Dagur - 23.03.2000, Qupperneq 8
Fimmtudagur 2 3. m a r s 2000
HHBBUl
[bsv) fesv) [bsv) (bsv) (bsv) [bsv) [bsv) [bsv) [bsv) (bsv) [bsvi (bsv) (bsv) (bsv) (bsv) !
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 462 2520 - Akureyri
BÍLASALA - Sími 461 2960
) íbsv) (bsv) (bsv) (bsv) (bsv) (bsv) íbsv) (bsv) (bsv| (bsv) (bsv) (bsv) (bsv
■ SMÁTT OG STÓRT
UMSJÓN:
SIGURDÓR
SIGURDÓRSSON
„Enn um tann-
Ieysi Islendinga."
Fyrirsögn á grein
Kristínar Heimis-
dóttur tannlækn-
ins í Morgun-
blaðinu.
Sendiherra
Formannsslagur þeirra Ossurar Skarphéðins-
sonar og Tryggva Harðarsonar í Samfylking-
unni er nú hafinn af fullum krafti. Flestir telja
Ossur öruggan um sigur en það er gamall og
góður siður manna að fagna ekki sigri fyrr en
að leikslokum. Það hefur oft verið gert að veita
þeim sem tapa í pólitík eða bíssness sendi-
herraembætti. Má þar nefha Ingimund Sigfús-
son í Heklu sem var undir í ráðamannaslag fyr-
irtækisins, seldi sinn hlut og var gerður að
sendiherra og Þorstein Pálsson sem tapaði fyr-
ir Davíð í formannsslag í Sjálfstæðisflokknum.
Samkvæmt þessu ætti Tryggvi Harðarson að
geta átt von á sendiherraembætti, ef hann tap-
ar formannsslagnum, þegar Samfylkingin
kemst til valda. Tryggvi er menntaður í Kína og
sendiherraembættið þar í landi því tilvalið.
Sérverkefni
hjá hiskupsskrifstofu
Meðhjálpari á Suðurlandi orti þessa vísu á dög-
unum og þarfnast hún ekki skýringa:
Að víngarðsmönnimi bisluip býr,
sem brauð stn kvöddu, en lifa.
I sérverkefnum sitja þrír
siðpníðir og skrífa
Kvótasala á ræðutíma
Á dögunum var nokkur orrahríð á Alþingi um
kvótamálið, eins og svo oft áður. Þingmönnum
var mikið niðri fyrir og fóru hvað eftir annað
fram yfir skammtaðann ræðutíma. Halldór
Blönda! forseti Alþingis þurfti því oft að slá í
bjölluna góðu. Þá var þessi vísa ort í blaða-
mannastúku þinghússins og send Halldóri:
Aðvara hér margan má,
málæði er við að glíma.
Hvemig væri að koma á
kvótasölu á ræðutíma?
Of skynsamur
Guðmundur Daníelsson bóndi í Svignaskarði
var mikill sjálfstæðismaður og áhugasamur um
stjórnmál eins og fleiri en átti það til að vera
nokkuð fljótfær. Eitt sinn fyrir alþingiskosning-
ar bað flokksbróðir hans hann um að „ag-
intera" í nágranna sínum sem var sanntrúaður
framsóknarmaður. Guðmundur svaraði að
bragði: „Það þýðir ekki neitt, hann ert svo
skynsamur."
„Við bendum fólki frekar á mikil-
vægi þess að tryggja sig fyrir
áföllum og eigum þá við líftrygg-
ingu, sjúkdómatryggingu og
slysatryggingu, “ segir Árni Þór
Freysteinsson svæðisstjóri Fjár-
festingar og ráögjafar á Norður-
landi.
Tryggja sig fyrir áföllum
„Hingað getur fólk komið og
fengið óháða ráðgjöf um sín
mál,“ segir Árni. Hann leggur
áherslu á að fyrirtækið er vá-
tryggingamiðlun, ekki vörsluað-
ili fjármuna, heldur komi á
samningum milli viðskiptavina
sinna og fyrirtækja sem hafa
með tryggingar og lífeyrismál að
gera. Þeir miðli til fyrirtækja
hérlendis og erlendis og hafi
sum erlendu fyrirtækin verið á
þessum markaði frá því snemma
á 19. öld. „Við tökum trúnaðar-
skýrslu af fólki, þar sem kemur
fram í hvaða lífeyrissjóði það
hefur greytt og síðan öflum við
upplýsinga um það hvers fólk
megi vænta úr þeim lífeyrissjóð-
um sem það hefur greytt í.
Einnig förum við ofan í trygg-
ingamálin. Frá okkur fer eng-
inn fyrr en við erum búin að kynna þeim allt
sem við kemur tryggingum. Maður segir ekki
við fólk sem er með 40- 50.000 kr. í ráðstöfun-
artekjur á mánuði, og er kannski að kaupa sér
hús, skuldar í bílnum og svo framvegis, að
spara 20.000 á mánuði. Við bendum fólki frek-
ar á mikilvægi þess að tryggja sig fyrir áföllum
og eigum þá við líftryggingu, sjúkdómatrygg-
ingu og slysatryggingu. Það eru margir sem
gera sér ekki grein fyrir því. Til dæmis eru
fæstir af þeim sem ég þekki tneð sjúkdóma-
tryggingu. Það vill oft verða misbrestur á því að
fólk tryggi sig fyrir því sem skiptir máli. Fólk
tryggir veraldlega hluti en lætur sjálft sig sitja
á hakanum, það erum jú við sjálf
sem sköffum veraldlegu hlutina."
Norölenskt fyrirtæki
Það er oft talað um að fólk hrapi í
tekjum þegar það haettir að vinna
og fer á eftirlaun, en Árni sér mikla
möguleika í lífeyrissparnaði. „Fyrir
nokkru opnaðist möguleiki fyrir
launafólk að greiða 2% viðbótar-
framlag af launum sínum í lífeyris-
jóð. Þessa leið eiga allir starfandi
menn að fara. Þetta er ódýrasta
leiðin til þess að spara. Auk þess
eru fjárfestingatengdar tryggingar
skynsamlegar. Jón og Gunna á
Brekkunni eru kannski með 40 eða
60 þúsund krónur f ráðstöfunar-
tekjur á mánuði. Það er skynsam-
legt fyrir þau að leggja fyrir ákveðna
upphæð í hverjum mánuði.“
Fyrirtækið, Fjárfesting og ráð-
gjöf, var stofnað fyrir tæpum tveimur árum og er
skrifstofan á Akureyri sú fyrsta sem opnuð er
utan Reykjavíkur, eins má geta þess að verið er
að stofna dótturfyrirtæki í Riga í Lettlandi. Hjá
Fjárfestingu og ráðgjöf á Norðurlandi vinna ein-
ungis Akureyringar. „Skrifstofan hérna er norð-
Ienskt fyrirtæki, Akureyringar vilja Iáta Akureyr-
inga sjá um sín mál og er bara allt gott um það
að segja. Fólk er að átta sig á því hvílík perla
þetta er. Hvar annarsstaðar í heiminum má til að
inynda finna 1 5.000 manna bæjarfélag sem hef-
ur tvo góða framhaldskóla og háskóla. „ segir
Árni.
-PJESTA
Fyrir síðustu helgi
opmðifyrirtækið
Fjárfesting og ráð-
gjöf skrifstofu að
Hofsbót 4 áAkur-
eyri. Svæðisstjóri
erÁrniÞór
Freysteinsson.
SPJALL
■ FRÁ DEGI
FIMMTUDAGUR 23. MARS
83. dagur ársins, 283 dagar eftir.
Sólris kl. 7.17, sólarlag kl. 19.53.
Þau fæddust 23. mars
• 1749 fæddist franski stærðfræðingurinn
og eðlisfræðingur Pierre-Simon de
Laplace.
• 1881 fæddist þýski efnafræðingurinn
Hermann Staudinger, sem hlaut Nóbels-
verðlaun árið 1953.
• 1900 fæddist þýski sálfræðingurinn Erich
Fromm.
• 1908 fæddist bandaríska leikkonan Joan
Crawford.
•1910 fæddist japanski kvikmyndaleik-
stjórinn Akira Kurosawa.
• 1923 fæddist Baldvin Halldórsson leikari.
• 1926 fæddist Egill Skúli Ingibergsson
verkfræðingur og fýrrverandi borgarstjóri í
Reykjavík.
• 1968 fæddist breski rokktónlistarmaður-
inn Damon Albarn.
Þetta gerðist 23. mars
• 1663 lést Ragnheiður Brynjólfsdóttir í
TIL DAGS
Skálholti.
• 1743 var óratorían Messías eftir Handel
frumflutt í Lundúnum.
• 1873 var þrælahald afnumið á eyjunni
Puerto Rico.
• 1919 stofnaði Benito Mussolini fasista-
hreyfinguna á ltalíu.
• 1933 veitti þýska þingið Adolf Hitler al-
ræðisvöld.
• 1937 var Sundhöllin í Reykjavík vígð.
• 1942 byrjuðu bandarísk stjórnvöld að
flytja Bandaríkjamenn af japönskum ætt-
um í einangrunarbúðir.
• 1956 varð Pakistan sjálfstætt ríki í breska
samveldínu.
• 1993 skýrðu vísindamenn frá því að þeir
hefðu fundið erfðavísi sem veldur Hunt-
ingtons sjúkdómi.
• 1996 fóru fram fyrstu frjálsu forsetakosn-
ingamar á Taívan.
Vísa dagsins
Stúlkan gjafir gaf ‘onum,
gleðin firrt’ann máli,
ellin hrundi af ‘onum
eins og ryð af stáli.
Svcrrir Stormskcr
Afmælisbam dagsins
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, fæddist á Lóma-
tjöm í Grýtubakkahreppi, 23. mars
1950. Að loknu prófi frá Kvennaskól-
anum í Reykjavík áriðl967 stundaði
hún þýskunám við Berlitz-skóla í Ham-
borg 1968-1969 og enskunám við
Richmond-skóla í London 1971-1972.
Hún hefur verið húsmóðir og bóndi á
Lómatjöm frá árinu 1974. Hún stund-
aði kennslu um tíma en var kosin á
þing lyrir Norðurlandskjördæmi eystra
árið 1987 fyrir Framsóknarflokkinn og
hefur setið á alþingi síðan. Hún tekur
á móti gestum í Iþróttahúsinu á
Grenivík, laugardaginn 25. mars.
Flestir missa af tækifærunum vegna þess
að þau eru klædd í vinnugalla og líta út fyr-
ir að krefjast vinnu.
Thomas Alva Edison
Heilabrot
Hvernig fer maður að því að kasta bolta út í
loftið eins fast og maður getur þannig að
hann stöðvist eftir að hafa farið ákveðna
vegalengd, án þess þó að rekast á fyrirstöðu,
og snúi síðan við og komi aftur til manns?
Lausn á síðustu gátu: Ur því herra Blár er
ekki í rauðum fötum, þá hlýtur hann að vera
í grænum fötum. Herra Grænn hlýtur þá að
vera í rauðu fötunum, og herra Rauður í bláu
fötunum.
Veffang dagsins
Þau segjast nafa sett upp fýrsta almenn-
ingsbókasafnið á Netinu. Hugmyndin er sú
að bjóða fólki krækjur í bestu síðurnar um
hvaða efni sem er, en ekki bara þær sem
borga best fýrir áberandi staði. Svo er hægt
að skoða efnið raðað niður eftir Dewey-
kerfinu, sem við þekkjum úr Borgarbóka-
safninu og Þjóðarbókhlöðunni. Vel gert og
batnar stöðugt: www.ipl.org