Dagur - 06.04.2000, Síða 4
20 - FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000
Ðagtr
skákunum en þó reyndi nú einn
andstæðinga hans að byrja skák-
ina með hvítu! Kasparov hló mik-
ið við það og spurði hvort að regl-
urnar voru öðruvísi hér. Frá skák-
unum er skemmst frá því að
segja að Kasparov átti ekki í mikl-
um vandræðum með þessa tíu
merkismenn úr íslensku þjóðlífi,
lagði þá alla á hálftíma! Það var
einna helst Biggi í Oz sem náði
aðeins að stríða heimsmeistaran-
um, en ekki er þó hægt að segja
að Kasparov hafi nokkurn tíma
verið í einhverri hættu. Að ein-
víginu loknu var Kasparov óskað
til hamingju með þetta mikla af-
rek og aðspurður sagði hann að
þetta hefði verið „mjög minnis-
stæð reynsla". Kasparov sagði
jafnframt að þetta hefði verið
mjög gaman og væri gott fyrir
ímynd skákarinnar.
270.000 fylgjast með
Þeir Oz.com fullyrtu að
270.000 manns hefðu verið að
fylgjast með heimsmótinu í
Kópavogi í einu! Þessum tölum
einfaldlega trúði Kasparov ekki
og sagði að þær gætu hreinlega
ekki staðist. Séu þær þó réttar,
sem Oz menn sverja fyrir, þá er
ljóst að aldrei hafa svo margir
verið inni á íslenskri heimasíðu
í einu og líklega aldrei á skák-
síðu almennt! Það er því ljóst
að þar var um íslandsmet að
ræða og jafnvel heimsmet!
Kasparov fór svo bara heim að
sofa enda erfiður dagur að baki
og flug til London strax morg-
uninn eftir!
Heitur pottur
Aðrir þátttakendur í þessu ævin-
týri skelltu sér hinsvegar í heitan
pott á Húsafelli og þótti ekki
slæmt, sérstakleg ekki erlendu
blaðamönnunum. Þegar var þá
farið að ræða um næsta ár og
voru m.a. annars uppi hugmynd-
ir um fljótandi taflhorð í hláa
lóninu eða jafnvel teflt á ísjaka í
Jökulsárlóni! Hvað svo sem gert
verður er ljóst að erfitt mun reyn-
ast að toppa þessa frábæru ævin-
týraferð!
Fjölteflisaðstaðan var elnfaldlega grafin niður íjökulinn þannig að Kasparov var í miðjunni. Jeppar mynduðu síðan skjól.
Glæsilegt hlaðborð virtist bæta skap meistarans, sem hafði verið dálítið
afundinn á leiðinni upp á jökulinn.
Heimsmeistarinn var ekki í vandræðum með þessa stöðu, enda brosir hann breitt áður en hann leikur næsta leik.
myndir: gva
að fara í jeppa með okkur hinum
þessa leið upp á jökul. Bros færð-
ist aftur yfir andlit manna og
okkur var ekkert að vanbúnaði og
lögðum í hann. I öllum hama-
ganginum að fá Kasparov hafði
þó gleymst að þeir Geir og Gunn-
ar áttu líka að koma með þyrl-
unni, enginn hugsaði um þá og
þeir urðu því að sitja heima.
Ekki hyrjaði ferðin gæfulega
því að eftir einungis um hálftíma
keyrslu valt einn af jeppunum út
af þjóðveginum! Sem betur fer
urðu þó engin meiðsli á þeim er-
lendu blaðamönnum sem höfðu
eignað sér þennan bíl en bfllin
var stórskemmdur jafnvel talinn
ónýtur, sex milljón kall takk fyrir!
En jæja, blaðamennirnir fengu
nýjan bíl og haldið var áfram.
Það er af Kasparov að segja, að á
leiðinni skemmti hans sér ekki
vel, fannst nánast allt „extremely
annoying" eins og heimsmeistar-
inn orðaði það. En það lyftist þó
heldur betur brúnin á meistaran-
um þegar upp var komið á jökul-
inn, en hvort því olli dýrindis
matur sem við snæddum uppi á
jökli eða einfaldlega það að kom-
ast út úr bílnum eftir þessa tveggja
og hálfs tíma ferð skal ósagt lát-
ið. Eftir matinn var bara eitt að
gera - taka til við að moka!
Fjölteflið var hannað þannig að
grafin var stór gryfja en skilinn
eftir í miðjunni á gryfjunni lang-
ur stallur og þar var töflunum
raðað. Kasparov mætti svo á
staðinn og eins og fýrr segir var
hann bara orðinn heldur Iéttur á
brún.
Breyttar reglur!?
Kasparov hafði hvítt í öllum
skrifar
Ævintýra-
legferð á
Langjökul
með
heimsmeis-
taranum í
skák var
farinívikunni.
Það var spenna f mannskapnum
þegar menn tóku að tínast inn í
húsakynni ferðaþjónustufyrirtæk-
isins Addlce, sem að ætlaði að
skutla mannskapnum upp á Lang-
jökul þar sem tefla átti við sjálfan
Kasparov. Þarna voru saman-
komnir menn úr öllum áttum,
f’ulltrúar Skáksambandsins, er-
lendir blaðamenn, fulltrúr sænska
fjarskiptarisans Ericson, háttsettir
menn innan Oz.com og Islands-
síma og svo að sjálfsögðu líka inn-
lendir fréttamenn - og ég.
Kasparov sjálfur átti hins vegar að
mæta á jökulinn með þyrlu ásamt
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
og Gunnari Birgisyni formanni
bæjarráðs í Kópavogi. Þegar menn
voru að tfnast inn í bílana kom
kynningarfulltrúi mótsins skyndi-
lega og var með sorgarsvip. Það
voru í mesta lagi helmings líkur á
því að þyrlan kæmist! Menn litu
hver á annan og spurðu: verður þá
ekkert af þessu? Það var meira að
segja komin varaáætlun, tefla í
Bláa Lóninu!
Giurnar og Geir gleymdust
En til hennar þurfti aldrei að
koma því að Kasparov samþykkti