Dagur - 12.03.2000, Síða 1
1
GuðríðurÞorbjam-
ardóttir eryrkisefnið
í leikrítinu Tvær
konurvið árþúsund
semfmmsýnt verður
á Sauðárkróki í
kvöld. Tværleikkon-
urfara með hlutverk
hennar, sem segja
þessa víðfömlu
konu heillandi.
Leikkonur og /eikstjóri. Vilborg Halldórsdóttir, Bára Friðriksdóttir og Jón Ormar
Ormsson. mynd: sbs.
í kvöld, miðvikudagskvöld,
verður frumsýnt í félagsheim-
ilinu Bifröst á Sauðárkróki
leikritið Tvær konur við ár-
þúsund eftir Jón Ormar
Ormsson sem jafnframt er
leikstjóri. Þar er fjallað um
Guðríði Þorbjarnardóttur
sem fyrst varð norrænna
kvenna að fara vestur um haf.
Það var fyrir þúsund árum
síðan sem hún og Þorfinnur
karlsefni héldu til Grænlands
og síðar til Vínlands hins góða.
Er sonur þeirra, Snorri Þorfinns-
son, sagður fyrsti hvíti maðurinn
sem fæddist í Vesturheimi. Heim
snéri Guðríður um síðir - en hélt
svo suður til Rómar, þannig að
óefað hefur hún á sinni tíð verið
víðförulst heimsins kvenna.
Gudríður ytri
og Guðríður innri
Það var fyrir fjórum árum sem
Sigríður Sigurðardóttir safnstjóri
Byggðasafns Skagfirðinga í
Glaumbæ nefndi við Jón Ormar
að eðlilegt væri að gera eitthvað á
árinu 2000 til að minnast Guð-
ríðar, sem bjó í Glaumbæ síðustu
ár ævi sinnar. En það var hins-
vegar vestur á Snæfellsnesi sem
Guðríður fæddist og þar stendur
til að reisa henni styttu, sem af-
hjúpuð verður á kristnihátíð
Snæfellinga.
Leikarar í verkinu eru þær
Bára Friðriksdóttir og Vilborg
Halldórsdóttir, en Jón Ormar
kveðst frá upphafi hafa séð þær
fyrir sér á sviðinu í þessu verki.
Það er Bára sem leikur Guðríði
hina ytri, en Vilborg Ieikur Guð-
ríði hinna innri. „I Grænlend-
ingasögu segir frá þegar Guðríð-
ur sat að vöggu Snorra að heyrst
hafi þytur eða brestur og inn hafi
gengið kona. Guðríður lítur upp
og konan sem inn gengur segir
„Hvað heitir þú?“ Hún svarar því
og spyr hins sama á móti. „Eg
heiti Guðríður," svarar hin þá.
Hér er sem sagt einhver fylgja eða
verndari Guðríðar og þarna sæki
ég hugmyndina að því að Guðríð-
arnar í verkinu séu tvær, hin innri
og ytri,“ segir Jón Ormar.
Návistin er sterk
„Guðríður virðist hafa verið stór í
sniðum," heldur Jón Ormar
áfram. „Afi hennar var írskur
þræll sem kristin kona gaf frelsi.
I Guðríði kemur líka fram heiðn-
in því þegar hún er vestur á
Grænlandi gengur þar hallæri og
þá syngur hún seið með völvu.
En þó segist hún vera kristin.
Návist Guðríðar er mjög sterk í
íslendingasögu og Eiríkssögu
rauða sem segir okkur hve stcrk-
ur persónuleiki hún hefur verið.
Vi/borg Halldórsdóttir í
hlutverki Guðríðar hinnar
innri. „Það eru einhverjir
geislaryfir þessar konu og
þeir skina jafnvel enn í
dag, “ segir Vilborg hér í
greininni
Aðspurðar segjast leikkon-
urnar Bára og Vilborg skynja
vel persónuna Guðríði -
þyki talsvert til hennar
koma. „Víðförul hefur hún
verið og þó ég fari ekki
lengra aftur en f mitt ung-
dæmi þá þótti það fyrir um
tuttugu árum alltaf talsverð
tíðindi ef einhver skrapp út
í lönd. En þessi kona labb-
aði suður til Rómar og eig-
um við ekki að trúa því að
það sé satt. Að minnsta
kosti verðum við að túlka
þá suðurgöngu hér í leikrit-
inu með sannfærandi
hætti," segir Bára. „Það eru
einhverjir geislar yfir þessar
konu og þeir skína jafnvel
enn í dag,“ segir Vilborg,
sem segir einsetu Guðríðar
í Glaumbæ síðustu æviárin
hafa verið merkan þátt í lífi
hennar. Það hafi þessi
kristna fremur kosið en að
vera í klaustri.
Skemmtilegt verkefni
„Það hefur verið afar
skemmtilegt að rita
leikrit um sögu Guð-
ríðar,“ segir Jón Ormar
Ormsson. Sem áður
segir verður leikritið
frumsýnt í kvöld, mið-
vikudagskvöld, kl.
20:30 - og á fimmtudag
og föstudag eru svo á
dagskránni tvær sýn-
ingar. Fleiri sýningar,
meðal annars fyrir skag-
firska skólanema, eru í
bígerð eftir páska.
-SBS.
RE YKJ AVIK- AKU REYRI - REYKIAVIK
Sex smnu
Bókaðu í síma 570 3030 05 4(0 7000
Fax 570 3001 * websalescDairiceland.is * www.flu?fela?.is
...fljúyðufrekar
FLUGFELAG ISLANDS