Dagur


Dagur - 24.10.2000, Qupperneq 11

Dagur - 24.10.2000, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGVR 24. OKTÓBER 2 000 - 11 Thypr ERLENDAR FRÉTTIR Bush er kominn framúr Gore en stjórnmálaskýrendur eru sammála um að allt geti gerst. Algjör óvissa uni úr- slit forsetakosninga Bush hefur uáð yfir- höndiimi í skoðana- könnunum en munur- inn varla marktækur og enn getur allt skeð eins og þeir segja í fótboltanum Þegar aðeins tvær vikur eru til kosninga í Bandaríkjunum eru gerðar skoðanakannanir ótt og títt. Það eru einkum forseta- kosningarnar sem athyglin bein- ist að, enda veigamesta embætt- ið sem kosið er til. Hins vegar er aðeins eitt sæti í Oldungadeild- inni sem fylgst er með af áhuga, en það er annað sæti New York fylkis, sem Hillary Rodham Clinton sækist eftir. Gamla kempan Moynihan er að hætta í pólitík vegna aldurs. Engu er lík- ara en að forsetafrúin sé ein í framboði til Öldungdeildarinnar, því varla er minnst á aðra fram- bjóðendur á þeim vígstöðvum. En það eru forsetakosningarn- ar sem mestu máli skipta, ekki aðeins í Bandaríkjunum, heldur er íylgst með þeim af áhuga um allan heim því það skiptir máli hver velst til forystu í risaveld- inu, sem nú er öflugra en dæmi eru um í veraldarsögunni. Skoðanakannanir sem gerðar voru um helgina sýna að Bush er kominn fram úr Gore og var á sunnudagskvöldi með 45% fylgi en Gore hafi 41% fylgi. I gær, mánudag, stóð meðaltal skoð- anakannanna þannig að Gore var að rétta við og stóðu pró- sentutölurnar þannig að hann var kominn með 42% fylgi en Bush 44%. Er munurinn tæpast marktækur og þeir sem telja sig sérfræðinga í kosningasspám vestra telja, að frambjóðendur stóru flokkanna verði hnífjafnir fram að kosningum og muni endanlegar kosningatölur einar skera úr um hvor verður forseti. Frambjóðandi Græna flokks- ins, neytendafrömuðurinn Nader hefur 5% fylgi og fram- bjóðandi Endurreisnarflokksins Buchanan fær 1% atkvæða. 7% þeirra sem taka þátt í skoðana- könnunum eru óákveðnir, en all- flestir kjósendur eða 86% virðast þegar hafa gert upp hug sinn. En slagurinn stendur um þá óá- kveðnu og munu frambjóðendur neyta allra ráða til að laða þá til sín. Bush hefur meira fylgi allra aldursflokka nema 70 ára og eldri. Gore hefur 5% meira fylgi meðal öldunganna. Langmest fylgi Bush er meðal ungmenna á aldrinum 18-24 ára. I þeim ald- ursflokki eru margir tæknilega sinnaðir og taka fullan þátt í raf- eindabyltingunni, sem haldið er að gangi yfir. í Bandaríkjunum er kynþátta- hyggja rík og hefur mikil áhrif á stjórnmálin. 51% hvítra hyggjast kjósa Bush á móti 36% sem velja Gore. Helmingi fleiri spænsku- mælandi kjósendur munu kjósa Gore en Bush. 79% blökku- manna munu sömuleiðis styðja Gore. Bush nýtur 13% meira fylgis karla en Gore en 9% fleiri konur munu taka varaforsetann framyfir ríkisstjórann í Texas. Sem sjá má er baráttan milli frambjóðenda stóru flokkanna hörð og treysta fáir sér til að spá um úrslitin, sem eru eins tvísýn og þau geta orðið. Frambjóðendur ferðast nú milli landshluta og reyna að koma eins víða við og mögulegt er og ná beinu sambandi við kjósendur. Þeir munu ekki halda fleiri sameiginlega kosn- ingafundi og er ekki að sjá að þeir eigi nein sérstök tromp á hendi sem líklega eru til að afla fylgis eða kasta rýrð á keppinautinn. Kosningabaráttan hefur verið sviplaus. Sjónvarpskappræðurn- ar hafa ekki orðið til að vekja sérstakan áhuga á öðrum hvor- um frambjóðandanum. Allt sem fram kom á þeim framboðsfund- um var íyrirséð, jafnvel klæða- burður frambjóðendanna var eins sviplaus og baráttumálin, enda ber þeim helst til lítið á milli, þótt þeir reyni að greina sig hvor frá öðrum í veigalitlum málum. -OÓ Ósamkomulag umþjóðstjóm JERÚSALEM - Ekkert samkomuíag náðist í gær milli þeirra Ariels Sharons og Ehud Baraks um stjórnarsáttmála að þjóðstjórn í Israel. Þetta kom fram hjá einum af tals- manni Likudbandalagsins á fundi með fréttamönnum. „Þau drög að sáttmála sem Barak kynnti voru einfaldlega óaðgegnileg," sagði Silvan Shalon talsmaður Likudbanda- lagsins. Hann bætti því við að engu að síð- ur væri fyrirhugaður fundur með flokksleið- togunum í dag, þriðjudag. Helsti ásteyting- arsteinninn í þessum þjóðstjórnarviðræðum er sá að Likudbandalagið - sem í dag er hel- sti stjórnarandstöðuflokkurinn - vill tryggja sér raunveruleg áhrif á það hvernig og hvort haldið verður áfram friðarumleitunum og friðarviðræðum við Palestínumenn. Fundur Sharons og Baraks kem- ur í kjölfar þess að Barak hafði lýst því yfir að friðarferlið væri kom- ið í strand og að ekki þýddi að halda áfram viðræðum um að stöðva ofbeldisverk á Vesturbakkanum og Gazasvæðinu. Ehud Barak, forsætis- ráðherra ísraels Ekki hægt að kafa að Kursk MOSKVA - Stormur var á Barents- hafi í gær sem olli því að norskir og rússneskir kafarar sem voru tilbún- ir til að fara niður að hinum sokkna kafbáti, Kursk, urðu að fresta öllum aðgerðum sínum. Hugmynd kafaranna var að skera gat á skrokk kafbátsins til þess að fara þar inn og ná út líkum mann- anna 118 sem fórust með bátnum á sínum tíma. Það að komast í gegnum innra byrði kafbátsins er það verkefni sem er hvað erfiðast í þessari áætlun og til marks um það var viðtal í rússnesku sjónvarpi við skipasmið sem lýsti því að það væri ærið verkefni fyrir hvern sem er að skera sig í gegnum 10 centi- metra þykkt stál jafnvel á þurru landi. Að gera það á hafsbotni væri gríðarlegt mál. Þessu verkefni hefur hins verið frestað nú þar til veðrið gengur niður. Kafarar bíða átekta með að fara niður að Kursk. Kim og Albright funda PYONGYANG, Norður Kóreu - Madeleine Al- briht utanríkiráðherra Bandaríkjanna átti sögu- legan fund með Kim Jong-il leiðtoga Norður- Kóreu í gær en embættismenn í Washington skilgreindu þessar viðræður sem „mikilvægar". Talsmaður utanríkisráðuneytisins bandaríska Richard Boucher sagði fréttamönnum í gær að viðræðumar myndu halda áfram í dag, þriðju- dag en fyrirfram hafði einungis verið búist við að fundur þeirra Kims og Albright yrði stuttur. I kvöldverðarboði í gær sagði Albright í ræðu sem hún hélt að við yrðum öll að gera hvað við gæt- um til að koma í veg fyrir ógn í samfélagi þjóð- anna, minnka spennu og byggja upp gagnkvæmt traust. „Við verðum öll að sinna okkar skyldu ef kaldastríðinu á í raun og veru að ljúka sem og sú sársaukafulla upp- skipting Kóreu sem því fylgdi að hverfa,“ sagði Albright. Madeleine Albright ■ FRÁ DEGI ÞRIÐJLJDAGUR 24. OKTÓBER 298. dagur ársins, 68 dagar eftir. Sólris kl. 8.46, sólarlag kl. 17.36. Þau fæddust 24. október • 1814 Rafael Carrera, einræðisherra í Guatemala. • 1869 Guðmundur Friðjónsson skáld á Sandi. • 1876 Saya San, leiðtogi uppreisnar gegn Bretum í Burma árin 1930-32. • 1904 Moss Hart, bandarískt Ieikskáld. • 1925 Luciano Berio, ítalskur hljóm- sveitarstjóri og tónskáld. • 1939 F. Murray Abraham, kvikmynda- leikari. • 1944 Vésteinn Lúðvíksson rithöfund- ur. • 1947 Kevin Kline, handarískur leikari. Þetta gerðist 24. október • 1795 skiptu Prússland, Austurrild og Rússland á milli sín síðustu leifunum af Póllandi, sem varð ekki til á ný sem TIL DAGS sjálfstætt ríld fyrr en í Iok fyrri heim- styrjaldarinnar 1918. • 1901 fór kona að nafni Annie Edson Taylor fram af Níagarafossum í tunnu, og komst ómeidd út úr þeirri svaðilför. • 1945 voru Sameinuðu þjóðirnar formlega stofnaðar. • 1969 gaf Richard Burton henni EI- ísabetu Taylor demantshring sem kostaði meira en milljón dollara og var meira en scxtíu og níu karöt að þyngd. • 1975 hófust sjónvaqjsútsendingar í lit hér á landi. • 1975 var kvennafrídagurinn á Islandi og mættu þá 25 þúsund manns á úti- fund á Lækjartorgi í Reykjavík. Vísa dagsins Yndisbesta elskan mín, ástum festa baugalfn! Hjartað góða þckki’ ég þitt, það er ljóðaefniö mitt. Jónas Hallgrímsson Afmælisham dagsins I dag eru hundrað ár liðin frá fæð- ingu Karls O. Runólfssonar tónskálds og trompettleikara. Hann var fæddur í Reykjavík, Iærði upphaflega prent- iðn en stundaði síðan tónlistarnám á Islandi og í Kaupmannahöfn. Eftir hann liggja (Jölmörg tónverk, bæði einsöngslög og kórverk ásamt ballett- um, kantötum, sónötum og sinfóní- unni Esju, svo nokkuð sé nefrít. Hann var einnig frumkvöðull að stofnun Sambands íslenskra lúðrasveita. Karl lést árið 1970. Þegar eitthvað er fyndið, þá skaltu at- huga hvort ekki leynist í þrí dulinn sann- leikur. Gcorgc Bcrnard Shaw Heilabrot Geturðu raðað tölunum frá 1 og upp í 9 í talnaferning, með þrjár tölur í hverri röð og þrjár tölur í hverjum dálki, þannig að út koman sé alltaf sú sama hvort sem lagöar eru saman tölurnar þrjár í hverri röð cða hverjum dálki, og sama útkoman á líka að fást þegar skáraðirnar tvær eru Iagðar sam- an. Lausn á síðustu gátu: Blöðrur. Veffang dagsins Á Netinu er fullt af ljómandi góðum síð- um um Bangsímon, sem er besti vinur barnanna. Meðal þeirra betri má ncfna wwvv. the-hundred-acrc-wood.com/, www.just-pooh.com/ og worldkids.net/pooh/l 00aker.html.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.