Dagur - 06.05.2000, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000 - 31
jynptr-
Og golan kyssir kinn
Ekkert jafnast á við að
upplifa náttúruna á
hestbaki langt upp til
fjalla. En reiðmaðurinn
þarf líka að vera vel út-
búinn á baki til að full-
komna vellíðanina. Það
er til reiðfatatíska eins
og önnur tíska.
Þegar haldið skal til reiðar er
ekki nóg að hesturinn sé klár.
Fatnaður skiptir sköpum um
vellíðan reiðmanns á baki. Líf
og stíll fékk aðstoð eiganda
Hestabúðarinnar á Akureyri
Stefáns Erlingssonar, hest-
húsaeigandans Höskuldar
Jónssonar og fyrirsætanna
Helgu Árnadóttur, reiðkonu og
Davíðs Sverríssonar, hesta-
manns til að kynna nýjustu
reiðfatatískuna.
Stígvélin
á hilluna
Það er margt sem þarf að huga
að þegar halda skal í langferð á
hestum upp til fjalla. Fyrst og
fremst þarf að huga að góðum
og vönduðum fatnaði sem
hentað getur við öll veðurskil-
yrði, allt frá sólu til hríðar. Það
eru til margar útgáfur af reið-
fatnaði í verslunum og gera
hestamenn og -konur mun
meiri kröfur í dag en áður fyrr
um fallegan reiðfatnað. Fyrir-
sæturnar Helga og Davíð sýna
okkur þrenns konar fatnað sem
henta vel í ferðalagið. Reiðstíg-
vélin eru lítið notuð, það er
einna helst að þau séu dregin
fram á vetrum, en það hafa
komið á markaðinn sérstakir
skór sem leysa þau af hólmi,
svokallaðir Grum-skór líka kall-
aðir gegningarskór sem eru
með gúmmí upp að ölda.
Skóbuxurnar
vinsælastar
Þar sem skórnir hafa orðið vin-
sælir meðal hestafólks, eru Iíka
komnar þar til gerðar buxur á
markaðinn sem ganga undir
heitinu skóbuxur frá Horka og
sjá má vel á efstu myndinni hér
á sfðunni hvernig þær líta út,
Helga er í bláum og Davíð í
grænum. Þessar buxur kosta kr.
17.900. Flfspeysurnar eru til-
valin fatnaður í góðu veðri,
léttar og vindheldar, Helga er í
grárri og Davíð í brúnni, þær
kosta kr. 8.980. Reiðskórnir
eru frá Tracker og er Helga í
brúnum reimuðum skóm sem
kosta kr. 6.890 en Davíð í
svörtum sem hægt er að
smokka sér ofan í því þeir eru
með teygju við öklann, þeir
kosta kr. 6.990.
Á myndinni í miðið má sjá
Helgu og Davíð f mjög svo
praktískum vattjökkum sem
með lítilli lý'rirhöfn má breyta í
vesti, því hægt er að renna
ermunum af. Þeir fást í öllum
mögulegum litum, en hér sjá-
um við Ijósbrúnan og dökk-
bláan, þeir eru frá Mountain
Helga og Davíð í léttum reiðfatnaði
sem hentar mjög vel á góðum sumar-
dögum. Á milli þeirra er nýkembd og
falleg Dimma frá Þverá.
house og kosta kr. 8.980.
A neðstu myndinni sýna
Helga og Davíð okkur tvær út-
gáfur af vatns- og vindheldum
úlpum og er Helga í vindúlpu
með léttu fóðri en úlpan sem
Davíð er í er hlýrri og með
þykku fóðri. Ulpurnar kosta kr.
8.980. Hjálmarnir kosta kr.
4.995 eins og Helga er með og
kr. 5.900 eins og Davíð er með.
Það skal enginn reiðmaður
skilja hjálminn eftir heima, ein
algengustu meiðsl á reiðmönn-
um eru einmitt höfuðmeiðsl.
Nýjustu hjálmarnir eru alveg
eins og reiðhjólahjálmar, léttir
og meðfærilegir og fást í mörg-
um litum.
anna svo sem eins og mat og
drykkjarföng, en það getur líka
verið trússhestur, sem er þá
klyfjaður öllum nauðsynjum
þar á meðal girðingu sem slá
má utan um hrossin þegar áð
er. En engu að síður er nauð-
synlegt að hafa hnakktösku.
Henni er komið fyrir fyrir aftan
hnakkinn og fest við hann með
þar til gerðum ólum. í
hnakktöskunni er mjög gott að
hafa eftirfarandi: járningasett,
varaskeifur, vasahníf, regnföt
og föt til skiptanna, harðfisk og
súkkulaði, og síðast en ekki síst
brjóstbirtu.
-w
Frábærir vattjakkar sem breyta má í
vesti með einu handtaki. Skóbuxurnar
þykja þægilegastar.
Helgarferð
Flestamannafélagið Léttir á Ak-
ureyri hefur gert upp og rekur
gamalt býli innst í Fnjóska-
dalnum sem heitir Sörlastaðir.
Þangað er algengt að félags-
menn fari í helgarferð á hest-
um, úr Fnjóskadalnum eru svo
reiðleiðir um alla Þingeyjar-
sýslu.
Hnakktaskan
I lengri ferðum er oftast með í
ferð svokallaður trúss, það get-
ur verið trússbíll sem flytur
nauðsynlegan búnað reiðmann-
Það er ekki alltafstilla og því nauðsyn-
legt að eiga góða vindúlpu. Hjálminn á
ekki að skilja eftir heima.
\ \\ M '' % 1' r,v M
Æ r l