Dagur - 03.10.2000, Blaðsíða 6

Dagur - 03.10.2000, Blaðsíða 6
6 -ÞRIDJUDAGUK 3. OKTÓBER 2000 ÞJÓÐMÁL Útgáfufélag: dagsprent Útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: ELÍAS SNÆLAND jónsson Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson Skrifstofur: STRANDGÖTU 31, AKUREYRI, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Sfmar: 460 6ioo OG 800 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: 1.900 KR. Á mánuði Lausasöluverð: 150 kr. og 200 kr. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Netföng auglýsingadeildar: karen@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is Símar auglýsingadeildar: [REYKJAVÍK)563-i6i5 Ámundi Ámundason CREYKJAVÍK)563-1642 Gestur Páll Reyniss. (AKUREYR 1)460-6192 Karen Grétarsdðttir Simbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Simbréf ritstjórnar: 460 6171CAKUREYRI) 551 6270 creykjavíK) Rfldsstjómtn á næsta leik í fyrsta lagi Starf Auðlindanefndar hefur skilað meiri árangri en flestir áttu von á. Það víðtæka samkomulag sem náðist í nefndinni um helstu grundvallarþætti auðlindamála er merkur áfangi á leið til al- mennrar sáttar um nýtingu sameiginlegra auðlinda þjóðarinnar. Tvennt skiptir þar mestu máli. Annars vegar tillaga nefndarinnar um að nýtt ákvæði um þjóðareign verði sett í stjómarskrána. Hins vegar tillögur um gjaldtöku íyrir nýtingu sameiginlegra auðlinda og uppboð á þeim nýtingarrétti þegar næg samkeppni er til stað- ar. Með þessari niðurstöðu hefur Auðlindanefndin fært þjóðina nær nauðsynlegri samstöðu. í öðru lagi Hins vegar er enn langt í frá að málið sé í höfn. Ríkisstjórnin, sem fengið hefur álit Auðlindanefndar til meðferðar, á næsta Ieik. Nefnd á vegum sjávarútvegsráðherra mun íjalla nánar um fisk- veiðihluta álitsins og gera grein fyrir sínum tillögum eftir nokkra mánuði. Þar verður vafalaust áfram tekist á um hugmyndirnar um auðlindagjald og þá alveg sérstaklega hvernig eigi að útfæra þær. Þótt Landssamband íslenskra útvegsmanna hafi í fyrsta sitt beygt sig undir þjóðarviljann um auðlindagjald, er augljóst af viðbrögð- um samtakanna að þar verður allt kapp Iagt á að gera svokallaða „auðlindarentu" þjóðarinnar sem allra minnsta og helst að Iáta sjómenn borga sem mest. í þriðja lagi Tillögur Auðhndanefndar hafa nú þegar skapað nýjar væntingar hjá þjóðinni. Væntingar um að almenningur fái í framtíðinni sanngjarnt gjald frá þeim tiltölulega fáu öflugu fyrirtækjum sem nýta sameiginlegar auðlindir íslendinga. Jákvæð fyrstu viðbrögð formanna beggja stjórnarflokkanna við áliti nefndarinnar hafa magnað þessar væntingar. Almenningur væntir þess að ríkisstjórn- in beri gæfu til að festa meginhugmyndir Auðlindanefndar í stjómarskrá og landslög og tryggja þar með þjóðareign sameigin- legra auðlinda og sanngjarnt endurgjald fyrir afnot þeirra. Nú er lag. Elías Snæland Jónsson. Halldór klisj ultall veikjast. Sá maður heitir Hall- Tómas Ingi Olrich formaður ut- anríkismálanefndar alþingis er ómyrkur í máli um Evrópuum- ræðuna á íslandi í fréttaviðtali við Dag um helgina. Þar segir Tómas m.a. „Umræðan hefur verið klisjukennd, þrástagast hefur verið á því að taka málið á dagskrá þó það hafi verið til ítar- legrar umræðu hér lengi. Nú hefur önnur klisjukennd um- ræða farið í gang um það að EES samningurinn sé að veikj- ast.“ Greinilegt er á öllu að hugtakið „klis- ja“ er að verða eitt af mikilvægari hugtökum í pólitískri tjáningu sjálfstæðismanna, og Garra kæmi ekki á óvart þótt farið hafi verið í og mælt með notkun þess á nýlegum námskeiðum í stjórnmálaskól- um Sjálfstæðisflokks. Svo víða og svo oft skýtur þetta orð upp kollinum í málílutningi þeirra. Og auðvitað byrjaði þetta allt - eins og svo margt í þessum llok- ki - hjá Davíð Oddssyni, sem talaði um klisjukennda fátækt- arumræðu hjá bískupnum íyrr í sumar. I kjölfar andamömmu sigla nú ungarnir og tala um klisjur hér og klisjur þar og klisj- ur alls staðar. Beinist gegn Halldóri En þó það geti í sjálfu sér verið áhugavert að velta fyriri sér hug- takanotkun í Sjálfstæðisflokkn- um þá er jafnvel enn áhugaverð- ara að staldra við og skoða betur hver það er sem Tómas Ingi er að saka um klisjukennada um- ræðu. Það er fyrst og fremst einn maður sem hefur komið fram með bæði þessi atriði sem Tómas nefnir, þ.e. að taka þurfi málið til umræðu og meðferðar og að EES samningurinn sé að vl dór Asgrfmsson utanríkisráð- herra og ætti undir venjulegum kringumstæðum að vera banda- maður Tómasar í utanríkismál- um - |icssir tveir menn eru jú í ríkisstjórnarsamstarfi og í þessu samstarfi á að vera rekin ein ut- anríkisstefna. En slíkir smá- munir skipta greinilega ekki miklu máli þegar kemur að því að brúka hið nýja greiningar- hugtak sjálfstæðismanna „klisjuna" góðu. Speima magnast Garri minnist þess ekki að Tómas Ingi Olrich hafi mikið verið upp á kant við flokksforust- una og Davíð Odds- son. Reyndar er Tómas Ingi einn af þægu þingmönnunum í flokknum og því er ógerningur að álykta ann- að en að hann sé með þessum orðum að tala fýrir hönd Davíðs Oddssonar og annarra í æðstu forustu flokksins. Það má með öðrum orðum ganga út frá því sem vísu að forusta Sjálfstæðis- flokksins telji Halldór óttalegan ldisjukall og sé heldur ekkert feimin við að láta þá skoðun sína í Ijósi. Garri liins vegar velt- ir lýrir sér hvort nokkur þörf sé í raun á því að vera með stjórn- arandstöðu þegar stjórnarsam- starfið er með þessum hætti! Skoðanakönnun DY sem birt var í gær og sýnir fylgishrun Evr- ópuflokkanna - Framsóknar og Samfylkingar - mun tæplega bæta ástandið á stjórnarheimil- inu. Sjálfstæðismenn munu nú eflaust herða á andstöðu sinni við klisjur Halldórs, sem aftur mun lciða til aukinnar spennu milli flokkanna. Sem var ærin íýrir. - GAHRi Tomas Ingi Olrich. JÓHANNES SIGUEJÓNS- SON SKRIFAR „Heimur versnandi fer“, hefur ver- ið viðkvæði mannsins frá upphafi vega eða svo langt aftur sem elstu þálifandi menn mundu. En nú eru bjartari tímar framundan og „brave, new vvorld" í burðarliðn- um því tölvan er í þann vegin að taka völdin. Á næstu árum mun mannskepnan losna við allt það sem helst hefur skapað henni áþján og pirring allt frá dvölinni í Neanderthal og gert hana að þeir- ri aumkunarverðu taugahrúgu og aðskotadýri í náttúrunni sem hún er í dag. Og allt gerist það, með einum eða öðrum hættí, fyrir til- stilli tölvunnar. Frá upphafi hefur maðurinn þurft að þramma að heiman þungum skrefum til að afla sér og sínum lífsbjargar. F\Tst til þess að tína rætur og vciða loðfíla en síð- ustu árin til að kaupa mjólk og lambakjöt í kaupfélaginu. Margir hafa upplifað vítiskvalir milli rekk- anna í matvörubúðunum. stöðugt rekandi sig á andlausa samborg- Sítengdir í upp- lýstri eínangnm? ara sína og and- fúla og hefur jafnvel í við- kvæmum jaðar- tilfellum leitt til hungurverk- falla. En nú sér lýrir endann á þessum hvim- leiðu og tíma- freku mannlegu samskiptum við búðarborðið og tölvan mun sjá um að ísskápurinn sé ávallt fullur af mjólk og spakhettum. Kerfisveitustjórar Frá upphafi vega hafa menn neyðst til að hafa samskipti sín á milli, jafnvel augliti til auglitis undir formerkjum falsboðorðsins „maður er manns gaman". En nú hyllir undir endalok þessarar þrautagöngu rnanns til manns. Tölvan mun endanlega tryggjíi það að enginn þarf að hitta ann- an. Fjar- og far- menntun frá leikskóla og uppúr losar börn og ung- linga undan áþján samskipt- anna á menntunarferl- inu þar til sest er við ævistarfið fyrir framan skjáinn á kamesinu eða klósettinu heimafyrir. Allir verða þekkingar- iðnaðarmenn eða kerfisveitustjór- ar. Og nú þurfa menn ekki Iengur að slíta út skósólum við brölt 1' bókabúðir eða bókasöfn til að afla fróðleiks, því bókasafn heimsins er við hendina á skjánum Utan vinnutíma sitja menn áfram sítengdir við upplýsinga- brunn netsins og ausa úr honum fróðleik og skemmtun við allra hæfi. Og allir munu una glaðir ríð sitt í sjálfskipaðari og upplýstri einangrun. Eða hvaðr Tímadráp Vissulega er það sáluhjálparatriði að losna undan oki daglegra ferðalaga í mjólkurbúðir og bóka- söfn og mannleg samskipti þeim samfara. Og við spörum okkur tíma. En tíma til hvers? I áratugi fórum við ekki ekki á bókasafnið í næstu götu, nema þá helst til að ná okkur í Morgan Kane til tíma- dráps. Og þó allur vísdómur ver- aldar sé innan seilingar á netinu, munum við þá lyfta litla fingri til að nálgast hann? Tölvan er einstakt tæki og á margan hátt nauðsynlegt og það verður ekki aftur snúið í þeim efn- um. En við megum aldrei missa sjónar á því að dýrðaróðurinn um tölvuna og lagra nýja veröld henn- ar, er sunginn af markaðsöflunum sem þurfa að selja meira og meira. meir í dag en í gær. Tilgangur lífs- ins er ekki falinn í tölvunni og það er hugsanlega enn um hríð hægt að lifa mannsæmandi líli án þess að vera sítengdur. Er niðurstaða AuðUnda- nefndar grundvöllur sátta í sjávarútvegsmál- um? Halldór Halldórsson bæj'arstjóri á ísajinYi. „Eg sé ekki, við fyrstu sýn, að til- lögur Auð- lindanefnd- ar breyti að- stöðu sjávar- útvegs- byggða frá því sem nú er. Ef við þurfum að ná sátt um eitthvað mál þurfum við fyrst að vita um hvað er ósætti. Osætti um fiskveiðistjórnunarkerfið hefur til þessa byggst á því hvar viðkomandi situr við borðið." Pétur Bjamason formaðitrFiskifélags íslands. „Mér sýnist svo vera. Mjög ánægjulegt er að pólítísk sátt hafi náðst innan nefndarinn- ar og svo sýnist mér vera fullur vilji til slfks hins sama meðal hagsmunasamtaka í sjáv- arútvegi. Aldrei verður fullkomin sátt um stjórnkerfi fiskveiða, en ég held þó að allir geri sér grein fyrir því að raunhæfa leið til sátta þarf að fara. Tillögur Auð- lindanefndar eru þar ágætt vega- nesti." Magnús Helgason rekstrarstjóri SmtfeUs á Stöðvarfiriii. „Tillögurnar geta lagt drög að slíku, en hins vegar verða aldrei allir sáttir um hvaða leið er farin við stjórn fiskveiða á Islandi. Hins vegar eru þær tillögur sem Auðlinda- nefnd leggur hér fram, það er að setja inn í stjórnarskrá ákvæði um þjóðareign á auðlindum, það skynsamlegasta sem komið hefur fram Iengi og hugmyndirnar um auðlindagjald sem væri 1 til 2% nokkuð sem er ekki óyfirstígan- legt fyrir útgerðina í landinu. Þetta er góð leið til þess að sætta sjónarmið um það fiskveiðistjór- unarkerfi sem nú er.“ Sigtiý Jóhannesdóttir formaðurVöku á SiglufirðL „Eg hef ekki Iagst yfir þessar tillög- ur Auðlinda- nefndar, en hvað sem hún kann til málanna að leggja þá á ég seint von á þvf að sátt náist um sjávarút- vegsstefnuna á íslandi. Sumir vilja fá að eiga éiveiddan fiskinn í sjónum og hafa til hans einka- rétt, öðrum er sagt að þeir eigi hann en þeir hinir sömu hafa ekki rétt til að nvta hann.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.