Dagur - 08.03.2000, Side 12

Dagur - 08.03.2000, Side 12
12 - MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2000 ERLENDAR FRETTIR Blóðug átðk í Mitrovica Framkvæmd uppbygg- ingar- og friðargæslu- starfsins í Kosovo hef- ur verið ábótavaut og þarf að taka til gagn- gerrar endurskoðun- ar, segir yfírmaður þess. Tugir manna særðust í sprengju- árásum og skotbardögum í ser- benska bæjarhlutanum í Mitrovica í Kosovo-héraði í gær. Meðal þeirra sem særðust voru 17 franskir friðargæsluliðar og fjiilmargir óbreyttir borgarar. Atökin hófust með því að al- banskir og serbneskir íbúar í bænum fóru að munnhöggvast, en síðar gripu nokkrir þeirra til vopna. Þetta átti sér stað í serb- neska bæjarhlutanum. Mitroviea hefur verið sann- kölluð púðurtunna undanfamar vikur og reglulega komið til ein- hvers konar átaka milli Albana og Serba, og friðargæslusveitirn- ar ekki ósjaldan lent á milli. Meirihluti þeirra Serba sem bjó í Mitrovica hefur flúið til Serbíu, og þeir sem eftir eru óttast mjög hefndaraðgerðir af hálfu Albana, sem fara heldur ekki dult með hótanir sínar. Síðastliðinn sunnudag hélt Hashim Thaci, fyrrverandi leið- togi Frelsishers Kosovo, þrumu- ræðu yfir um 20.000 Albönum þar sem hann hét því að „frelsa“ hina tvískiptu borg, Mitrovica, og sagðist enn stefria ótrauður að sjálfstæði Kosovo. Fjárskorínr hamlar aðgerðum Bernard Kouchner, yfirmaður uppbyggingar- og friðargaéslu- starfs Sameinuðu þjóðanna í Kosovo, sakaði í vikunni Evrópu- sambandið um að hafa ekki Stað- ið við loforð um fjárframlag til starfsins í Kosovo. Evrópusam- bandið tekur reyndar formlega við yfirstjóm starfsins í Kosovo þann 1. apríl næstkomandi, og í gær komu lyrstu friðargæslulið- arnir á vegum þess til Kosovo. Evrópusambandið hefur gefíð Kouchner þau svör að nú séu nægir peningar loksins að koma, en Kouchner segir að það sé mörgum mánuðum á eftir áætl- un og frammistaða sambandsins sé slæm. I Kosovo er nú haldið uppi Iágmarksstarfi, og til þess notað fjármagn frá öðrum ríkj- um en Evrópusambandsn'kjun- um, m.a. frá Bandaríkjunum. Sömuleiðis hafi hermenn frá Nató þurft að hlaupa undir baggann og sinna m.a. löggæslu- störfum í Kosovo. Fjárskorturinn hefur að sögn Kouchners komið í veg fyrir að unnt sé að hafa taumhald á of- beldinu í Kosovo. Vill endurskoða stefnima Bernhard Kouchner hvatti sömuleiðis Oryggisráð Samein- uðu þjóðanna til þess að taka málefni Kosovo og pólitíska framtíð héraðsins til gagngerrar endurskoðunar, enda sé mörgu ábótavant í framkvæmd starfsins þar. Nú á þessu ári er m.a. gert ráð fyrir að þar fari fram kosningar til héraðsstjórna. Kouchner benti m.a. á að sú sjálfstjórn, sem Öryggisráðið gerir ráð fyrir að íbúar Kosovo fái, hafí alls ekki verið skilgreind nægilega vel og því alls óljóst um alla fram- kvæmd. Dennis McNamara, einn af yfirmönnum uppbyggingarstarfs Sameinuðu þjóðanna í Kosovo, kynnti sömuleiðis nú í vikunni á fundi Oryggisráðs S.þ. nýja skýrslu um ástandið í Kosovo, þar sem fram kemur að brotala- mirnar eru margar. Til dæmis hafa 45 lönd sent samtals 2.361 lögregluþjón til starfa í Kosovo, sem er minna en helmingurinn af því 4.718 manna lögregluliði sem upphaf- lega var gert ráð fyrir. McNamara segir að Mitrovica sé ekki nema efsti sýnilegi topp- urinn á því vandamáli sem helst steðjar að Kosovo, þ.e. ofbeldi hvers konar gegn minnihluta- hópum. Sagðist McNamara ótt- ast að ofbeldið geti brciðst út til suðurhluta Serbíu þar sem enn búa á milli 60 og 70 þúsund AI- banir. HEIMURINN Astandið í Téténíu ekki einfalt RUSSLAND - Sergejev, varnarmálaráðherra Rússlands, sagði í gær að ástandið í Téténíu væri „ekki einfalt". Harðir bardagar geisa nú í suðurhluta landsins þrátt fyrir nýlegar fullyrðingar rússneska hersins um að þeir væru að mestu búnir að ná landinu öliu á sitt vald. A einum stað segja Rússar að a.m.k. 1000 téténsk- ir skæruliðar séu samankomnir og veiti rússneska hernum harða mótstöðu. Fregnir berast af miklu mannfalli í röðum Rússa, enda þótt stjórnvöld beri þær fréttir jafnharðan til baka. Chirac náðar ekki Papon FRAKKLAND - Jacques Chirac, forseti Frakklands, hafnaði í gær náðunarbeiðni frá Papon, hinum 89 ára samverkamanni nasista á stríðsárunum, sem var dæmdur í tíu ára fangelsi á síðasta ári fyrir að hafa tekið þátt í nauðungarflutningum á 1500 frönskum Gyðingum. Niðurstaða úr Iæknisrannsókn, sem Papon gekkst undir, var sú að heilsufar hans bíði engan skaða af dvölinni í fangelsinu. Nú í janúar gekkst Papon undir hjartaaðgerð og var þá settur í hann hjartagangráður. Bretar borga fyrir Pinochet BRETLAND - Bresk stjórnvöld verða að greiða andvirði um 60 milljóna króna í lögfræðikostnað vegna málaferlanna um Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, sem fékk að fara heim til sín á föstudaginn eftir nærri 17 mánaða stofufangelsi í Lundúnum. Jack Straw, innanríkisráðherra Breta, tók þá ákvörð- un að framselja Pinochet ekki til Spánar vegna þess að heilsufar hans Ieyfði það ekki, eftir því sem læknaskýrslur sögðu. Japanir baima klónun JAPAN - I Japan er nú í undirbúningi lagasetning sem bannar einræktun manna og liggur við allt að sjö ára fangelsi. Frumvarp- ið gerir reyndar ráð fyrir að einræktun verði heimiluð að vissu marki í rannsóknarskyni, en það verði háð ströngum skilyrðum. Hins vegar verði vísindamönnum bæði bannað að koma einrækt- uðu mannsfóstri fyrir í legi konu, og einnig að búa til samsett fóstur með arfberum úr bæði mönnum og dýrum. Svipuð lög eru nú þegar í gildi víða á Vesturlöndum. Þórsarar tryggðu sig í úrslitakeppniua Þórsarar gerðu góða ferð á Sauð- árkrók í fyrrakvöld, þar sem þeir unnu fjögurra stiga sigur á Tindastóli, 76-80, eftir að hafa haft tíu stiga forskot í leikhlé 35- 45. Þórsarar unnu þar með sinn fjórða leik í röð og tryggðu sér sjöunda sætið í deildinni og ör- uggt sæti í úrslitakeppninni, fyr- ir síðustu umferðina sem fram fer annað kvöld. Stólarnir höfðu fyrir Ieikinn unnið sex leiki í deildinni í röð og því áttu fáir vona á að Þórsarar ættu mögu- leika á heimavelli þeirra á Króknum. Fyrri hálfleikurinn var sveiflu- kenndur, þar sem heimamenn byijuðu betur. Þéir höfðu náð sjö stiga forystu, 22-15, fyrir miðjan hálfleikinn, en þá tóku Þórsarar til sinna ráða og tókst að jafna í 24-24. Tindastóll komst síð- an aftur inn í leikinn og náði aftur þriggja stiga forystu, en þá var aft- ur komið að Þórsurum sem náðu afgerandi forystu, sem var orðin tíu stig í hálfleik. Þeir héldu síðan uppteknum hætti í seinni hálfleik og höfðu fljótlega aukið forskotið í fjórtán stig. Þá var aftur komið að Tíndastóli, sem tókst að minnka muninn í eitt stig og komast síðan tvisvar stigi yfir þegar langt var liðið á leikinn. En Þórsarar gáfust ekki upp og á lokamínútum sýndu þeir hvers þeir eru megnugir og sigldu örugglega yfir með því að skora fimm síðustu stig leiksins. Hjá Þór áttu þeir Oðinn Asgeirsson og Maurice Spillers bestan leik og voru þeir stigahæstir með 21 stig hvor. Shawn Myers var langbest- ur hjá Tindastóli og skoraði 23 stig, en Svavar Birgisson kom næstur með 14. Með sigrinum eru Þórsarar búnir að tryggja sig í úrslitakeppnina og geta kórónað góðan árangur með sigri gegn fallliði Skagamanna í síðustu umferðinni á morgun. Næstu Iið, sem eru Skallagrímur og Hamar, eru með 16 stig og eiga innbyrðis leik annað kvöld, sem er hreinn úrslitaleikur um áttunda og síðasta sætið í úrslitakeppnina. Möguleikar KFÍ úr söguuni Á sama tíma og Þórsarar tryggðu sæti sitt í úrslitakeppninni, gerðu Grindvíkingar að engu vonir Isfirðina um að komast áfram í keppn- ina, þegar liðin mættust á Isafirði í fyrrakvöld. Grindvíkingar unnu þar ellefu stiga sigur á KFI, 65-76, eftir að hafa léitt með tveimur stigum í hálfleik 40-42. Grindvíkingar náðu lljótlega undirtökunum í leiknum og Ieiddu leikinn að mestu til loka, nema fýrst í seinni hálf- Ieik, þegar Isfirðingum tókst að jafna í 42-42. Lengra komust þeir ckki og Grindvíkingar sigldu örugglega framúr. Hjá Grindvíkingum voru þeir Dagur Þórisson og Brenton Birmingham bestir, en Birmingham var stigahæstur með 16 stig og Dagur næstur með 14. Willie Moore bar af hjá Isfirðingum og var hann lang stigahæstur með 25 stig, en næstur kom Hrafn Kristjánsson með 13. Snæfell fallið Það má segja að Grindvíkingar séu sannkallaðir „draumabanar", því á föstudaginn gerðu þeir drauma Snæfellinga um að halda sér í úr- valsdeildinni að engu, þegar liðin mættust í Grindavík. Grindvíking- ar unnu þar 41 stigs stórsigur, 1 1 5-74 og sendu Hólmara nteð látum niður úr úrvalsdeildinni. Leikur Snæfells gegn KR-ingum í síðustu umferðinni á útivelli annað kvöld, hefur því ekkert að segja, ekki heldur fyrir KR-inga sem eru öruggir í fímmta sætinu og geta hvorld komist ofar né neðar. I fyrrakvöld fékk Snæfell svo Hauka í heimsókn og þar var það sama uppi á teningnum, því Haukar unnu þar 36 stiga stórsigur á Snæfelli, 82-118, eftir að staðan var 42-60 í hálfleik. Ingvar Guð- jónsson átti þar annan stórleikinn í röð fyrir Hauka og var stigahæst- ur með 23 stig, en í leiknum gegn Hamri á fimmtudaginn gerði hann 26 stig. Annars var allt Haukaliðið að spila vel, sem gefur góð fyrir- heit um góðan árangur í úrslitakeppninni. Spennandi lokaumferö Fyrir síðustu umferðina á morgun er sem samt ljóst hvað lið eru fall- in úr úrvalsdeildinni, sem eru IA og Snæfell og einnig hvaða lið kemst ekki í úrslitakeppnina, sem er KFl. Baráttan um áttunda og síðasta sætið í úrslitakeppninni stendur því milli Hamars og Skalla- gríms sem á morgun mætast í innbyrðis leik í landnámi Skallagríms Kveldúlfssonar í Borgarnesi, en þar verður örugglega hart barist að sið Mýramanna. Sama er að segja um toppbaráttuna, þar verður hart barist í leikjum þeirra þriggja liða, Njarðvíkinga, Hauka og Grindvíkinga, sem öll eiga möguleika á deildarmeistaratitl- inum. Leikir síðustu umferðar: Keflavík-Njarðvík, Þór Ak.-ÍA, Grindavfk-Tindastóll, KR-Snæ- fell, Skallagrímur-Hamar og Haukar-KFÍ. Urslit leikja i gærkvöld Bordeaux-Man. United 1-2 Valencia-Fiorentina 2-0 Sp. Prag - Hertha Berlin 1-0 Porto - Ríirrolnníi 0-9

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.