Dagur


Dagur - 24.10.2000, Qupperneq 5

Dagur - 24.10.2000, Qupperneq 5
 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000 - S FRÉTTIR Skattahækkim á höfuðborgarsvæði Ari Skúlason: Ari Edwald: Ögmundur Jónasson: Einar Már: Engin kátína. Of snemmt að ræða. Þarf trausta tekju- Oflítiðskref stofna. Pétur Blöndal: Þurfum skattalækkun ekki hækkun. ísóifur Gylfi: Vantar mótvægi árið 2002. Tillögiiin iim 0,33% út- svarshækktm árið 2002 ánþess að skatt- ar ríkisiiis lækki á móti illa tekið. Ljóst að skattahækkunin mun fyrst og fremst lenda á höfuðhorgarsvæðinu vegna lækkunar fast- eignagjalda á lands- hyggðinni Ef tillögur nefndar um fjármál sveitarfélaga ná fram að ganga óbreyttar mun koma upp sú staða árið 2002 að á höfuðborgarsvæð- inu verður 0,33% skattahækkun en út á landi lækka fasteignaskattar á móti þannig að um raunverulega skattahækkun verður þar ekki að ræða. I tillögum nefndarinnar er gert ráð fyrir 0,33% útsvarshækkun á næsta ári en á móti lækki ríkið skatta um jafnháa upphæð. En 2002 er lagt til að útsvar hækki aft- ur um 0,33% cn engin skattalækk- un komi á móti frá ríkinu nema hvað fasteignaskattar á lands- byggðinni lækka. Engin kátína „Þetta er örugglega skattahækkun á höfuðborgarsvæðinu nái tillögur nefndarinnar fram að ganga. Og það er mjög erfitt að sætta sig við slíkt. Ut á Iandi sýnist mér að ekki verði um skattahækkun að ræða vegna lækkunar fasteignaskatta. Ef af þessu verður munum við auðvit- að setjast niður og ræða málið og ef ég þekki mitt fólk rétt verður engin kátína yfir þessari skattahækkun," sagði Ari Skúlason, framkvæmda- stjóri ASÍ. Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að erfitt sé leggja dóm á þetta því það fari eftir því hvemig sveitarfélög nýti sér þessa heimild til útsvars- hækkunar. „Ef sveitarfélög nýta sér þessa heimild til hækkunar þá mun það rýra kaupmátt fólks. Þessi breyting á tekjustofnum hefur ekld verið í kjarasamningum hjá okkur. Svo má ef til vill segja að of snemmt sé að ræða málið þar sem aðeins er um tillögur að ræða,“ sagði Ari Edwald. Velferdarkerfiö og skattheimt- an Ögmundur Jónasson alþingismað- ur segir að eins og tillögurnar blasi við sér sé verkefnið að breyta tekju- skiptinu milli ríkis og sveitarfélaga. „Ríkið hefur verið að færa verk- efni yfir til sveitarfélaganna án þess að nægir tekjustofnar hafi fylgt með. Ég get vel skilið þá gagnrýni sveitarfélaganna að þeint finnist sinn hlutur of rýr. Hins vegar þegar rætt er um niðurskurð á sköttum þá legg ég áherslu á að ég vil öfluga velferðarþjónustu á vegum ríkis og sveitarfélaga og til þess þarf trausta tekjustofna beggja aðila. Og við verðum að horfast í augu við það að við gerum það ekki nema með skatthcimtu," segir Ögmundur Jónasson. Einar Már Sigurðarson alþingis- maður segir það jákvæða í þessu sé að ríkið hafi þarna viðurkennt að hallað hafi á sveitarfélögin í fjár- hagslegu tilliti. Hins vegar sé þetta of lítið skref eins og sýnt hafi verið fram á með talnalegum rökum. „Miðað við stöðu ríkissjóðs hefðu menn í þessari stöðu hæg- lega getað mætt aukinni Ijárþörf sveitarfélaganna með því að lækka hlutdeild ríkisins í tekjuskattinum á móti. En það liggur ljóst fyrir að taka þarf tekjustofna sveitarfélag- anna til nákvæmar skoðunar þan- nig að þau njóti Ijölþættari tekna en nú er,“ segir Einar Már Sigurð- arson Á móti skattahækkun „Mér finnst að sveitarfélögin, eins og aðrir sem vantar peningar, eigi að hagræða hjá sér og spara. Þegar almenningur lendir í því að eiga ekki lyrir útgjöldum vegna eyðslu verður hann að skera niður. Ég er og hef verið þeirrar skoðunar að það eigi frekar að horfa til þess að lækka skatta á almenningi hcldur en hækka þá því skattar hafa hækk- að umtalsvert umfram bæði verð- lag og mannljölda," segir Pétur H. Blöndal alþingismaður. Isólfur Gylfi Pálmason alþingis- maður segir að sér Iítist vel á margt í tillögum nefhdarinnar. Þar sé að finna ýmislegt sem komi sveitarfé- lögunum vel. „Hins vegar lýst mér illa á að hækka skatta 2002 með því að engin skattalækkun kcmur á móti 0,33% útsvarshækkun," sagði ísólfur Gylfi Pálmason. - S.DÓR Toluverð offita í Hafnarfirdi „Niðurstöðumar benda til þess að talsverður 50 ára einstaklinga sé í verulegri áhættu að fá hjarta- og æðasjúkdóma. Töluvert er um offitu," segir í útdrætti erindis um rannsókn sem gerð var á áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma meðal fimmtugra Hafnfirðinga, sem sagt var frá á vísinda- þingi heimilislækna. Til- gangur rannsóknarinnar, sem er samvinnuverkefni milli heilsugæslustöðv- anna á Akureyri og Sól- vangs í Hf. og Hjarta- verndar. Þátttakendur fengu ráðgjöf um breyt- ingu á lífsstíl, með hollu mataræði og aukinni hreyfingu og ráðgert er að Holdafar ógnar heilsu Hafnfirðinga en þeir eru þó ekkert einsdæmi á landinu. endurtaka rannsóknina eftir ár til að kanna áhrif þeirra leiðbeininga. I Hafnarfirði náði rann- sóknin til allra sem fæddir voru árið 1950 og áttu lög- heimili á svæði Sólvangs, hvar af 57% tóku þátt, 82 karlar og 80 konur. Karl- arnir vógu 86,5 kg. að meðaltali (BMI= líkams- þyngdarstuðull 27,2), en konurnar 73,6 kg. (BMI=26.1). Lítill munur var á slagbilsþrýslingi (126 mmHg og 123), en hins vegar á hlébilsþrýstingi (83 mmHg hjá körlun en 78 hjá konum). Meðalkó- Iesterólgildi, mmól/1, var 6,3 hjá körlum en 5,9 hjá konum. -HEI Kærðir iyrir „hálfvitaskap66 Fyrirtækið Bíósjálfsalar Video- heima hefur luert Landssímann til Samkeppnisstofnunar fyrir að mis- muna viðskiptavinum og misnota markaðsráðandi stöðu sína. Bíó- sjálfsalar telja að Landsíminn hafi lagt fram „hálfvitalega skýringu" fyrir mcintum brotum sínum á samkeppnislögum. Fyrirtækið Bíósjálfsalar var sett á laggirnar í kringum ísraclska tækninýjung, sem gerir fólki kleift að leigja myndbönd með vélvædd- um hætti. Tölvukerfið að baki byggir á netsamskiptum og samdi lyrirtækið við Landsímann um þjónustu, þar sem skilaboð eru send til starfsmanna Bíósjálfsala ef bilanir koma upp. Síðan gerðist það hins vegar að Landssíminn hætti fyrirvaralaust að senda skila- boð til starfsmanns Bíósjállsala sem kaupir símaþjónustu sína frá Tali, samkeppnisandslæðingi Landssímans. „Fengum við þær skýringar frá starfsmönnum Landssímans að nú væri hætt að senda svona boð í símanúmer frá Tali hf. vegna þess að það væri ekki hægt að rukka móttakanda boð- anna. Það er að okkar viti hálfvita- leg skýring," segir Arndís Þórðar- dóttir hjá Bíósjáifsölum, sem gerir þá kröfu að Samkeppnisstofnun skikki Landssímann lil að senda öll skilaboð án frekari tafar. - FÞG 4 sóttu um flugslysaraimsóknir Fjórir sóttu um stöðu formanns Rannsóknarnefndar flugslysa cn um- sóknarfrestur rann út 20. október sl. Þeir sem sóttu eru Helga Halldóra Þórarinsdóttir, Karl Alvarsson, Þormóður Þormóðsson og Þorsteinn Þor- steinsson. Þau eru öll búsett á höfuðborgarsvæðinu. - BÞ Íslenskír sjúklingar glaðastir Sjúklingar á lslanoi eru almennt sáttir við þjónustu heimilislækna og í heild ánægðari með þessa þjónustu en sjúklingará hinum Norðurlöndun- um. Þetta var meðal niðurstaðna úr rannsókn sem heimilislæknar á 35 heilsugæslustöðvum víðs vegar urn land gerðu og greindu frá á nýafstöðnu vísindaþingi sínu. En 17 önnur Iönd tóku þátt í rannsókninni á vegum Evrópudeildar alþjóðasamtaka heimilislækna. Þátttakendur voru beðnir að svara 25 spurningunt, m.a. um tiðhorf til heilsugæslunnar og aðgengileika að henni og gefa einkunn frá 1 (slæm útkoma) til 5 (mjög góð). Alls bárust rúmlega 1.100 svör. Um 93% skjól- stæðinga töldu sig fá nægan tíma í læknisviðtalinu (78% á hinum Norð- urlöndunum), 93% töldu lækninn hlusta nægilega vel (85% á Nl.) og 97% þeirra virtu þagnarskylduna (92% á Nk). Meiri gagnrýni kom á aðgengi. Um 75% gáfu viðunandi einkunn við aðgengi í móttökuna í síma (59% á Nl.), og allt niður í 16% á einni heilsugæslustöðinni. Um 76% sögðu lækna taka vel á tilfinningalega viðkvæmum málum, sama hlutfall og á Norðurlöndum. -HEI Hæstíréttur hafaaði geðrannsókn Hæstiréttur felldi á föstudag úr gildi úrskurð dómara Héraðsdóms Reykja- ness unt að maðurinn, sem ákærður er tyrir að bana ungri konu með því að fleygja henni fram af svölunt fjölbýlishúss við Engihjalla, skuli sæta sér- stakri geðrannsókn. Maðurinn hefur sætt gæsluvarðhaldi allar gölur frá 28. maí vegna rannsóknar á láti ungrar konu, sem féll fram af svölum á 10. hæð hússins að Engihjalla 9 í Kópavogi hinn 27. sama mánaðar. Akæru\aldið krafðist að manninum yTði aðallega gert að sæta sérstakri geðrannsókn, en til vara rannsókn geðlæknis til að meta þroska hans og heilbrigði, andlegt og likamlegt. Hæstiréttur gat hins vegar ekki séð að til- efni væri lyrir sérstakri geðrannsókn. Væri ekki annað séð en að maður- inn sé samþykkur öflun vottorðs sálfræðings Fangelsismálastofnunar og þyrfti því ekki atbeina dómstóla til að afla slíkra gagna. - FÞG

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.