Dagur - 06.05.2000, Page 23

Dagur - 06.05.2000, Page 23
» S / ' i l f X^ur. LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000 ^s-jJjijjJlajjjjj j SKÁKMOLAR UMSJON: HALLDÓR B. HALLDÓRSSON Polgar sigraði á Japfa Classic Sterkasta skákkona lieims, Judit Polgar, sigraði á mjög sterku lokuðu alþjóðlegu tíu manna móti sem fram fór í Indóncsíu 22.apríl - 2.maí. Polgar fékk 6.5 vinninga af níu mögulegum og tryggði sér sigurinn með góðum sigri á Brasilíumanninum sterka Gilberto Miios. Fyrir síðustu umferð voru þau Polgar, Milos, Alexander Khalifman heimsmeistari FIDE og sjálfur Karpov, íý'rr- um heimsmeistari, efst og jöfn með 5.5 vinninga.í síð- ustu umferðinni Iagði svo Polgar Milos, eins og fyrr segir, og Karpov og Khalifman skildu jafnir.Mót- ið var gífurlega sterkt og má nefna að þeir Jan Timman og Jaan Ehlvest sem við ís- Iendingar þekkjum frá opna Reykjavíkurmótinu voru báðir fyrir neðan miðju.Staða efstu mann var eins og hér segir: Nafn. Land. Elo. Vinn. 1. Judit Polgar, UNG 2658 6!< 2. Alexander Khalifman, RUS 2656 6 3. Anatoly Karpov, RUS 2696 6 4. Gilberto Milos, BRA 2620 5JÍ 5. Yasser Seirawan, USA 2647 5 Ný skákstig komin út! Ný íslensk skákstig eru kom- in út og má nálgast þau á skak.is. Nokkuð var um breytingar á yfirstandandi vetri og má þar nefna að Hannes Hlífar Stefánsson hefur jafnað Jóhann Hjartars- son að stigum og má á því sjá hve sterkur skákmaður Hannes er orðinn. Sex skák- menn hækkuðu um meira en 100 stig frá síðasta Iista. Það 1. Páll Sigurösson 175 2. Guðmundur Kjartansson 130 3. Skúli Torfason 125 4. Baldur Möller 115 5. Jón Orri Kristjánsson 115. 6. Ölafur Kjartansson 110 Sterkustu skákmenn ís- lands eru sem fyrr (skv. Is- Iensku skákstigunum auðvit- að): 1. Hannes Hlífar Stefánsson 2640 2. Jóhann Hjartarson 2640 3. Margeir Pétursson 2615 4. Helgi Áss Grétarsson 2540 5. Jón L. Árnason 2530 Mót um helgina Landsmótið í skólaskák fer fram á Borgarfirði Eystra um helgina. Tuttugu ung- menni á skólaaldri frá öilum kjördæmum taka þátt að vcnju. Teflt verður í tveim flokkum og eru því tíu í hvorum flokki. Greinarhöf- undur verður meðal þátttak- enda og stefnir að sjálfsögðu á sigur! Greint verður frá mótinu í næsta dálki. Hundalíf í Hollywood Nýjasta stjarnan í Holþ'Vf'ood er hinn níu ára gamli Moose. Moose er hundur, sem fyrst vakti athygli fyrir leik sinn í gaman- þáttunum um Frasier þar sem hann lék hinar ýmsu listir. Nú hefur Moose slegið rækilega í gegn í kvikmyndinni My Dog Skip sem hann leikur í ásamt Kevin Bacon. Moose hefur vitanlega sent frá sér sjálfsævisögu sína eins og sönnum leikara sæmir. Þar sýnir hann af sér nokkra sjálfhælni og heldur því meðal annars fram að hann standi sig best allra leikaranna í Frasier og eigi hug og hjörtu áhorfenda. Eigandi Moose segir hann geðgóðan og hegða sér betur en flestir I lollywood leikarar. Moose vakti fyrst athygli fyrir ieik sinn i gaman- þáttunum um Frasier og nú hefur hann slegið i gegn í Hollywood kvikmynd. KRAKKAHORNIÐ Á þessum myndum eru íjórar samstæður, eða tvær og tvær myndir sem eiga saman. Dragðu strik á milli þeirra sem eiga saman. Fróðleikur Vissir þú að maðurinn sem varð fyrstur til að búa til not- hæfan síma hét Alexander Graham Bell. Hann bjó til fyrsta símann árið 1876 og í honum voru bæði hljóðnemi og hátálari með málmhimnu sem var spennt yfir rafsegul. Vissir þú að drottningin í Svíþjóð heitir Silvía? Hún gift- ist Karli 16. Gústafi Svíakon- ungi árið 1976 og fyrir gifting- una hét hún Silvia Renate Sommerlath og var fædd í Þýskalandi. Við viljum hvetja alla sem hafa eitthvað í pokahorninu að senda okkur efni. Utanáskriftin er: Dagur - Barnahorn Strandgata 31 600 Akureyri Tölvupóstur: biggi@dagur.is STJORNUSPA Steingeitin Spá Þjóðhags- stofnunar um út- flutningsfram- leiðsluna er ekki óskeikul. Snúðu þér að innflutn- ingi. Fiskarnir Lækkun bensín- verðs boðar ekk- ert gott. Mjólkur- lítrinn á eftir að hækka sem því nemur. Hrúturinn Friðhelgi heimilis- ins verður ekki í askana látin. Læstu útidyr- unum í kvöld. k Nautið Þú skuldar vinnufélögunum skýringu á fram- ferði þínu um síð- ustu helgi. Endur- taktu það um þessa. Tvíburarnir Með hliðsjón af hlutverki vænt- inga getur skipt máli hvort þú tel- ur að aðgerðir marki stefnu- breytingu. Krabbinn Áhrifamáttur tímabundins samdráttar í út- gjöldum á eftir að koma þér í koll. Ljónið Forsendur sem gefnar eru upp í framreikningi ráða nokkru um gengi þitt á næstunni. Meyjan Stefndu að mjúk- ri lendingu í efna- hagsmálum og fylltu dýnuna með fimmþús- undköllum. Vogin Aflaðu þér tíman- legra og greinar- góðra upplýsinga um innherjavið- skipti og úthýstu þeim strax. Sporðdrekinn Velferðin ræðst af neyslunni. Neyttu á meðan á nefinu stendur. Bogamaðurinn Jöfnuður þátta- tekna er að jafn- aði neikvæður. Hafðu það hug- fast. Steingeitin Náttúrleg fjölgun landsmanna fer stöðugt minnk- andi. Spyrntu við fótum og drífðu þig í rúm- ið.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.