Dagur - 25.11.2000, Blaðsíða 2
2 - LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
HELGARPOTTURINN
Þessa dagana er að fara í prentsmiðju enn eitt
bindið af sögu Framsóknarflokksins sem Vil-
hjálmur Hjálmarsson skráir. Bókin fjallar
um framsóknarlífið í landinu síðustu tuttugu
árin eða svo og er fyrir utan ítarlegan texta
troðfull af myndum um sókn og sigra hins
milda afls á miðjunni einsog flokksmenn kalla
fley sitt gjarnan. Stjórnmálaáhugamenn helg-
arpottsins segjast annars ekki búast við nein-
um stórpólítískum útspilum í bók þessari,
enda sjái þeir Steingn'mur Flermansson og
Dagur Eggertsson um þá hlið mála.
Lesefni Ólafs Ragnars Grímssonar, vakti
athygli sessunauta hans þegar forsetinn flaug
norður til Akureyrar í síðustu viku. í flugvélinni
afþakkaði hann Dag til aflestrar, kvaðst hafa
lesið blaðið heima á Bessastöðum, en eftir. að
hafa þegið djús til að slökkva þorstann dró
hann upp kilju eina mikla. Það var Term Limits
eftir Vince Flynn og í doðranti þessum lá Ólafur
alla leiðina norður. Bók Flynn fjallar um enda-
stöð bandarískra stjórnmálamanna, í víðasta
skilningi þess orðs, og hvernig launmorðingar
koma inn í það ferli sem sé auðvitað ein leið til
þess að fækka í ríkisstjórnum! Gagnrýnendur vestanhafs hafa sagt að
vonandi noti Flynn ímyndunaraflið og skrifi um „hreinsun" undir-
heimanna á stjórnmálamönnum, nokkuð sem vel geti átt sér stað innan
tíðar!
Þessa dagana er verið að splæsa endanlega
sameiningu Máls og menningar og Vöku -
Helgafells og raunar fleiri fyrirtækja í Eddu -
miðlun og útgáfu. Sem kunnugt er verður
Ólafur Ragnarsson stjórnarformaður fyrir-
tækisins, en það sem annars ber hæst í starfi
áðurnefnds stórforlags er að nú er verið að
innrétta nýjar höfuðstöðvar þess sem verða
við Suðurlandsbraut f Reykjavfk. Þangað mun
öll meginstarfsemi fyrirtækjast flytjast, en sem
sakir standa er hún dreifð um alla borg.
Steins Steinarrs
varpar Gylfi Gröndal rithöfundur á sitthvað
forvitnilegt þjóðsagnakennt sem sagt hefur
verið um líf þessa stórskálds. Sem sumir kalla
raunar síðasta þjóðskáldið. Meðal þeirra þjóð-
sagna sem Gyifi fjallar um er sú að hending-
arnar „það vex eitt blóm fyrir vestan, en veit
ekki að ég er til" hafi Steinn ort um lausaleiks-
barn sem hann hafi átt vestur í Dölum. Þetta
segir Gylfi að sér tómur söguburður og algjör-
lega úr lausu lofti gripið. En er ekki eðlilegt að
þjóðsögur séu sagðar um þjóðskáld?
Þessa helgina er sýnd á fjölunum á Fosshótel
KEA söngvasýningin Strákarnir á Borginni,
þar sem þeir Helgi Björnsson og Bergþór
Pálsson taka ýmsa fræga standarda fyrri ára.
Þessi sýning hefur verið sýnd á Hótel Borg í
allt haust og notið vinsælda og hið sama má
segja um geisladisk með lögunum sem þeir
félagar syngja þar. Hann hefur selst einsog
heitar lummur. Helgi og Bergþór syngja á
KEA aftur í kvöld, laugardagskvöld, og svo
helgina 15. og 16. desember.
Mikil samkeppni er á sunnlenskum fjölmióla-
markaði þessa dagana, en þar voru nú í vik-
unni opnaðir tveir fréttavefir. Það er Sunn-
lenska fréttablaðið, undir ritstjórn Bjama
Harðarsonar sem stendur að fyrrnefnda
vefnum - í félagi víð fleiri - og slóðin að þeim
vef er www.sudurland.is. Útvarp Suðurlands,
þar sem Soffía Sigurðardóttir er skipstjóri,
Dagskráin og fleiri standa svo að vefnum
www.sunnlenska.is. Á vefjunum birtast fréttir
af mannlífi og móral á Suðurlandi auk þess sem
þar eru tenglar á helstu fyrirtæki og stofnanir f
héraðinu.
Nýja verslanamiðstöðin á Akureyri Glerártorg hefur gjörsamlega sleg-
ið í gegn og segja verslunareigendur þar að aðsóknin hafi farið langt
fram úr öllum vonum. „Þetta er eins og að vera á ættarmóti," segja sum-
ir viðskiptavinir og má sjá þar sem fólk hópar sig saman á göngunum,
faðmast og kyssist og rifjar upp gamlar minningar. Bilastæði hafa hins
vegar verið af skornum skammti og eru björgunarsveitarmenn í fullu
starfi allar helgar við að greiða úr umferð. Nú er farið að bjóða sætaferð-
ir á Glerártorgið úr nágrannasveitunum, og heilu rúturnar af prúðbúnu
fólki flykkist þangað í helgarferðir til að sýna sig og sjá aðra og kannski
versla eitthvað í leiðinni.
Helgi Björnsson.
Ólafur Ragnarsson.
í nýútkominni ævisögu
Ólafur Ragnar
Grímsson.
, Dagur
Björgunarsveitir eru stöðugt að efla fagmennsku innan sinna raða til að takast á við hinar ýmsu aðstæður sem upp koma við leitar
og björgunarstörf. -mynd ragnar magnússon
Neyðarað-
Viðamesta ráðstefna um björgunar-og öryggismál sem haldin hefur verið hér á
landi stendur nú yfir á Grand hóteli í Reykjavík. Hún ber yfirskriftina Björgun 2000
og þar mun fjöldi innlendra og erlendra fyrirlesara halda erindi. Árni Birgisson,
starfsmaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar, fræðir okkur nánar
„Meginþema rástefnunnar er stýring
neyðaraðgerða því töluverð umræða
hefur átt sér stað á síðustu misserum
um breytingar innan neyðargeirans á
Islandi. Samræma þarf störf hinna
ólíku aðila betur en hingað til hefur
verið gert, Iögreglu, slökkviliðs, björg-
unarsveita, sjúkraflutningamanna og
annarra sem koma að neyðar- og ör-
yggismálúm.
Við erum með marga áhugaverða
fyrirlesara á ráðstefnunni. Einn þeirra
er Carl Cillmore. Hann hefur verið
okkar aðal hjálparhella í þróun á nýj-
um starfsaðferðum við skyndihjálp og
erindi hans snýst um fyrstu hjálp í
óbyggðum. Þetta er mál sem við höf-
um verið að vinna að með Landlækn-
isembættinu og Jóni Baldurssyni
lækni og miðar að því að auka kröfur
til íslenskra björgunarsveitarmanna.
Verið er að undirbúa námskeið fyrir
þá sem veita þeim tiltekin réttindi en
krefjast jafnframt meiri ábyrgðar og
getu. Þegar er búið að halda tvö nám-
skeið af þessu tagi, þau voru á ensku
en nú er verið að þýða efnið og laga
jrað að íslenskum aðstæðum.'1
Hegðun týndra
„Bretinn Ged Feeny hefur mikið velt
fyrir sér hegðun týndra og flytur erindi
um það efni. Hann vifl nýta gögn úr
fortíðinni til hjálpar. Hefur skoðað
hegðunarmynstur manna sem hafa
týnst og vill nota þann lærdóm til að
auðvelda okkur lcitarstörf, skoða hvað
er líklegt að týndur maður með
ákveðna getu og ákveðinn bakgrunn
geri við tilteldn skilyrði. Þetta getur
verið gott að styðjast við þegar þarf að
afmarka lcitarsvæði og finna útgangs-
punkta."
Tölvurnar bjarga líka
„Svo er Greg Ursel með athvglisvert
efni. Hann hefur verið að skoða
tölvuvinnslu í leitaraðgerðum og
færa leitarfcrla inn á tölvutækt þrí-
víddarform til að átta sig betur á
hversu vel er búið að leita og á
hvaða svæðum.
Það kemur skemmtilega heim og
saman við það sem við höfum verið
að gera hjá Slysavarnafélaginu
Landsbjörg í tengslum við sjálfvirku
tilkynningarskylduna. Búnaður í
bátnum sendir út boð með vissu
millibili, þau færast inn á tölvuskjái
hjá okkur og þannig sjáum við graf-
íska hreyfingu á öllum bátum og
skipum. Þetta er einsdæmi í heimin-
um og Eiríkur Þorhjörnsson verður
með erindi um lýrirbærið rétt fyrir
hádegi í dag.“
Nýtt boðtækjakerfi
„Við ræðum líka nokkur dæmi sem
hafa komið upp, eins og Suður-
Iandsskjálftana í sumar. Rifjaður
verður upp leiðangur sérþjálfaðra
manna héðan til Grænlands að
freista þess að ná líkamsleifum Hol-
lendings sem hafði fallið ofan í
sprungu og látist og Geysisslysið ber
á góma.
Erindi um hegðun og atferli als-
heimersjúklinga, sem Guðrún K.
Þórsdóttir flytur cr líka athyglisvert.
Tilefni þess er stór leit sem gerð var
í ágúst sl. að sjúklingi hér á höfuð-
borgarsvæðinu.
Síðasta erindið á morgun er fyrir
alla þá -sem hafa hoðtæki. Það cr
Ijóst að símboðakerfi Landsímans
verður lagt njður 1. tebrúar næst-
komandi en það er þáð kerfi sem
80% af viðbragðsaðilum á Islandi
hala notað til að hoða sínar liðsein-
ingar. Þarna ætlar Landsíminn að
upplýsa hvað við tekur og þetta er
fyrsta opinbera kynningin á því
hvernig þau mál verða leyst." - GUN.
IIII.llTl'jllilL'ULIilllllTIJTMá.bllLirm
Kaþólski presturín, séra Jakob Roland, sýndi þjóðinni í
raun og sann hvert inntak hins trúarlega boðskaps er.
Hugið að yðar minnsta bróður segir Biblían og með það
að leiðarljósi hóf presturinn setuverkfall í dómsmála-
ráðuneytinu til að berjast fýrir að mál tsjetsjensk flótta-
manns sem dvelst hér á landi yrði tekið fyrir á ný. í helg-
ustu véum stóra bróður, ráðuneyti dómsmála, settist
presturinn niður uns ráðherrann fór í málið. Jakob Rol-
and hengir sig ekki í réttlæti og lög ríkisins, en minnist
þess sem Frelsarinn sagði foðum að það sem þú gerir
þínum minnsta bróður gerir þú mér.
_____________i