Dagur - 26.08.2000, Side 2
2-LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2000
Ttoptr
FRÉTTIR
Viðbygging þingsins
og Þjórsárbrú 1 salt
Frá Miklubrautinni í Reykjavík Nú er rætt um aö fresta framkvæmdum viö
breikkun hennar aftur og enn.
Meðal þeirra fram-
kvæmda sem ríkis-
stjómin leggirr til að
verði frestað er bygg
ing nýrrar Þjórsárbru-
ar, viðbygging Alþing-
ishússins, breikkun
Miklubrautar og
færslan á Hringbraut-
inni.
Á fundum þingflokka stjórnar-
flokkanna í gær og í fyrradag
voru lögð fram til umræðu drög
að fjárlögum næsta árs sem og
niðurskurðarlisti opinberra
framkvæmda, eða frestunarlisti
eins og sumir kalla hann. Ríkis-
stjórnin hefur verið með þennan
lista til skoðunar að undanförnu,
til þess að draga úr þenslu. Farið
er með þennan lista eins og um
ríkisleyndarmál sé að ræða. Þó
hefur það lekið út að frestun
vega-, brúa- og hafnarfram-
kvæmda séu fyrirferðarmestar.
Vegna jarðskjálftanna á Suður-
landi, og hættunnar á frekari
skjálftum, var talað um að byggja
nýja tvíbreiða brú yfir Þjórsá.
Þeirri framkvæmd á að fresta.
Líka á að fresta aftur viðbygging-
unni við Alþingishúsið en þeim
framkvæmdum var frestað í fyrra.
Mildabraut og Hringbraut
Þá er rætt um að fresta breikkun
Miklubrautar og gerð mislægra
gatnamóta Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar. Þessar
framkvæmdir áttu, samkvæmt
vegaáætlun, að hefjast á þessu
ári. Á næsta ári átti að hefjast
handa við að færa Hringbrautina
á móts við Landsspítalann niður
undir Umferðarmiðstöð. Nú er
rætt um að fresta þeim fram-
kvæmdum líka.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri sagði í samtali við
Dag í gær að ekkert hefði verið
rætt við borgaryfirvöld um frest-
un þessarra framkvæmda. Það
hefði raunar ekki heldur verið
gert í lýrra þegar framkvæmdum
við viðbyggingu Alþingishússins
var frestað eftir að grunnurinn
hafði verið grafinn.
Fyrir utan þessar framkvæmd-
ir er rætt um að fresta ýmsum
vegaframkvæmdum hingað og
þangað, eins og viðmælandi
Dags orðaði það, en þar er um
minni háttar framkvæmdir á
hverjum stað að ræða. Hins veg-
ar er ákveðið að fresta hafnar-
framkvæmdum á nokkrum stöð-
um. I fyrra var frestað að hefjast
handa við framkvæmdir á Húsa-
víkurhöfn og mun hún áfram
verða í salti um sinn en þar er
um mikla og áríðandi fram-
kvæmdir að ræða. - S.DÓR
Símanúmer
flyst með
Póst- og
fjarskipta-
stofnun hef-
ur samið
reglur um
númera-
Ilutning og
taka þær
gildi þegar
þær hafa
birst í
Stjórnartíð-
indum.
Helstu at-
riðin eru
þau að frá
15. septem-
ber 2000 verður mögulegt fyrir
Frá 15. september
2000 verður mögu-
legt fyrir símanot-
endurí fastanetum
að flytja með sér
símanúmer sín.
símanotendur í fastanetum að
flytja með sér símanúmer sín
þegar þeir færa viðskipti sín frá
einu símafyrirtæki til ann-
ars.Þeir geta jafnframt flutt
númer milli númerasvæða,
sama á að gilda, skipti notandi
um þjónustu hjá símafyrirtæki,
t.d. úr venjulegum talsíma f
samnet.
Símanotendur geta haft sam-
band við símafyrirtækið sem
þeir óska að eiga viðskipti við og
pantað númeraflutning. Síma-
fyrirtækin sem hlut eiga að máli
munu ákveða hvenær númera-
flutningur geti átt sér stað en
stefnt er að því að svo verði inn-
an 10 vinnudaga frá pöntun.
- BÞ
Spj allr ásir í stað
pólitískra fimda
Að loknum fundi landstjómar fóru framsóknarmenn I kynnisferð í fyrirtæki og
stofnanir á Akureyri og á Dalvík Hér má sjá þegarþeir heimsótttu Stofnun
Vilhjálms Stefánssonar.
Framsóknarmeim
ætla að koma upp
spjallrásum fyrir hina
ýmsu málaflokka og
gefa þar með almenu-
ingi kost á að tjá sig í
hiTnim ýmsu málum.
Kemur í stað póli-
tískra funda í sam-
komusölum sem fólk
er hætt að sækja.
Eins og skýrt var frá í Degi í gær
hafa framsóknarmenn ákveðið
að stofna 50 manna nefnd til
þess að fara yfir og gera tillögur
um stefnu flokksins í Evrópu-
málunum fyrir flokksþingið í vet-
ur. Rætt var um að gera það
sama við fleiri stóra málaflokka
og að opna um leið spjallrás fyrir
hvern málaflokk á netinu.
„Það er að mínum dómi mjög
gæfuleg leið til að efla lýðræðið
með því að gefa almenningi kost
á að taka þátt í pólitískri umræðu
innan stjórnmálaflokks á nýjum
vettvangi. Ekki síst er þetta
gæfulegt þar sem tími hinna fjöl-
mennu stjórnmálafunda í sam-
komusölum er Iiðinn. Þetta form
kæmi þá í staðinn fyrir pólitíska
fundi sem eru orðnir svo fá-
mennir að menn efast um hvort
tekur að boða til þeirra,11 sagði
Hjálmar Árnason aiþingismaöur
í samtali við Dag í gær.
Nær fólkinu
Hann segir að það hafi komið í
ljós að sú eina spjallrás sem
flokkurinn er með nú þegar sé
mjög lifandi enda þótt hún sé
lokuð. En hugmyndin með
spjallrásir fýrir málaflokkanna,
sem fýrr er nefnt, er að þær verði
opnar fýrir hvern sem er.
„Með þessu tel ég að verið sé
að færa hina pólitísku umræðu
nær fólkinu í landinu og gefa því
tækifæri til að taka þátt í henni
með nútímatækni. Þar með
myndi aukast hin Iýðræðislega
virkni í flokksstarfinu. Þarna yrði
hægt að fá öll sjónarínið í öllum
málaflokkum sem teknir yrðu
fyrir. Sem dæmi má nefna að
þessi 50 manna hópur sem á að
fara yfir Evrópumálin á að meta
alla kosti og alla galla þess að ís-
Iandi gangi í Evrópusambandið,"
segir Hjálmar Árnason.
Á þessum fundi þingflokks og
Iandsstjórnar var farið yfir öll
stærstu málin, svo sem byggða-
mál, sjávarútvegsmál, Evrópu-
málin og svo auðvitað flokksmál-
in. Engar ályktanir eru gerðar en
málin rædd fram og aftur á fund-
inum.
Hjálmar segist halda að Farm-
sóknarflokkurinn sé fyrsti stjórn-
málaflokkurinn í landinu til að
taka þetta upp með fyrr greind-
um hætti. Telja má víst að aðrir
flokkar taki þessa hugmynd upp
hjá sér innan tíðar. - S.DÓR
Óviðimandl afkoma í ökutækja-
tryggingu
29 miTljón króna hagnaður varð af starfsemi Vátryggingafélags Is-
lands íýrstu 7 mánuði ársins. Tap af vátryggingarekstri nam 81 millj-
ón króna, en hagnaður af fjármálarekstri nam 109 milljónum króna.
Bókfærð iðgjöld námu 4.497 milljónum Icróna, en eigin iðgjöld námu
2.582 milljónum króna. Bókfærð tjón námu 2.704 milljónum króna
á tímabilinu en eigin tjón 2.940 milljónum króna. Hreinn rekstrar-
kostnaður nam 648 milljónum króna. Fjárfestingartekjur námu 916
milljónum króna á tímabilinu. I upplýsingum frá VIS kemur fram að
stjórnendur fyrirtækisins telja afkomu af vátryggingarekstri óviðun-
andi á tímabilinu, íýrst og fremst vegna slæmrar afkomu í ökutækja-
tryggingum. Iðgjöld ökutækjatrygginga hækkuðu í júlí sl. og var
meðtalshækkun iðgjalda lögboðinna ökutækjatryggingum um 30%,
en kaskótrygginga um 18%. Hækkun iðgjalda ökutækjatrygginga fer
ekki að skila félaginu tekjum fyrr en á síðari hluta þessa árs og að
fullu á næsta ári.
Flugeldasýning í Húsdýragarðiuiun
Á morgun sunnudaginn 27. ágúst lýkur sumarstarfi Fjölskyldu- og
húsdýragarðsins og er það síðasti dagurinn sem leiktækin verða úti í
sumar. Það er orðinn árviss viðburður að enda sumarstarfið með
pompi og prakt og mun það einnig verða gert í ár. Garðurinn verð-
ur opinn frá kl. 10:00 til 18:00 og opnar svo aftur um kvöldið kl
21:00. Þá verður haldin brenna með brennusöng og gleði sem Iýkur
loks með glæsilegri flugeldasýningu kl.22:00 sem er í umsjá Hjálpar-
sveitar skáta í Reykjavík.
Delta gerir stórsamnmg
Fulltrúar Delta hf. og kanadíska
lyfjafyrirtækisins PharmaSci-
ence undirrituðu í gær samning
um aukið samstarf um lyfjaþró-
un og um útflutning á íslensku
hugviti og þróunarstarfi. Fyrir-
tækin gerðu með sér samstarfs-
samning síðastliðið vor um þró-
un og sölu á sýklalyljum og nú
eru samstarfssamingar milli fyr-
irtækjanna alls orðnir þrír. Talið
er að verkefnin skili yfir 700
milljónum í tekjur á næstu árum
en frekari samstarfsverkefni eru
fyrirhuguð.
Eftir undirritun samninga I gær frá vin-
stri: Björn Aðalsteinsson , Guðrún Edda
Eggertsdóttir, Róbert Wessman, RDa-
vid Goodman og Sigurður Úli Úlafsson