Dagur - 26.05.2000, Side 7
FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 2000 - 7
HÚS OG GARÐAR
Nauðsynlegt er að að í herbergjum ríki ákveðið jafnvægi svo íbúum líði vel, bæði í litavali og innbúi.
Grænt er róandi
Ertu orkuhus,þreyttur
ogpirraður? Kemur
engu í verk heinm og
vilt bara sofa? Kannski
eríbúðin þín ekki í rétt-
um litum og þú þaift
að tnála upp á nýtt.
Það er Ijóst að litir skipta okkur
miklu máli og getur herbergi
sem málað er í „réttum" litum
haft bætandi áhrif á líðanina á
meðan herbergi í „röngum“ lit-
um orsakar vanlíðan. Kfnverjar
hafa í aldanna rás myndað sér
ákveðnar skoðanir á litum og
litavali og hér að neðan eru
Feng Shui hugmyndir um vald
og áhrif lita. Fcng Shui er ann-
ars 5000 ára gömul kínversk
speki sem kennir áhrif umhverf-
is á líðan og velferð manna,
bæði innanhúss og utan.
Orka og bjartsýni
Þeir sem vilja auka bjartsýni
eiga að nota gula, gyllta og hlýja
hvíta/ljósbrúna/gulbrúna liti á
veggi. Þeir sem vilja auka jafn-
vægi og frið eiga að nota græna
og ólífuliti. Þeir sem vilja auka
veg valds og orku skulu nota
rautt, vínrautt eða fjólurautt.
Þeir sem vilja auka ábyrgðartil-
finningu og vald um leið eiga að
nota svart. En þeir sem vilja róa
taugarnar skulu nota ljósgrænt
eða ljósblátt. Og vilji fólk auka
Þeirsem vilja róa taug-
amarskulu nota Ijós-
grænteða Ijósblátt.
meðvitund sína ætti að nota
fjólublátt, gyllt og rautt, helst
saman.
Hvað líkar þér best?
Þar með er það komið á hreint
og næsta skref að fara að mála.
En það er nú kannski ekki svo
einfalt því auðvitað spilar
smekkur inn í líka og þó ljós-
grænt sé róandi þá er ekki víst
að hann falli að smekk íbúanna
eða húsgögnunum sem fyrir eru
og fólk vill halda í. Oft er gott að
leita til innanhúsarkitekta en
best er þó að byrja á því að
skoða hvaða litir höfða til
manns. Og hvernig skyldi það
vcra auðveldast? Jú, með því að
opna fataskápinn og skoða litina
sem eru mest áberandi þar. Eini
gallinn er sá að sumir eiga bara
svört föt, eða því sem næst. Eru
allir á praktísku línunni og svart
fer jú vel við allt, er það ekki? Þá
er að fá litasplöld Iánuð og bera
við. Það borgar sig nefnilega að
vinna skipulagsvinnuna vel,
þannig verður árangurinn best-
ur. - vs
Þreyttur á herb erginu þínu?
Stundum langarmann
til að breyta öllu. Fá
nýttherbergi/íbúð - án
þess að flytja. Fæstir
eigaþesskostað
henda öllu og kaupa
allt nýtt en það erhægt
aðgera þetta á annan
veg og einfaldari.
Fyrsta skrefið þcgar breyta á, er
að gera sér einhverja hugmynd
um það hvernig herbergið á að
líta út eftir umbæturnar. Þegar
það er komið er hægt að hefjast
handa.
Takið allt sem ekki er naglfast
út úr herberginu. Skoðið her-
bergið með augum þess sem er
að flytja inn f nýtt húsnæði. Þarf
að mála? Gera við eitthvað? Eru
skáparnir cins og þeir eiga að
vera? Eða vill maður hafa þá
öðruvísi?
Þegar búið er að gera herberg-
ið íbúðarhæft með málningu og
viðgcröum er næsta skref að
setja inn hús-
gögnin aftur - en
aðeins þau hús-
gögn sem maöur
vill eiga og hafa.
Einfaldlega
sleppa hinum.
Það sama gildir
um skrautmuni.
Ekki setja upp
myndina sem
maður fékk í
jólagjöf 1968,
bara vegna þess
að hún hefur
alltaf verið á
veggnum og
alltaf farið í taugarnar á manni.
Þetta skref þarf að hugsa vand-
lega. Betra er að setja inn mirina
en meira og það sem eftir vcrður
fer í kassa inn í geymslu, þ.e.
það sem ekki er hægt að gefa,
selja eða henda.
Og hafa það í huga að eftir því
sem minna er af dóti, þess minni
umhugsun þarf herbergið. Yfir-
leitt safnar maður að sér allskon-
ar dóti sem engum tilgangi þjón-
ar og þvæiist bara fyrir. Eða eins
og ein góð kona sagði: Það er
gott að eiga eitthvað til minning-
ar, en Ijósmyndir henta best í
þeim tilgangi.