Dagur - 25.11.2000, Qupperneq 4
4 - LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
Xfc^wir
laugard. 25.nov. kl. 20.00
föstud. 1. des. kl. 20.00
laugard. 2. des. kl. 20.00
laugard. 9. des. kl. 20.00
Síðustu sýningar fyrir jól
Samstarfssýning
Leikfélagsins og Vitlausa
leikhópsins:
T-veir wisÞ/jfe|
rvit ;lat isif
wmu
Trúðaleikurinn
eða Skralli og Lalli eftir
Aðalstein Bergdal
Frurti^ýning
laugard. 2. deSvÆI. 15.00
sýningNv,v
sunnud. 3. des. kl. T^.OO
'* \
Leikarar:
Aðalsteinn Bergdal og
Skúli Gautason
Leikmynd:
Þórarinn Blöndal,
Búningar:
Þórarinn og Kristín
Sigvaldadóttir
Hljóðmynd:
Gunnar Sigurbjörnsson
Tónlist:
Skúli Gautason.
Leikstjóri:
Þráinn Karlsson
TRÚÐABOLIRNIR KOM-
NIR skemmtileg gjöf fyrir
börnin
Kortasalan enn
í fullum gangi!
Jólagjöfin í ár
fyrir pabba og mömmu,
afa og ömmu
og alla hina.
Gjafakortí leikhúsið.
íniniiiliiiBnlínllni.il
iLEIKFÉLAG AKHRFYRARI
Miðasalan opin alla virka daga,
nema mánudaga, frá kl. 13:00-
17:00 og fram að sýningu,
sýningardaga.
Sími 462 1400.
www.leikfelag.is
í nánd við Nóbelsskáld
Halldór Kiljan Laxness vélritar við Kaldakvíst rétt hjá heimili sínu
að Gljúfrasteini. Myndin, sem var tekin um 1950, er i bókinni.
Margt var skrif-
að um Nóbels-
skáld Islendinga
á tuttugustu
öldinni, og vafa-
laust munu fjöl-
margar ritgjörð-
ir og bækur um
manninn og
skáldið Halldór
Kiljan Laxness
koma út á
næstu árum og
áratugum.
Eitt rit af þessu tagi hefur
þegar séð dagsins ljós í jóla-
bókaflóði ársins - Nærmynd af
Nóbelsskáldi - en þar lýsa marg-
ir samferðamenn persónulegum
kynnum sínum af Halldóri. i
bókinni eru 26 greinar og viðtöl
á ríflega 400 blaðsíðum. Rit-
stjóri bókarinnar, Jón Hjaltason
sagnfræðingur, tekur fram i for-
mála að höfundarnir hafi ekki
verið settir á neinn samræming-
arbás. Enda eru þcssi skrif hver
með sínum hætti. I sumum
greinum/viðtölum er daglegt líf
Halldórs í fyrirrúmi, í öðrum er
mun almennari umfjöllun um
skáldið, og á stundutn segja
höfundar eða viðmælendur
meira frá sjálfum sér eða öðru
fólki en Halldóri. Þar sem ekki
er um samræmingu að ræða
kemur einnig fyrir að sagt er frá
því sama á nokkrum stöðum,
jafnvel sömu gamansögurnar af
Halldóri. Þótt flestir þættir bók-
arinnar virðist samdir sérstak-
lega vegna útgáfu hennar eru
bér einnig greinar sem birst
bafa áður.
Þau sem næst stóðu
Valiö á höfundum/viðmælend-
um í bókinni er nokkuð fjöl-
breytt. Ymsir úr nánustu fjöl-
skyldu Halldórs segja hér frá, og
fólk sem vann á heimili hans,
en etnntg margir sem
áttu einkum saman við
hann að sælda vegna
skáldverkanna.
Frá sjónarhóli þess
sem hér skrifar er
mestur fengur að skrif-
um og ummælum þeir-
ra sem tengdust Hall-
dóri nánustu böndum.
Það á við um frásagnir
barna skáldsins - Mar-
íu, elsta barnsins sem
Halldór átti utan
hjónabands, Einars
Laxness, son skáldsins
af fyrra hjónabandi, og
Sigríðar, elstu dóttur
Halldórs og Auðar, síð-
ari konu hans. Eins
gefur Jón Gunnar Ott-
ósson, sem var tengda-
sonur Halldórs,
skemmtilega lýsingu á
samskiptum þeirra.
Ymis sérkennilegheit
skáldsins og daglegar
venjur koma skemmti-
lega fram hjá sumum
höfundum:
„Þegar ég man fyrst
eftir Halldóri, þá var
hann afskaplega sinn-
ugur um allan sinn
klæðnað og sumir köll-
uðu hann spjátrung.
Klæðnaðurinn og fatasmekkur-
inn sem hann hafði var framúr-
stefnulegur, venjulegum mönn-
um þótti það hið undarlegasta
mál þegar Halldór klæddi sig
upp á og var oft hlegið að
klæðaburði hans,“ (bls. 287)
segir Jón Guðmundsson á
Reykjum.
„En af þessari snyrtimennsku
hans og fágaðri framkomu
spratt sá furðulegi misskilning-
ur, sem ég varð var við hjá sum-
um mönnum, að Halldór væri
montinn, liti stórt á sig og þætt-
ist yfir aðra hafinn. En það var
nú öðru nær," segir Hörður
Oskarsson prentari (bls. 196-
197).
Örvandi tíð
Það er ekki mikið farið ofan í
hina pólitísku hlið á Halldóri í
þessari bók. Sjálfur bregður
hann þó upp skemmtilcgri
mynd af stöðu sinni á baráttu-
tímum fyrri hluta tuttugustu
aldarinnar: „Það var mjög
örvandi tíð og ég er þakklátur
fyrir að hafa Ient þar in medias
res í bókstaflegum,
Iíkamlegum skilningi
- eins og maður á
blánkuskóm í miðri
skothríðinni," hefur
Árni Bergmann eftir
honum (bls. 402).
En Halldór stóð
ekki einn. Á það
minnir Einar Laxness
með eftirfarandi orð-
um um foreldra sína:
„En þau áttu sannar-
lega góða að, sem
tóku þátt í þessu lífi
þeirra, studdu þau og
uppörvuðu og skynj-
uðu frá fyrstu tíð mik-
ilvægi Halldórs fyrir
íslenskar bókmenntir,
og hvers af honum
mætti vænta, ef snilli-
gáfa hans fengi ótrufl-
uð að njóta sín“ (bls.
82).
Þessi staðreynd
kemur glöggt fram hjá
mörgum þeim sem
hér ausa af brunni
minninga sinna. Þau
ummæli staðfesta orð
Einars Laxness að
margir einstaklingar
verðskuldi að þeirra
sé niinnst þegar lífs-
saga Halldórs er
skráð. Og það er einn af kostum
bókarinnar að hún gefur ekki
aðeins fróðlegar svipmyndir af
daglegu lífi skáldsins, heldur
dregur einnig fram í dagsljósið
sumt af því ágæta fólki scm var
óþreytandi að gera honum kleift
að helga sig skáldgyðjunni.
NÆRMYND AF NÓBELS-
SKÁLDl.
Ritstjóri: Jón Hjaltason.
Útgefandi: Bókaútgáfan Hól-
ar.
BÓKA-
HILLAN
Sápuóperan eða lífið
Renée Zellweger og Morgan Freeman eru I aðalhlutverkum í þessari óborgan-
legu gamanmynd.
★ ★ ★
Nurse Betty.
Aðalhlutverk:
Renée
Zellweger,
Morgan Freem-
an, Chris Rock
og Greg Kinna-
er.
Leikstjóri: Neil
LaBute.
Það er merkilega
bjart vfir þessari
gamanmynd, miðað við það hve
svartur húmorinn verður að telj-
ast. Og þótt söguþráðurinn sé ekki
bara ótrúlegur, heldur nánast súr-
realískur á köflum, þá er hérna
ekkert dellumakerí á ferðinni.
Þarna cr vandað til allra verka og
heil hugsun er greinilega að baki
þessari snotru gamanmynd.
Hér segir frá ungri konu, Betty
Si/.emore, sem er gift drulludela
nokkrum, Del að nafni, sem fer
með hana eins og gólftusku. Bettv
lætur sig dreyma um að verða
hjúkrunarkona, en það er tómt
mál um að tala. Delinn tekur það
eldd í mál.
Tilvera hennar cr það ömurleg,
að eina leiðin sem hún eygir, til
þess að f’á eitthvað út úr Iífinu, cr
að fýlgjast með uppáhaldssápuóp-
erunni sinni og láta sig dreyma um
sæta lækninn sem þar er í aðal-
hiutverki.
Svo gerist það einn dag að eigin-
mannsófétið fær heim til sín tvo
skuggalega menn, sem hann á í
viðskiptum við. Leikar fara svo að
þeir kála honum, en taka ekki eft-
ir því að Betty er í næsta herbergi
og sér hryllinginn.
Betty átti svo sem nógu erfitt
fyrir, en að horfa upp á viðbjóðs-
legt morð á eiginmanninum ríður
henni að fullu ancnega. Hún fer
gjörsamlega úr sambandi við
raunveruleikann og telur sig vera
stadda í sápuóperunni sinni. Og
er sannfærð um að sæti Iæknir-
inn sé fyrrverandi kærastinn
hennar, en sjálf sé hún hjúkrun-
arkona. En loksins veit þessi
ógæfusama kona nákvæmlega
hvað hún á að gera við líf sitt.
Hún hefur fundið tilgang sinn.
Morðingjarnir tveir átta sig
hins vegar fljött á því að eigin-
konan sá voðaverkið, sem þeir
frömdu, en grípa í tómt því hún
er lögð af stað þvert yfir Banda-
ríkin til að finna gamla kærast-
ann, lækninn sem er ekki til í al-
vörunni heldur aðeins persóna í
sápuóperu.
Það er Renée Zellweger sem
leikur Betty hjúkrunarkonu, og
smellpassar í hlutverkið. Margir
kannast væntanlcga við hana úr
Jerry Maguire, þar sem hún lék á
móti Tom Cruise, og Me, Myself
and Irene, þar sem hún Iék á
móti Jim Carrey.
Morðingjana tvo leika þeir
Morgan Freeman og Chris Rock.
Freeman fer þarna svolítið á
skjön við lyrri hlutverk sín, en
gerir það Ijómandi vcl eins óg
hans er von og vísa. Chris Rock
er ekki síðri, en hann mun vera
sjónvarpsstjarna vestra og kjaft-
hákur mikill. Saman eru þeir al-
veg hreinl kostulegt par, sem set-
ur sterkan svip á myndina.
Það er stór kostur á þessari
mynd að söguþráðurinn er aldrei
fyrirsjáanlegur. Þess vegna er
heldur ekki rétt að vera að rckja
hann mikið frekar hér til þess að
spilla ekki fyrir þeim sem eiga
eftir að sjá myndina.
Það er líka kostur við þessa
mynd að hún hangir ekki í þvf aö
vera dæmigerð gamanmynd, því
hún hleypur út undan sér við
hvert tækifæri og snýr sér Ieik-
andi upp í blóðuga ofbeldismynd
í anda Tarantinos þegar svo ber
undir á milli þess að vera hin Ijú-
fasta ævintýramynd sem minnir
um margt á Caldrakarlinn í Oz.
Það boðar reyndar sjaldnast
mikla gæfu, að finna tilgang sinn
í sápuóperu. En eins og glöggt
má sjá í þessari mynd, getur
stundum verið nauðsynlegt að
snúa veruleikanum á hvolf’ til
þess að komast út úr honum og
finna nýjan og betri heim.
KVIK-
MYNDIR