Dagur - 24.10.2000, Blaðsíða 19
Akureyri-Norðurland
PRinjVD AGV R 24. OKTÓBEK 2 00 0 - 19
Yflr 7000 vef-
sfður hjá MA
Menntaskóliim á Ak-
ureyri vill ekki leggja
kvaðir á nemendur í
fartölvumálum. Nem-
endur vara við hættu á
að fartölvueign og upp-
lýsingatækninám ráð-
ist af ríkidæmi for-
eldra.
Menntaskólinn á Akureyri er einn
afþróunarskólunum í upplýsinga-
tækni. I MA er unnið að fjöl-
breyttum verkefnum og upplýs-
ingatæknin bagnýtt í réttu sam-
hengi við skólastarfið í öllum
námsgreinum. Vefur skólans er
miðstöð þróunarstarfsins og inni-
beldur nú yfir 7000 vefsíður sem
gerðar eru af nemendum, kennur-
um og öðru starfsfólki, en vefur-
inn er upplýsingaveita um hvað-
eina varðandi skólann og námið.
Sett hefur verið upp örbylgju-
Ioftnet í húsum skólans og hluta
heimavistar til að nemendur geti
tengt fartölvur sínar beint við net
skólans og haft þar aðgang að
Internetinu og miðlægum
kennsluhugbúnaði skólans.
Meirihluti kennara hefur unnið
með fartölvur sem kennslutæki í
u.þ.b. ár til að húa sig undir far-
tölvuvæðingu nemenda. Nú á
haustönn 2000 vinna kennarar að
fartölvuverkefni skólans með
ýmsum tilraunum í samráði við
nemendur skólans í þeim tilgangi
að geta síðar prófað fartölvur sem
námstæki og er þáttur ncmenda i
þróunarstarfi skólans ómetanleg-
ur, að mati stjórnenda.
Hættulegt misrétti
A fundi í MA s.l. fimmtudag um
stöðu upplýsingatækni í skólan-
um var Ijallað um málið frá ýms-
um hliðum. Tryggvi Gíslason
skólameistari lýsti þeirri stefnu
MA, að drukkna ekki né drekkja
neinum í tækni- eða tækjaflóði,
með þróunarstarfi skólans væri
verið að kanna hvort og þá hvern-
ig unnt væri að nota nýja tækni til
þess að gera skólann betri náms-
stofnun og nám nemenda inni-
haldsríkara. Hann rómaði mjög
starf nemenda og kennara í þess-
um efnum. Sverrir Páll Erlends-
son ritstjóri Vefs MA benti meðal
annars á nauðsyn þess að vefur
væri sífellt endurnýjaður, sá væri
munur á vef og bók að bókin ætti
að geyma upplýsingar til langs
tíma en vefur með gömlu efni
væri lítils virði.
Þeir nemendur sem til máls
tóku á fundinum kváðust styðja
þá stefnu skólans að fara sér hægt
í fartölvumálum og leggja ekki á
nemendur kvaðir á borð við kaup-
leigusamninga, sem kæmu í bakið
á fólki síðar mcir. Orlygur Hnefill
Örlygsson nemandi í 1. bekk og
vefstjóri Vefs Hugins, skólafélags
MA, fjallaði urn þær vonir sem
nemendur hefðu bundið við bjart-
sýnislegar yfirlýsingar mennta-
málaráðherra um að öllum ncm-
endum yrði gert auðvelt að eign-
ast fartölvur, en reyudin væri önn-
ur og við núverandi aðstæður væri
sú hætta fyrir hendi að fartölvu-
cign og upplýsingatækninám færi
eftir ríkidæmi foreldra nemcnd-
anna og slíkt misrétti væri hættu-
legt.
Gestur á skólafundinum um
upplýsingatækni var Arni Sigfús-
son, framkvæmdastjóri Tækni-
vals, en í tengslum við fundinn
skrifuðu hann og Trvggvi Gíslason
skólameistari undir samstarls-
samning um tækni nýrra tíma. I
honum er meðai annars fólgið að
kanna hvernig samskiptum
menntastofnunar og tölvufyrir-
tækis verður best lýrir komið. Arni
rómaði mjög samstarfið við
Menntaskólann á Akureyri og gat
þess að skólinn væri óefað í frem-
stu röð þróunarskólanna í upplýs-
ingatækni. JS
Arðsöm-
jarðgöng
Sameiginlegur fundur hæjar-
ráða Dalvíkurbyggðar, Ólafs-
fjarðar og Siglufjarðar, sem
haldinn var á Siglufirði á
fimmtudag, bendir á vcgna efa-
semdaradda sem fram hafa
komið á opinberum vettvangi,
að fyrirhuguð jarðgangagerð
um Héðinsfjörð sé samkvæmt
þeim gögnum og útreikningum
sem fyrir liggi í dag, arðsöm
framkvæmd fyrir þjóðarbúið.
I samþykktinni segir svo
m.a.: „Fljótséður er sá mikli
ávinningur sem verður af til-
komu jarðganganna, ekki síst
hvað varðar sparnað í opinber-
um rekstri með sameiningu og
öflugu samstarfi sveitarfélaga á
svæðinu. FuIIur skilningur er á
þörf fyrir samgönguhætur sem
víðast á landinu og er hvatt til
þess að samgönguverkefnum
sem augljóst er að eru arðsöm
sé hraðað sem kostur er. í þeim
efnum er nýsamþykkt vegaá-
ætlun metnaðarjull og hvetja
bæjarráðin til þess að hvergi
verði hvikað frá því að fram-
fylgja henni. Til framtíðar
verður það til farsældar fyrir
land og þjóð.“ GG
Elyglamálið kem-
ur ekki á óvart
Þverpólitískur vilji
iiman bæjarstjómar
um mikilvægi tónlist-
arhúss á Akureyri að
mati Ástu Sigurðar-
dóttur.
Ásta Sigurðardóttir, ekkja Ingi-
mars Eydal tónlistarmanns, segir
að sér komi í raun ekki á óvart að
konsertflygillinn glæsilegi sem
keyptur var í minningu Ingimars
sé húsnæðislega á hrakhólum
sem stendur. Hún segir að þetta
hafi legið lýrir þegar flygillinn
var keyptur og í raun hafi hann
komið mun fýrr en ráðgert hafði
verið í upphafi sem megi þakka
hve vel tókst til með fjársöfnun
hljóðfærisins.
„Eg lít ekki á þetta sem ncitt
dapurlega þróun þvf það lá fvrir
þegar flygillinn var keyptur að
ekkert framtíðarhúsnæði væri
fy'rir hendi. Safnaðarheinúlið var
aðeins til bráðahirgða og það er
bara gleðilegt að það sé
notað svo mikið að ekld
sé hægt að geyma flygil-
inn þar lengur. Nú er
verið að leita að öðru
húsnæði og þetta minn-
ir okkur enn einu sinni
á hve tímabært það er
að koma hér uppefram-
tíðarhúsnæði til tón-
leikahalds. Sinfónían er
t.d. að þvælast um milli
íþróttahúsa,“ segir Ásta
og er vongóð um að
húsnæði undir flygilinn
muni finnast innan bæj-
armarkanna. Fyrr hefur
þó komið fram að líkur
standa til þess að geyma verði
flygilinn í öðru sveitarfélagi en
Akureyri, a.m.k. tímabundið.
EkM hvort heldur hvenær
Ásta er bæjarfulltrúi fyrir Fram-
sóknarflokkinn og fyrir skömmu
ræddi Dagur við Ásgeir Magnús-
son, oddvita F-listans. Hann
taldi einnig að flyglamálið væri
áminning um hve nauðsynlegt
væri fyrir bæinn að
eignast tónlistarhús.
Skyldi vera þverpólitísk-
ur vilji fyrirþessu í bæj-
arstjórn? „Eg er alveg
viss um að sá vilji er íýr-
ir hendi en þetta er
spurning um peninga
og forgangsröðun fram-
kvæmda. Umræðan um
menningarhús hefur í
raun sett okkur í dálitla
biðstöðu en um leið og
niðurstaða fæst í því
máli verður málið hugs-
að út frá nýjum for-
sendum.“
Ráðstafar ekki sjálf
Að gefnu tilefni skal tekið fram
að Tónlistarfélag Akureyrar hef-
ur eitt ráðstöfunarrétt yfir hljóð-
færinu. Skilja mátti af frétt Dags
fyrir skömmu að Ásta réði þar
einhverju urn en hún undirstrik-
ar að svo sé ekki heldur hafi tón-
Iistarfélagið hara verið svo vin-
samlegt að leyfa henni að fylgjast
með framgangi rnála. Bl>
Ásta Sigurðardótt-
ir: Vissum þegar
flygillinn var keypt-
ur að framtfðar-
húsnæði væri ekki
fyrir hendi.
ADSLá
Akureyri
Síminn hóf ADSL-þjónustu á Ak-
ureyri fýrir helgina. ADSL-þjón-
ustan var fyrst sett á markað á
einu símstöðvarsvæði í Reykjavík
1. desember 1999 og á fýrstu
mánuðum þessa árs var kerfið
byggt upp um allt höfuðborgar-
svæðið.
ADSL er háhraða gagnaflutn-
ingsþjónusta sem notast við
venjulegar símalínur og hentar
sérstaklega vel til hraðvirkrar
tengingar inn á lntemetið eða
fyrir fjarvinnu starfsmanna fyrir-
tækja. ADSL er sítengd þjónusta
sem þýðir að greitt er fast mánað-
argjald fýrir þjónustuna, óháð
tengitíma.
67% þjóðarinnar eiga kost á
ADSL-þjónustu Akureyri er fýrsti
staðurinn utan höfuðborgarsvæð-
isins þar sem þjónustan er sett á
markað og þar með eiga 67%
Iandsmanna kost á þessari þjón-
ustu. Það er hátt hlutfall miðað
við mörg önnur lönd. í Bandaríkj-
unum, þar sem notkun á ADSL
og annarri DSL-þjónustu er
mest, eiga aðcins um 30% heim-
ila kost á slíkri þjónustu enn sem
komið er, skv. mati Yankee Group.
Samkvæmt áætlunum Símans
mun ADSL verða í boði fýrir 75
til 80% þjóðarinnar innan tveggja
ára og hún verður þá aðgengileg á
7-9 stærstu þéttbýlisstöðunum
utan höfuðborgarsvæðisins.
Nýja vörulínan frá Norðlenska.
Ferskar og
fullstelktar
Norðlenska ehf. hefur sett á
markað nýja vörulínu sem nefnist
Naggalína. Þetta eru fimm teg-
undir af fullsteiktum afurðum úr
kjöti sem santcina fljótlega eldun,
mikil bragðgæði og hagstætt verð.
Fram til þessa hafa verið mark-
aðnum tvær tegundir af nöggum,
þ.e. ýsunaggar og lambanaggar,
sem notið hafa mikilla vinsælda
hjá neytendum og er þessi nýja
vörulína þróuð út frá þeim.
Cordon Bleu
tilhuiu á 5 mínútum
Vörurnar sem um ræðir eru Cor-
don Bleu með skinku- og ostafýll-
ingu, lamhanaggar, lambasneiðar,
svínasneiðar og kjötbollur. Þær
eru seldar ferskar í lofskiptum
umbúðum og kjötið í hverri
pakkningu nægir í máltíð fýrir 2-
3. Geymsluþol í kæli er urn 20
dagar og matreiðsla þegar heim
er komið tekur aðeins örfáar mín-
útur í ofni, örbylgjuofni eða á
pönnu. Lambanaggar eru einnig
seldir frosnir í 400 gr. og 1000 gr.
pakkningum. Auk þess að vera
kjörin máltíð í amstri dagsins þá
hefur Naggalínan þegar öðlast
ntiklar vinsældir í stóreldhúsum,
svo sem á sjúkrahúsum, í mötu-
ncytum og víðar.
Naggalínan er framleidd í nýrri
verksmiðju Norðlenskaá Húsavík
sem ekki á sér hliðstæðu hérlend-
is.