tíma til að undirbúa
sig því það er ekki eins og at-
vinnubrestur í Ólafsfirði sé eitt-
hvað sem nýlega fréttist af. Sjálf-
ur fylgdist ég spenntur með öll-
um fréttum af fundinum, en
ekkert kom þar þó fram sem gaf
til kynna óvænt útspil úr ein-
hverri átt. Þvert á móti mátti
heyra gömlu ldisjurnar hafðar
Eim ein vonbrigðin
yfir eina ferðina enn og umræð-
an um aðsteðjandi vanda snerist
upp í almennt, nánast fræðilegt,
spjall um byggðamál.
Óánægja
Það kemur því
ekld á óvart þótt
fundargestir úr
röðum heima-
manna hafi verið
óánægðir eftir
fundinn. I Degi í
gær segist Skíði
Gunnlaugsson
t.d. vera mjög óá-
nægður. „Ekkert
kom út úr fundin-
um, hann var hrein tímaeyðsla."
Greinilega voru fleíri fundar-
menn á sama máli, og satt að
segja er óánægja þeirra afar skilj-
anleg. I Ijósi þess að í þing-
mannahópnum eru auðvitað
stjórnarþingmenn, þar á meðal
forseti Alþingis og auk þess sjálf-
ur byggðamálaráðherrann, hefði
mátt búast við einhverju - þó
ekki væri nema bara tímasetning
á það hvenær fjarvinnsluverkefni
á vegum ríkisins
yrðu flutt á stað-
inn. En ekkert
slíkt var uppi á
teningnum og sú
tilfinning sem
menn sitja eftir
með er að annað
hvort ráði stjórn-
málamenn ekki
við þetta verkefni
eða þá að raun-
verulegan vilja
skorti.
Engin innistæða
Það kom fram í fréttaúttekt í
Degi fyrir 2-3 vikum að forustu-
menn bæði á Ólafsfirði og í Hrís-
ey telja það spurningu um ein-
hverjar vikur þar til fólk tekur
ákvörðun um að flytja burt. Ef
ekkert gerist áþreifanlegt í at-
vinnumálum fyrir þann tíma
ákveði fólk einfaldlega að taka
sig upp með vorinu þegar skóla
lýkur hjá krökkunum. Þegar og
ef það gerist í einhverjum mæli
gæti reynst erfitt að stöðva skrið-
una. I allan vetur hafa stjórn-
málamenn verið að tala um hitt
og þetta og láta í veðri vaka að
pólitískur vilji sé til að beita
handafli tímabundið þar til at-
vinnulífið nær sér á strik. For-
sætisráðherra hefur gengið fram
fyrir skjöldu og tekið þátt í þeim
Ieik. Lítil innistæða virðist hins
vegar hafa verið fyrir orðum
hans frekar en annara. Það sem
blasir við er æpandi dæmi um
pólitískt getuleysi. Kannski er
einfaldlega best að viðurkenna
bara getuleysið og hætta þessum
byggðastefnu þykjustuleik strax.
Verður honum ekld með sama
áframhaldi hvort sem er sjálf-
hætt með vorinu?
Er leit aðferðanwnnum
sem týnast áfjollum ef
til vill hafin ofsnemma?
Jón Birgir Jónsson
formaðurLatulssambands íslenskra
vélsleðamanna.
„Svo tel ég vera. I
þessu tilviki á
Langjökli þá er
allt útlit fyrir að
björgunarmenn
hafi vitað að mað-
urinn var vel út-
búinn og þaulvanur Ijallamaður
og líklegur til þess að bregðast
rétt við aðstæðunum, sem var að
nema staðar og grafa sig í fönn.
Nákvæmlega það sem sleðamenn
eiga að gera, þegar í harðbakkann
slær. Því þurftu menn ekki að ör-
vænta fyrsta sólarhringinn, enda
lenda sleðamenn oft í því að sofa
úti. Félagar í LIV fá fræðslu um
hvernig ferðast eigi á fjöllum og
sú fræðsla virðist í auknum mæli
bera árangur."
Kristbjörn Óli Guðmundsson
framkvæmdastjórí Slysavantar-
félagsins - Landsbjargar.
„Alveg pottþétt
ekki. Eða myndir
þú vilja vera týnd-
ur, kaldur, rakinn
og blautur með
bilaðan vélsleða
og vita að byrjað
yrði að Ieita að þér kannski á
morgun eða hinn? Ef einhver er
týndur lítum við á það sem neyð-
arástand, því við vitum aldrei um
ástand þess sem er saknað. En
sem betur fer kunni maðurinn
sem týndist á Langjökli að bregð-
ast rétt við aðstæðunum og ég
hvet fólk sem ferðast um hálend-
ið að búa sig undir hið versta, því
hinar bestu aðstæður eru oft
fljótar að bregðast."
Ari Karlsson
jeppamaðurá Akureyri.
„Það er aldrei of
snemma af stað
farið með leit á
týndum mönn-
um. Ef menn týn-
ast verður að
flokka slíkt undir
neyðarástand. Hinsvegar er alltaf
erfitt að segja til um hve leit á að
vera umfangsmikil, en ég treysti
þó björgunarsveitarmönnum full-
komlega til að klæðskerasníða
Ieitina að aðstæðum á hverjum
stað og tíma.“
Fridrik Sigurbergsson
læknir í þyrlusveit Landhelgis-
gæslunnar.
„Sjálfur hef ég
ekki upplifað það
þegar við á þyrl-
unni erum kallað-
ir til, en oft er
byijað að svipast
um eftir mönnum
sem týnast áður
en við förum af stað. Það hlýtur
að vera æskilegt að byrja alltaf
sem fyrst að svipast um eftir þeim
sem saknað er, því fólk getur ver-
ið slasað og illa farið. Við slíkar
kringumstæður er tími naumur.
En stærsta vandamálið í þessu er
að fjarskipti ferðamanna sem
leggja í varasamar ferðir eru ekki
í lagi og ferðaáætlanir eru óná-
kvæmari en búnaður manna, hef-
ur mikið batnað."