Dagur - 06.05.2000, Blaðsíða 6
^LlfJL) 1 LAj'JÐJj'JU j
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000
V^ur
„Ef okkur tekst það ætlunarverk að búa til öflugt mótvægi við stjórnarstefnu núverandi rikisstjórnar, sem er mikil nauðsyn á, þá hefur sannarlega ekki verið unnið til einskis."
Um þessa
helgi verður
Samfylking-
in formlega
að stjórn-
málaflokki.
Vinnan hefur
verið ströng og mikið
hefur mætt á Margráti
Frímannsdóttur. Hér
ræðir hún um stöðu og
framtíð Samfylkingar-
innar.
- Það hefur verið löng og ströng
ganga að sameina Alþj'ðubanda-
lag, Alþýðuflokk og Kvennalista í
einn flokk. Ilver vorti mestu von-
brigðin á þvíferli?
„Mestu vonbrigðin voru auövit-
að að hluti af' því fólki sem árum
saman sagðist vera stuðnings-
menn félagshyggju og jöfnuðar í
Iandinu gat ekki yfirstigið per-
sónulegan metnað og viðurkcnnt
að hagsmunum félagshyggju-
manna væri best borgið í einum
flokki þar sem menn sameinast
um stóru línurnar þótt skiptar
skoðanir séu um annað, eins og
yfirleitt er innan stjórnmála-
flokka, hvort sem þeir eru litlir
eða stórir. Það var merkilegt að
hlusta á 1. maí ræður ýmissa
þeirra sem vildu ekki ganga til
liðs við Samfylkinguna, en þenn-
an dag var málflutningur þeirra á
sama veg og okkar sem höfum átt
þann draum að sameina vinstri
menn í einum flokki. Það er ljóst
að í grundvallaratriðum er sam-
hljómur í málflutningi og það að
lýðræðinu sé best borgið með
sem mestum fjölda stjórnmála-
flokka, eins og þessir menn hafa
hvað eftir annað haldið fram, er
ekkert annað en bull.
Það var vissulega tími mikilla
breytinga í íslenskum stjórnmál-
„Formennirnir þurftu að
stíga til hliðar og gefa
þessu nýja stjórnmála-
afli svigrúm til að vaxa
og dafna undir nýrri for-
ystu, f þessu tilfelli Öss-
urar Skarphéðinssonar
sem við fögnum mjög
og treystum. Við af-
hendum honum þetta
fjöregg og hann mun
fara mjög vel með það.“
um á þessum árum sem Samfylk-
ingin var að verða til. Menn sem
höfðu starfað árum saman í for-
ystusveit A-flokkanna voru að
hverfa til annarra starfa. Maður
saknar þess auðvitað að hafa ekki
í þessu öfluga liði menn eins og
Svavar Gestsson og Jón Baldvin,
Olafur Ragnar og Guðrún Katrín segja sig úr Alþýðubandalaginu þegar hann var
búinn að tilkynna forsetaframboð.
sem hafa gefið pólitíkinni Iíf og lit
í gegnum tíðina. Það tekur okkur
einhvern tíma að byggja upp öfl-
uga heild sem er lifandi og gef-
andi í pólitíkinni en ég finn eftir
þennan vetur að það er að takast.
Kannski þurfti í þetta ferli fólk
eins og okkur Sighvat Björgvins-