Dagur - 23.03.2000, Side 1
ÞóróljurMagnússon
flugmaðurfer í sína
síðustuflugferð í dag.
Fjörutíu áraferill á
enda. Sjúkraflugin eft-
irminnileg. „ Vilþotur
í innanlandsflugið, “
segir Þórólfur.
Flugmaðurinn Þórólfur Magnús-
son stefnir flugvélinni inn til
lendingar. Hann er á lokastefnu
beint á braut - en á morgun verð-
ur hann sextíu og fimm ára og
verður því reglum samkvæmt að
hætta í atvinnufluginu. Síðdegis í
dag, fimmtudag, flýgur Þórólfur
vestur á Gjögur með farþega og
frakt og þegar þangað kemur
mun hann venju samkvæmt fá
hjá Sveindísi flugvallarstjóra
kaffi, heimabakaðar kleinur og
jólakökur. En þegar úr ferðinni
kemur - síðustu ferðinni - ætla
félagar hans hjá íslandsflugi að
gera honum glaðan dag á Reykja-
víkurflugveli. Það er Iíka tilefni
til.
Strandamaður
í Siirtseyjarflugi
Þórólfur fluttist um tvítugt vest-
an af Ströndum til Reykjavíkur.
Hann fór að nema flug hjá Reyni
Eiríkssyni áriðl956 og þá var
flogið á Piper Cub. I atvinnuflugi
byrjaði Þórólfur 1962, þá í félagi
með Helga Jónssyni, og sinntu
þeir bæði kennslu- og leiguflugi.
Um 1970 tók við flug hjá Vængj-
um hf. þar sem Þórólfur var
meðal eigenda. I þann tíð flugu
menn vængjum þöndum á Rif, í
Grundarfjörð, Búðardal, á Reyk-
hóla, Holt í Öndunarfirði og
Blönduós; á staði sem fyrir löngu
eru komnir út af áætlun flugfé-
laganna. Einnig vpr flogið til Eyja
og stundum í Surtsey, þann ein-
stæða stað.
Síðustu ár hefur Þórólfur flog-
ið hjá Islandsflugi, það er á
Dornier-vélum félagsins. Þórólf-
Þórólfur Magnússon fer í sína síðustu flugferö i atvinnufluginu í dag. Farsæll ferill er á enda. Ég minnist þess ekki að neinir ósýnilegir aukafarþegar hefðu far-
ið með mér í bæinn; þegar ég flaug suður aftur undir stjörnubjörtum næturhimni, “ segir Þórólfur m.a. hér í viðtalinu. mynd: eól.
ur segir að heldur betur hafi orð-
ið framþróun í flugvélakosti frá
því hann var að byrja, í þann tíð,
fyrir fjörutíu árum þóttust menn
góðir þegar þeir flugu á Cessnu
170. „Tækniþróunin hefur orðið
mikil og þar munar miklu til
dæmis um GPS staðsetningar-
tæknina. Nú vita menn alltaf
hvar þeir eru staddir og þannig
hefur þessi nýja leiðsögutækni
gert flugið mun öruggara," segir
Þórólfur.
Þotur í innanlandsflugið
Aðspurður um þá þróun sem
hefur átt sér stað í innanlands-
fluginu að undanförnu, sem
meðal annars kristallast í þeirri
ákvörðun Islandsflugs að hætta
flugi til Restra áætlunarstaða
sinna innanlands, segir Þórólf-
ur hana hafa verið að nokkru
leyti fyrirsjáanlega. Vegir og bíl-
ar séu sífellt að verða betri.
Hinsvegar sé flugið ferðamáti
sem standi alltaf fyrir sínu, bæði
sé það að verða hættuminna með
bættri tækni - á sama tíma og
vegir séu flestir einbreiðir og
ekkert megi út af bregða í akstri
svo mönnum sé ekki bráður
bani búinn.
„Það sem ég hefði hinsvegar
viljað sjá er að menn fari að
nota þotur í innanlandsfluginu.
Flugfélag Islands verður með
Fokker-vélarnar að minnsta
kosti næstu tvö ár, en ég tel að
menn verði að fara að skoða
þotuflug í fullri alvöru. Enda er
það spennandi möguleiki að
geta verið 20 mínútur á milli
Reykjavíkur og Akureyrar."
Bamsfæðmg og draugasögur
Fyrr á árum var sjúkraflug snar
þáttur í flugi hér innanlands, en
hefur nú að mestu lagst af.
Þórólfur segir að í því flugi hafi
margt spennandi gerst - sem í
frásögur sé færandi. Einsog til
dæmis þegar hann og félagi
hans fóru í sjúkraflug vestur á
Rif að sækja konu í barnsnauð.
Pattaralegur strákur kom í
heiminn yfir Akranesi og þá
þurfti ljósmóðirin sem var með í
för líka að taka á honum stóra
sínum. En allt gekk vel. - „Ein-
hverju sinni fór ég svo einn
norður á Blönduós eftir sjúk-
lingi. Þegar á flugvöllinn kom
biðu þar eftir mér Sverrir Krist-
ófersson flugvallarstjóri og eig-
inkona hans og meðan sjúk-
lingsins var beðið skemmtum
við okkur við að segja drauga-
sögur. A endanum hringdi
læknirinn og sagði mér að ég
yrði víst að fara einn suður,
sjúklingurinn væri látinn. Þá
sáum við að draugasögurnar
höfðu ekki verið viðeigandi. En
ég minnst þess þó ekki að nein-
ir ósýnilegir aukafarþegar hefðu
farið með mér í bæinn; þegar ég
flaug suður aftur undir stjörnu-
björtum næturhimni."
-SBS.
REYKIAVIK-AKUREYRI-REYKIAVIK
fljú^ðu frekar
Bókaðu í síma 570 3030 07 4Í0 7000
Fax 570 3001 * websalesó>airiceland.is ‘www.flu3fela3.is
FLUGFÉLAG ÍSLANDS