Dagur - 24.10.2000, Blaðsíða 9
ÞRIHJUD AGU R 24. OKTÓBER 2000 - 9
ÍÞRÓTTIR
Taplausar á toppmun
Eftir leiki fimmtu
umferðar Nissandeild-
ar kveiina eru Hauka-
stelpumar taplausar í
toppsæti deildariuuar
ásamt Stjömuuui sem
fylgir þeim fast eftir.
FH komið í þriðja sæt-
ið eftir óvæutau úti-
sigur á Gróttu/KR
Eftir fimmtu umferð Nissan-
deildar kvenna i handknattleik,
sem lauk um helgina, eru Hauk-
ar og Stjarnan með fullt hús stiga
í toppsætum deildarinnar. A
laugardaginn unnu Haukar fimm
marka sigur, 16-21, á Víkingum í
Vfkinni í frekar slökum leik, þar
sem Haukastelpurnar höfðu for-
ystuna svo að segja allan leikinn.
Aðeins í upphafí höfðu Víkings-
stelpurnar árangur sem erfiði og
spiluðu þá glimrandi vörn með
Helgu Torfadóttur að baki sér í
miklu stuði. Það tók Haukana þó
ekki langan tíma að finna leiðina
í gegn og eftir að staðan var 5-5
var Ieikurinn þeirra í einu og
öllu, nema þá hvað varðar mark-
vörslu Helgu Torfadóttur, sem
alls varði 15 skot í Ieiknum. Ekki
var eins mikið að gera hjá Jenný
Asmundsdóttur í Haukamarkinu,
þar sem Víkingar komu vart bolta
í gegnum sterkan varnarmúr
Haukanna sem styrktist eftir því
sem á leikinn leið. Þar voru þær
Harpa Melsted og Auður Her-
mannsdóttir bestar, en á móti
frekar mislagðar hendur í sókn-
inni, en þar fóru þær Brynja
Steinsen og Sandra Anulyte
fremstar í flokki. Víkingsstelp-
urnar náðu aldrei að sýna sitt
rétta andlit í
leiknum, nema
þá Guðrún
Guðmannsdótt-
ir, sem varð
þeirra marka-
hæst með 6/1
mörk. Hjá
Haukum var
Harpa marka-
hæst með 5/2
mörk, en eins
og oft áður úr
ansi mörgum
tilraunum.
ÍRennán
stíga á botn-
inuiii
Á föstudaginn brugðu Stjörnu-
stelpur undir sig betri fætinum
og heimsóttu IR-stelpurnar í
Breiðholtið, þar sem Garðabæj-
arliðið vann átta marka sigur, 16-
24. IR-stelpurnar byrjuðu leikinn
af miklum krafti og voru komnar
í 3-1 áður en loksins kviknaði á
Stjörnunum. I kjölfarið fylgdu
fimm Stjörnumörk í röð og stað-
an orðin 3-6 áður en ÍR-liðið
bætti við sínu fjórða marki. Það
varð um leið þeirra síðasta mark
í hálfleiknum, en á á móti skor-
uðu Stjörnurnar sjö mörk
breyttu stöðunni í 4-13 fyrir leik-
hlé. ÍR-liðið byrjaði seinni hálf-
leikinn álfka og þann fyrri og
skoruðu tvö fyrstu mörkin áður
en Stjörnurnar tóku við sér. En
eins og í fyrri hálfleik fjaraði
krafturinn fljótlega út og tók
Stjarnan þá öll völd á vellinum
og hélt þetta átta til níu marka
forskoti til loka leiksins. Hjá
ungu liði ÍR voru þær Heiða
Guðmundsdóttir og Bergiind
Hermannsdóttir bestar og varð
Heiða markahæst með 7/3 mörk.
Einnig átti Anna Margrét Sigurð-
ardóttir ágætan leik, en hún
skoraði tvö mörk og var einnig
drjúg við að fiska víti. Þar með er
IR-liðið ennþá án sigurs í deild-
inni og hvílir eitt á botninum.
Hjá Stjörnunni var Nfna Björns-
dóttir best og markahæst með 8
mörk og Halla María Helgadóttir
næst með 5 mörk. Sóley Hall-
dórsdóttir, átti ágætan leik í
markinu, sérstaklega í fyrri hálf-
leik og varði alls 16 skot.
Hildur skoraði sex úr sex
FH-liðið Iyfti sér upp í þriðja sæti
deildarinnar, eftir óvæntan eins
marks sigur,22-23, á Gróttu/KR
á Nesinu á laugardaginn. Leikur-
inn var mjög jafn og spennandi
og leiddu liðin til skiptis fram í
seinni hálfleikinn. Grótta/KR
hafði eins marks forystu í Ieik-
hléi, en fljótlega í upphafi seinni
hálfleiks náði FH þriggja marka
forskoti sem heimaliðinu tókst
að vinna upp, fyrr en í lok leiks-
ins. ar munaði mestu um góða
markvörslu Jolöntu Slaikiene, en
hún varði alls 18 skot í leiknum.
Annars var mikið um mistök á
báða bóga og skotnýtingin í
heildina frekar slök. Hildur Páls-
dóttir er þar þó undanskilin því
hún nýtti sín skot hundrað pró-
sent og varð markahæst FH-inga
með 6 mörk. Fyrir utan Jólöntu í
markinu átti Hafdís Hinriksdótt-
ir einna bestan leik, með 5/3
mörk og einnig áttu þær Björk og
Judit góða spretti. Hjá
Gróttu/KR voru þær Alla Gor-
korian og Ágústa Edda Björns-
dóttir bestar og var Alla þeirra
markahæst með 6/1 mörk.
Marina skoraði 14 mörk í
Eyjum
Framliðið gerði góða ferð til
Vestmannaeyja á föstudaginn og
vann þar sex marka sigur á IBV.
Marina Zoueva var í miklu stuði
og skoraði hvorki meira né
minna 14/8 mörk. Eftir jafna
byrjun náðu Framstelpurnar góð-
um tökum á leiknum og höfðu
mest náð átta mark forystu sem
var meira en Eyjaliðið réði við.
Eftir sjö marka forystu í hálfleik,
9-16, gaf Framliðið aðeins eftir í
upphafi seinni hálfleiks og náðu
Eyjastelpurnar þá að minnka
muninn í fjögur mörk um miðjan
hálfleikinn. Þá tóku Framstelp-
urnar aftur við sér og þá sérstak-
lega Marina Zoueva, sem skoraði
hvert markið af fætur öðru og var
munur fljótlega aftur orðinn átta
mörk. Zoueva var eins og venju-
Iega allt í öllu hjá Fram og segja
14 mörk allt sem segja þarf. Hjá
IBV bar mest á þeim Amelu Hag-
ic og Anitu Eyþórsdóttur og voru
þær markahæstar með 5 mörk
hvor.
I Valsheimilinu að Hlíðarenda
fór fram leikur Vals og KA/Þórs
og vann Akureyrarliðið þar sinn
fyrsta sigur í deildinni í vetur.
Lokatölur leiksins urðu 14-19 og
er nánar sagt frá honum í Akur-
eyrarblaði.
Spennan 1 hámarki
Átta leikir fara fram í
riðlakeppni Meistara-
deildar Evrópu í kvöld
og eiga fjórir knatt-
spyrurisar, Juventus,
Bayern, United og AC
Milan þar góða mögu-
leika á að tryggja sig
áfram í keppninni.
I síðustu umferð riðlakeppni
Meistaradeildar Evrópu tókst
þremur liðum, Arsenal, Valencia
og Real Madrid að tryggja sig
áfram í aðra lotu keppninnar og
Valencia um leið að tryggja sér
sigur í sínum riðli, C-riðli. Tvö
efstu liðin í hverjum riðli komast
áfram í keppninni, þannig að
ennþá er ekki vitað hvaða þrettán
lið muni fylgja áðurnefndum
þremur Iiðum áfram í aðra lotu
keppninnar. I kvöld gætu þó lín-
ur farið að skýrast, en þá fara
frarn átta leikir í fimmtu umferð
E, F. G og H-riðils, þar sem
spennan er reyndar hvað mest og
ennþá allt opið upp á gátt.
I E-riðli cr staðan mjög spenn-
andi, en þar eru Juventus og
Deportivo efst og jöfn með sex
stig, en Panathinaikos í þriðja
sætinu með fimm stig, tveimur
meira en Hamborgarar sem eru
Tekst Beckham og félögum að
tryggja sig áfram.
með þrjú á botninum. Juventus á
heimaleik gegn Hamborgurum
sem mæta til leiks án tveggja lyk-
ilmanna sem eru íranski fram-
herjinn Mehdi Mahdavikia sem
er upptekinn með landsliðinu og
Argentínumaðurinn Rodolfo
Cardoso sem er mciddur. Italska
liðið sem er ósigrað í riðlinum
verður að teljast sigurstranglegra
og mun með sigri tryggja sig
áfram í kcppninni. I hinum leik
E-riðils mætast spænska liðið
Deportivo La Coruna og gríska
liðið Panathinaikos í La Coruna
og líldegt að það verði hreinn úr-
slitaleikur um það hvort liðið
kemst áfram.
í F-riðli er staða Bayern
Munchen best, en Iiðið hefur þar
þriggja stiga forskot á Rosenborg
og Paris SG. Bæjarar fá Helsing-
borgara í heimsókn í kvöld og þar
geta þeir með sigri tryggt sig
áfram í keppninni. Helsingborg er
með þrjú stig í botnsætinu og á
tölfræðilega möguleika, en verða
þá að vinna þýska risann, sem
verður að teljast ólíklegt á heima-
velli þeirra í M^nchen.
I hinum Ieik F-riðilsins mæta
Arni Gautur Arason og félagar hjá
Rosenborg Iiði Paris SG í París og
er líklegt að það verði hreinn úr-
slitaleikur um það hvort liðið
kemst áfram, þar sem þau eru nú
jöfn með sex stig í 2.-3. sæti.
I G-riðlinum er staðan enn
meira spennandi, en þar er
Manchester United með eins
stigs forystu í toppsætinu á And-
erlecht og PSV Eindhoven og á í
kvöld útileik gegn Anderlecht.
Ovíst er hvort þeir Roy Keane,
fyrirliði og framherjinn Teddy
Sheringham geti Ieikið með
United, en báðir þurftu þcir að
yfirgefa völlinn gegn Leeds á
laugardaginn. Einnig er vafi á því
hvort Ronny Johnsen geti leildð,
en hann meiddist einnig í leikn-
um gegn Leeds. Sigri United í
leiknum ættu þeir að vera örugg-
ir áfram, en að öðru Ieyti er allt
opið upp á gátt. Dynamo Kiev
sem er með fjögur stig í botnsæt-
inu á fræðilega mögulega, en
verður þá að sigra PSV í kvöld á
heimavelli sínum í Kænugarði til
að eiga möguleika. Sem sagt, allt
opið upp á gátt.
í H-riöli eru Leeds og AC Mil-
an jöfn í toppsætunum með sjö
stig, en Besiktas og Barcelona í
neðri hlutanum með fjögur stig.
Þar stefnir því í hörkuleiki, þar
sem Leeds fær Barcelóna í heim-
sókn á Elland Road og Besiktas
tekur á móti AC Milan í Instan-
búl. Barclóna verður að sigra á
Elland Road til að eiga mögu-
leika og ættu meiðslavandamálin
hjá Leeds að auðvelda þeim róð-
urinn, en alls cllefu Iykilmenn
eiga nú við meiðsii að stríða hjá
enska liðinu. Með sigri í Instan-
búl tryggir AC Milan sig áfram í
keppninni, en fari á hinn veginn
eru Tyrkirnir komnir með góða
stöðu fyrir síðustu umferðina.
Leikir kvöldsins:
E-riðill:
Deportivo - Panathinaikos
Juventus Hamburger SV
F-riðilI:
Bayern Múnchen - Helsingborg-
Paris SG - Rosenborg
G-riðilI:
Dynamo Kiev - PSV Eindhoven
Anderlecht - Man. United
H-riðill:
Besiktas- AC Milan
Leeds - Barcelona
Úrslit
og staða
Handbolti
Nissandeild karla
Úrslit: HK - Grótta KR 27-30
Fram - UMFA 25-24
FH - ÍBV 27-19
Stjarnan - Breiðablik 29-26
Nissandeild kvenna
Úrslit: IR - Stjarnan 16-24
ÍBV - Fram 18-24
Grótta/KR - FH 22-23
Valur - KA/Þór 14-19
Víkingur - Haukar 16-21
Staðan:
Stjarnan 5 5 0 104:81 10
Haukar 5 5 0 137:95 10
FH 5 3 2 124:114 6
Fram 5 3 2 112:107 6
ÍBV 5 3 2 101:102 6
Grótta/KR 5 2 3 119:98 4
Víkingur 5 2 3 101:100 4
Valur 5 1 4 74:102 2
KA/Þór 5 1 4 92:121 2
ÍR 5 0 5 75:119 0
2. deild karla Úrslii: Víkingur - Þór Ak. 22-21
Fylkir - Fjölnir 27-32
Körfubolti Kiörísbi karinn 8-liða úrslit: Keflavík - Njarðvík 84-97
Njarðvík - Keflavík 85-78
Hamar - KR 77-66
KR - Hamar 97-72
Þór Ak. - Grindavík 80-89
Grindavík - Þór Ak. 107-101
Tindastóll - Haukar 94-70
Haukar - Tindastóll 80-88
(Njarðvík, KR, Grindavík og Tindastóll homin dfram í
undanúrslit.)
Úrvalsdeild kvenna
Úrslit: Keflavík - ÍS 66-58
Staðan:
Keflavík 2 2 0 150:92 4 ÍS 2 11 118:116 2
KR 10 1 50:60 0
Grindavík 1 0 1 34:84 0
KFÍ 0 0 0 0:0 0
1. deild ltarla
Úrslit:
Árm./Þrótt. - Stjarnan 67-73
ÍS - Breiðablik 67-98
Þór Þorl. - ÍA 85-88
Stjarnan - Selfoss 77-64
Snæfell - Árm./Þrótt. 95-77
Höttur-ÍV 72-75
Fótbolti
Enska úrvalsdeildin
Staðan eftir leiki helgarinnar:
Man. Utd 10 6 3 1 26:8 21
Arsenal 10 6 3 1 17:10 21
Liverpool 10 5 3 2 17:13 18
Newcastle 10 5 1 4 11:8 16
Leicester 10 4 4 2 7:6 16
Ipswich 10 4 3 3 14:1 1 15
Charlton 10 4 3 3 16:16 15
Tottenh. 10 4 2 4 15:14 14
Leeds 9 4 2 3 14:13 14
Chelsea 10 3 4 3 19:14 13
Aston V. 9 3 4 2 1 1:8 13
Sunderl. 10 3 4 3 8:11 13
Everton 10 3 3 4 13:16 12
Man. City 9 3 2 4 12:14 11
Coventry 10 3 2 5 11:21 1 1
Middiesb. 10 2 4 4 15:16 10
Southampt 9 2 4 3 12:13 10
West Ham 10 1 5 4 12:14 8
Bradford 10 1 3 6 4:16 6
Derhv 10 0 5 5 14:26 5