Dagur - 25.11.2000, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000 - 17
í LANDINU
Þjónar guðs og mammons
Blaðamaður dags fýlgd-
ist með klerkum, kaup-
mönnum og auglýsinga-
frömuðum ræða sam-
starf sitt við að koma
boðskap kirkjunnar á
fmmfæri við landsmenn.
Guð og mammon hafa sjaldnast
verið taldir eiga samleið. lslenska
þjóðkirkjan virðist hins vegar vera
komin á aðra skoðun. Að minnsta
kosti hyggst hún nota sér í aukn-
um mæli þær aðferðir við að
breiða út orðið sem dýrkendur
mammons hafa hingað til verið
þekktari íýrir að grípa til. Hún
ætlar að taka auglýsingastofur
landsins í sína þjónustu.
Þetta virtust a.m.k. fulltrúar
þjóðkirkjunnar, verslunarinnar og
auglýsingageirans vera sammála
um á málþingi um táknmál trúar
og auglýsinga sem haldið var í
Þjóðmenningarhúsinu við Hverf-
isgötu síðastliðinn þriðjudag.
Til málþingsins buðu Biskups-
stofa, Samtök verslunarinnar,
Samband íslenskra auglýsinga-
stofa, Húsfélag Kringlunnar og
Þróunarfélag miðborgarinnar.
Þetta er sömu aðilar og vinna
saman að því að veita auglýsing-
um og kynningarefni viðurkenn-
ingu fyrir að vera „í samhljóm við
anda jólanna og vekja fólk til um-
hugsunar um jólaboðskapinn",
eins og það er orðað.
Það er kannski ekki sanngjarnt
að segja þjóðldrkjuna ætla að taka
dyggasta þjón mammons í sína
þjónustu. Tímarnir eru breyttir,
og þjóðkirkjan á sér kannski ekki
annars kost en að fýlgja straumn-
um.
Fyrstur til máls á málþinginu
tók Sverrir Björnsson frá auglýs-
ingastofunni Hvíta húsið, en
hann ræddi um trú og auglýsing-
ar.
Taka ekki afstöðu
Hann sýndi tvö dæmi um hvernig
auglýsingar hafa verið notaðar til
þess að vekja athygli á málstað
trúarinnar. Annars vegar er aug-
lýsingaherferð á vegum biskupa-
kirkjunnar í Bandaríkjunum, sem
þótti vel heppnuð og vakti mikla
athygli á sínum tíma, en hins veg-
ar ákveðna tilraun sem FIT stóð
fyrir hér á landi fyrir nokkrum
árum og nefndist Auglýsingar IýT-
ir almættið, en þá var efnt til
samkeppni um auglýsingar í þágu
trúarinnar og var afraksturinn
m.a. settur upp á sýningu í
nokkrum kirkjum landsins.
Sverrir hélt því fram að auglýs-
ingabransinn taki í sjálfu sér enga
afstöðu til þess hverjir notfæri sér
möguleika hans og þekkingu,
heldur sé hann tiltækur hverjum
sem er til þess að koma boðskap
sínum á framfæri. Þannig séu
auglýsingar ekki bara notaðar af
kaupmönnum, heldur noti mann-
réttindasamtök og önnur samtök
sem hafa fýrir góðum málstað að
berjast óspart auglýsingatækni
nútímans og oft með góðum ár-
angri.
Sverrir fræddi einnig áheyrend-
ur á því að fýrsta auglýsingin, sem
sögur fara af, hafi birst á prenti
árið 1407 og þar hafi verið á ferð-
inni prestur sem var að auglýsa
sálmabækur. Þannig að það sé
hreint ekki neitt nýtt að kirkjunn-
ar menn notfæri sér auglýsingar.
I máli Sverris kom einnig fram
að kirkjan hafi fyrr á öldum verið
dugleg að notfæra sér tækninýj-
ungar til þess að koma boðskap
sínum á framfæri. Jafnskjótt og
Gutenberg var búinn að finna
upp prenttæknina gripu klerkar
tækifærið og tóku prentmiðla
óspart í sína þjónustu.
Hins vegar hafi þessi áhugi
kirkjunnar á þróun tækninnar í
boðmiðlun minnkað verulega eft-
ir því sem hún efldist á 19. öld og
fram á síðustu áratugi. Tilkomu
ritsímans lét hún fara fram hjá
sér að mestu, sömuleiðis símann,
útvai'pið, sjónvarpið, tölvurnar og
Netið. Það er cins og sumir hafi
tekið það einum of alvarlega, þeg-
ar Nietzsche lýsti því yfir að guð
væri dauður, segir Sverrir.
Þarf að endurnýja
táknmálið
Séra Irma Sjöfn Oskarsdóttir tók
næst til máls, en hún er ekki bara
prestur heldur líka fjölmiðlafræð-
ingur. Hún ræddi um táknmál
trúarinnar og fræddi áheyrendur
á nokkrum helstu táknum sem
kristin kirkja notar, þar á meðal
ýmsar útfærslur af krossinum og
fisktáknið gamla.
Hún sagði nauðsynlegt að tákn
kirkjunnar væru í stöðugri endur-
nýjun og þeim gefið nýtt líf þegar
þörf krefur. Hún sagðist telja að
kominn væri tími til þess að finna
tákn sem væru auðskildari nú-
tímafólki, sem þekkir ekki alltaf
þá löngu sögu sem er að baki
fornum táknum kirkjunnar.
Hún benti einnig á að kirkjan
mætti ekki bara líta á fjölmiðla
sem tæki til þess að koma boð-
skap sínum á framfæri, heldur
séu þeir veruleiki sem umlykur
okkur öll. Kirkjan hljóti að taka
mið af þeim veruleika sem bún
býr við.
„F.r ekki hægt að nota auglýs-
ingar til þess að hreyfa heim-
inn til samúðar?“ spurði Irma
Sjöfn. Auglýsingar megi nota til
annars en að auka neyslu. Þær
megi nota til þess að draga úr
neyslu og þeirri ofuráherslu
sem er á hana í samfélagi okk-
ar.
Við eigum samleið
Síðastur tók til máls Guðmar
Magnússon frá Samtökum versi-
unarinnar - FIS. Hann ræddi al-
mennum orðum um auglýsingar
og verslun, en sagðist í lok máls
síns vona að hið nýja samstarf
þeirra sem buðu til málþingsins
um að verðlauna auglýsingar
geti orðið til þess að auglýsend-
ur setji sig betur inn í táknmál
trúarinnar og vandi sig betur
fyrir jólin. Þátttaka þjóðkirkj-
unnar í þessu samstarfi bcri vott
um víðsýni kirkjunnar manna og
vilja þeirra til að taka þátt í lífi
þjóðarinnar.
Af þessum erindum og um-
ræðunum sem urðu á eftir mátti
ljóst sjá að fulltrúar þjóðkirkj-
unnar og fulltrúar mammons ná
orðið býsna vel saman og hyggja
á langt og gott samstarf á næstu
vikum og árum. Enda eru tím-
arnir breyttir og kannski á kirkj-
an ekki annars kosta völ en að
notfæra sér aðferðir binna nýju
tfma, vilji hún lifa góðu lífi á
næstu öld. -GB
Spil fýrir rottur og aldraða!
í vikunni birtist
upplffgandi frétt
fyrir alla
bridgespilara.
Kynnt var
bandarísk rann-
sókn sem sýndi
ffam á að bridge
örvar ónæmis-
kcrfið, þar sem
krefjandi við-
fangsefni au ka
framleiðslu hvítu blóðkornanna.
Þetta eru ánægjuleg tíðindi lyrir
alla þá Islendinga sem leggja
stund á þessa göfugu íþrótt.
Reyndar kviknuðu efasemdir
um trúverðugleika rannsóknar-
innar þegar í ljós kom að athug-
unin byggði á annars vegar ní-
ræðu fólld og hins vegar rottum
og músum. Engum sögum fór af
því hvaða kerfi rotturnar spiluðu
og ekkert var farið út í fylgifiska
spilsins svo sem háan blóðþrýst-
ing, taugaveiklun, þunglyndi og
svefnröskun - eldd síst eltir að
menn fara niður á borðleggjandi
slemmum. Bridge er holl og góð
íþrótt samkvæmt rannsókninni.
Fyrir rottur og aldrað fólk að
minnsta kosti.
Heldri dömur sigruðu
íslandsmót kvenna í tvímenningi
var spilað um síðustu helgi. Mjög
góð þátttaka var í mótinu eða 26
pör. Erla Sigurjónsdóttir og Krist-
jana Steingrímsdóttir tóku
snemma fory'stu og héldu henni
örugglega allt til loka. Glæsilegt
hjá hinum heldri meyjum!
Lokastaðan:
1. Erla Sigurjónsdóttir
- Kristjana Steingrímsdóttir 210
2. Ljósbrá Baldursdóttir
- Anna Þóra Jónsdóttir 164
3. Hjördís Sigurjónsdóttir
- Ragnheiður Nielsen 132
4. Anna fvarsdóttir
- Guðrún Oskarsdóttir 109
5. Esther Jakobsdóttir
- Dröfn Guðmundsdóttir 80
Meir af þunnum slemmum
Um síðustu helgi skoðuðum við
þunna slemmu frá lslandsmótinu
í tvímenningi. 1 dag skoðum við
aðra þunna sem kom upp í næsta
spili, enda stundum skammt
stórra högga á milli. Lesandanum
er boðið að velja útspil með
GT65 í spaða eyðu í hjarta,
KGT98 í tígli og ÁT86 í Iaufi.
Þannig ganga sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
pass 1 grand pass 2tíglar
pass 2grönd pass 3tíglar
pass 4lauf pass 4 spaðar
pass óhjörtu allir pass
Sagnir þarf að skýra. Tveir tígl-
ar voru yfirfærsla í hjarta og 2
grönd sýndu góða hendi með
hjartastuðningi. Næstu 3 sagnir
voru fýrirstöðusagnir og síðan
stökk norður í slemmuna. Hvert
er útspilið?
Á Islandsmótinu spilaði austur
út laufás en hefði hnekkt slemm-
unni hratt og ömgglega með
spaðaútspili. Athyglisvert var í
mótinu að tvær slemmur að
minnsta kosti voru betri með því
að spila þær á veiku hendina eftir
grandopnun. Ef einhveqir eru
ennþá til sem ckki spila yfirfærsl-
ur, eru þetta gleðitfðindi fy'rir þá.
Allt spilið:
ý D8
y ’ AD952
i ► A43
4 • KG3
4 K732 N 4 GT65
V 876 V
♦ D752 V A ♦ KGT98
4 42 S 4 ÁT86
4 ■ Á94
y ’ KGT43
i ► 6
4 D975
Örn og Guðlaugur Kauphall-
armeistarar
Ka u ph a 11 a rtví menningi
Bridgefélags Reykjavíkur er lok-
ið með sigri fyrrum heimsmeist-
ara, Arnar Arnþórssonar og
Guðlaugs R. Jóhannssonar. Þeir
íslandsmeistarar kvenna i tvímenningi
ásamt formanni BSÍ.
sigruðu með nokkrum yfirburð-
um eða 3082 stig. í öðru sæti
urðu Helgi Sigurðsson-Helgi
Jónsson með 2569 stig en
feðgarnir Snorri Karlsson-Karl
Sigurhjartarson urðu þirðju með
2084 stig.
Tryggvi á toppnum
Hraðsveitakeppni Bridgefélags
Akureyrar hófst sl. þriðjudags-
kvöld. Staða efstu sveita:
1. Sveit Trvggva Gunnarsson-
ar 281 stig
2. Sv. Gylfa Pálssonar 279
3. Sv. Ragnheiðar Haralds-
dóttur 259
Gylfi bestur í Hlíðabæ
Tvímenningur UMSE fór fram í
Hlíðabæ um síðustu helgi.
Keppt var um silfurstig og varð
lokastaða efstu para:
1. Gy'lfi Pálsson
-Helgi Steinsson 342
2. Frímann Stefánsson
-Örlygur Örlygsson 328
3. Jón A. Jónsson
-Hermann Aðalsteinsson 326
4. Hákon Stefánsson
-Gústaf Þórarinsson 322
Nýtt keppnisform
„Tösku-hridge" er skemmtilegt
keppnisform, sem Hollendingar
tóku upp fyrir nokkrum árum.
24 forgefin spil eru í töskunni
sem er lánuð í heimahús gegn
1.500 kr. gjaldi. Keppnisfyrir-
komulag er tvímenningur
(Mitchell) og er mótið reiknað
út í tveimur riðlum N-S og A-V.
Þannig geta allir kynnst keppn-
isbridge og tekið þátt í
bridgemóti þegar þeim hentar.
Hvert mót er spilað í tvo mán-
uði, þá er reiknað út og úrslitin
birt í bridgeþætti Arnórs Ragn-
arssonar í Morgunblaðinu. Ný
„taska" verður útbúin fyrsta
hvers mánaðar, þannig að alltaf
eru tvö mót í gangi í senn.
Fyrstu úrslit verða birt í byrjun
janúar. Spilað er um bronsstig
samkvæmt reglum BSI. Allar
upplýsingar hjá Bridgesambandi
íslands, Þönglabakka 1, 3. hæð.
Sfminn er 587 9360.