Dagur - 24.08.2000, Blaðsíða 9
Tk^wr
FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2000 - 9
ÍÞRÓTTIR
Úr leik Víkings og FH um síðustu heigi. Úlafur Adolfsson skorar fyrsta mark FH-inga í 0-3 sigri Hafnarfjarðarliðsins.
Endaspretturiim
Heil umferð fer fram í
1. deild karla á morg-
uii, þar sem línur
mirnu væntanlega
skýrast nánar uni
stöðuna á toppi og
botni deildarinnar.
FH og Valur hafa kom-
ið sér þægilega fyrir í
toppsætunum, en lið
Skállagríms er þegar
faHið.
Þegar fjórar umferðir eru eftir í
1. deild karla í knattspyrnu, er
ennþá allt opið upp á gátt í efri
hluta deildarinnar, þar sem sex
lið eiga ennþá fræðilega mögu-
leika á sæti í efstu deild, þó ekki
geti þeir talist raunhæfir hjá
þeim öllum. FH og Valur hafa
komið sér þægilega fyrir í topp-
sætunum, þar sem FH-ingar eru
með 31 stig, eða einu stigi meira
en Valsmenn og síðan kemur KA
í þriðja sætinu með 24 stig.
FH-ingar þurfa sjö stig til við-
bótar úr síðustu fjórum umferð-
unum til að tryggja sér öruggt
sæti í efstu deild að ári og Vals-
menn þá einu stigi meira. Miðað
við þá leiki sem liðin eiga eftir
ætti ætlunarverkið að takast, en
þar má þó lítið út af bera, þar
sem lið KA er á mikilli siglingu
þessa dagana og mun örugglega
fylgja fast á eftir. Onnur lið eiga
sáralitla möguleika og ólíklegt að
þau blandi sér úr þessu í topp-
baráttuna.
Næsta iimferð ræður miklu
uin framhaldið
Næsta umferð, sem fer ffam á
morgun, mun ráða mildu um
framhaldið, en þá á KA heima-
leik gegn IR-ingum, en IR-ingar
eru með 21 stig í fjórða sætinu
og eiga því enn fræðilega mögu-
leika þó litlir séu. A sama tíma
leika FH-ingar gegn fallliði
Skallagríms á Kaplakrika og Val-
ur gegn Sindra að Hlíðarenda.
Sindri er nú í 8. sætinu með 16
stig, einu stigi minna en Þróttar-
ar sem eru í 7. sætinu, en bæði
liðin eru enn með falldrauginn í
eftirdragi og þurfa Þróttarar sem
eiga heimaleik gegn Víkingum á
morgun, sjö stig til viðbótar til að
losna örugglega við draugsa og
Sindri þá ein átta. Það er þó
bundið því að Tindastóll, sem er
með 11 stig í næstneðsta sætinu,
fái fullt hús stiga og verður það
að teljast ólíklegt þó þeim hafi
gengið vel gegn Þrótti í síðasta
leik og unnið þá 2-0 á Sauðár-
króki. Stólarnir fá Dalvíkinga í
heimsókn á morgun og þurfa
virkilega á sigri að halda, því
annars blasir fallið við.
Víkingar eru fimmta liðið, sem
enn á fræðilega en hverfandi
möguleika á sæti í efstu deild, en
þeir eru nú í fimmta sætinu með
21 stig eins og ÍR-ingar, en Vík-
ingar eiga eins og áður sagði úti-
leik gegn Þrótturum á morgun.
Sjötta liðið sem á agnarlitla
möguleika, er Iið Dalvíkinga,
sem er með 20 stig í sjötta sæt-
inu. Möguleikarnir eru svo litlir
að aðgjört kraftaverk þarf til að
dæmið gangi upp, því liðið má
aðeins tapa tveimur stigum til
viðbótar, á meðan toppliðin
fengju ekkert.
Leikjaprógram efstu liða:
FH: Skallagrímur (H), ÍR (Ú),
Sindri (H) og Valur (Ú)
Valur: Sindri (H), Dalvík (Ú),
KA (Ú) og FH (H)
KA: ÍR (H), Sindri (Ú), Valur
(H) og Dalvík (Ú)
IR: KA (Ú), FH (H), Þróttur (Ú)
og Tindastóll (H)
Víkingur: Þróttur (Ú), Tinda-
stóll (H), Dalvík (H) og Skalla-
grímur (Ú)
Dalvík: Tindastóll (Ú), Valur
(H), Víkingur (Ú) og KA (H)
Staðan:
FH 14 9 4 1 30:12 31
Valur 14 9 3 2 37:14 30
KA 14 7 3 4 27:18 24
ÍR 14 6 3 5 26:21 21
Víkingur 14 6 3 5 29:26 21
Dalvík 14 6 2 6 28:27 20
Þróttur 14 4 5 5 20:22 17
Sindri 14 3 7 4 11:14 16
Tindast. 14 3 2 9 15:26 11
Skallagr. 14 1 0 13 11:54 3
fsland í 29. sæti eftir fyrsta
keppnisdag á HM kvernia
íslenska kvennalandsliðið í golfi,
skipað þeim Ragnhildi Sigurðar-
dóttur, GR, Ólöfu Maríu Jóns-
dóttur, Keili og Herborgu Amar-
dóttur, GK, er í 29. sæti eftir
fyrsta keppnisdag á heimsmeist-
aramóti áhugalandsliða, sem
þessa dagana fer fram á Arnold
Palmer-golfvellinum í Berlín í
Þýsldandi.
Keppnin hófst í gær og lék
Ragnhildur Sigurðardóttir, GR,
þá best í íslenska liðinu, eða á 76
höggum, sem er fjórum yfir pari
vallarins. Ólöf María lék á 81
höggi og Herborg á 87 höggum.
Arangur tveggja bestu spilara í
hverri sveit telja og því reiknast
Ragnhildur Sigurðardóttir.
íslenska sveitin á 157 höggum.
Alls taka íjörutíu þjóðir þátt í
mótinu og eru Danir f efsta sæt-
inu eftir fyrsta keppnisdag á
samtalsl42 höggum.
Besti árangur dagsins var 69
högg, en honum náðu tveir kepp-
endur, þær Suzann Pettersen frá
Noregi, sem lék á Norðurlanda-
mótinu í Vestmannaeyjum ekki
alls íyrirlöngu og Niloufar Azam
frá Sviss. Ragnhildur náði 43.
besta árangri dagsins af þeim
120 keppendum sem taka þátt í
mótinu.
Keppni á mótinu heldur áfram
f dag, en lýkur á laugardag.
KNATTSPYRNA
Erfiö barátta framundan
Eftir 2-3 tap íslenska kvennalandsliðsins gegn því úkraínska á Laug-
ardalsvelli í fyrrakvöld er ljóst að Island lendir í neðsta sæti 3. riðils
og þarf því að spila um það aukaleik gegn Hvít-Rússum eða Rúmen-
um, hvort liðið heldur sér áfram í styrkleikaflokki A, eða fellur í B-
flokk. Leikur Islands og Úkraínu var síðasti leikurinn f undankeppni
EURO-200I, þar sem liðin sextán í A-flokki léku í fjórum riðlum.
Sigurvegarar í riðlunum urðu Fralddand, Noregur, Þýskaland og
Rússland og komast liðin beint í 8-Iiða úrslitakeppnina, sem ennþá
hefur ekki verið ákveðið hvar fer fram. Þjóðirnar átta sem lentu í 2.
og 3. sæti riðlanna, leika síðan um þau fjögur sæti sem eru laus í úr-
slitakeppninni og er fyrirfram ákveðið eftir sætum hvað þjóðir leika
saman. Þar munu Danir leika gegn Spánverjum, Svíar gegn Finnum,
Englendingar gegn Úkrafnumönnum og ítalir gegn Portúgölum og
verður leikið heima og heiman.
Auk Islands lentu Holland, Sviss og Júgóslavía í neðstu sætum
riðlakeppninnar og leika því eins og íslenska liðið um áframhaldandi
sæti meðal þeirra sextán bestu, gegn sigurvegurunum í riðlakeppni
B-þjóða. Þar verður einnig leikið heima og heiman og hvort sem það
verða Hvít-Rússar eða Rúmenar sem verða mótherjar Islands, þá er
víst að það gæti orðið erfið barátta.
Siggi og Heiðar aftur í bópinn
Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, hefur tilkynnt leik-
mannahóp sinn fyrir Iandsleikinn gegn Dönum, sem fram fer á Laug-
ardalsvelli Iaugardaginn 2. september n.k. Hópurinn er skipaður
sömu sextán Ieikmönnunum sem valdir voru gegn Svíum í síðustu
viku, auk þess sem þeir Sigurður Jónsson, IA, sem ekki gaf kost á sér
í síðasta leik og Heiðar Helguson, Watford, sem var meiddur, koma
nú aftur inn í hópinn.
Leikurinn gegn Dönum er sannkallaður sex stiga leikur, því hann
er bæði liður í undankeppni HM-2002 og Norðurlandamótinu, þar
sem íslenska liðið er nú í toppsætinu.
ísland leikur í 3. riðli undankeppni HM-2002 ásamt Danmörku,
Búlgaríu, Tékklandi, Norður-írlandi og Möltu og fara allir þrír leikir
1. umferðar riðilsins fram 2. september og leika Búlgar þá gegn
Tékkum og Norður-írar gegn Möltubúum.
Aðrir leikir Islands í riðlinum eru gegn Tékkum (Ú) 7. okt., Norð-
ur-írum (H) 11. okt., Búlgörum (Ú) 24. mars, Möltubúum (Ú) 25.
apríl, Möltubúum (H) 2. júní, Búlgörum (H) 6. júní, Tékkum (H) 1.
sept., Norður-írum (Ú) 5. sept. og Dönum (Ú) 6. okt.
Landsliðshópurinn:
Markverðir: Birkir Kristinsson, IBV (68/0) og Arni Gautur Arason,
Rosenborg (7/0).
Aðrir leikmenn: Rúnar Kristinsson, Lilleström (83/3), Sigurður
Jónsson, ÍA (65/3), Eyjólfur Sverrisson, H. Berlin (54/7), Arnar Grét-
arsson, Lokeren (46/2), Þórður Guðjónsson, Las Palmas (37/9), Rík-
harður Daðason, Viking (32/10), Helgi Sigurðsson, Panathinaikos
(32/8), Hermann Hreiðarsson, Ipswich (30/1), Helgi Kolviðsson,
Ulm (23/0), Brynjar Björn Gunnarsson, Stoke (22/3), Auðun Helga-
son, Viking 18/1), Tryggvi Guðmundsson, Tromsö (17/3), Pétur
Marteinsson, Stabæk (16/0), Heiðar Helguson, Watford (10/1), Arn-
ar Þór Viðarsson, Lokeren (7/0) og Eiður Smári Guðjohnsen, Chel-
sea (5/1). (Fjöldi landsleikja og landsliðsmörk í sviga)
Engin breyting hjá 21-árs liðinu
Sigurour Grétarsson, þjálrari 21-árs liðsins, hefur einnig tilkynnt
sinn hóp sem Ieikur gegn Dönum á Kaplakrikavelli föstudaginn 1.
september. Hópurinn er skipaður sömu leikmönnum og valdir voru
gegn Svíum.
21-árs hópurinn:
Markverðir: Hjörvar Hafliðason, Val (1/0) og Ómar Jóhannsson,
Bunkeflo (1/0).
Aðrir leikmenn: Bjarni Guðjónsson, Stoke (8/1), Reynir Leósson, ÍA
(8/0, Jóhannes K. Guðjónsson, Waalwijk (5/1), Indriði Sigurðsson,
Lilleström (4/0), Stefán Gíslason, Strömsgodset (3/0), Marel J. Bald-
vinsson, Stabæk (2/0), Guðmundur V. Mete, Malmö (1/0), Helgi V.
Daníelsson, Fylkir (1/0), Guðmundur Steinarsson, Keflavík (1/0)
Þórarinn B. Kristjánsson, Keflavík (1/0), Veigar Páll Gunnarsson,
Stjömunni (1/0) Arni K. Gunnarsson, Breiðabliki (1/0, Hjalti Jóns-
son, ÍBV (1/0) og Bjarni Geir Viðarsson, ÍBV (1/0).
(Fjöldi leikja og marka með U-21 liðinu í sviga)
Tvær breytingar hjá Dönimi
Morten Olsen, landsliðsþjálfari Dana, hefur einnig tilkynnt sinn
landsliðshóp og er hann að mestu skipaður sömu leikmönnum
valdir voru í NM-leikinn gegn Færeyingum í sfðustu viku. Tvær
breytingar hafa verið gerðar á hópnum og koma þeir Michael Hemm-
ingsen, Odense og Jan Michaelsen AB, inn í hópinn í stað þeirra
Steven Lusts, HerLIge, og Per Frandsen, Bolton.
Danski landsliðshópurinn:
Markverðir: Jesper Christiansen, Odense og Peter Schmeichel,
Sporting Lissabon.
Aðrir Ieikmenn: Thomas Gravesen, Everton, Jan Heintze, PSV
Eindhoven, Thomas Helveg, AC Milan, Michael Hemmingsen,
Odense, René Henriksen, Panathinaikos, Morten Bisgaard, Udinese,
Bjame Goldbæk, Fulham, Michael Johansen, AB, Jan Michaelsen,
AB, Allan Nielsen, Watford, Brian Steen Nielsen, AB, Claus Jensen,
Charlton, Henrik Pedersen, Silkeborg, Dennis Rommedahl, PSV
Eindhoven, Ebbe Sand, Schalke og Jon Dahl Tomasson, Feyenoord.