Dagur - 25.11.2000, Blaðsíða 18
18- LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
LÍPW J LrhJD JjJU y
Lana Turn-
ervar ein
umtalað-
asta
Hollywood-
stjarna síns
tíma en
það fór aldrei sérlega
mikið fyrir hæfileikum
hennar. Hún giftist sjö
sinnum, átti í ótal ástar-
samböndum þar á með-
al við glæpamann sem
dóttir hennar myrti.
Móðir Lönu Turner var einungis
sautján ára þegar hún eignaðist
árið 1922 dóttur með Virgil
Turner sem var námuverkamað-
ur. Hjónin skildu og þegar Lana
litla var tíu ára var faðir hennar
myrtur. Hann hafði unnið tölu-
verða fjárhæð í fjárhættuspili og
þar sem hann var á heimleið
síðla nætur var hann barinn í
höfuðið og rændur. Morðið var
aldrei upplýst.
Lana var fimmtán ára gömul
þegar hún var uppgötvuð og
dubbuð upp i' hlutverk
Hollywoodstjörnu. Hún naut
þess að vera stjarna og lifði hinu
Ijúfa lífi. A skömmum tíma öðl-
aðist hún nafnbótina „drottning
næturklúbbanna". Hún kynntist
hljómsveitarstjóranum og klar-
inettuleikaranum snjalla Artie
Shaw sem þótti einn greindasti
og víðlesnasti maður í
Hollywood. „Lana var heimsk,“
sagði Artie Shaw, „en ég kunni
vel við hana því þaö var ekkert
illt til í henni. Hjónabandið stóð
í fjóra mánuði. Lana sagði
seinna að hjónabandinu hefði
verið lokið þremur dögum eftir
hjónavígsluna en hún hefði ver-
ið svo upptekin við kvikmynda-
upptökur að hún hefði ekki haft
tíma til að segja eiginmanni sín-
um frá því. Lana og Shaw sáust
þó oft saman eftir skilnað þeirra
og um tíma var talið að þau
myndu gifta sig á ný. „Það
hvarflaði að mér að giltast henni
aftur,“ sagði Shaw, „en skyndi-
lega fór ég að hugsa um þessi
hundrað skópör sem hún átti, og
ég vissi að ég myndi ekki þola
hjónaband með henni í annað
sinn.“
Fjörug hjónabönd
Tæpu ári eftir skilnað þeirra
Shaws giftist Lana í annað sinn
óþekktum manni, Stephen Cra-
ne sem sagðist vera í tóbaksvið-
skiptum. I raunveruleikanum
var hann smákrimmi og vinur
hins alræmda mafíósa Bugsy Si-
egel. Hálfu ári eftir að Lana
fæddi dóttur þeirra, Cheryl,
sótti hún um skilnað.
Næsti eiginmaður var Bob
Topping, vellauðugur viðskipta-
jöfur. Lana var í sárum eftir mis-
heppnað ástarævintýri með leik-
aranumTyrone Power sem hún
sagði á efri árum að hefði verið
stóra ástin í iífi hennar. Hún
elskaði ekki Topping og sagði
honum það. Hann sagði að það
gerði ekkert til, hún myndi læra
að elska hann. Það fór ekki svo
en hún tolldi merkilega lengi í
hjónabandinu miðað við að hún
var óþolinmóð kona sem var sí-
fellt að leita að nýjung-
um. Þegar hún sótti
um skilnað frá Topping
eftir tæplega fimm ára
hjónaband gaf hún sem
ástæðu sjúklega af-
brýðisemi hans og
sagði hann hafa barið
sig og tvisvar hótað að
skjóta hana. Þegar þau
giftust hafði Lana sagt
við blaðamenn: „Þetta
er að eilífu.“ Eftir
skilnaðinn sagði í einu
dagblaði: „Ný skilgrein-
ing á eilífð - fjögur ár,
sjö mánuðir, átján dag-
ar, nítján klukkustundir
og tuttugu og sex mín-
útur.“
Næstur í röð eigin-
manna var Lex Barker
sem vann sér nokkra
frægð í kvikmyndum
fyrir að leika Tarzan.
Þegar leikkonan giftist
honum lögðu allnokkr-
ir vinir leikkonunar
hver um sig hundrað
dollara í pott í veðmáli
um það hversu hjóna-
bandið myndi standa
lengi. Meðan Lana var
í hjónabandi með
Barker sagði MGM
upp samningi sínum
við hana. Hún var 36
ára og hafði unnið hjá
fyrirtækinu í átján ár
en einkalíf hennar fékk
veglegri umljöllun í
dagblöðum en kvik-
myndaleikur hennar
sem þótti oftast heldur
léttvægur. Uppsögnin __
var Lönu mikið áfall og
annað áfall var þegar
hún komst að því að Barker
hafði misnotað táningsdóttur
hennar kynferðislega. Þegar
Lana komst að framferði
Einkalíf Lönu Turner var sífellt umfjöllunarefni slúðurblaða enda afnógu að taka. Minna
fór fyrir leikhæfileikum hennar.
fi
með peningasendingar á
milli manna en ekki hafði tekist
að sanna það verk á hann.
Hann hafði vcrið giftur þrisvar
og átti ungan son en Lana frétti
henni. „Þú þarft ekki að þola
þetta, mamma," sagði Cheryl
um leið og hún stakk hnífnum í
kvið Stompanato sem féll í gólf-
ið. Hann lést skömmu síðar af
sárum sínum.
Þegar lögreglan kom á vett-
vang grátbað Lana um að fá að
taka á sig sökina og vildi hlífa
dóttur sinni við erfiöum rcttar-
höldum. Henni var sagt að allra
vegna væri best að sannleikur-
inn yrði sagður. Eftir söguleg
réttarhöld var Cheryl sýknuð,
talin hafa framið morðið í til-
finningalegu uppnámi.
Fleiri hjónabönd
Fimmti eiginmaður Lönu var
Fred May sem ræktaði hesta.
Hann var góöur maður, senni-
lega sá besti sem hún giftist.
En í hennar augum bjó hann
yfir einum skelfilegum galla,
hann var venjulegur maður.
Lana var kona sem alla ævi
hafði þrifist á dramatík og hún
horfði á lífið eins og væri það
kvikmynd þar sem atburðarásin
ætti stöðugt að halda athvgl-
inni og vera full af ævintýrum.
Henni fór að leiðast hinn góð-
lyndi eiginmaður og skildi við
hann. Nokkrir vinir leikkon-
unnar töldu að hún hefði gert
stærstu mistökin í lífi sínu með
því að yfirgefa Fred May.
Sjötti eiginmaðurinn var Bo-
bert Eaton sem var tíu árum
yngri en hún. Hjónaband
þeirra byggðist aðallega á sam-
eiginlegri drykkju og varð ekki
Ianglíft. Sjöundi og síðasti eig-
inmaðurinn var Ronald Dante
sem var dáleiðandi. Einn dag-
inn hvarf Dante með háa ávís-
un sem Lana hafði skrifað upp
á. Hjónabandið hafði einungis
staðið í sex mánuði. Dantc
sagði seinna að hann hefði
veðjað við vin sinn um að hann
myndi giftast Lönu innan
þriggja mánaða frá kynnum
þeirra. Hann vann veðmálið
auðveldlega því þau höfðu ein-
ungis þekkst í tvær vikur þegar
þau giftust.
Síðasti karlmaðurinn í lífi
hennar var Taylor Pero sem var
einkaritari hennar. Hann var
mörgum árum vngri en hún og
leyndi þvf ekki að hann hneigð-
ist til karlmanna. Að hans sögn
urðu þau elskendur en í óá-
reiðanlegum endurminningum
sínum neitaði hún að svo væri.
Þegar Dante yfirgaf Lönu árið
1979 var hún niðurbrotin
kona. Hún eyddi síðustu árum
sínum Ijarri sviðsljósinu og lést
árið 1995.
Með elskhuga sínum glæpamanninum Stompanato og dóttur sinni Cheryl
sem varð honum að bana.
Með Fernando Lamas í myndinni Kátu ekkjunm.
inn í svefnherbergi þeirra þar
sem hann lá uppi í rúmi, beindi
að honum byssu og sagði hon-
um að hypja sig burt. Hann var
fljótur að taka til fótanna.
Hneyksli í Hollywood
Nú Ienti Lana í meira klandri í
einkalífi en nokkru sinni fyrr.
Hún kynntist manni sem kallaði
sig John Steele cn hét réttu
nafni Johnny Stompanato og var
glæpamaður. Hann lifði aðallega
á því að hafa ofan af fvrir ríkum
konum og fá hjá þeim lán sem
hann horgaði aldrei. Hann hafði
verið handtekinn sex sinnum og
sakaður um flæking og rán.
Hann var sterklega grunaður um
að vera sendiboði mafíunnar og
ckki af hjónaböndum hans fyrr
en eftir dauða hans. Hann var
sjúklega afbrýðisamur, ofbeldis-
fullur og stjórnsamur.
Stompanato hótaði Lönu
margoft þætti honum hún ger-
ast of sjálfstæð. Eitt sinn reyndi
hann að kyrkja hana og hann
hótaði að skera hana í andlitið
með rakvélablaði. Dag nokkurn
kom hann að heimili hennar og
hótaði að skera andlit hennar og
lama hana. Hann sagðist skyldu
gera það sama við móður henn-
ar og dóttur. Cheryl, fjórtán ára
gömul dóttir Lönu, hlustaði á
hótanir hans. Hún varð skelf-
ingu lostin, hljóp inn í eldhús,
greip hníf og hljóp til herbergis
nióður sinnar þar sem
Stompanato var enn að hóta