Dagur - 06.05.2000, Page 5

Dagur - 06.05.2000, Page 5
Ð^ur_ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000 - 21 Úr Brighter Summer Day eftir tævanska leikstjórann Edward Yang. Tævan var mikið í fréttum fyrir nokkrum vikum út af kosn- ingum, en líklega vita færri að þaðan koma nokkrir afbestu kvikmyndaleikstjórum í heiminum í dag. Með Lars von Tríer Cannes Þann 10. maí næst= komandi verður Kvik- myndahátíð- in í Cannes sett með sýningu stuttmyndar eftir Jean-Luc Godard „Upphaf 21. aldarinnar“ og nýrri kvikmynd eftir Roland Joffé, Vatel. Þar með byrjar ballið á La Croisette sem lýkur 10 dögum síðar þegar Luc Besson, formaður dóm- nefndarinnar í ár, af- hendir Gullpálmann. Mér hefur alltaf þótt skemmti- legt að fylgjast með þessari stærstu og mestu glamúrhátíð kvikmyndanna sem haldin er í heiminum. Það stafar kannski af því að ég var búsett í Frakklandi, þar sem fréttatímar sjónvarps- stöðvanna þessa tíu daga enda yfirleitt á myndum af kvik- myndastjörnum á leið upp rauða dregilinn í beinni. Þá hefur ekki verið minna spennandi að kaupa dagblöðin þessa daga, þar sem óháðir k vi km y n d a s kr íp e n t a r Libé og Le Monde, láta gamm- inn geysa um myndirnar í keppninni og skrifa ástríðufullar greinar um leikara og leikstjóra sem þeir hafa látið heillast af. Þá er ekki verra, sé maður staddur í París en ekki á sjálfri hátíðinni, að geta séð sumar af þessum myndum strax, þar sem nokkrar eru yfirleitt frumsýndar í almennum kvikmyndahúsum á þessum tíma. Skipt um skoðun Oftast þarf maður þó að bíða fram til haustsins og vetrarins til að geta barið augum umtöluð- ustu myndir hátíðarinnar. Þá getur líka verið bíó að fylgjast með gagnrýnendum endurskoða álit sitt á sumum myndanna, sem þeir annað hvort elskuðu eða hötuðu í hita leiksins í Cannes. Ekki að þeir kúvendi skoðunum sínum, en stundum virkar mynd öðruvísi þegar horft er á hana í annað sinn nokkrum mánuðum síðar, við ögn rólegri aðstæður en í Cannes. Opinbert andlit Kvikmyndahá- tíðarinnar í Cannes er keppnin um Gullpálmann. Myndirnar sem um hann berjast eru valdar af forseta hennar, Gilles Jacob, og hans fólki og kynntar skömmu fyrir páska. Víst má teljast að fæstar þessara mynda eigi eftir að rata í íslensk kvik- myndahús fyrr en seint og um sfðir. Nokkrar munu dúkka upp á næstu og þar næstu kvik- myndahátíð, en fæstar ef nokkrar eiga eftir að komast á almennar sýningar hér. Það sýn- ir reynslan. Þó skulum við reikna með að fá fljótlega að sjá Dancer in the Darli, nýjustu mynd Lars von Trier þar sem Björk „okkar“ Guðmundsdóttur er í aðalhlutverki. Uppgangur í Asíu Kvikmynd Lars von Trier er í hópi þeirra mynda sem gagn- rýnendur bíða eftir með mestri eftirvæntingu. Tveir aðrir nor- rænir leikstjórar eiga mynd í keppninni, Roy Anderson (SAnger frÁn andra vÁningen) og Liv Ullman (Trolösa). Annars koma asískir leikstjórar sterkast- ir inn enda hafa margar af frum- legustu og bestu myndum síð- asta áratuginn komið þaðan. Aðstandenur hátíðarinnar benda þó á að erfitt sé orðið að flokka myndir eftir löndum, þar sem Ilestar séu samframleiddar, sam- anber Trier-myndin, sem er dönsk-frönsk. En lítum á listann. A honum má sjá gamalkunnug nöfn á borð við Joel Coen, en hann virðist vera einn á ferð með O Brother, where are yoti?. Ekki vitum við hvort það tengist titli myndinnar. Þá mæta tveir ólíkir Bretar, sem íslenskir kvikmynda- áhugamenn þekkja, James lvory með The Golden Bowl og Ken Loach með Bread & Roses. Is- lendingar kannast Ifka við Wong Kar-wai frá Hong Kong, þar sem mynd hans Chungking Ex- pressíæst á vídeóleigum. Hún er aðeins ein af mörgum góðum myndum hans sem margar hafa komist á lista yfir bestu myndir tíunda áratugarins. Nægir þar að nefna Happy Together og Fallen Angels en nýja mynd Wong heitir Án titils. Aðrir leik- stjórar frá Asíu eru Aoyma Shinji með Eureka, lm Kwon Taek með Chunhyang, Jiang Wen með Guizi Lai Le, Nagisa Os- hima með Gohaito að ógleymd- um tævanska leikstjóranum Ed- ward Yang með Á One and Á Tivo....Þetta eru allt nöfn sem kvikmyndaáhugamenn ættu að leggja á minnið ef þeir hafa eltki gert það nú þegar. ísrael og íran Þá er gaman að sjá hina ungu Samira Makhmalbaf frá íran á listanum, með Svörtu töfluna, en fyrsta mynd hennar Eplið (fæst á vídeóleigum) vakti mikla athygli í flokknum „Un certain regard“ fyrir tveimur árum. Myndir Amos Gitai frá ísrael hafa vakið athygli fyrir bein- skeyttar frásagnir leikstjórans af lífinu í landi sínu og ekki er annað að sjá en hann haldi áfram að fjalla um það í Kippur. Þá eru ótaldar myndirnar Estrovo eftir Ruy Guerra, Fast Food Fast Women eftir Amos Kollek, The Yards eftir James Gray, Nurse Betty eftir Neil Labute og La Noce eftir Pavel Lounguine. Þetta eru myndirnar sem keppa munu um Gullpálmann, en þær eru aðeins lítið brot af öllum þeim aragrúa mynda sem renna munu í gegn- um sýningarvélar kvikmynda- húsanna í Cannes meðan á há- tíðinni stendur. Sumar eiga eftir að setja svip sinn á kvikmynda- söguna, en aðrar falla í gleymsk- unnar dá um leið og henni lýk- ur. Bon cincma. Margrét E. Úlafsdóttir skrifar tninlrdliJuloIiiBjtliiirii.il eftir Erskine Caldwell Þýðing: Jökull Jakobsson Leikmynd og búningar: Snorri Freyr Hilmarsson Lýsing: Ingvar Björnsson Hljóðmynd: Kristján Edelstein Leikstjóri: Viðar Eggertsson Laugardagur 6. maí kl. 20:00 Föstudagur 12. maí kl. 20:00 Örfá sæti laus Laugardagur 13. maí kl. 20:00 25% afsláttur til handhafa gulldebetkorta Landsbankans. Miðasalan opin alla virka daga frá kl. 13:00-17:00 og fram að sýningu, sýningardaga. Sími 462 1400. www.leikfelag.is ATHUGIÐ BREYTTAN SÝNINGARTÍMA UM HELGAR Stóra svið: Kysstu mig Kata Söngleikur eftir Cole Porter, Sam og Bellu Spewack. lau 6/5 kl. 19:00 uppselt, sun 7/5 kl. 19:00 örfá sæti laus, fim 11/5 kl. 20:00 örfá sæti laus, fös 12/5 kl. 19:00 uppselt, lau 13/5 kl. 19:00 örfá sæti laus, sun 14/5 kl. 19:00 örfá sæti laus, fim 18/5 kl. 20:00 laus sæti, fös 19/5 kl. 19:00 örfá sæti laus, lau 20/5 kl. 19:00 uppselt, sun 21/5 kl. 19:00 laus sæti, mið 31/5 kl. 20:00 örfá sæti laus. Sjáið allt um Kötu á www.borgarleikhus.is Sýningu lýkur í vor. Litla svið: Leitin að vísbendingu um vitsmunalíf í alheiminum Eftir Jane Wagner Lau 6/5 kl. 19:00 örfá sæti laus. Allra síðasta sýning í Reykjavík Ósóttar miðapantanir seldar daglega Miðasalan er opin virka daga frá kl. 12-18, frá kl. 13 laugardaga og sunnudaga og fram að sýningu sýningardaga Símapantanir virka daga frákl. 10 Greiðslukortaþjónusta Sími 568 8000 Fax 568 0383 Hvað er á seyði? Tónleikar, sýningar, fyririestrar o.s.frv... Sendu okkur upplýsingar á netfangi, í símbréfi eða hringdu. ritstjori@dagur.is / fax 460 6171 / sími 460 6100 Útvörður upplýsinga il

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.