Dagur - 23.03.2000, Side 6
LÍFIÐ í LANDINU
FINA OG FRÆGA FOLKIÐ
22- FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000
Lourdes litla dóttir
Madonnu er
ákveðin iítii stúlka
sem heimtar sitt
en fær oftar en
ekki nei frá jafn
ákveðinni móður
sinni.
Oaður getur alltaf á sig blóð-
iör bætt.
Vogin
Allir synir þínir
horfa af brúnni
og bíða eftir
Godot. Bentu
þeim á að hér ríkir drottins
dýrðar koppalogn.
Sporðdrekinn
Það er margt
verra en að slaga
heim af barnum
einu sinni í viku.
Riðuveiki ku til
dæmis ekki vera
neitt grín.
Bogamaðurinn
Þú vaknar fullur
af nýjum hug-
myndum og
framfarahug en
sofnar við sama heygarðshorn-
ið. Þú átt heima í Samfylking-
Steingeitin
Þú hittir vörubíl-
stjóra á förnum
vegi og vissara
að víkja áður en
hann gengur í
skrokk á þér.
Tonnin telja.
Akveðnar mæðgur
Dóttir Madonnu Lourdes er orðin þriggja ára og
augasteinn móður sinnar sem segist þó leggja
allt upp úr því að spilla henni ekki. í málverka-
safni Madonnu eru verk eftir Picasso, Leger og
Fridu Kahlo en hún hleypur ekki til og kaupir
safn af barbídúkkum handa dóttur sinni. „Ef
hún vill fá nýjan kjól að nauðsynjalausu þá segi
ég nei. Hún er sífellt að biðja um meira," segir
Madonna.
Lourdes er skírð í höfuðið á franska krafta-
verkabænum en þangað hafði móðir Madonnu
ætíð dreymt um að komast en lést án þess að
hafa haft tæki-
færi til að láta
drauminn ræt-
ast. Madonna
segir að móður-
hlutverkið hafi
breytt sér. „Að
eignast barn
hefur gert mig
viðkvæmari,
ábyrgari og
meðvitaðri um
orð mín og
gerðir."
Vatnsberinn
Lækkaðu i græj-
unum, maður!
Grannarnir eru
að ærast af
þessum gríðarlega gregorí-
anska kirkjusöng.
Fiskarnir
Þú verður að
sætta þig við að
þurfa að líta gula
spjaldið í boltan-
um. Það verða fleiri að una
áminningum en þú.
Hrúturinn
Besta ráðið til að
missa ekki af
strætisvagninum
er að láta leiða-
kerfið lönd og leið og treysta á
eigin nasasjón.
Nautið
Best er að fresta
gestakomum þar
til móttakan er
orðin skárri en
uppgjafirnar.
Blakaðu eyrunum.
Tvíburarnir
Úlfaldinn á eftir
að smjúga gegn-
um nálaraugað
nema þú stoppir í
gatið í hvelli.
Ljónið
Margt gerir þér
gramt í geði
þessa dagana.
Kynntu þér fagnaðarboðskap
Framsóknarmanna, hann bætir,
hressir og kætir.
Meyjan
Heimurinn sporð-
reisist trauðla þó
þú bætir á þig
nokkrum kílóum.
Krabbinn
Það dugar ekki
að hanga við
sama heygarðs-
hornið þegar allir
baggar eru komnir í hús. End-
urmettu stöðuna.
KRAKKAHORNIÐ
. þú getur ekki kítlað
sjálfan þig.
. kýr framleiða meiri
mjólk ef þær hlusta á
tónlist.
. það eru til meira en
350 tegundir af hákörl-
um.
. úr einu strútseggi er
hægt að búa til eggja-
hræru fyrir 30 manns.
. húsköttur og úlfur eru
af sömu ættkvísl.
. melrakki er það sama
og refur.
. reyður er annað orð
yfir hval.
Ósýnilegi maðiirinn
í húsinu á hæðinni býr ósýnilegur maður. Hvernig er hægt að sjá
hvort hann sé heima eða ekki. Skoðið myndina vandlega þar kann
að leynast vísbending.
Við viljum hvetja alla sem hafa eitthvað í pokahorninu að senda okkur efni. Utanáskriftin er:
Dagur - Barnahorn
Strandgata 31
600 Akureyri
Tölvupóstur: pjetur@dagur.is
I [dIdíttI m iK] irj^r
íBJáHatvndöll
ILEIKFELAG AKIiRFYRARÍ
Miðasala: 462-1400
Sa msta rf sverkef n i
Leikfélags
Akureyrar og
leikhópsins
Norðanljós
Skækjan Rósa
-eftir José Luis Martín Descalzo
Þýðandi Örnólfur Arnason
Ljósahönnun: Ingvar Björnsson
Hljóðmynd: Kristján Edelstein
Leikmynd og búningar:
Edward Fugla
Leikstjóri: Helga E. Jónsdóttir
Leikari: Saga Jónsdóttir
(...Skækjur verða á undan yður
inní guðsríki. Matt. 21 - 31)
Sýningar
laugard. 25. mars kl. 20.00
Síðasta sýning.
GJAFAKORT ■
GJAFAKORT
Einstaklingar, fyrirtæki
og stofnanir.
Munið gjafakortin
okkar
- frábær tækifærisgjöf!
|L.iii|]UÍkian<f3iULIIiUí.lul
|}DlDlniKilíliKllíii,i|tr
i’BloiolurBðl
IleikfclagakureyrarI
Miðasalan opin alla virka daga
frá kl. 13:00-17:00 og fram að
sýningu, sýningardaga.
Sími 462 1400.
www.leikfelag.is