Dagur - 06.04.2000, Blaðsíða 8
Ibsv’1 [bsv] |bsv[ |bsv[ |bsv[ |bsv[ [bsv[ |bsv[ [bsv| [bsv'1 |bsv| |bsv| |bsv| |bsv| |bsv|
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 462 2520 - Akureyri
BÍLASALA - Sími 461 2960
f) (BSV) (BSVj (BSV) (BSyj IBSVj ÍBSy] ÍBSV) (BSV) gsvj (BSV) (H3 (bsv) (bsv) (bsv) |
Vilhjálmur Egilsson al-
þ/ngismaður.
SMATT OG STORT
UMSJÓN:
SIGURDÖR
SIGURDÓRSSON
sigurdor@ff.is
Villi góði vakua þú
I síðustu viku var haldinn sameiginlegur fundur
utanríkismálanefndar og EES nefndar Alþingis
um Evrópumál. Boðið var til hádegisverðar og
síðan var fundi haldið áfram og boðað að eftir
skamma stund kæmi kaffi og kökur. Þá gerðist
það að Vilhjálmur Egilsson sofnaði meðan beðið
var eftir kökunum og þá skrifaði Sighvatur Björg-
vinsson á miða og lagði hjá Vilhjálmi:
Villi góði vakna þú,
vond er þessi leti.
Eins og hafir etið þú
ógrinni af kjeti.
Þeir sem sækja þennan fund
þurfa að kunna að vaJia.
Eftir litla öskots stund
er að koma kaka.
Kippt í spotta
Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra sagð-
ist ætla að taka bankastjóra viðskiptabankanna
í karphúsið vegna hinna óeðlilegu verðbréfa-
viðskipta sem starfsmenn bankanna stóðu í
fyrr í vetur og sögð voru siðlaus ef ekki ólögleg.
Síðan gerðist heldur lítið og sagði Jóhanna Sig-
urðardóttir alþingismaður þetta stafa af því að
kippt hafi verið í spotta á réttum stöðum og
Valgerði bannað að hafast eitthvað að. Um
þetta orti Olafur Stefánsson.
Viðskiptaráðherrann Valgerður S,
vildi fyrst stjórana heygja.
En kippt var í spolta og krafist var þess
að kellingin mætt’ekkert segja.
Geir og Reyðarfjörður
Þegar Hjörleifur Guttormsson var iðnaðarráð-
herra í upphafi níunda áratugarins ætlaði hann
að láta byggja kísilmálmverksmiðju á Reyðar-
firði. Hóf hann þá undirbúning Austurlands-
virkjunar með útgáfu nokkurra bóka með rann-
sóknum og upplýsingum þar um. Hann réð þá
Geir A. Gunnlaugsson, sem framkvæmdastjóra
verkefnisins, og eins og allir vita varð ekkert úr
verkefninu. Þetta rifjast upp nú vegna þess að
sá hinn sami Geir A. Gunnlaugsson er nú
framkvæmdastjóri verkefnisins álver í Reyðar-
firði. Samkvæmt síðustu atburðum á þeim víg-
stöðvum virðist það vera að fara sömuleið. Er
ekki rétt fyrir Geir að fá sér vinnu við verkefni
sem ekki tengjast Reyðarfirði?
Valgerður Sverrisdóttir.
GULLKORH
„í viðræðum
koma fram rök og
mótrök og niður-
staða fæst.“
Kristján Ragnars-
son bankaráðsfor-
maður Islands-
banka í samtali við
Mbl.
„Titillinn vísar i þær kröfur sem sam-
tíminn gerir til konunnar, að hún sé
sterk, fjölkunnug, fögur og nett, “
segir Hólmfriður Arnardóttir, heim-
spekingur.
„Álfadans og skessuróður
66
Menntasmiðja kvenna stendur
fyrir sjálfsstyrkingarnámskeiði
fyrir konur um aðra helgi. Hólm-
fríður Arnardóttir, heimspeking-
ur, kennir á námskeiði sem ber
yfirskriftina „Alfadans og
skessuróður." Hún verður einnig
með námskeið í kvennasiðfræði
sem er opið báðum kynjum.
Hólmfríður segir að á sjálfsstyrk-
ingarnámskeiðinu fái þátttakend-
ur þjálfun í að koma skoðunum
sínum á framfæri. „Titillinn vísar
í þær kröfur sem samtíminn gerir
til konunnar, að hún sé sterk,
Ijölkunnug, fögur og nett. Skess-
urnar eru sterkar og kunna ýmis-
legt en þær eru ótrúlega ófríðar.
Alfkonurnar eru hinsvegar fagrar
og nettar. Svo er önnur merking
falin í titlinum sem ég vil helst
ekki upplýsa fyrr en á námskeið-
„Það erfiillt affólki
sem siturfundi og
samkomurog langar
að tjá sig en hejur
sigekkiíþaðogtel-
ursig ekkigeta það
afeinhverjum
ástæðum.“
ur uppá að bjóða nýtt. Það er til
dæmis að nefna sókratíska sam-
ræðuaðferð, þ. e. að tala saman á
skipulagðan hátt og nota þá rök-
hugsun sem við höfum öll yfir að
ráða til að komast að sameiginlegri
niðurstöðu Hinsvegar ætla ég alls
ekki að skilja tilfinningarnar útund-
an. Aðalsmerki heimspekinnar er
rökhugsunin sem hefur alltaf verið
höfð í hávegum, en mér finnst
stundum eins og tilfinningarnar
gleymist. Þær séu ekki eins mark-
tækar og ekki borin sama virðing fyr-
ir þeim og rökliugsuninni. Tilfinn-
ingarnar cru samt aldrei langt und-
SPJALL
Tilfínningar gleymast
Efni sjálfsstyrkingarnámskeiðsins er sótt í hefðir
heimspekinnar, en Hólmfríður segir að þótt konur
hafi ekld neina vitneskju um heimspeki geti þær
haft gagn af námskeiðinu. „Þetta er fyrir alíar kon-
ur, þær þurfa ekki að vita neitt um heimspeki. Það
eru miklir fordómar, gagnvart heimspekinni. Hún
hefur verið sett á fræðimannastall. Heimspekin er
ekki hættuleg, hvað þá að ég sé það. Ekki tala all-
ir sem fjalia um heimspeki óskiljanlegt mál. Þegar
ég hef verið að kenna hversdagsheimspeki á
Rekspalarnámskeiðum fyrir ríkisstarfsmenn, hefur
enginn kvartað.
Námskeiðið „Alfadans og skessuróður" kemur í
rauninni ekkert heimspeki sem hugmyndasögu
við. Heldur eru þau verkfæri sem heimspekin hef-
Kvennasiðfræði fyrir alla
Hólmfríður byijaði í sálfræði en fór
svo í Heimspeki. Þegar hún var í
framhaldsnámi í Ósló f Noregi fékk
hún þjálfun f að Ieiða heimspekileg-
ar samræður, bæði einka- og hópsamræður. Hún
hefur áður leiðbeint bæði stærri og smærri hópum
bæði hér og í Ósló. Hún segist sjálf hafa Ient í þeirri
aðstöðu að sitja fundi með brennandi áhuga á því
að taka til máls en ekki þorað það. Auk sjálfsstyrk-
ingarnámskeiðsins verður hún með kvöldnám-
skeið sem fjailar um kvennasiðfræði og er það opið
öllum. „Margar konur halda því fram að þær kenn-
ingar sem hafa verið settar fram innan heimspek-
innar um siðfræði m.a. séu svolítið einsleitar. Þær
hafi aðrar áherslur, aðra upphafspunkta, en þá
sem þær myndu vilja miða við. Það þarf enginn að
vera heimspekimenntaður til þess að geta setið
undir þessu. Eg tek dæmi úr hversdagsleikanum,
dæmi sem allir þekkja og námskeiðið er ekki sér-
staklega hugsað bara fýrir konur. Þetta er fyrir alla,
konur jafnt sem karla.“ -PJESTA
■ FRÁ DEGI TIL DAGS
FIMMTUDAGUR 6. APRÍL
97. dagur ársins, 269 dagar eftir.
Sólris kl. 6.27, sólarlag kl. 20.35.
Þau fæddust 6. apríl
• 1942 fæddist Svala Thorlacius hæstarétt-
arlögmaður.
• 1952 fæddist Bogi Ágústsson fréttastjóri.
• 1946 fæddist Vigfús Þór Árnason prestur.
• 1806 fæddist breska ljóðskáldið Elizabeth
Barrett-Browning.
• 1866 fæddist bandaríski glæpamaðurinn
og þjóðsagnapersónan Butch Cassidy.
• 1874 fæddist ungverski töframaðurinn
Harry Houdini.
• 1927 fæddist norðurírski presturinn og
íhaldsmaðurinn Ian Paisley.
• 1928 fæddist bandarfski líffræðingurinn
James Watson, sem ásamt Francis Crick
uppgötvaði uppbyggingu erfðaefnisins
DNA.
Þetta gerðist 6. apríl
•1106 varð mikill eldsvoði í Feneyjum.
• 1979 var í lýrsta sinn úthlutað úr Kvik-
myndasjóði íslands.
• 1944 fórst bandarísk herflugvél út af
Vatnsleysuströnd, en átta mönnum var
bjargað.
• 1672 lýstu Frakkar yfir stríði á hendur
Hollandi.
• 1712 gerðu þrælar í New York uppreisn.
• 1868 kvæntist mormónaleiðtoginn Brig-
ham Young síðustu eiginkonu sinni,
þeirri 27ndu f röðinni.
• 1909 komust Bandaríkjamennirnir Ro-
bert Peary og Matthew Henson á Norð-
urpólinn.
Vísa dagsins
Auðunn Bragi Sveinsson gaukaði að okk-
ur þessari vísu, og spyr hvað gerist, eftir að
Hæstiréttur fellir dóm sinn í Kvótamál-
inu?
Þegar býður þjóðarsóminn,
þá skal allra hragöa neytt:
Hæstaréttar- hunsa -dóminn,
hefja lagasmíði greitt!
Afmælisbam dagsins
Dr. Kári Stefánsson, forstjóri og stjóm-
arformaður Islenskrar erfðagreiningar,
fæddist í Reykjavík þann 6. apríl árið
1949. Hann lauk læknisfræðiprófi og
síðar doktorsprófi í læknisfræði frá
Háskóla Islands. Hann lauk sérnámi í
taugasjúkdómum og taugameinafræði
við University of Chicago og starfaði
þar sem prófessor í tíu ár. Árið 1993
tók hann við prófessorsstöðu við
Harvardháskóla, en settist við stjómvöl
íslenskrar erfðagreiningar þremur
árum síðar.
Ekki láta siðferðiskennd þína koma í veg
fyrir að þú gerir það sem rétt er.
Isaae Asimov
Heilabrot
I landi nokkru bjuggu tvær tegundir af fólki:
Lygarar og sannorðir. Tvær Ijölskyldur í
þessu landi, Hvunndalsætt og Thorfinn-
senætt, skáru sig þó úr fjöldanum, þannig að
fólk af Hvunndalsættinni sagði satt á morgn-
ana en laug síðdegis, en Thorfinnsenættin
laug á morgnana en sagði satt síðdegis.
Ferðamaður nokkur hittir á förnum vegi tvo
menn, köllum þá Pétur og Pál. Við vitum að
annar þeirra er Hvunndal, hinn Thorfinn-
sen. Pétur segir: Eg er af Thorfinnsenætt-
inni. Páll segir: Nú er síðdegi. Og þá er það
spurningin: Hvor þeirra Péturs og Páls er
I lvunndal og hvor er Thorfinnsen, og hvort
er morgunn eða síðdegi?
Lausn á síðustu gátu: Bókstafurinn K er
fýrstur í Kópavogi en síðastur í Bolungarvík.
Veffang dagsins
Mikinn fróðleik um dadaisma má finna á
wxvw.smalltime .comlnowhereldada!