Dagur - 06.04.2000, Page 1
HaukurÞórðarson var
læknir á Reykjalundi í
tæpfjörutíu ár, en starf-
arnúáKristnesi
nyrðra. „Framfarirí
endurhæfingarlækn-
ingum hafa orðið mikl-
ar, “ segirHaukur.
Bæta þarfkjör öryrkja,
segirhann ennfremur.
„Fólk er orðið mun meira með-
vitað um endurhæfingarlækning-
ar en áður var og leitar tvímæla-
laust eftir þeim gerist þess þörf,
til dæmis fólk sem fengið hefur
heilblóðfall eða orðið fyrir slys-
um. Fyrir kannski þrjátíu til
íjörutfu árum var þetta undir
hælinn lagt og sumir einstakling-
ar lentu því sem næst út á Guð
og gaddinn við áföll,“ segir Hauk-
ur Þórðarson læknir við endur-
hæfingardeild Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri, sem er að
Kristnesi í Eyjafjarðarsveit.
Haukur er gjörkunnugur starfi á
þessum vettvangi, en hann var í
37 ár læknir á Reykjalundi - þar
af yfirlæknir í 29 ár - en lét af
störfum fyrir um ári síðan. I for-
föllum hefur hann verið starf-
andi yfirlæknir á Kristnesi síð-
asta árið eða þar um bil, en það
er til bráðabirgða.
Frainfariritar
hafa orðið miklar
„Framfarir í endurhæfingarlækn-
ingum hafa á undanförnum árum
orðið mildar. I flestum tilvikum
tekst að efla og þjálfa upp mátt og
færni þeirra sem verða fyrir áföll-
um, en auðvitað mismikið eftir at-
vikurn," segir Haukur, sem segir
að starfsemin á Kristnesi og á öðr-
um endurhæfingarstofnunum, svo
sem Reykjalundi eða Grensás sé
um margt svipuð. „Það er sjálfgef-
ið að efla þessa starfsemi hér
þannig að fólk af upptökusvæði
„í flestum tilvikum tekst að efla og þjálfa upp mátt og færni þeirra sem verða fyrir áföllum, “ segir Haukur, sem segir að starfsemin á Kristnesi og á öðrum endur-
hæfingarstofnunum, si/o sem Reykjalundi eða Grensás sé um margt svipuð. mynd: brink
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
sem nær yfir Norðurland og Aust-
firði þurfi ekki að leita suður á
bóginn, yfir fjöll og heiðar," segir
Haukur um starfsemina á Krist-
nesspítala, sem er tvískipur. Tutt-
ugu rúm eru á endurhæfingar-
deild og jafnmörg á öldrunarlækn-
ingadeild.
Enda þótt læknum og hjúkrun-
arstarfsfólki í landinu takist að
vinna mörg kraftaverkin er margur
vandinn óleystur. Haukur Þórðar-
son, sem var formaður Oryrkja-
bandalags íslands frá 1997 til
1999, segir að ekki þurfi um að
deila að margir örorkulífeyrisþegar
búi við afar rýran kost, einkum
þeir sem ekki hafi annað til að
ffamfleyta sér á örorkulífeyrinn
einan. Staða þeirra sem hafi ffam-
lög úr lífeyrissjóði séu miklu betri.
Almannatryggingakerfið sé stórt
völundarhús „ ... og þar er margt
sem grípur inní og skerðir," einsog
hann kemst að orði. Þar nefnir
hann þá alkunnu staðreynd að ef
maki örorkulífeyrisþega er úti á
vinnumarkaði skerðir það bæturn-
ar. Þetta telja forystumenn öryrkja
vera ranglæti og hafa nú höfðað
prófmál á hendur stjórnvöldum til
að fá úr þessu skorið.
Óþarfa slagur
„Þetta var óþarfa slagur," segir
Haukur Þórðarson um þá sér-
stæðu deilu milli forsætisráðherra
og Garðars Sverrissonar, eftir-
manns síns sem formanns Ör-
yrkjabandalagsins, sem upp kom á
dögunum. Haukur var enn for-
maður þegar auglýsingarnar um-
töluðu voru settar í loftið. „Við
vorum ekki með neina
flokkspólítíska tilburði, heldur
voru þetta fyrst og fremst í okkar
huga ábendingar um staðreyndir.
Við þurfum að finna leiðir og mik-
ilsverðast er þar að auka framlög
til þessa málaflokks. Islenska vel-
ferðarkerfið er sagt dýrt, en það er
ekki dýrt miðað við það sem gerist
í nágrannalöndum okkar. Bæta
þarf lífeyrismálin og húsnæðismál
eru alltaf brennandi, hjá Öryrkja-
bandalaginu eru alltaf hundruð
fólks á biðlistum eftir íbúðum
þess. Einnig get ég nefht atvinnu-
málin, staða þeirra er að vísu góð í
augnablikinu en þegar þrengir að
mun staðan breytast aftur. Þegar
við hlustum á svör stjórn-
málamannanna um viðhorf þeirra
til þessara mála heyrum við að þeir
tala allir ósköp líkt. Þetta er spurn-
ing um vilja. En hvenær ætti að
vera lag til þess að breyta kjörum
öryrkja og annarra þeirra sem höll-
um fæti standa nema í góðærinu?"
segir Haukur Þórðarson yfirlækn-
ir. -SBS.
MM
Sex smnu
Bókaðu í síma 570 3030 0; 460 7000
Fax 570 3001 * websalesá>airiceland.is • www.flu$fela?.is
...fljújðufrekar
FLUGFELAG ISLANDS