Dagur - 06.04.2000, Side 6
22- FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000
Miðasalan opin alla virka daga
frá kl. 13:00-17:00 og fram að
sýninau, sýningardaaa.
Símí 462 1400.
www.leikfelag.is
LÍFIÐ í LANDINU
FINA QG FRÆGA FOLKIÐ
Bamsmissir Miu
Mia Farrow er barngóð
kona. Hún lét sér ekki
nægja að fæða fjögur
börn heldur ættleiddi tíu.
Dóttir hennar Tam lést
nýlega einungis 19 ára
gömul. Tam var víet-
nömsk, blind og með
veikt hjarta. Mia er sögð
yfirkomin af sorg vegna
dauða dóttur sinnar.
Önnur dóttir hennar
Lark er eyðnismituð.
Fyrir tveimur árum lést
móðir Miu, leikkonan
Maureen O’Sullivan, og
fyrrum eiginmaður henn-
ar Frank Sinatra. Mia tók
dauða þeirra beggja
mjög nærri sér en þau
Sinatra héldu alla tíð vin-
skap þrátt fyrir skilnað-
inn.
Miu ásamt Tam sem var
með hjartagalla og varð
einungis 19 ára gömul.
KRAKKAHORNIÐ
Hver á hvaða enda?
Gunna litla er að vinda garn og fékk Jón litla til
þess að halda í fyrir sig. En kötturinn komst í
endann og garnið flæktist. Getiði rakið ykkur
eftir þræðinum og séð hvor á hvaða þráð?
6 villur
Elínóra fór í göngutúr með gælugrísinn sinn,
en eitthvað hefur teiknaranum misfarist, því á
neðri myndinni eru sex atriði sem ekki eru
eins og á þeirri efri. Getið þið fundið út hvað
það er?
Við viljum hvetja alla sem hafa eitthvað í pokahorninu að senda okkur efni. Utanáskriftin er:
Dagur - Barnahorn
Strandgata 31
600 Akureyri
Tölvupóstur: pjetur@dagur.is
ST JÖRNUSPA
Vatnsberinn
Láttu ekki bank-
ana blekkja þig.
Þeir eru ekki að
sameinast ein-
göngu til að þér
líði betur.
Fiskarnir
Ekki er alltaf
bestur sá
drómedarinn
sem dregur
vagninn. Fáðu þér Camel og
forðaðu þér úr reyknum af rétt-
unum.
Hrúturinn
Þú ert hvunn-
dagshetja og
sættu þig við
það. Betra er að
vera heitur bólfari
en kalinn pólfari.
Nautið
Láttu ekki plata
þig til að stunda
innherjaviðskiþti á
útsölunni. Það er
brot á siðareglum
Verslunarráðs.
Tvíburarnir
Ekki fara á fjórð-
ungsmót ís-
lenskra hesta-
manna. Farðu á
þriðjungsmótið, það er miklu
stærra.
Krabbinn
Það er of seint, [
flestum tilfellum,
að sækja um
fæðingarorlof á
sjötugsafmælinu. Og þó, lengi
getur gamall þarnað.
Ljónið
Taktu upp árang-
urshvetjandi upp-
eldisaðferðir. Sex
í landafræði, og þá fá þörnin að
borða.
Meyjan
Enginn veiðir
krókódíl í músa-
gildru og hempan
skapar ekki
prestinn. Sníddu
þér stakk eftir
vexti.
Vogin
Hofðu þrisvar
sinnum í röð á
Mary Poppins
eða Pollýönnu og
segðu svo að
veröldin sé vond.
Sporðdrekinn
Það sundríður
enginn ísilagðan
þæjarlækinn.
Legðu frekar
járnbraut til Vest-
mannaeyja.
Bogamaðurinn
Tannlæknirinn er
ekki ábyrgur fyrir
holufyllingu
Lundeyjar, þó
vissulega megi
kenna honum um
margt.
Steingeitin
Skynsamlegra er
að hopa af hólmi
strax en stökkva
á strigaskóm
fram af Holmen-
kollen.