Dagur - 24.08.2000, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2000 - 17
Xfc^ur
ERLENDAR FRÉTTIR
Al Gore á kosningafundi.
Engin rannsókn
á fj áröflun Gores
Dómsmálaráðherra
Bandaríkjaima ákvað
að láta ekki rannsaka
fj ár öflunar aðferðir
varaforsetans, sem nii
er í forsetaframboði.
Þann 18. apríl síðastliðinn var A1
Gore, varaforseti Bendaríkjanna,
spurður í viðtali við saksóknara
dómsmálaráðuneytisins út í
samkomu á vegum Demókrata-
flokksins í Kaliforníu, sem hann
sótti árið 1996, en þá stóð yfir
kosningabarátta hans og Bills
Clintons forseta. í viðtalinu
sagðist hann ekki hafa vitað að
um fjáröflunarsamkomu hafi
verið að ræða. Engu að síður við-
urkenndi hann í sama viðtali að
hafa fengið tölvupóst frá aðstoð-
armanni sínum sama dag og
samkoman fór fram, þar sem
staðfest var að um fjáröflunar-
samkomu yrði að ræða.
Þessi ummæli Gores í viðtal-
inu, ásamt fleiri ummælum hans
í sama viðtali, urðu til þess að
saksóknari dómsmálaráðuneytis-
ins mælti með því að þetta mál
yrði rannsakað frekar og mikill
þrýstingur upphófst um að hlut-
deild Gores í ólöglegri fjáröflun
fyrir Demókrataflokkinn yrði
rannsökuð. Viðtalið var birt op-
inberlega í júní síðastliðnum.
Janet Reno, dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna, hefur hins
vegar ákveðið að setja ekki óháð-
an lögmann til þess að rannsaka
málið. Fyrst var skýrt frá þessari
ákvörðun opinberlega í dagblað-
inu New York Times í gær. A
blaðamannafundi sagðist Reno
ekki telja að frekari rannsóknir
væru líklegar til þess að leiða í
Ijós að um ólöglegt athæfi væri
að ræða. Þetta er í þriðja sinn
sem Reno hafnar því að skipa
sérstakan rannsóknarmann til
þess að fara yfir málefni Gores.
Tímasetningin á ákvörðun
kom sér hins vegar vel fyrir
Gore, en ákvörðunin var tekinn
sama daginn og landsþing
Demókrataflokksins staðfesti út-
nefningu Gores sem forsetaefni
flokksins í forsetakosningunum,
sem fara fram þann 7. nóvember
næstkomandi. Þann sama dag
láku einnig út upplýsingar um að
sérskipaður lögmaður í málefn-
um Bills Clintons, forseta, hafi
skipað kviðdóm til þess að skera
úr um það hvort kæra eigi Clint-
on í tengslum við framhjáhald
hans með Monicu Lewinsky, eft-
ir að Clinton lætur af embætti á
næsta ári.
Þessi ákvörðun þýðir það að
Gore fær frið, a.m.k. um stund-
arsakir, fyrir rannsóknum á mál-
efnum sem gætu komið honum
illa í kosningabaráttunni, enda
þótt rannsóknin á málefnum
Clintons eigi væntanlega eftir að
þvælast eitthvað fyrir Gore.
A1 Gore hefur ítrekað lýst því
yfir að hann hafi ekki vitað að
um Ijáröflunarsamkomu var að
ræða, þegar hann mætti á sam-
komu á vegum Demókrata-
flokksins í kapellu í Kaliforníu
vorið 1996. Á þessari samkomu
var safnað saman með ólögleg-
um hætti 60.000 dollurum sem
fóru til kosningabaráttu Clint-
ons og Gores.
I fyrrgreindu viðtali var Gore
einnig spurður um kaffiboð í
Hvíta húsinu, sem íjársterkum
stuðningsaðilum flokksins var
boðið í. I svari sínu fór hann út í
skilgreiningaflækjur á því hvort
um fjáröflunarfundi hafi verið
að ræða, og hefur sagt að ekki sé
selt inn á kaffiboð í Hvíta hús-
inu.
Debbie ekki mjög kröftug
DÓMINIKANSKA LÝÐVELDIÐ - Hvirfilbylurinn Debbie ruddist yfir
Dóminíkanska Iýðveldið í gær og stefndi hraðbyri að Bahamaeyjum.
Miðað við stefnu bylsins núna var búist við að hann gæti orðið í Flór-
ída um helgina. Debbie er rétt á mörkum þess að vera nægjanlega
kröftug til að flokkast sem fellibylur, og þó loka þurfi skólum, flugvöll-
um og ýmsum almenningssamgöngum þá hefur hún enn ekki valdið
miklu eignatjóni á eyjunum í Karabíska hafinu.
Kafbátmim lyft næsta sumar?
OSLO - Norska fyrirtækið sem sá
um að koma köfurum niður að
rússneska kafbátnum Kursk sagði í
gær að tæplega yrði um það að
ræða að bátnum yrði lyft úr djúp-
unum fyrr einhvern tíma næsta
sumar. „Utreikningar á þvf hvort
og hvernig beri að lyfta bátnum
upp munu taka marga mánuði,"
sagði Julian Thompson talsmaður Stolt Offshore í gær. Hann bætti því
við að ef hann ætti að vera raunsær þá væri sumarið 2001 sú tímasetn-
ing sem hugsanlegt væri að setja í þessum efnum, en það væri þó í fyrra
lagi. Fram kom hjá honum að trúíega yrði auðveldara að lyfta bátnum
upp í heilu lagi en að reyna að opna hann og ná líkum mannanna út.
Miðað við þessar hugmyndir yrði áhöfnin að hvíla í votri gröf í vetur en
ljóst er að slíkt er mjög erfitt fyrir Rússa að sætta sig við.
Lewinsky enn umdeild
WASHINGTON - Ný pólitísk hreyfing sem hefur
það að sínu meginmarkmiði að koma konu til
valda í Hvíta húsinu í Bandaríkjunum, annað
hvort sem forseta eða sem varaforseta buðu
Monicu Lewinsky Iaunað starf sem aðstoðar
framkvæmdastjóra hreyfingarinnar. Tilboðið var
þó snarlega dregið til baka þegar fréttist af því og
allt varð vitlaust vegna þess. Samtökin sem hér
um ræðir heita American Woman Presidents og
er framkvæmdastjóri þeirra kona að nafni Mos-
emarie Boyd tilkynnti með viðhöfn um tilboðið til
Lewínsky og sagði að „eftir tveggja og hálfs árs yf-
irheyrslur og niðurlægingu er kominn tími til að
Ameríka fyrirgefi Monicu Lewinsky." En fyrirgefningin er ekki meiri
en það að Ijölmörg samtök kvenna vítt og breytt um Bandaríkin brugð-
ust ókvæða við og töldu þetta fráleitan leik fyrir þessi nýju samtök. Nið-
urstaðan varð því sú að tilboðið var dregið til baka.
Apar erfa 4,8 miUjónir
KAUPMANNAHÖFN - Sex simpansar í dýragarðinum í Kaupmanna-
höfn hafa erft jafnvirði um 4,8 milljóna íslenskra króna eftir gamia
ekkju að því er fram kemur í Extrablaðinu í gær. Aparnir, sem heita Jim-
my, Trunte, Fifi, Trine, Grinni og Gigi, voru nefndir sem einkaerfingj-
ar í erfðaskrá sem 83 ára gömul ekkja skildi eftir sig, en gamla konan
átti enga eftirlifandi ættingja. Lögmæti þessa arfs var staðfestur af
Christian Notlevsen og þegar han las upp úrskurð sinn að öpunum við-
stöddum og lét dómarinn þau orð falla að þeir hefðu hegðað sér betur
en margur maðurinn hefur gert þegar þeir hlýða á upplestur erfða-
skráa. Talsmaður dýragarðsins segir að féð verði notað til að betrum-
bæta svæðið þar sem aparnir eru.
Moninca Lewinsky
er enn komin í
sviðsljósið.
—- t* •*
I í I ! í í i i I I i 1 I I i 1111 H i i i I
Hvílir áhöfn Kursk í votri gröfí vetur?
FRÁ DEGI TIL DAGS
FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST
237. dagur ársins, 129 dagar eftir.
Sólris kl. 5.47, sólarlag kl. 21.11.
Þau fæddust 24. ágúst
• 1750 Letizia Buonaparte, móðir Napól-
eons keisara.
•1891 Árni Jónsson alþingismaður frá
Múla.
• 1894 Rudolf Oskar Robert Williams
Geiger, þýskur veðurfræðingur.
• 1896 Jón Kaldal ljósmyndari.
• 1899 Jorge Luis Borges, argentínskur
rithöfundur.
• 1902 Fernand Braudel, franskur sagn-
fræðingur.
• 1918 Jenna Jensdóttir rithöfundur.
• 1929 Jasser Arafat, forseti sjálfstjórnar-
svæða Palsestínumanna.
• 1938 Halldór Blöndal ráðherra.
• 1947 Ólafur Haukur Símonarson rit-
höfundur.
Þetta geröist 24. ágúst
• 1572 Iét Karl IX., konungur Frakklands,
myrða leiðtoga húgenotta í París, og
hófst þar með mikið morðæði sem lauk
ekki fyrr en 70.000 húgenottar höfðu
verið myrtir.
•1814 náðu Bretar Washington-borg á
sitt vald og brenndu þar margar helstu
byggingarnar til grunna.
• 1906 var símskeytasamband við útlönd
opnað.
• 1932 flaug Amelia Erhart þvert yfir
Bandaríkin án millilendingar, og varð
fyrst kvenna til þess að vinna það afrek.
• 1949 gekk Norður-Atlantshafssamning-
urinn í gildi.
• 1968 sprengdu Frakkar vetnissprengju í
Suður-Kyrrahafi og urðu þar með fimm-
ta kjarnorkuveldið.
• 1968 var Norræna húsið f Reykjavík
vígt.
Vísa dagsins
Gleði vor er hin rauða rós
er rjóðar veikan og bleikan,
og það er hún, sem að leiðir í Ijós
lífið og ódauðleikann.
Afmælisbam dagsins
„Allt er byggt á sandi,“ sagði argentínski
rithöfundurinn Jorge Luis Borges ein-
hvern tíma. „En við verðum að byggja
eins og það bæri byggt á bjargi,“ bætti
hann við. Borges var fæddur í Buenos
Aires þann 24. ágúst árið 1898, og
hefði því orðið 102 ára í dag. Ljóð hans,
smásögur og ritgerðir eru nú orðnar
klassískar heimsbókmenntir, en það var
engu að síður ekki fyrr en upp úr 1960
sem hann varð þekktur. Þessi skemmti-
legi og sérstæði rithöfundur lést í Sviss
þann 14. júní árið 1986.
Ekkert hefur í raun gerst fyrr en það hef-
ur verið skráð. Virginia Woolf (1882-1941)
Heilabrot
Hvers vegna er ekki leyfilegt að jarða fólk
sem býr á efstu hæð f blokkum?
Lausn á síðustu gátu: Eldri börn eru
venjulega með stærri fætur en þau sem
yngri eru, og þvf er vart að undra að þeim
gangi betur í reikningi.
Veffang dagsins
Sýning á málverkum eftir Helga Hálfdán-
arson er á www.gallery.is
Jón Þorsteinsson