Dagur - 02.09.2000, Page 16
32 - LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000
ir þrír saman í
veiðibúð. Tveir
gamalreyndir í
hempunni sem
sopið hafa marga
íjöruna f veiði,
°g ég. nýgræð-
ingurinn. Eg sá
mér Ieik á borði
og ákvað að
bergja af visku-
brunni þeirra.
„Hvaða flugur
ráðleggið þið í sjóbirting?" spurði
ég lymskulega svona rétt til að at-
huga hvort þeir væru til í tuskið.
Svona spurning leiðir slíkt í Ijós á
undraskömmum tíma. Þeir voru
til. Við rifum fram skúffur og
hillur í veiðibúðinni og skoðuðum
flugnaúrvalið. „Tökum tíu“ sagði
ég og þá gat leikurinn hafist.
Topp tíu í birting
Við vorum eins og dómarar í feg-
urðarsamkeppni hjá Ola Laufdal
á Broadway. „Það er ekki nóg að
hafa útlitið, maður verður að sjá
innri fegurð" hlakkaði í mér þegar
þeir byijuðu að velja.
„Vinsælasta stúlkan í hópnum"
var Flæðarmúsin. Hún er hönn-
uð fyrir sjóbirting og þá ekki siður
ef hann er í skoluðu vatni. Við
gripum hana strax og settum á
pall. Flæðarmúsin hefur eitthvað
óútskýrt aðdráttarafl á fiska. Um
daginn fékk ég Iax á hana, sjó-
bleikjan er alveg óð í hana, urrið-
inn á það til að ráðast á hana
grimmt, en sjóbirtingurinn á að
taka hana alveg 100%. Eg myndi
taka hana fyrsta flugna í sjóbirt-
ing.
„Vinsælasta ljómyndafyrirsæt-
an“ í hópnum var rauður nobbler
eftir Stefán Hjaltested. Þeir fást
víða í búðum þessir litlu sætu
nobblerar. Ja, hann var reyndar
meira út í appelsínugult. Um
þetta spunnust umræður: Væri
betra að hafa hann rauðan eða
appelsínugulan? Ég tók einn átta
punda, einn sjö punda og einn
fjögurra punda á appelsínugulan
FLUGUR
Stefán Jón
Hafstein
skrifar
Fluguveiðar að sumri (182)
er það birtingurinn...
um daginn, svo ég var ekki í
vafa. Þessi sem við völdum var
meira út í rautt. Ég býst við að
góðar ljósmyndafyrirsætur
verði að geta brugðið sér í allra
kvikinda líki.
Ég veit ekki hvort dóm-
nefndir á fegurðarsamkeppn-
um velja „sígilt útlit“- keppn-
innar, en í þetta sinn kom
Black Ghost inn. Um hana
voru allir sammála. Hún er
slík öndvegisfluga á allan hátt
að ekki kemur til greina að
fara í sjóbirting án hennar.
„Og Dentist" sagði einn stund-
arhátt og um þá flugu voru all-
ir sammála. Ög ekki þurfti að
spyrja um þá næstu. „Heima-
sætan“ sagði einn. Vissulega,
ekki orð um það meir. Hún er
pottþétt í sjóbirtingsbox og
fyrsta val hjá mörgum.
„Þurfum við ekki að velja
stærðir Iíka“ spurði þriðji dóm-
nefndarmaður, sem greinilega
er vanur fegurðarsamkeppnum og
vill hafa málin á hreinu. Við sögð-
um að þau væru ekki svo mikið
mál. Svo lengi sem straumflugan
væri númer fjögur, sex eða átta.
Og við hölluðumst heldur að því
að hafa þær númer sex eða átta.
Það sem hann vill
Nú vorum við komnir í ham og
búnir að velja það sem lá í augum
uppi strax. Þetta eru sjálfsagðar
flugur: Flæðarmús, appelsinugul-
ur nobbler, Dentist, Black Ghost.
„Mickey Finn“ hrópaði einn
upp yfir sig. Ja, ég hreyfði ekki
mótmælum, en hefði ekki valið
hana sjálfur. En hann var ákveð-
inn. „Jú jú alveg tvímælalaust"
sagði hann af slíkum áherslu-
þunga að reynsla við ár og vötn
hlýtur að vera að baki. Ég var
samþykkur á þeirri forsendu að ef
maður færi í sjóbirting yrði mað-
ur að hafa eina gula á meðal
þeirra tíu sem til stæði að prófa.
Mickey Finn er gul og rauð og
með silfraðan legg og líkir ein-
staklega vel eftir síli. Margir
veiðimenn trúa á hana fyrst og
fremst í sjóbirting, bleikju, urriða
og lax. Já. Ég veiði eiginlega
aldrei á hana, en margir veiða
eiginlega ekki á neitt annað. Svo
hún fór í hópinn.
Flottheit
Sá þriðji í hópnum, sem vildi hafa
máíin í lagi, kom nú með tillögu
sem ég hefði aldrei komið með:
Spencer Bay Special. Jahá.
Hljómar nógu andsk... flott.
Þessi fluga tók lax í Grímsá á
dögunum þegar allt annað brást.
Og nú skaut hún upp fagurlega
skrýddum búknum á ný, tilnefnd
í sjóbirtingsveiðar. Þeir voru sam-
mála. Enda auðvelt að sjá hvers
vegna: Hún er falleg, bláleit með
gulu í, silfruð líka og með gráum
væng, alveg hrein snilld. Það eru
svona flugur sem birtingar taka á
góðum degi. Og það eru söguleg-
ir birtingar.
Hvað nú?
Nú sló andartaks þögn á hóp-
inn. „Gray Ghost!" Hrópaði
annar félaga minna og þreif eina
innan úr löngum röðum flugna.
Þær voru þarna í öllum regnbog-
ans litum. En Grey Ghost
kom siglandi út, fimlega
veidd af dómnefndarmanni,
og því voru allir sammála, því
stundum á hún til að slá öðr-
um við. Hún er að mínu
mati ekki fyrsta fluga undir.
En þegar maður er búinn að
reyna margt og spá í ýmislegt
án árangurs er gott að setja
Gray Ghost undir. Hún er
geysilega örugg í tvennum
skilningi. I fyrsta lagi gerir
hún sama gagn og allar hinar
flugunar, er „rétt“ val við allar
aðstæður, og í öðru lagi bætir
hún stundum einhveiju óút-
skýrðu við sem nægir til að fá
töku jafnvel þótt hinar klikki.
Hún ætti í raun að heita
„dularfulla blómið í draumi
sérhvers manns“, en það er
nú of hátíðlegt fyrir svona
gálu sem er í fegurðarsam-
keppni á Broadway.
Tvær eftir
Og þá kom frumleg tillaga. „Sil-
ver minnow". Þessi fluga gerir
nefnilega það sem góðar flugur
þurfa að gera: Bæta upp allar hin-
ar, þótt góðar séu. Silver minnow
er hnýtt sem sílislíki, búkurinn
silfraður, vængurinn lítill og grá-
leitur, hnýttur niður aftur við
skott svo hann er í raun bak frek-
ar en vængur; augun áberandi.
Við höfðum hana smáa, enda silf-
urbjarminn nægur samt.
Svo kom þögn. Hver yrði núm-
er tíu? Svartur nobbler. Ekki
spuming. Við hlógum. Að við
skyldum ekki velja hann löngu
fyrr? En svona er það nú. Það
sem liggur svo berlega í augum
uppi Snati minn, eins og Megas
hefði sagt ef hann hefði verið
fluguveiðimaður. Þeir sem vilja
sjá meira um sjóbirtingsveiðar og
flugur þar að lútandi ættu að
koma við á veiðivefnum flugur.is,
því þar er af meiru að taka. Mcð
þennan skammt sem við félagam-
ir völdum fer maður alveg öruggur
á túr eins og fegurðardrottning-
amar í sjónvarpsauglýsingunum.
TV/LR FLIKUR
IEINNI_
HEÍ1UR
0G
ÞURR
THERMO varmanærfötin eru í
raun tvær flíkur í einni.
Tveggja laga spunatækni flytur
rakann frá líkamanum og heldur
þér heitum og þurrum.
Notaöu Thermo nærfötirt i
næsta feröalag,
þú sérö ekki eftir því.
Sportvörugerðin
Heildsala-smásala
Mávahllð 41, Rvík, sími 562-8383
tfl M utiti- fom FALL ' F HElh A V ÖPTT* FiOKK' ím&' V HLUTI' * 5 ÚREKC
My tMi TTCTs
APS m- uRiHH S£AVI- EEN l
fluga HLxlóP (xAN (s * RöTuR
w
■MMM ||l!l —* wm ijjm| . lllll T
KVA88- AR ÓLYKT TTHiGrA** 'AFALL
BLOTIR F'lPL
8ytójA | fUtfiA i WR OKA |&AkAöl RÖSK 3 'AS
BLtTT yFiR- HÖFH LEYflST KONU- HAfrí
V£5Ki 8 tLEmK/l KcmT
útums ElN- UtiCslS
u kÖLDRA LLTAri SKEL VARfi- AHDI 1
FISKAR mrí\ AO&ÆT- INN
TRÍ swMsss Ý/ArY/y.y//.- fERSK 'OSKÖP TRYLL- AS7 ÝFÉU HlHDRA
«£GNl(? R'ÓO HÉiOU
5 mægb WM LÆRA
þlERKRI floiOi Fugl
SPlL I Wmm. m\ RtiKlR VÆNTí <3 PLLTAF
fiöoo BRAm
•íía’w:*:-:-:-:-; ;ííííísíí*íí BoRoa 2 fERM mBAR- EML. VteA
LlPtlRf) F'Alpi
REiéA •*>:* Éɧfp ■■■■■■ I r 6E4I6 &'oo- GÆTI HLABA
&Aurl iMMf ST&iiF TE&uHb
ilii V* UPPHAT EKKI 5 P I FJÖLGc HLi'oé 'ATT ‘OSftRA (o
r? þmuR HR Idti P'lLPt 'l fÆÖA gras- TOPPuR
báim- uk BF.RO- mL
KifiOuR 5V£tL
DRmult spy/íii " » m MjÖGí HfLKK- AR íKiríS- LAUST
% \ 'É m 5KJÓI f/?£ M5T- UM flLÓfilA
Krossgáta nr. 202
I.ausn .................
Nafn ...................
Heimilisfang
Póstnúmer og staður
Helgarkrossgáta 202
I krossgátunni er gerður
greinarmunur á grönnum
og breiðum sérhljóðum.
Lausnarorð sendist til
Dags (Helgarkrossgáta
202) Strandgötu 31, 600
Akureyri - eða með faxi í
síma 460 6171. Lausnar-
orð krossgátu nr. 201 var
HÖFUÐDAGUR og vinn-
ingshafi var Hallfríður Frí-
mannsdóttir sem býr í Sól-
heimum 4 í Reykjavík.
Hún fær senda bókina
Heima eftir Sigurð A. Frið-
þjófsson.
Vinningshafi fær
bókina Heima
eftir Sigurð Á.
Friðþjófsson.